Morgunblaðið - 19.09.1982, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
39
Júlíus Á. Jónsson
- Minningarorð
Kveðja frá starfs
félögum á Bæjarleiðum
Fæddur 19. júlí 1908
Dáinn 13. september 1982
Júlíus var fæddur að Klukku-
landi í Dýrafirði, en fluttist þaðan
með foreldrum sínum til Reykja-
víkur og ólst upp að Leynimýri við
Reykjanesbraut.
Þegar hann þá ungur að árum
fór að geta fært fé í bú, hóf hann
ýmis störf sem til féílu, meðal
annars hjá Mjólkurfélagi Reykja-
víkur, og mun hann þá hafa lært
og tekið próf til bifreiðaaksturs,
til að öðlast einhver réttindi til
lífsbaráttunnar, því í þá tíð voru
erfiðleikar til skólagöngu fyrir fá-
tæk ungmenni.
Síðar var honum veitt sérleyfi
til reksturs fólksflutninga á sér-
leyfisleið Kjalarnes — Kjós. Rak
hann þá þjónustu með myndar-
brag um margra ára skeið, við
miklar vinsældir bæði heima-
manna sem og annarra er þjón-
ustu hans nutu, enda var hann
ætíð kenndur við Kjósina þó ætt-
aður væri af Vestfjörðum.
Það töluðu ávallt flestir sem til
þekktu um Júlla rútubílstjóra úr
Kjósinni, enda var hans annað
heimili á þeim árum að Neðra-
„VERKALÝÐS- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágr. er alvarlega
uggandi vegna þess ástands, sem
er að skapast í landinu í framhaldi
af þeirri ákvörðun útvegsmanna
að stöðva fiskiskipaflotann," segir
í fréttatilkynningu, sem Morgun-
blaðinu hefur borizt frá félaginu.
„Með þeirri ákvörðun er verið
að stöðva þá undirstöðustarf-
semi, sem allt efnahagslíf þjóðar-
innar byggist á og í kjölfar at-
vinnuleysis í fiskveiðum og fisk-
vinnslu mun fylgja stöðvun ann-
arra atvinnugreina, fjöldaat-
vinnuleysi og efnahagslegt hrun.
Félagið fær ekki séð hvernig
tiltölulega fámennur hópur þjóð-
félagsþegna, sem að nafninu til
telur sig vera eigendur að at-
vinnutækjum, sem flest eru keypt
fyrir almannafé getur staðið
Hálsi í Kjós, þar sem hann átti
sumarhús fyrir sig og fjölskyldu
sína til afþreyingar og ánægju
þær fáu hvíldarstundir sem til
gáfust.
A þessum árum ók Júlli, sam-
fara áætlunarferðum Kjalarnes —
Kjós, hópferðalöngum vítt og
breitt um landið, við góðan orðstír
og með farsælum árangri. I slík-
um ferðum var hann hrókur alls
fagnaðar, sem einn af hópnum.
Það væri vafalaust hægt að rifja
upp margar ánægjulegar sam-
verustundir frá slíkum hópferð-
um. En þegar fram liðu stundir og
með breyttum þjóðfélagsháttum,
þar sem allflestir bæði yngri sem
eldri, bæði í kaupstað og sveit,
áttu orðið einkabíla, fór þörfin
síminnkandi fyrir þessa þjónustu
og endirinn var sá að Júlli gafst
upp á að reka sérleyfisbifreiðir
sínar og breytti þeim í vöru- eða
mjólkurflutningabifreiðir, þar
sem hann tók að sér mjólkur- og
vöruflutninga fyrir Kjósverja um
nokkurt skeið.
En þetta starf var erfitt og of
mikið álag fyrir mann á hans
aldri, svo hann varð að hætta
þessum rekstri. Þá sótti hann um
atvinnuleyfi til reksturs leigubif-
reiðar og var veitt það, hóf hann
ábyrgur fyrir slíkri ákvörðun og
þá síst þegar stöðvunaraðgerðum
er bæði leynt og ljóst ætlað að
knýja fram breytingar á skipta-
kjörum sjómanna, sem frjálsir
samningar hafa verið gerðir um.
Ríkisstjórn íslands hefði getað
komið í veg fyrir þetta ef hún
hefði tekið á vandamálum at-
vinnugreinarinnar eins og ráð-
herrar hafa marglofað, en jafnoft
svikið, og ef hún hefði ekki virt að
vettugi itrekuð tilboð og tilmæli
útvegsmanna og sjómanna um
samstarf við eðlilega lausn
vandans m.a. á grundvelli fisk-
verðsákvörðunar.
Úrræðaleysi ríkisstjórnarinn-
ar, sem gert hefur hana sam-
ábyrga því neyðarástandi sem er
að skapast firrir þó ekki útgerð-
araðila ábyrgð á aðgerðum, sem
vart eiga sér dæmi í íslenskri at-
vinnusögu."
þá þegar akstur með eigin bifreið
hjá Bifreiðastöð Bæjarleiða árið
1964 og starfaði þar til ársins
1981, að hann varð að hætta fyrir
fullt og allt vegna vanheilsu sem
hrjáð hafði hann um margra ára
skeið.
Júlíus giftist Guðríði Hansdótt-
ur árið 1930. Þau hófu búskap við
Grettisgötu í Reykjavík, en lengst
bjuggu þau á Laugateigi 42. Þeim
varð fjögurra barna auðið, en þau
eru: Hans, Jón Gunnar, Birna og
Kristín, sem öll eru lifandi og bú-
andi, bæði hér í Reykjavík og á
Vestfjörðum. Síðari kona Júlíusar
er Ásta Magnúsdóttir frá Mosfelli
og lifir hún mann sinn.
Maðurinn Júlíus var góður
drengur og félagi, sem öllum er
honum kynntust gat ekki annað en
þótt vænt um. Trygglyndi og
traust bar hann með sér í hlýju
svipmóti og því blíða brosi sem
ávallt kom fram er við hann var
rætt. Það eru minningar sem ekki
gleymast heldur geymast.
Þó gat Júlli ef svo bar undir ver-
ið ákveðinn og fastur fyrir, til
dæmis þegar honum fannst hann
bera ábyrgð á velferð ferðalanga
sinna í erfiðum hópferðum um
landið, þar kom fram samvisku-
semin.
Við starfsfélagarnir á Bæjar-
leiðum söknum okkar góða félaga
og vinar, sem ávallt mætti til
starfa að morgni dags með sinni
prúðmannlegu framkomu og brosi
á vör, sem yljaði öllum um hjarta-
ræturnar í erli dagsins.
Við þökkum honum samveru-
stundirnar á Bæjarleiðum og
geymum góðar minningar í hug-
um okkar, um hann sem við kveðj-
um nú hinstu kveðju þessa lífs.
Við óskum honum fararheilla í
faðmi sólar á friðarströnd fram-
tíðarinnar.
Öllum aðstandendum vottum
við okkar innilegustu samúð.
Jarðarförin fer fram frá Foss-
vogskirkju, mánudaginn 20. sept-
ember kl. 10.30 f.h.
Þorkell Þorkelsson,
Bæjarleiðum.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur um útgerðarvandann:
Urræðaleysi ríkisstjórnarinn-
ar hefur gert hana samábyrga
Bridge
Arnór Ragnarsson
Tafl- og bridge-
klúbburinn
Fimmtudaginn 23. september
byrja spilakvöld félagsins. Spil-
að verður eins kvölds tvímenn-
ingur. Spilað er í Domus Medica
kl. 19.30. Mætið tímanlega.
Tafl- og bridge-
klúbburinn
Aðalfundur félagsins verður
haldinn að Hótel Sögu, Bláa sal,
mánudaginn 4. október kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Bridgedeild
Víkings
Bridgedeild Víkings hefur
starfsemi sína á mánudags-
kvöldið 20. september og hefst
spilamennska klukkan 19.30,
stundvíslega. Starfsemin hefst
með tvímenningskeppni.
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
hefur starfsemi sína mánudag-
inn 21. nk. kl. 19.30.
Spilað verður í félagsálmu
íþróttahúss Hafnarfjarðar og
verður byrjað á sjálfstæðum
tveggja kvölda tvímenningi. Fé-
lagar eru hvattir til að fjöl-
menna og taka með sér nýja
meðlimi.
Bridgefélag
Suðurnesja
Spilamennskan hefst mánu-
daginn 20. september með ein-
menningskeppni sem jafnframt
er firmakeppni félagsins. Spilað
verður í félagsheimilinu Stapa,
litla sal. Spilamennskan hefst kl.
20, stundvíslega. Nýir félagar
velkomnir.
Bridgedeild
Breiðfirðings
2 Sextán para riðlar voru spil-
aðir sl. fimmtudag.
A-riðill: Stig
1. Brandur Brynjólfsson —
Þórarinn Alexanders. 235
2. Daníel Jónsson —
Karl Adolfsson 233
3. Guðmundur Arason —
Sigurður Ámundas. 232
4. Gísli Víglundsson —
Þórarinn Árnas. 229
5. Hjörtur Bjarnason —
Örn Scheving 228
6. Gróa Guðnadóttir — Guð-
rún Jóhannesdóttir 221
7. Albert Þorsteinss. —
Óskar Karlsson 215
Meðalskor 210
B-riðill: Stig
1. Högni Torfason —
Steingrímur Jónas. 269
2. Jón Ámundason —
Ólafur Valgeirss. 239
3. Gísli Stefánsson —
Rósmundur Guðmundss. 235
4. Helgi Nielsen —
Óskar Þ. Þráinss. 230
5. Ása Jóhannsd. —
Sigríður Pálsdóttir 227
6. Erla Eyjólfsd.—
Gunnar Þorkelsson 221
7. Jóhann Jóhanness. —
Kristján Siggeirss. 220
Næst verður spilað fimmtud.
23. sept. og hefst keppni stundv-
íslega kl. 19.30. Þá hefst 5 kvölda
tvímenningur.
Ágúst Ólafsson
— Minningarorð
Fæddur 16. ágúst 1897
Dáinn 10. september 1982
Á morgun, mánudaginn 20.
september, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík Ágúst
Ólafsson, fyrrverandi verkstjóri.
Hann varð bráðkvaddur á heimili
sínu, Sólvallagötu 52, síðdegis
föstudaginn 10. þ.m.
Ágúst var fæddur 16. ágúst 1897
að Hamri i Borgarhreppi. Foreldr-
ar hans voru hjónin Ólafur Sig-
urðsson, bóndi þar, og kona hans,
Geirþrúður Þorgeirsdóttir. Um
átta ára aldur fór hann frá for-
eldrum sínum til móðursystur
sinnar og eiginmanns hennar, Sig-
urðar Sigurðssonar, útvegsbónda í
Kirkjubæ á Akranesi. Hann var
þó heima hjá foreldrum sinum á
sumrin.
Um fermingaraldur fór hann að
stunda sjóróðra með fóstra sínum.
Síðan lá leið hans á togara og það-
an á farskip. 1917 fór hann að
starfa hjá Eimskip, sem þá rak
Willemoes, síðar Selfoss. Þar réðst
hann til Júlíusar Júlínussonar
skipstjóra. Síðan fylgdi hann Júlí-
usi er hann tók við E.S. Lagarfossi
og sigldi hjá honum sem bátsmað-
ur. 1927 tekur Júlíus við E.S. Brú-
arfossi og fylgdi Ágúst honum yfir
á það skip og siglir með Júlíusi
sem bátsmaður á E.S. Brúarfossi
til ársins 1941 er Július hættir
skipstjórn. Þá hefur hann störf í
landi hjá Eimskip sem verkstjóri
við höfnina og starfar þar við
verkstjórn þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir árið
1967.
Nokkrum árum síðar hóf hann
störf sem birgðavörður hjá Hótel
Borg og starfaði þar, þar til
snemma á þessu ári.
Árið 1923 kvæntist hann Jónínu
Bjarnadóttur frá Minnabæ í
Grímsnesi og er hún látin fyrir
þremur árum.
Þau hjónin eignuðust tvo syni,
Ragnar Georg, en hann drukknaði
/
með E.S. Dettifossi 1945, í lok
stríðsins, og Emil, núverandi
borgardómara. Barnabörnin eru
tvær telpur, Guðrún Dröfn og
Ragna Björk, augasteinar afa síns.
Fyrst sá ég Ágúst sumarið 1928,
þegar hann kom að Hömrum til að
heimsækja eiginkonuna og synina,
sem þá voru í sveit hjá foreldrum
mínum. Seinna þegar ég fór að
ferðast til Reykjavíkur á æskuár-
um mínum, þótti sjálfsagt að ég
dveldi á heimili þeirra eftir J)örf-
um. Á þessum árum var Ágúst
enn í siglingum.
Eftir að hann fór að vera í landi
sá ég hann miklu oftar. Það var
gaman að koma á Sólvallagötuna
þegar bæði voru heima. Oft sá ég
þau taka í spil eins og ung væru,
jafnvel eftir strangan vinnudag.
Jónína vann alltaf úti sem kallað
er og þegar hún var spurð hvernig
þetta gengi, svaraði hún því til, að
Ágúst væri sérstakur maður og
undir þetta vil ég taka. Hann var
sérstakur maður, prúður og hóg-
vær, sem lét ekki bilbug á sér
finna, þótt öldur lífsins væru
stundum krappar.
Að lokum sendi ég innilegar
samúöarkveðjur til allra ástvina
hans.
Ingibjörg Tönsberg
+
Þökkum auösýnda samuö og vináttu viö andlát og útför,
MARGRÉTAR O. EYJÓLFSDÓTTUR,
Stíghúsi, Eyrarbakka.
Péll Jónaason,
Guórún S. Kaaber,
og fjölskyldur.
+
Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og jaröarför fööur
okkar, tengdaföður, bróöur og afa,
JÓNS Þ. JÓNSSONAR,
Skipholti 53.
Alda Þ. Jónsdóttir, Magnús Eyjólfsson,
Haukur Jónsson, Hildegard OUrr,
Sigurlaug Jónsdóttir og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför
FRIOFINNS MAGNÚSSONAR,
Laugahlíó, Varmahlíö.
Ásdís Kristjánsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Þökkum af alhug vináttu og tryggö við fráfall eiginmanns míns,
fööur, tengdaföödr og afa,
JAKOBS V. HAFSTEIN,
er andaöist þann 24. ágúst sl.
Birna Hafstein,
Jakob V. Hafstein, Hólmfriður Gísladóttir,
Júlíus Hafstein, Erna Hauksdóttir,
Áslaug B. Hafstein, Ingimundur Konráösson,
Hildur, Birna, Jakob, Jakob V. Július.