Morgunblaðið - 19.09.1982, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.09.1982, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 SIR DOUGLAS BADER, flugkappinn með gervifæturna og einhver frægasti herflugmaður Breta í síðari heimsstyrjöldinni, er nýlátinn, 72 ára að aldri. Hann varð goðsögn í lifanda lífí og goðsögnin um hann átti sér enga hliðstæðu í sögu flugsins. Hann missti báða fætur þegar orrustuflugvéi hans af gerðinni Bristol Bulldog fórst í sýningarflugi á Woodley-flugvelli skammt frá Reading 1932, einu ári eftir að hann varð flugliðsforingi, tvítugur að aldri. Þegar eftirlitsmaður kom hlaupandi að flakinu með koníaks- flösku handa honum bandaði hann hendinni á móti henni og sagðist ekki drekka. Eftirlitsmanninum varð svo mikið um aö sjá hve illa Bader var slasaður að hann drakk koníakið sjálfur. Hann var eini maðurinn, sem trúði því ekki að ferli hans væri lokið. Hann varð ekki aðeins einn fræknasti orrustuflugmaður síðari heimsstyrjaldarinnar, heldur tákn þeirrar óbifandi þrjózku, sem Bret- ar sýndu á stríðsárunum. Þegar læknir tilkynnti Bader að hann hefði misst báða fætur sagði hann eins og ekkert hefði í skorizt: „Það gerir ekkert til. Ég fæ lengri fætur í staðinn. Ég hef alltaf viljað vera hávaxnari." Reyndar varð hann nokkuð styttri þegar hann var kominn með gervifætur, en hann afsannaði kenningar sérfræðinga, sem sögðu honum að hann gæti aldrei gengið staflaus. Öllum til mikillar furðu tókst honum að ganga óstuddur og meira að segja að dansa og leika tennis, „squash", krikket og golf. Hann hafði verið mjög góður í íþróttum þegar hann var í skóla og fyrirliði í knattspyrnu, „rugger“ og krikket. Rétt fyrir flugslysið kom hann til greina í landsliðið í „rugby“. Leikni Baders í golfi var vel lýst í kvikmyndinni „Reach for the Sky“, sem var gerð eftir samnefndri bók og átti þátt í að gera Kenneth More að heimsfrægum leikara. More, sem lézt í júlí í sumar, varð náinn vinur Baders. Það olli Bader miklum líkamleg- um kvölum þegar hann reyndi að læra golf, en hann náði mikilli færni í golflistinni að lokum. Hon- um gekk vel að aka bifreið og þegar það hafði tekizt ákvað hann aö sanna að hann hefði ekki glatað færni sinni i fluglistinni. „Hann vissi að hann gat flogið og bað mig að taka sig með í flugferð,“ sagði elzti vinur Baders, Joe Cox varaflugmarskálkur, eftir lát hans. „Hann var greinilega staðráðinn í því að fljúga á ný. Honum tókst að koma flugvélinni í loftið, lenda henni og leika listir sínar. Það var erfitt að trúa því að maðurinn fyrir aftan mig í flugstjórnarklefanum og flaug þessari flugvél óaðfinnan- lega væri með gervifætur." Starfsmenn flugvallarins neituðu að trúa því að Bader hefði verið sjálfur við stjórnvölinn. Cox fór þá með hann í aðra ferð og hélt hönd- unum fyrir ofan höfuðið til þess að sanna að það væri Bader, sem flygi flugvélinni. Bader stóðst öll þyngstu flugpróf þrátt fyrir fötlunina, en samt hafn- aði brezki flugherinn honum þar sem reglur flughersins segðu ekkert um mann, sem eins væri ástatt með Douglas Bader við Hurricane-flugvél sína. og hann. Næstu sex ár starfaði hann hjá Asíu-olíufélaginu, sem síðar varð Shell, í London. Þegar stríðið hófst bað Bader um að hann yrði aftur tekinn í flugher- inn í ótal umsóknum sem hann sendi flugmálaráðuneytinu. Honum var hafnað hvað eftir annað, en að lokum fékk hann vilja sínum fram- gengt með aðstoð vina á háum stöð- um. Hann var sendur til flugskóla, þar sem Cox og fleiri vinir hans störfuðu. „Við vissum allir að hann gat flogið," sagði Cox seinna, „og ég Vantar hlýiu ísumar- bústaðinn 2 Eda í vinnuskúrinn í vetur 2 55S SAMSUNG HITARAR I HAGSTÆTT VERÐ — MIKILL HFTI LÁR REKSTURS- KOSTNAÐUR Samsung hitarar, henta allstaðar vel þar sem þörf er fyrir mikinn hita á skömmum tíma. Samsung hitarar brenna hreinsaðri Ijósaolíu, algerlega lyktar- laust. Þeir nýta olíuna vel við brennslu. Þeir eru búnir öryggistanki, sem sýnir ávallt hversu mikið magn olíu er eftir og sjálf- virkum slökkvara, sem slekkur á ofninum ef hann veltur. m Grensásvegi 5, Sími: 84016 ^Haukne cht Frystiskápar og kistur Fljót og örugg frysting. Örugg og ódýr í rekstri. Sérstakt hraðfrystihólf. Einangrað að innan með áli. Eru með inniljósi og læsingu. 3 öryggisljós sem sýna ástand tækisins. Greiðsluskilmálar eða staðgreiðsluafsláttur. Utsölustaóir DOMUS og kaupfélögin um land allt Véladeild Sambandsins Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.