Morgunblaðið - 19.09.1982, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 41
Bader var mikill golfáhugamaður
þótt hann væri með gervifætur.
Þessi mynd er frá 1961 þegar hann
keppti á móti fyrrverandi hermanna.
undirritaði skírteini, þar sem tekið
var fram að hann væri frábær flug-
maður. Það var engin lygi — hann
var virkilega einstakur flugmaður."
I orrustunni um Bretland var tal-
ið að hann hefði skotið niður 30
flugvélar, þótt opinberlega væri að-
eins staðfest að hann hefði grandað
22. Hann grandaði Messerschmitt-
flugvél í fyrstu flugferð sinni í
stríðinu meðan stóð á brottflutn-
ingnum frá Dunkerque. Hinn 30.
ágúst 1940 áttu 12 Hurricane-
flugvélar undir hans stjórn í höggi
við 100 flugvélar þýzka flughersins.
Þær skutu niður 12 og komust allar
heilu og höldnu til stöðva sinna.
Sagt var að auk þeirra 22 flugvéla,
sem Bader grandaði, hefði hann
gert flugmönnum undir sinni stjórn
kleift að granda 50 til viðbótar.
Hann hélt því fram að ef stærri
flugsveitum væri beitt skynsamlega
væri betri von um árangur. Það
varð til þess að honum var falin
stjórn flugdeildar, sem í voru þrjár
flugsveitir og stundum fimm, sex og
sjö. Hins vegar átti hann í útistöð-
um við yfirstjórn orrustuflugvéla- 1
flotans vegna hugmynda sinna, sem
áttu ekki upp á pallborðið þar.
Hann stóð á hátindi frægðar
sinnar þegar stélið rifnaði af Spit-
fire-flugvél hans í árekstri við
Messerschmitt-109 flugvél í 24.000
feta hæð yfir Bethune í Norður-
Frakklandi. Flugvélin hrapaði til
jarðar á 400 mílna hraða og var
komin í 4.000 feta hæð þegar Bader
tókst að stökkva út í fallhlíf. Annar
gervifóturinn festist, en honum
tókst að losa sig og fallhlífin opnað-
ist á síðustu stundu. Hann rif-
beinsbrotnaði i fallinu og glataði
öðrum gervifætinum.
Hann var tekinn til fanga, en
sýndi mikla þrjózku í fangavistinni
og margir ófatlaðir fangar komust
ekki í hálfkvisti við hann í andstöð-
unni gegn fangavörðum Þjóðverja.
Þjóðverjar neyddust til að grípa til
þess ráðs að taka gervifæturna af
honum á hverju kvöldi í Colditz-
kastala til þess að koma í veg fyrir
að hann gerði fleiri tilraunir til að
flýja.
Svo frægur var Bader orðinn að
Þjóðverjar buðust til að leyfa
brezkri herflugvél að fljúga
óáreittri til Colditz og varpa niður
öðrum gervifæti í fallhlíf. Brezki
flugherinn hafnaði þessu boði, en
gervifæti var varpað niður í fallhlíf
í loftárás, sem brezkar flugvélar
gerðu í nágrenninu.
Áður höfðu Þjóðverjar útvegað
Bader annan gervifót að hans ósk,
en aðeins örfáum klukkustundum
eftir að hann hafði fengið nýja fót-
inn strauk hann með því að fara út
um glugga á þriðju hæð. Hann lét
sig síga niður reipi sem hann hafði
búið til úr rúmlökum og þar sem
gervifæturnir voru úr tini vafði
hann þeim um hálsinn svo að ekk-
ert skrölt heyrðist þegar þeir rækj-
ust í vegginn.
Frönsk hjúkrunarkona sveik
hann í hendur Þjóðverjum (hún var
seinna dæmd í 20 ára fangelsi) og
hann var tekinn til fanga á ný og
sendur aftur til Þýzkalands í
járnbrautarlest undir strangri
vernd. Hann reyndi alls fjórum
sinnum að flýja, en náðist alltaf
aftur.
Eftir fjórðu flóttatilraunina
gripu verðirnir í Colditz til þess
ráðs að fjarlægja gervifæturna á
hverju kvöldi, en hann hélt áfram
að sýna þeim mótþróa á alla lund.
Einu sinni lét hann flugmiðum
rigna niður úr turni fangelsisins,
salernispappír með miður viður-
kvæmilegum athugasemdum um
Hitler.
Bandarískir hermenn björguðu
Bader úr Colditz 15. apríl 1945 og
hann varð fljótlega þjóðhetja í
Bretlandi. Þegar orrustunnar um
Bretland var minnzt í fyrsta skipti
15. september 1945 stjórnaði hann
flugvélunum sem þar komu fram.
Það þótti dæmigert að rétt eftir að
hann kom aftur til Bretlands bað
hann um að verða sendur til
Austur-Asíu til að berjast við Jap-
ani. Beiðninni var hafnað, en í stað-
inn var honum falið að stjórna
skóla fyrir foringja orrustuflug-
manna.
Brezki flugherinn vildi að hann
héldi áfram störfum, en hann ákvað
að hætta í flughernum 1946. Hann
fékk freistandi tilboð um glæsi-
legan frama í stjórnmálum á
grundvelli frægðarinnar úr stríð-
inu, en hann hafnaði boði um að
hann byði sig fram til þings. I stað-
inn varð hann yfirmaður flugdeild-
ar Shell og í því starfi flaug hann
um allan heim í flugvél, sem var
sérstaklega smíðuð fyrir hann.
Hann missti flugréttindi sín í
september 1980 eftir rúmlega hálfr-
ar aldar flugmennskuferil. Hann
hlaut réttindin aftur, en missti þau
í þriðja og síðasta skipti í júli í
fyrra þar sem hjartað var farið að
gefa sig. í síðasta mánuði varð
hann að hætta við þátttöku í golf-
keppni. Hann lézt úr hjartaslagi
þegar hann var að aka heim til sín
eftir veizlu á níræðisafmæli Sir
Arthur („Bomber") Harris, yfir-
manns sprengjuflugvélaflota Breta
í stríðinu.
Skólataska
glataðist
NEMANDI í Verslunarskóla íslands
glataði skólatösku sinni í strætis-
vagnabiðskýli við Bústaðaveg, gegnt
söluturninum, um klukkan 13.30 á
föstudag. í skólatöskunni, sem er
Ijósbrún skjalataska, voru skóla-
bækur og reiknitölva. Skilvís finn-
andi er vinsamlega beðinn að
hringja i síma 86048.
Sjötugur
Þjóðverji
dæmdur fyr-
ir njósnir
Frankfurt, Y-Þýskalandi, 16. september. AP.
VESTUR-ÞÝSKUR réttur dæmdi í
dag 70 ára gamlan viðskiptamann í
tveggja ára og tíu mánaða fangelsi
fyrir að láta sovésku leyniþjónust-
unni í té upplýsingar varðandi
NATO-vopn.
Rétturinn segir að Eduard Ries
hafi þegið að launum 70.000 mörk
fyrir að láta KGB í hendur
ákveðnar upplýsingar varðandi
sérstök kerfi NATO-vopna og
varna.
Þrátt fyrir að upplýsingar er
hann lét sovésku leyniþjónustunni
í té hafi ekki verið mjög miklar
hafa þær án efa haft gífurlega
þýðingu fyrir Sovétmenn þar sem
þær gáfu til kynna síðustu hern-
aðarlegar tækninýjungar í flug-
og geimrannsóknum, segir í niður-
stöðu réttarins.
brýtur verðbólgumúrinn-besta kjarabótin!
Góðir greidsluskilmálar.
LADA STATION 1200
LADA CANADA
LADA SPORT
Uppseldur
115.000.-
157.000.-
Ath. verö á
hefur aldrei
stæðara.
Lada-bílum
veriö hag-
Munid ad varahlutaþjónusta okkar er í sérflokki
iiy 'JLj Suóurlandshraut 14 - Simi 38600 Söludeild 31236
■4 .-.///,
1 ■ * i, > / JB