Morgunblaðið - 19.09.1982, Síða 44

Morgunblaðið - 19.09.1982, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 Landkönnuðurinn og leikarinn grimuklœddi Fullsannað þykir, af kortinu og nákvæmni í staðháttalýsing- um Pytheasar að hann hafi kom- ist til Bretlandseyja en hvort landið Thule, sem hann nefnir svo og merkir inn á kortið norð- ur af Bretlandseyjum, er Islands og hvort hann komst yfirleitt svo langt norður, er ekki vitað með vissu. En hann kvaðst hafa komið að landi í Norðurhöfum þar sem væri að finna bæði jökla og fjöll, spúandi eldi, og sólar- guðinn gerði ekki nema rétt að tylla sér á sjóndeildarhringinn um miðnættið. Er hann hugðist halda lengra í sömu átt varð fyrir honum náttúruundur, sem hann nefndi „lungu hafsins", þar sem himinn, jörð og haf frysu saman í eitt. Lýsingin gæti átt við hafísbreiðu, sem vissulega hlýtur að hafa verið undarlegt og kynngimagnað fyrirbæri í augum þessa suðræna ferða- langs. A þessum tímum var það trúa margra Miðjarðarhafsbúa að Baltíska hafið í norðri tengdist Kaspiahafi og kostuðu yfirvöld í Massalíu því Pytheas til farar- innar í þeirri von að hann fyndi nýjar verslunarleiðir. Þar eð sú varð ekki raunin á hlaut hann, líkt og Kristófer Kólumbus síð- ar, litlar þakkir fyrir tiltækið þegar heim kom og lítill trúnað- ur var lagður á ferðasögurnar. Enn í dag greinir menn reynd- ar á um sannleiksgildi þeirra og m.a. hefur Pytheas þótt nokkuð ónákvæmur þegar tími og vega- lengdir eru annars vegar. (Kortagerðarmaður hefur hann þó verið allgóður eins og sjá má m.a. á því hve vel England er dregið upp á kortinu, enda sigldi hann umhverfis það, en virðist hins vegar ekki hafa gefið mik- inn gaum að Irlandi.) Þó gæti það staðist að hann hafi verið 15 daga í hafi frá Skotlandi þar til gaieiðuna bar að ströndum hins dularfulla lands Thule. Galeiðurnar voru sterk og hraðskreið farartæki á þeirra tíma mælikvarða, búnar seglum og gátu náð yfir 150 kíló- metra hraða á sólarhring. Gal- eiða Pytheasar var „tveggja hæða“ og ræðarar hafa senni- lega verið milli 150 og 200. Því hefur verið haldið fram að landið sem Pytheas kallaði Thule hafi verið Noregur, en sé litið á kortið, sem hann gerði, sést að svo getur varla hafa ver- ið. Ekki mun heldur vitað með vissu hvort Pytheas og leiðang- ursmenn hans gengu á land á eylandinu eða létu sér nægja að virða það fyrir sér úr hafi. Ur Norðurhöfum hélt leiðang- urinn í suður, sigldi inn í Eystra- salt og sneri að svo búnu við og hélt heimleiðis, eins og áður sagði. Þegar Pytheas sneri aftur trúði enginn því að hann hefði farið jafn langt i norður og hann hélt fram. Hann gleymdist og lifði í einangrun það sem eftir var ævinnar. En aðrir heimspek- ingar, s.s. Aristoteles, ræddu kenningar hans og deildu um sannleiksgildi þeirra í gegnum aldirnar og athuganir, sem Pytheas gerði í ferðinni, urðu mikilvæg undirstaða merkra uppgötvana, t.d. listarinnar að reikna út hæð staða yfir sjávar- máli. Leiklist og ferðalag í fótspor Pytheasar Sjái Reykvikingar á næstu dögum framandlega, grímu- klædda veru á sveimi um stræti borgarinnar, er þar ekkert yfir- skilvitlegt fyrirbæri á ferðinni, heldur ungur þýskur leikari, Harald Brant að nafni. En hann Árið 320 fyrir Kristsburð, eða þar um bil, lagði gríski landkönnuöurinn og stjörnu- spckingurinn Pytheas upp í langferð á galeiöu frá grísku nýlendunni Massalíu, þar sem nú heitir Marseilles í Frakk- landi. Ferðinni var heitið lengra í vestur og norður en nokkur Grikki hafði fram að þeim tíma látið sér til hugar koma að hægt væri að fara enda beindu þeir frekar sjón- um sínum í austur. Enginn veit með vissu hve langt Pytheas komst á galeið- unni en ferðinni var heitið Harald Brandt. mm. KÖE.) þangað sem sólarguðinn, Hel- íos, sykki í sæ og risi ekki úr djúpinu fyrr en mörgum mán- uöum seinna. Til þess að verða vitni að slíkum stórmerkjum þurfti að halda í norður, svo mikið vissi Pytheas, sem reyndar var einn fremsti stjörnufræðingur síns tíma og gerði sér manna fyrstur grein fyrir tengslum tungls og sjáv- arfalla. Ferðasaga Pytheasar, „í hafi“, er glötuð en eitthvað mun þó hafa varðveist af handritum eftir hann, svo og kort, sem hann gerði af Evrópu. leggur ferðalag Pytheasar til grundvallar nýstárlegri tegund leiklistar, sem felst í því að sam- eina ferðalög og leiklist og spinna upplifanir ferðalangs á tuttugustu öld saman við texta, sem til eru frá ýmsum tímum og fjalla um ferðir Pytheasar á fjarlægar slóðir á fjórðu öld fyrir Krist. „Mig langaði til að sameina leiklist og ferðalög og að semja leiktexta, sem byggðist að hluta til á eigin reynslu,“ sagði Brandt í spjalli við blm. „Leikverkið sem ég flyt áhorfendum, er byggt upp sem samtal milli grísku gyðj- unnar Artemisar, en hún var verndargyðja Marseilles-borgar, eða Massalíu eins og hún hét þegar Grikkir réðu þar ríkjum, og ónefnds sögumanns á okkar tímum. Mestan hluta textans sem ég sjálfur en hitt er byggt á heimildum, sem franski prófess- orinn Gaston-Broche skráði kringum 1935, eftir sænskum miðaldahandritum, handritum arabíska trúbadúrsins Ibn Quzman, sem var uppi á 13. öld, um sama efni, ritgerðum Jean Gionos, sem er franskur fræði- maður, og grískum fornritum. Ég eyddi öliu síðasta ári í að undirbúa ferðina," segir Harald Brandt, en þetta ferðalag í fót- spor Pytheasar er lokaverkefni hans við leiklistardeild háskól- ans í Provence í Frakklandi og hlaut hann styrki til hennar, m.a. frá listráði Marseilles- borgar og franska ríkisútvarp- inu. í staðinn sendir hann út- varpsstöðinni í MarseiIIes reglu- lega segulbandsspólur með ferðasögunni, sem síðan er út- varpað. Hingað kemur Brandt frá Bretlandi en þar tók hann þátt í franskri leiklistarhátíð, sem ný- lega var haldin í „Theatre Space“ við Trafalgar Square. Hann lagði upp í ferðina frá MarseiIIes, hélt síðan til N-Afr- íku, líkt og Pytheas, og kom fram í Alsír og Marokkó. „í leik- þættinum nota ég grímu þegar ég tala fyrir hönd Artemisar og nokkrum dögum fyrir sýningu geng ég yfirleitt um borgina með grímuna," segir Brandt. „Það geri ég bæði til þess að upplifa þá tilfinningu að vera framandi, vera í framandi landi og líka til þess að fólkið á staðnum skynji að einhver ókunnugur sé á ferð meðal þess. Það er sérkennileg upplifun og gaman að fá ólík viðbrögð í hinum ýmsu löndum — ég gekk reyndar um miðbæ- inn í Reykjavík núna í vikunni en enginn, nema börnin, sýndi nein viðbrögð. Fólk er mjög upp- tekið af að horfa á allt annað, meira að segja þeir sem stóðu í hnapp og biðu eftir strætisvögn- unum. Er þetta ekki frekar einmana- legt verkefni, sem þú hefur valið þér? spyr blm. „Nei, alls ekki, þetta gefur mér tækifæri til að kynnast fólki, með og án grímu. Gríman vekur oft forvitni og spurningar, þó að sums staðar, eins og til dæmis á markaðstorginu í Marrakesh, sé svo mikið af furðufuglum fyrir að maður hverfur í fjöldann. Ég læri mikið um eigin hæfileika til að koma fram því ég hef ekkert að styðjast við nema sjálfan mig og svo finnst mér spennandi að vinna með orð og fábreytt hjálp- artæki einmitt núna, þegar leik- arar og myndlistarmenn nota nútíma tækni, s.s. ljósmyndir og myndsegulbönd, í æ ríkari máli. Hvaða niðurstöðum finnst þér þú svo hafa komist að á þessu ferðalagi? „Þáð er ég ekki tilbúinn til að segja um,“ segir Brandt. „Ferðin er ekki á enda.“ H.H3. „Það sem ég hef ihuga á er að vekja með fólki tilfinningu fyrir því að ókunnur og framandi ferðalangur sé staddur i meðal þess,“ segir Brandt, sem i þesaari mynd er reyndar i ferðinni í heimabæ sinum, Wiesbaden I Þýskalandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.