Morgunblaðið - 19.09.1982, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982
45
Á myndinni er stjórn Pótýfónkórsins, frá vinstri: Guðmundur Guðbrandsson gjaldkeri, Edda Magnúsdóttir meðstjórnandi, Ásbjörg ívarsdóttir ritari, Friðrik
Eiríksson formaður, Ingólfur Guðbrandsson söngstjóri og Steina Einarsdóttir meðstjórnandi. (Ljósm. Mbl. Emilía)
Vetrarstarf Pólýfónkórsins að hefjast Magni-
ficat eftir Vivaldi á verkefnaskránni
VETRARSTARF Pólýfónkórsins hefst í byrjun októbermánaðar. Á blaða-
mannafundi sem stjórn kórsins bélt í gær kom m.a. fram að meginstofn
kórsins sé óbreyttur frá fyrra starfsári, en þó hafi verið auglýst eftir nýjum
félögum til viðbótar, einkum ungu fólki með einhverja tónlistarmenntun að
baki.
Að sögn Friðriks Eiríkssonar
formanns stjórnar kórsins er í
undirbúningi söngnámskeið fyrir
kórfélaga í vetur. Er von á ítölsku
söngkonunni Eugenia Ratti í
októberbyrjun til að annast það,
en hún hefur haldið námskeið á
vegum Pólýfónkórsins undanfarin
ár. Sagði Friðrik að námskeið
Eugeniu Ratty hefðu verið vinsæl
og góður árangur náðst undir
hennar stjórn. Ennfremur kom
fram að Pólýfónkórnum hefur
bæst nýr liðsmaður, Hörður Ás-
kelsson, orgelleikari og kórstjóri.
Er honum ætlað hlutverk aðstoð-
arsöngstjóra við hlið Ingólfs Guð-
brandssonar.
Hörður er menntaður í Dussel-
dorf í Þýskalandi. Og að námi
Minnsta verðbólga í
Bretlandi í fjögur ár
Lundúnum, 17. september. AP.
VERÐBÓLGAN í Bretlandi er nú
komin niður í 8% og hefur ekki verið
minni i nær fjögur ár, að þvi er segir
í tilkynningu frá bresku stjórninni i
dag. Er þá miðað við síðustu 12 mán-
uði, frá 1. september í fyrra til ágúst-
loka í ár.
Verðbólgan var 21,9% í maí
1980, ári eftir að Margaret
Thatcher tók við völdum. Þrátt
fyrir þennan árangur í baráttunni
við verðbólguna ríkir mikil
óánægja meðal verkalýðsforyst-
unnar í garð bresku stjórnarinnar
vegna hins mikla atvinnuleysis í
landinu. Hefur það farið sívaxandi
í samræmi við minnkandi verð-
bólgu. Atvinnuleysið var 13,8% í
síðasta mánuði.
Leon Brittan, yfirmaður í
breska fjármálaráðuneytinu, hef-
ur spáð því að verðbólgan verði
komin niður fyrir 7,5% í árslok.
Engar verðhækkanir hafa orðið
tvo mánuði í röð í Bretlandi og
slíkt hefur ekki gerst áður þar í
landi á undanförnum 13 árum.
Ríkisstjórnin hefur lýst því yfir
að hún vonist til þess að minnk-
andi verðbólga geri samningavið-
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AD VANDADRI
LITPRENTUN
MYNDAMOT HF
ræður við starfsfólk við heilsu-
gæslu og kolanámumenn auðveld-
ari. Starfsfólk sjúkrahúsa hefur
farið fram á 12% kauphækkun og
kolanámumenn vilja fá 30%.
Thatcher segist ekki til viðræðu
um tveggja stafa tölu prósentu-
hækkanir.
loknu starfaði hann þar eitt ár
sem orgelleikari, kórstjóri og
hljómsveitarstjóri.
En nýlega tók hann við starfi
söngstjóra við Hallgrímsskirkju.
Guðmundur Guðbrandsson
gjaldkeri Pólýfónkórsins kvað
kórskóla kórsins taka til starfa 4.
október nk. og færi kennsla fram í
Vörðuskóla á mánudagskvöldum 2
stundir í senn í 10 vikur. Á siðasta
ári stunduðu rúmlega 100 manns
nám í Kórskólanum. Sagði Guð-
mundur að kennslan væri tvíþætt:
Annars vegar væri kennd radd-
þjálfun sem Már Magnússon
óperusöngvari og Margrét Pálma-
dóttir sópransöngkona önnuðust
og hins vegar tónfræði og heyrn-
arþjálfun, en þær Helga Gunn-
arsdóttir og Herdís H. Oddsdóttir
sæju um þann þátt kennslunnar.
A fundinum kom einnig fram að
starfsár Pólýfónkórsins verður
með léttara yfirbragði en í fyrra,
en þá flutti kórinn m.a. Mattheus-
arpassíu í Háskólabíói og fór í
mikla söngför til Spánar. Þó væri
stefnt að því að halda fyllstu gæð-
um í efnisvali og flutningi.
Á verkefnaskránni fyrir jól er
m.a. Magnificat eftir Vivaldi og
jólatónlist, en á föstudaginn langa
er ráðgert að flytja verk eftir
franska tónskáldið Hector Berlioz,
sem ekki hefur verið flutt hér áð-
ur. Einnig hefur kórnum borist
boð um hljómleikahald á Ítalíu.
Ingólfur Guðbrandsson söngstjóri
sagði að hér sé um að ræða ferð til
Sikileyjar og Suður-Ítalíu.
Þá er í ráði að gefa út hljóm-
plötu með flutningi kórsins á
Mattheusarpassíunni í Háskóla-
bíói sl. vor.
sitnanúrnenð
téfn
PORTUGAL
VÖRUSYN1NGAR
INTERCASA
CERAMEX
PORTEX-LAR1982
PORTEX '82
MOCAPn
8.—10. október 1982
Ritzhótel í Lissabon
fatnaöur 83/84 vetrartízkan
8-—17. október (3 fyrstu dagarnir fyrir innkaupa-
stjóra aðeins)
Alþjóöleg húsgagnasýning Lissabon
27.—31. október
Alþjóöleg keramik og gler- og gjafavörusýning
Lissabon
18.—21. nóv.
Kristalshöllin, Oporto
húsbúnaöar- og textilsýning
3.-7. des. '82
Kristalshöllin, Oporto
Prjónavörur og fatnaöur/haust- og vetrartízkan '83
14.—16. janúar 1983 (dagsetning ekki endanleg)
Kristalshöllin, Oporto
skósýning haust/vetrartízkan ’83
Frekari upplýsingar veitir:
Portugals handelskontor Tollbugatan 25, Osló 1, sími 02-41 36 08 telex: 19220.
Rannsóknar-
stofnun frið-
arins hlýtur
viðurkenn-
ingu UNESCO
Paris, 16. september. AP.
TILKYNNT var í París í dag, að
Rannsóknarstofnun friðarins í
Stokkhólmi (SIPRI) hefði hlotið
verðlaun UNESCO í ár fyrir upp-
fræðslu í þágu friðarins. Verðlaun
þessi eru veitt einstaklingi eða
hópi, sem stuðlar að því að sýna
almenningi fram á gildi friðar í
heiminum. Verðlaunin verða af-
hent á þriðjudag.
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
Stór og sterk ryk- og vatnssuga.
Hentar vel á verkstæói fyrir gróf-
ari hreinsun, i bílskúrinn eða jafn-
vel í gripahús. Fáanlegir eru alls-
konar fylgihlutir m.a. til kembing-
ar á hestum og hundum. 27 Itr.
rykbelgur leikur léttilega á fimm
mjúkum hjólum, þyngd 13,7 kg.
2990kr