Morgunblaðið - 19.09.1982, Page 47

Morgunblaðið - 19.09.1982, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 47 Mikið rólegra að búa hér en heima á Fróni — segir eiginkona Atla, Steinunn Guðnadóttir OfT ER talað um hina svokölluðu íþróttaekkjur. Það er að segja eig- inkonur íþróttamannanna sem sjaldnast hafa tíma til að vera heimavið þar sem alltaf er verið að æfa og keppa. Hvernig skildi þetta nú vera hjá eiginkonum atvinnuknattspymu- mannanna. — Þetta er bara eins og hver önnur vinna. Atli fer á morgnana og kemur heim á kvöldin, sagði eiginkona Atla, Steinunn Guðna- dóttir. Þetta er verra heima þar sem allir íþróttamenn þurfa að vinna langan vinnudag og fara síðan að æfa. — Það fer mjög vel um okkur hér. Nágrannarnir eru mjög vin- gjarnlegir og hjálpsamir. Eg er lærður íþróttakennari og hef því mikinn áhuga á öllum íþróttum það hjálpar og ég fer á alla heima- leiki hjá Fortuna Díisseldorf. Fylgist grannt með knattspyrn- unni og hef gaman af. En eigin- konur leikmanna fá aldrei að fara með liðinu í keppnisferðir til ann- arra liða. Þá situr maður heima. — En hér er af mörgu að taka og margt hægt að gera í tóm- stundum. Ég hef verið hér í skóla að læra þýsku, og jafnframt lagt stund á teiknun. En ég hef gaman að því að teikna í tómstundum mínum. Þá er ég að hugleiða að ná mér í meiri menntun á íþrótta- sviðinu með því að sækja nám- skeið. í hverju finnst þér mesti munur- inn fólginn að búa í V-Þýskalandi eóa heima á Fróni? — Stærsti munurinn liggur í verðlaginu. Hér er allt svo mikið ódýrara. Matvörur eru helmingi ódýrari hér í innkaupi. Jafnframt er mikið meira úrval af mat og grænmeti hér. — Allt hráefni er betra ef fiskur er undanskilinn. Þá finnur maður mikinn mun á því hvað það er rólegra að búa hér. Hér er fólk ekki í þessu mikla kapphlaupi sem allir virðast vera í heima. Það er mikill lærdómur að búa erlendis og um leið góð til- breyting. Steinunn sagði, að gestagangur frá íslandi væri töluverður á heimili þeirra og þau væru í góðu sambandi við ættingja sína heima. Það kæmi því varla fyrir að þau fyndu fyrir heimþrá. - ÞR. Atli I búniugi Fortuna Diisseldorf. Hann leikur miðherja hjá liðinu og hefur sett sér það takmark að skora 10 mörk eða fleiri á keppnistímabil- ÍnU. Lóon. Þórarinn Ragntramn. Steinunn, eiginkona Atla, segir ad það sé mikill munur á því hve matvörur séu ódýrari í Þýskalandi en á Islandi og um leið sé allt hráefni mun betra. Atli er fastur leikmaður með íslenska landsliðinu. Hér er Atli á fullri ferð i landsleik gegn Hollendingum. En í þeim leik skoraði hann eina mark fslands. Auglýsing frá Blómaborg Haustlaukakynning Axel Magnússon, garöyrkjuráöunautur ríkisins svarar fyrirspurnum um meöferö og niöursetningu haust- lauka í Blómaborg, sunnudaginn 19. sept. kl. 2—5. Blómaborg Hverageröi, sími 99-4225. Ný sending Kjólar, brúðarkjólar, brúöarhattar, frotté- inniskór, skartgripakassar. BILGREINASAMBANDIÐ AÐALFUNDUR 1982 HÓTEL SAGA, SÚLNASALUR 9. október DAGSKRÁ: Laugardagur 9. okt. Kl. 09:00 Kl. 09:30—12:00 Kl. 12:15—14:00 Kl. 14:00—17:00 Kl. 19:00 Afhending ráöstefnugagna. Sérgreinafundir. Hádegisveröur og hádegisveröar- erindi í Súlnasal. Aöalfundur Bílgreinasambandsins. Dagskrá skv. 12. gr. samþykkta fyrir félagiö. Móttaka og veitingar í boöi BGS í nýjum húsakynnum félagsins. Komið eða hringið. Þjónustusími 38900 BÚVÉLAVARAHLUTIR Véladeild Sambandsins Armula 3 Reykfavik Viðurkennd varahlutaþjónusta Eigum mikið úrval „boddy“ hluta í Scout II. Mikið magn varahluta á lager einnig standstuðarar, (kúlustuðarar), toppgrindur og fl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.