Morgunblaðið - 19.09.1982, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 19.09.1982, Qupperneq 48
Sími á ritstiórn og skrifstofu: 10100 Jttotjjimlilíiíiifc Síminn á afgreiöslunni er 83033 Jfl*>rjjvmI>Iaí>i$> SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 Er fremur bjartsýnn - segir Steingrímur Hermannsson VIÐRÆÐUNEFND LÍÚ og sjívarút vegsráðherra og aðstoðarmenn hans komu saman til fundar í gærmorgun. Voru málin rædd þar, skýrð frekar og komið var fram með frekari tillögur af hálfu útvegsmanna. Á fundinum var ákveðið að vinna frekar að lausn mála um helgina. Að sögn Kristjáns Ragnarssonar voru fretta vinsamlegar viðræður og 'taldi hann að nú væri virkilegur vilji til þess að leysa málið. Stein- grímur Hermannsson, sjávarút- vegsráðherra, sagði í samtali við blaðið, að viðræðurnar hefðu verið gagnlegar og þar hefðu komið fram athugasemdir frá LIÚ, sem hann myndi sýna ríkisstjórninni og yrði unnið áfram í málinu um helgina. Aðspurður um það, hvort hann væri bjartsýnni á lausn vandans nú en áður, sagði Steingrímur að hann væri þeirrar skoðunar, að skynsam- legast af útvegsmönnum væri að af- létta banninu og halda til veiða, en sumt af því, sem þeir hefðu lagt fram, væri vissulega gagnlegt og hann væri fremur bjartsýnn. Startgjald nú 43 kr. VEKDLAGSRÁÐ samþykkti á fundi sínum í vikunni 17% hækkun á gjaldskrá leigubifreiða. Startgjald hækkaði úr 37 krónum í 43 krónur. Biðgjald er nú 166 krónur á klukku- tímann en gjald fyrir hvern ekinn kílómetra er krónur 5,39 að degi til, en krónur 8,09 í næturvinnu. Þetta þýðir, að það kostar rúm- ar 100 krónur að aka úr miðbæn- um upp í Neðra-Breiðholt, en þessi vegalengd er rétt um 7 kílómetrar. Að degi til mundi þessi ökuferð kosta um 80 krónur. Startgjald sendibifreiða hækk- aði einnig og er nú 55 krónur. Bið- tími á klukkustund er rúmar 178 krónur og gjald fyrir hvern kíló- metra miðað við minnstu sendi- bíla er krónur 5,95 í dagvinnu og krónur 8,93 í næturvinnu. Gjaldið er 35% hærra á stærstu sendibíl- Mynd Mbl. KÖE. Heiðursvörður við heimkomuna - útförin fer fram á fimmtudag LAUST EFTIR klukkan sex í gærmorgun lenti Flugleiðaþota á Keflavík- urflugvelli með jarðneskar leifar dr. Kristjáns Eldjárn, fyrrum forseta íslands. Lögreglumenn stóðu heiðursvörð þegar kistan var borin í bíl. Frú llalldóra Eldjárn, eiginkona hins látna, tók á móti jarðneskum leifum manns síns ásamt börnum þeirra. Dr. Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, og Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra, voru viðstaddir ásamt embættismönnum. Útför dr. Kristjáns Eldjárn verður gerð frá Dómkirkjunni á fimmtudag kl. 14 á kostnað ríkisins. Biskupinn yfir íslandi, herra Pétur Sigur- geirsson, jarðsyngur og séra Þórir Stephensen flytur ritningarorð. Tekjuafgangur Fiskveiða- sjóðs aðeins til á pappírum HÖFUÐSTÓLL heildarútlána Fiskveiðasjóðs er um 2.700 milljónir og vanskil við hann nema um 14% eða alls tæplega 380 milljónum. Þess vegna er ekkert lausafé til í Fiskveiðasjóði til vaxtalækkunar og sá tekjuafgangur, 165 milljónir á síðasta ari, sem nefndur hefur verið, er aðeins til á pappírum og getur ekki orðið til nema vanskil við sjóðinn verði greidd upp. Þessara upplýsinga um stöðu sjóðsins aflaði Morgun- blaðið sér í gær í framhaldi hugmynda ríkisstjórnarinnar um framlag úr sjóðnum til lækkunar vaxta. Einar Ólafsson, forstjóri Cargolux: Markaðurinn hefur tek- ið verulega vei við sér Boeing 747-þotur félagsins fullbókaðar Eins og fram hefur komið hefur ríkisstjórnin metið stöðu Fisk- veiðasjóðs þannig, að um 165 milljóna tekjuafgang hafi verið að ræða á síðasta ári. Af þessum tekjuafgangi eigi síðan að verja 100 milljónum til þess að lækka vexti af lánum sjóðsins, sem nemi um 2,5 til 2,8%. Ef af þessum hugmyndum ríkisstjórnarinnar verður, mun 100 milljóna framlag sjóðsins til vaxtalækkunar ein- ungis verða til þess að skerða tekj- ur sjóðsins og þá um leið útlána- getu hans. Eigið fé sjóðsins er nú um 400 milljónir og þar sem ekk- ert fé er nú til ráðstöfunar mun þessi hugmynd verða til þess að gengið verði á eigið fé sjóðsins. Verði af þessum hugmyndum rík- isstjórnarinnar kemur vaxtaaf- slátturinn þegar til framkvæmda 1. október og um leið tekjuskerð- ing sjóðsins. Samkvæmt lögum um Fisk- veiðasjóð frá 1973 eru tekjur sjóðsins eftirfarandi auk stofn- fjár: a. Vextir af lánum og öðrum kröfum; b. Útflutningsgjöld af sjávarafurðum, sem renna til sjóðsins lögum samkvæmt; c. Einn hundraðasti af fob-verði útfluttra sjávarafurða annarra en þeirra, sem koma frá hvalveiðum, selveið- um og hrognkelsaveiðum; d. Til viðbótar framlagi sjóðsins sam- kvæmt c-lið greiðir ríkissjóður honum jafnháa upphæð árlega; e. Til viðbótar framlagi til sjóðsins samkvæmt b- til d-lið greiðir rík- issjóður honum árlega 35 milljón- ir króna; f. Lántökur innanlands og erlendis. Maður drukknaði á Reyðarfirði ReydarHrdi 18. september. „MARKAÐURINN hefur tekið verulega við sér, eins og við reikn- uðum með. Það má í raun segja, að alger umskipti hafi orðið í kringum 10. september sl.,“ sagði Einar Olafsson, forstjóri Cargolux-flugfé- lagsins í Luxemborg, í samtali við Mbl. „Við höfum næg verkefni fyrir báðar Boeing 747 jumbó-vélar fé- lagsins. Þær eru fullbókaðar alla vikuna og í dag fljúga þær álíka mikið og þær gerðu á siðasta ári, þegar eðlilegt, ástand ríkti. Þær fljúga um 10 tíma á dag, sem er mjög góð nýting," sagði Einar Ólafsson ennfremur. Það kom fram í samtalinu við Einar Ólafsson, að félagið er nú með þrjár ferðir í viku til Austur- landa fjær, en þær hafa aðeins verið tvær undanfarna mánuði. Þá er eitt flug í viku til Nígeríu og tvö flug í viku vestur um haf. Aðspurður um verkefni fyrir DC-8-vélar félagsins, sagði Einar að þau væru þokkaleg um þessar mundir. önnur vélin hefur að undanförnu verið í gripaflutning- um, m.a. fyrir Dubai-menn. En vélarnar eru annars í tilfallandi verkefnum víðs vegar um heim- inn. Það slys varð hér í gærmorgun, fóstudagsmorgun, að maður drukkn- aði hér við höfnina er hann var að vitja neta er hann átti þar. Hinn látni hét Birgir Valdórsson, 38 ára að aldri, Reyðfirðingur, ókvæntur og barnlaus, en lætur eftir sig föður á lífi. Ekki er vitað um tildrög slyss- ins, en Birgir var við vinnu sína í Sláturhúsinu á föstudagsmorgun. I kaffitímanum kvaðst hann þurfa að bregða sér frá, en kom ekki aft- ur. Um kvöldið fannst hann látinn í fjöruborðinu innan við Kaupfé- lagsbryggjuna, þar sem hann hafði net sín. Sem fyrr segir er ekki vitað hvernig slysið bar að höndum, en Birgir fór gangandi að netunum, þurfti ekki að fara á báti. Gréta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.