Morgunblaðið - 15.10.1982, Blaðsíða 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1982
Hvað segið þið um það að
nota blóm, afskorin blóm,
pottablóm eöa þurrkuð
blóm til að búa til eins
konar skúlptúr eða mynd.
Þetta gerir hún Sigríður
Ingólfsdóttir, sem rekur
Borgarblóm í Reykjavík.
Þegar komið er inn í búð-
ina hennar blasa við stafl-
ar af heyböggum, sem er í
stöllum og sveígja inn á
búðargólfið en yfir þeim er
fíngert net. „Þetta er
skúlptúr úr heyi,“ segir
Sigríður brosandi, „en
þurrt hey má ekkert síður
nota til skreytinga en ann-
að úr jurtaríkinu.“
„Ég Kynntist þessari skreyt-
ingarhugmynd í gegnum skóla í
Þýskalandi, sem heitir Weihen-
stephen og er í Suður-Þýskalandi.
Eg hafði hugsað mér að fara í
þennan skóla eftir að ég lauk námi
í Garöyrkjuskóla rikisins áriö 1976,
en það varð ekkert úr því vegna
þess hve námiö er dýrt,“ segir Sig-
ríður þegar við spyrjum hana
hvernig hún hafi kynnst þessari
tegund blómaskreytinga.
„Þessi skóli er frumkvöðull
blómaskreytinga af þessu tagi.
Þegar ég setti Borgarblóm á lagg-
irnar árið 1980, þá gerði ég ráð-
stafanir til þess aö fá nemendur
frá skólanum, til að koma hingað
og útbúa skreytingar og kenna
mér fagiö. Hefur fólk frá skólanum
síðan verið hjá mér og nú eru fimm
nemendur staddir hér frá skólan-
um,“ segir Sigríður ennfremur.
„Þegar ég útbý skreytingarnar
þá læt ég bara hugmyndaflugið
ráða. I þurrblómaskreytingum sem
hafa reynst afar vinsælar, þá útbý
ég stundum ramma, og bý síöan til
eins og mynd úr hinum ýmsu jurt-
um inn í rammann, en jurtirnar
geta líka teygt sig út fyrir ramm-
ann. En ég er ekkert sérstaklega
bundin viö ramma, heldur er hægt
að skreyta stærri og minni fleti,
sem hafa engin takmörk. Það er til
dæmis hægt að skreyta stóra
glugga eða búa til skilrúm úr þurr-
blómum, eða útbúa skreytingar á
vegg eða hillu, þá bæði sjálfstæða
eða í potti eða vasa. Það er þó
auðveldara að hafa ramma, því þá
er hægt að færa skreytinguna úr
stað.
Ég nota allar mögulegar jurtir í
skreytingarnar, en er þó eingöngu
með náttúruleg efni. Ég læt vaxt-
arlag plantanna njóta sín og sker
þær því lítið til og yfirleitt lita ég
ekki jurtirnar eins og algengt er
um þurrblómaskreytingar, en það
er einmitt lögun og form plöntunn-
ar, sem ræður útliti skreytingar-
innar,“ segir Sigríöur.
„Venjulega nota ég eina jurta-
tegund, til aö mynda uppistööu
skreytingarinnar og hinar tegund-
irnar eru síðan notaðar til að und-
irstrika heildaráhrifin."
Og Sigríöur heldur áfram: „í
þurrblómaskreytingarnar nota ég
íslenskar jurtir eins og strá, stóran
njóla, hvönn, hundasúrur, gul- og
hvítmuru, vallhumal og stundum
nota ég líka þang. Einnig flyt ég
inn töluvert af þurrkuðum jurtum
eins og blóm, stöngla, laufblöð og
rætur. Annars er um að gera að
vera nógu vakandi fyrir umhverf-
inu og nýta það sem náttúran býð-
ur upp á.
í blómaskreytingar þar sem not-
uð eru afskorin blóm, nota ég ís-
lensk blóm, því þau eru einstakl-
ega falleg og kraftmikil og raun-
verulega miklu fallegri en innflutt
blóm.
Þegar ég geri skreytingar af
þessu tagi tek ég mið af híbýlum
fólks, en segja má að þessar
skreytingar eigi fremur heima í
nútímalegu húsnæöi, hvort sem
það er heimili eða vinnustaður.
Þegar við seljum þurrblóma-
skreytingar, þá gefum viö kaup-
andanum ráðleggingar um það
hvernig hann geti þrifiö þær, en
það er einkum gert þannig, að
annaöhvort er rykið blásiö af eða
úöað er léttilega yfir skreytinguna
meö vatni. Síðan má úöa möttu
lakki yfir þær á eftir og þannig
halda þær sér betur.
Auðvitað geta þurrblómaskreyt-
ingar orðið fyrir hnjaski og þaö
getur kvarnast upp úr þeim, ef þær
verða fyrir snöggu höggi. Annars
eru þær vel festar niður og eíga
alls ekki aö haggast.
Ég hef verið mjög ánægð með
þær undirtektir, sem þessi tegund
blómaskreytinga hefur fengið hér
á landi. Ég var nýlega erlendis þar
sem ég kynnti mér nýjungar á
þessu sviöi og keypti inn þurrkuð
blóm og vona ég að þær hug-
myndir, og hráefni, sem ég viöaði
að mér eigi eftir að falla fólki í
geö," sagði Sigríður um leið og viö
kvöddum hana.
He.
Issey Miake hannar
fatnað fyrir konur og
karla. Hér sýnir hann
sjálfur samfesting úr
nylon-efni, en það er
ein af flíkunum sem
tilheyra vetrarlínu
hans. Þess má geta
ik að l*sey Miake
V 'annaði fatnað
k rir Mick Jagger
söngvarann
■Þ- ræga.
Tískuhönnuðurinn
Issey Miake og ýmsar
þær flíkur, sem hann
nú sendir á markað í
Evrópu. t
ra
Mitsuhiro
Matsuda
hannar fatnað
fyrir fyrirtæk-
ið Nicole.
Hann er sagð-
ur framleiða
stærstu flíkur
í Tokyo.
Efnísmiklar eru flíkurnar, að minnsta kosti séðar á
myndum. Hér eru sýnishorn af fatnaði vetrarins.
■I