Morgunblaðið - 15.10.1982, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 15.10.1982, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1982 49 fclk í fréttum Á. Sonja krón- prinsessa hlaut Nansen- verðlaunin + Sonja krónprinsessa í Noregi tók á mánudag á móti Nansen- verölaununum fyrir aðstoö viö flóttamenn og tilkynnti, aö verö- launin sem nema 50Í000 dollurum, muni koma til meö aö renna til byggingar grunnskóla í Tanzaníu. Sonja, sem er 45 ára aö aldri, var formaður hjálparsjóös flótta- manna árið 1974 í Noregi, minntist í ræðu sinni viö afhendinguna feröa er hún fór í flóttamannabúöir í Malaysíu, Tanzaníu og Thailandi og sagöi: „Enginn getur hjálpaö ölíurn, en allir geta hjálpaö ein- hverjum." Hún sagöi einnig, aö hún heföi fengiö aukinn skilning á flóttamannavandamálinu og hvaö þaö er í rauninni aö vera flótta- maöur er hún heimsótti flótta- mannabúöir á landamærum Kam- bódíu 1979. „Ég skynja þessi verölaun sem heiöur fyrir land og þjóö og fyrir mig sem fulltrúa hennar og óg er glöð þrátt fyrir að mér finnist ég ekki til verðlaunanna hafa unniö,“ sagöi hún í viötali aö afhending- unni lokinni. Sonja krónprinsasaa: „Enginn getur hjálpaó öllum, an allir gata hjálpaö ainhverjum.“ Paul McCartnay og aiginkona hans, Linda, ásamt syninum James. Lést Paul í bílslysi 1966? + Nu eru liðin tuttugu ár frá því hljómsveit frá Liverpool, sem gekk undir nafninu The Beatles, fékk útgefna sína fyrstu hljóm- skífu meö lögunum Love Me Do og PS I Love You. Ekki leið á löngu áöur en Bítl- arnir, eins og þeir hétu á ís- lensku, voru orönir heimsfrægir og nafn þeirra og lög á allra vör- um. Plöturnar uröu fleiri og fleiri og vinsældirnar jukust í sama mæli. Óteljandi eru sögurnar er skrifaðar hafa veriö um þá John, Paul, George og Ringo, og enn er veriö að. Nú heldur bandarískur rithöfundur, Joe Glazier aö nafni, því fram aö hann sé í þann mund aö fá útgefna bók sem sannar aö Paul McCartney hafi latist i bil- slysi 9. nóvember 1966. Annar Paul hafi hins vegar komið í staö- inn snarlega án þess aö nokkur úr hljómsveitinni hafi tekiö eftir því. Þaö á aö hafa veriö kanad- ískur námsmaöur sem haföi þá nýverið unniö til verölauna í skóla sínum fyrir að líkjast McCartney mest úr skólanum þeim. Rithöfundurinn segist geta snnað skiþti þessi, meöal annars meö Ijósmyndum. Eiginkona Paul McCartney, Linda, sem hann hefur veriö kvæntur í fjórtán ár er þó ekki í neinum vafa um aö eiginmaður hennar og faöir þriggja barna þeirra sé hinn eini sanni Paul. Karl kafar Karl Bretaprins vann ásamt fleirum ötullega aö björgun „Mary Rose“, flaggskipi Hinriks VIII og sést hér á leiö niöur aö flakinu ásamt atvinnukafara er hann haföi sér til fylgdar. Sem kunnugt er var flakinu lyft úr sjó síöastliðinn þriöjudag og tókst framkvæmdin vel. Dó úr hræðslu ALLA sína ævi haföi Jennifer Anderson óttast þaö mest af öllu aö fara til tannlæknis og daginn sem hún fór til tannlæknis til aö láta draga úr sér fimm tennur, varö þessi ótti henni aö aldurtila. Vegna þessa gífurlega ótta er hún bar í brjósti, streymdi adrenalín í óvenjulegum mæli út í blóörásina og þegar hún síðan fékk venjulega deyfingu, leiddi þetta til þess aö hjartað gaf sig og hún fékk áfall. Þrátt fyrir aö allt væri gert sem mögulegt var til aö reyna aö bjarga lifi hennar, lést hún tveim- ur trhum eftir aögerðina og ekki hefur fundist önnur skýring á andlátinu en aö hún hafi látist úr hræöslu . . . Forstofukommóður með speglum Viöartegundir: eik, mahóný og fura. yfir 20 geröir. Kommóður úr furu Litir: fura, brúnbæsaö. Ýmsar stærðir. Eldhúsgögn úr birki Litir: brúnbæsaö og ólitaö tfV ILJI Bláskógar ÁRMÚL! 8 SÍMi: 86080 Meim en þú getur ímyndad þér!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.