Morgunblaðið - 15.10.1982, Side 7
HeimiHshorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Japanir sækja fast
á i tískuheiminum
Fyrir allmörgum árum lét japanskur kaupsýslumaður hafa eftir
sér á prenti, aö þess væri ekki langt að bíöa að Japanir yrðu
samkeppnísfærir á heimsmarkaðinum á þremur sviðum fram-
leiðslu, þ.e. bíla, litlum rafmagnstækjum og tískufatnaði. Það
tvennt fyrrnefnda hefur þegar orðið að veruleika fyrir allnokkru og
nú eru allar horfur á aö Japanir séu fyrir alvöru komnir inn á
tískufatamarkað Evrópu og Bandaríkjanna.
Fyrir um fimm árum voru aöeins tveir japanskir fatahönnuðir, sem
eitthvað voru þekktir utan heimalandsins, Kenzo og Hanae Mori heita
þeir, en margir hafa bæst viö síöan.
Japanir hafa rannsakaö af gaumgæfni allar hliöar hins vestræna fata-
iönaöar, bætt um betur, notaö austurlenska nákvæmni og vandvirkni og
árangurinn þykir mjög eftirtektarveröur.
Japanskur tískufatnaöur er nú til sölu í þekktum fataverslunum í
London og New York, nokkrar verslanir hafa jafnvel eingöngu á boðstól-
um fatnað eftir ákveöna hönnuöi, sá sem síöast opnaöi eigin verslun í
Evrópu heitir Issey Miake og er verslun hans viö Sloane Street í London.
Tískusýningar margra þessara hönnuöa eru ekki aðeins í Tókýó held-
ur einnig haldnar í París, og þaö er talaö um Tókýó-skólann í hönnun
fatnaðar.
Vefnaðarlistin er ævaforn í Japan, eins og kunnugt er, tískufatnaöur
framleiddur þar þykir bera þess merki aö hönnuöir hafa næma tilfinningu
fyrir efninu, sem þeir vinna úr, ásamt meö auga fyrir einfaldleika og
árangurinn þykir glæsilegur. Tókýó er sem sagt orðin ein af tískufata-
borgum heimsins.
Rei Kawakubo, hönnuður hjá Comme des Garcons ásamt nokkrum módelum sinum. Fötin aru allefnismikil,
eins og sjá má á myndunum. Litir eru svart og grátt í öllum „sétteringum**.
Irie, hönnuður
fyrir Studio V.,
ásamt sínum
fatnaði. Hann
notar mikið
prjóna- og hekl-
áferð, á jakkan-
um til hægrl er
nokkurskonar
góbelínáferö.