Morgunblaðið - 15.10.1982, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.10.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1982 Þórunn Magnea Magnúsdóttir og Þjóðleikhúsið: Garðveisla, Amadeus, Tví- leikur og Gosi Breska veröiaunaleikritiö Ama- deus eftir Peter Schaffer veröur sýnt í 35. sinn í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Þetta er „sakamálaleikur í æöra veldi“ og hefur verið sýnt víöa í heiminum á síöustu árum. Helgi Skúlason leikstýrir verkinu, en í aðalhlutverkum eru Róbert Arnfinnsson og Siguröur Sigur- jónsson og Guölaug María Bjarna- dóttir. Leikritiö er um upprifjun tónskáldsins Salieris á samskipt- um sínum og Mozarts. Þar kemur m.a. fram aö miskunnarleysi og metoröagirnd hins illa Salieris átti hvaö mestan þátt í hinum grimmu örlögum Mozarts. Og gert er aö því skóna að glamursmiöurinn Salieri hafi beinlínis veriö valdur aö dauöa hins virta tónskálds. Sann- leiksgildi þess draga margir j efa. En gleöjast ekki skáldin þegar gagnrýnendur deila? Nýjasta leikrit Guömundar Steinssonar, Garðveisla, veröur sýnt á laugardags- og sunnu- dagskvöld. Þaö er eins og fyrri verk Guömundar Steinssonar dæmisaga og áminning til nútíma- mannsins. María Kristjánsdóttir er leikstjóri Garðveislu, Þórunn S. Þorgrímsdóttir sá um leikmynd og búninga. Tónlistin er eftir Gunnar Reyni Sveinsson og Ásmundur Karlsson sér um lýsingu. Meö aö- alhlutverk fara Kristjbjörg Kjeld og Erlingur Gíslason, en meöal fjölda annarra leikara eru Guöjón Ped- ersen og Jórunn Siguröardóttir. Barnaleikritiö Gosi, sem Brynja Benediktsdóttir samdi og leik- stýröi eftir sögu ítalans Collodis veröur á fjölunum á sunnudag kl. 14. Árni Blandon leikur Gosa og Árni Tryggvason Láka leikfanga- smiö. Tvíleikur veröur á Litla sviöinu á sunnudagskvöld kl. 20.30. Þaö er eftir Tom Kemoinski og fjallar um samskipti sálfræöings og fiölusnill- ings sem haldinn er alvarlegum sjúkdómi. Gunnar Eyjólfsson og Þórunn Magnea Magnúsdóttir fara meö einu hlutverkin í leiknum. Leikstjóri er Jill Brook Árnason. „Rauða torgiö“ í MÍR-salnum „Rauöa torgiö" nefnist sovósk kvikmynd, gerö 1970, sem sýnd veröur í MIR-salnum, Lindargötu 48, sunnudaginn 17. okt. kl. 16. Leikstjóri er Vassilí Ordinskf. Myndin er í tveimur hlutum og sækir söguþráöinn í atburöi borg- arastríðsins eftir byltinguna 1917. Hefst fyrri hlutinn á því að ein Á sunnudaginn eru þrjár dags- ferðir. Kl. 8.00 er fariö í Þórsmörk og er þaö síðasta feröin á árinu, ef aö líkum lætur. Kl. 13 er gönguferö á Kerhólakamb og vesturbrúnir Esju. Göngufæri á Esju er núna eins og á sumardegi. Þetta er síö- asta Esjugangan á árinu. Kl. 13 er einnig létt fjöruganga í Hvalfiröi. Gengin veröur ströndin hjá Saurbæ og Ósmel. Nýlistasafnið: Sýningu Dieters Roths aö Ijúka Sýning á verkum Dieters Roths í Nýlistasafninu lýkur á sunnudag. Listamaöurinn sendi hingaö til lands snældur sem gestum gefst kostur á aö heyra um helgina. Opið er frá kl. 14—18. Gler í Bergvík Nú stendur yfir sýning í Islenzk- um heimilisiönaöi sem ber heitiö Gler í Bergvík. Þar eru sýndir bæöi nytja- og skrautmunir frá hinni nýju glerblástursverksmiöju á Kjal- arnesi, sem Sigrún Einarsdóttir og Sören Larsen hafa komiö á fót. Sýningarmunir hafa þaö sam- eiginlegt aö vera handgerðir — munnblásnir. Sýningin er opin á venjulegum verzlunartíma og laugardaga frá kl. 9—12. Leikfélag Reykjavíkur: Skilnaður og Hass- ið hennar mömmu HID nýja leikrit Kjartans Ragnars- sonar Skilnaöur, veröur sýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur í kvöld, ann- aö kvöld og á sunnudagskvöld. Það fjallar i stuttu máli um tímabil í lífi fráskilinnar konu. Maöurinn hefur yfirgefið hana og hún stend- ur frammi fyrir því aö þurfa aö rífa sig upp úr því þunglyndi og van- sæld sem skilnaöinum er samfara og öölast nýtt lífsmat. Guörún Ásmundsdóttir og Jón Hjartarson leika hjónin í verkinu. Aörir leikarar eru: Valgeröur Dan, Aöalsteinn Bergdal, Soffía Jak- obsdóttir og Sigrún Edda Björns- dóttir. Kjartan leikstýrir Skilnaöi sjálfur, en leikmynd er eftir Stein- þór Sigurösson. Annaö kvöld (laugardagskvöld) veröur þriöja sýningin i Austurbæj- arbíói á Hassinu hennar mömmu eftir Dario Fo. í stærstu hlutverkum eru Mar- grét Ólafsdóttir, Gísli Halldórsson, Emil G. Guömundsson, Kjartan Ragnarsson, Aöalsteinn Bergdal auk Ragnheiöar Steindórsdóttur og Guömundar Pálssonar. Leik- stjóri er Jón Sigurbjörnsson, en leikmynd hannaði Jón Þórisson. Hér er um aö ræöa Miönætursýn- ingu og hefst hún kl. 23.30. Gunnar Eyjólfsaon í hlutverkum sínum í Tvíleik. Helgarferð Útivistar er í Þórs- mörk. Brottför er kl. 20 í kvöld. Fariö veröur í gönguferöir um Þórsmörkina, en gist er í nýja Úti- vistarskálanum Básum. Farmiöar fást á skrifstofunni, Lækjargötu 6a. herdeildin i gamla keisarahernum gengur sem heild til liðs viö Rauöa herinn eftir orrustu viö Þjóöverja og lýkur þann dag sem hermenn- irnir sverja ráöstjórninni hoilustu á Rauða torginu í Moskvu. I kvik- myndinni er brugöiö upp svipm- yndum af mönnum, sem voru mjög ólíkir aö eðlisfari en áttu þaö sam- eiginlegt aö vera þátttakendur í stofnun og mótun hins nýja ríkis. í fyrri hlutanum segir frá Amelín kommissar 1918 og í þeim siöari frá Koltjakov deildarforingja 1919. Enskir skýringartextar eru meö myndinni. Aögangur er ókeypis og öllum heimill. Sólarkvöldin af stað Sólarkvöld Samvinnuferöa- Landsýnar hefjast aö nýju í Súlna- salnum í kvöld. Einnig veröa Sól- arkvöld á laugardags- og sunnu- dagskvöld. Aö þessu sinni er Holland og þá sérstaklega Amsterdam kynnt. Leitast veröur við aö skapa hina réttu hollensku stemmningu, hol- lenskur matur og drykkur á borö- um og hollenskir listamenn skemmta. Ennfremur fá allar konur blóm sem Hollendingurinn Aaf Groeneweg hefur útbúiö af þessu tilefni. Á Sólarkvöldum veröur spilaö bingó, tískusýningar veröa öll kvöldin og jafnvægislistamaðurinn Walter Wasil skemmtir. Hljóm- sveitin Gautar frá Siglufiröi leikur fyrir dansi öll kvöldin. Bridgemót á Hótel Selfoss Bridgefélag Selfoss og nágrenn- is stendur fyrir opnu stórmóti í bridge, laugardaginn 16. október nk. Kallast þaö „Stóra Floridana- mótiö“. Mótiö veröur haldið í matsal Hótel Selfoss. Mótssetning veröur kl. 13.00 og spilamennska hefst korteri síöar. Spilaöur veröur 32ja manna „tölvugefinn" barómeter. 16.000 króna verðlaun veröa í boöi og einnig veröur spilaö um silfur- stig. Þátttökugjald er kr. 500 fyrir pariö, og greiðist i mótsbyrjun. Mótsstjóri veröur Sigurjón Tryggvason. Kjarvalsstaðir: Málarahópur frá Akureyri sýnir Opnuð veröur sýning á laugar- dag kl. 15 á Kjarvalsstööum. Þar sýnir málarahópur frá Akureyri verk sín. Thorvaldsensýningin heldur áfram til mánaöamóta og einnig veröur fram haldiö sýningu á Ijósmyndum af verkum Kjarvals. Jass í Stúdenta- kjallaranum Jass verður í Stúdentakjallaran- um á sunnudagskvöld kl. 21. Þeir sem leika eru: Tómas Ein- arsson, bassi, Siguröur Flosason, saxófónn, Friörik Karlsson, gítar og Gunnlaugur Briem, trommur. Aðalfundur Kristi- legs félags heil- brigðisstétta Aöalfundur Kristilegs félags heilbrigðisstétta veröur haldinn á mánudagskvöld kl. 20.30 i Laug- arneskirkju. Venjuleg aöalfund- arstörf og kaffiveitingar. Vísnakvöld Vetrarstarf Vísnavina er nú hafiö og hefur þegar verið haldiö eitt vísnakvöld. Næsta vísnakvöld verður mánudaginn 18. október og verður aö venju í Þjóöleikhúskjall- aranum. Hefst þaö klukkan 20.15. Þar kennir margra grasa og koma fram meðal annarra Sigurö- ur Rúnar Jónsson ásamt fríöu föruneyti og flytja tónlist úr barna- leikritinu Gosa. Friörik Karlsson og Kristján Einarsson munu flytja renaisance-dúetta fyrir gitara. Ljóöskáld kvöldsins veröur Sjón. Fleiri, en þessir munu láta í sér heyra og einnig er rétt aö benda á þaö aö gestir úr sal, sem eitthvað hafa í pokahörninu eru meira en velkomnir. Fjalakötturinn: Kvikmyndin Hinir lostafullu sýnd í Fjalakettinum, kvikmynda- klúbbi framhaldsskólanna, verður myndin Hinir lostafullu tekin til sýningar. Leikstjóri er Nicolas Ray, en meö aöahlutverk fara Robert Mitchum, Susan Hayward og Arth- ur Kennedy. Hér er um aö ræöa ævintýra- mynd meö dramatísku ívafi ef svo má aö oröi komast. Fjallar hún um líf og ástir ródeókappa í villta vestrinu. Loks má geta þess aö myndin, sem gerö var áriö 1952, veröur sýnd 22. okt. Ferðir Útivistar i i HVAD ER AD GERAST UM HELGINA?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.