Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
Hvað er elli, og hvenær
og hvernig verða menn
gamlir? Það eru víst
ekki til nein algild svör
við þessum spurning-
um, menn eldast mis-
hratt, sumir hafa yfir-
bragð öldungs þegar á
sextugsaldri en aðrir
eru í fullu fjöri fram
undir tíræðisaldur.
Meðalaldur okkar ís-
lendinga hækkar í sí-
fellu og er nú einhver sá
hæsti ( heimi, meðalald-
ur íslenskra kvenna er
tæp áttatíu ár og meðal-
aldur karla sjötíu og
fjögur ár. Hlutfallslegur
fjöldi aldraðra hefur
vaxið talsvert á þessari
öld, árið 1901 voru íbúar
landsins 65 ára og eldri
um 6,8% en á áttunda
áratugnum var þetta
hlutfall orðið milli 9 og
10%. Flestir eru lífeyris-
þegar búsettir í Reykja-
vík, þann 1. desember
1980 voru 12,9% af íbúa-
fjölda Reykjavíkur 67
ára og eldri. Ellilífeyris-
þegum fjölgar með
hverju árinu, og sem
betur fer á það fyrir
flestum okkar að liggja
að verða gömul og ald-
urhnigin. Þetta tímabil,
sem hjá sumum verður
um þriðjungur ævinnar
þarf þó ekki að verða
erfiðasta tímabilið í líf-
inu, regluleg líkams- og
heilsurækt og hollt og
næringarríkt fæði getur
komið í veg fyrir fjölda
sjúkdóma og hrörnun
fyrir aldur fram. En er
einhver ástæða til að
búa sig undir þetta
æviskeiö sérstaklega?
Hingað til hafa verið til
ýmsir bæklingar og
upplýsingarit fyrir önn-
ur tímabíl mannsævinn-
ar, handbækur fyrir for-
eldra um mikilvægi
bernskunnar, upplýs-
ingarit um gelgjuskeið-
ið, handbækur fyrir
veröandi foreldra
o.s.frv. Eftir því sem
maöurinn eldist er
minna til af sjíkum upp-
lýsingum, en nú fyrir
skömmu kom út bækl-
ingur sem nefnist „Þeg-
ar ég eldist“ og er Þórir
S. Guðbergsson höf-
undur og útgefandi.