Morgunblaðið - 12.11.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1982
39
Erfidast er að byggja við kassahúsin svo-
kölluðu, sem mikið hefur verið byggt af,
því það er ekki auðvelt aö uppfylla kröfur
um að viðbyggingin sé í samræmi viö hús-
iö og að lágmarksstærð sé eins og mælt
er meö. Best er að hafa viðbygginguna
fyrir endann, meðfram húsinu eða eins og
sjá má á mynd 1. Ef húsiö er í lögun líkt og
þetta er annaöhvort hægt að byggja gler-
viðbygginguna meðfram húsinu eins og
sjá má á mynd 2 og verður glerviðbygging-
in þá eins og vasaútgáfa af íbúöarhúsinu.
Einnig er mögulegt aö byggja nýtt hús á
lóðínni og tengja þaö við íbúðarhúsiö meö
glerhúsi, mynd 3, sem yrði í
beinu framhaldi af nýja húsinu. Þessi
glerviöbygging fellur vel að þessari gerð
húsa og gefur ótal möguleika fyrir alls
kyns starfsemi, mynd 4. Hið hefðbundna
hús á tveim hæðum gefur ýmsa mögu-
leika til viðbyggingar. Það er t.d. hægt að
byggja húsiö í framhaldi af þakinu og þá
jafnvel hægt að hafa viðbygginguna mis-
breiða, mynd 5. Einnig er hægt að byggja
fyrir endann á húsinu, þá ýmist fyrir miöj-
um húsgaflinum eða í framhaldi af þakinu
öðru hvoru megin, mynd 6. Þá er einnig
hægt aö byggja í sama stíl og húsið sjálft,
nokkurs konar vasaútgáfu í svipuðum
hlutföllum og íbúöarhúsið, mynd 7.
að rækta. Þá er einnig hægt aö
tengja þetta gróöursvæði svefn-
herbergjum og ótal fleiri möguleik-
ar eru fyrir hendi.
Eins óg áöur sagöi er ekkert
vandamál fyrir okkur aö hafa hita-
stigiö eins og hver óskar þar sem
viö erum betur í sveit sett en flest-
ar aðrar þjóöir hvaö orku snertir.
En ef hitinn veröur of mikill, t.d. ef
sólin skín tímunum saman getur
veriö nauösynlegt aö koma upp
einhverjum gardínum eöa skugga-
mottum sem hægt er aö draga
fyrir. Hafsteinn Hafliöasop mælti
meö því aö nota náttúruleg efni í
þess konar gluggatjöld, svo sem
bambus eða striga sem fer vel við
gróöurinn. Hann sagöi ennfremur
aö þaö þyrfti aö vera hægt aö
opna um 40% af grunnfleti gróö-
urstofunnar. Æskilegt er aö á
þessu svæöi sé talsveröur þak-
halli, sumir telja aö þakhalli þurfi
aö vera minnst 25° og því hærra
sem er til lofts þeim mun betra
verður loftiö. Mælt er meö þrem
metrum eöa meira þar sem það er
hæst. Sæmilegur þakhalli léttir
einnig þrif, því óhreinindin skolast
af meö rigningarvatni.
Hér aö framan hafa veriö rakin
nokkur atriöi sem taka veröur tillit
til þegar hluti húsnæöisins er hafö-
ur undir glerþaki. Eins og Dagný
Helgadóttir benti á, er æskilegast
aö skipuleggja þennan hluta i sam-
ræmi viö húsiö í heild sinni, og
einnig er gott aö fá ráðleggingar í
sambandi við glerviöbyggingar
eldri húsa. Varöandi glerviðbygg-
ingar viö eldri hús gildir yfirleitt sú
regla aö viðbyggingin eigi aö vera
jafn „ósýnileg“ og mögulegt er,
þ.e. án óþarfa tréverks eða annars
sem dregur athyglina aö viöbygg-
ingunni. Á þann hátt fellur viö-
byggingin betur inn í heildarmynd
hússins. Lögun viðbyggingarinnar
þarf einnig aö vera í samræmi viö
byggingarlag hússins og sýna
meðfylgjandi teikningar nokkra
möguleika.
Viö litum einnig inn í viöbygg-
ingu hjá þeim Ólafi Sigurössyni
arkitekt og Svövu Ágústsdóttur í
Hjallabrekku í Kópavogi, en þau
hafa fyrir skömmu tengt íbúöarhús
sitt og bílskúrinn meö glerviöbygg-
ingu, sem er á tveim hæöum og af
efri hæöinni er fallegt útsýni yfir
húsin í kring í allar áttir. „Þaö er
um ár síöan þetta kom hér hjá
okkur, og eins og sjá má er ýmis-
legt enn ógert, viö eigum eftir aö
setja hringstiga upp á efri hæöina
og blómaker bæöi uppi og niðri.
Þá ætlum viö aö setja hellur á gólf-
iö svipaðar og eru fyrir framan
húsið.“ Svava sagöi aö þau hituðu
þetta svæöi lítiö, héldu því frost-
lausu og meöalhiti væri um 5 gráö-
ur á veturna. Hún sagöi aö gróöur-
inn væri lítiö kominn af staö enn,
en þarna má þó sjá vínviö, fíkjutré
og fleira og tómatar, gúrkur og
paprikur hafa einnig vaxiö á efri
hæðinni. Að ööru leyti er sjón sögu
ríkari, og viö birtum nokkrar
myndir af viðbyggingunni í Hjalla-
brekku, auk þess tók Kristján Ein-
arsson Ijósmyndari nokkrar mynd-
ir af glerviöbyggingum eöa gróö-
urstofum í Reykjavik og nágrenni.
Þessa blómastofu rékumst við á í Kópavogi en hér hefur veriö byggt út
á pall sem er samiiggjandi húsinu.
Hér hafa íbúar í einu af fjölbýlishúsunum { Kópavogi sett glerglugga
fyrir svalirnar hjá sór til aö geta nýtt þ»r betur.
TIL
ÍSLANDS
Lestun í eriendum ■
höfnum
AMERÍKA
PORTSMOUTH
Mare Garant 23. nóv.
City of Hartlepool 29. nóv.
Mare Garant 13. des.
NEW YORK
Mare Garant 22. nóv.
City of Hartlepool 30. nóv.
Mare Garant 14. des.
HALIFAX
Hofsjökull 19. nóv.
Goöafoss 3. nóv.
BRETLAND/
MEGINLAND
FELIXSTOWE
Alafoss 15. nóv.
Eyrarfoss 22. nóv.
Álafoss 29. nóv.
Eyrarfoss 6. des.
ANTWERPEN
Alafoss 16. nóv.
Eyrarfoss 23. nóv.
Álafoss 30. nóv.
Eyrarfoss 7. des.
ROTTERDAM
Álafoss 17. nóv.
Eyrarioss 24. nóv.
Alafoss 1. des.
Eyrarioss 8. des.
HAMBURG
Álafoss 18. nóv.
Eyrarfoss 25. nóv.
Álafoss 2. des.
Eyrarioss 9. des.
WESTON POINT
Helgey 11. nóv.
Helgey 23. nóv.
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss 22. nóv.
Dettifoss 6. des.
KRISTIANSAND
irafoss 24. nóv.
Múlafoss 8. des.
MOSS
Mánafoss 16. nóv.
irafoss 23. nóv.
Mánafoss 30. nóv.
GAUTABORG
Mánafoss 17. nóv.
Dettifoss 24. nóv.
Mánafoss 1. des.
Dettifoss 8. des.
KAUPMANNAHÖFN
Manafoss 18. nóv.
Dettifoss 25. nóv.
Mánafoss 2. des.
Dettifoss 9. des.
HELSINGBORG
Mánafoss 19. nóv.
Dettifoss 26. nóv.
Mánafoss 3. des.
Dettifoss 10. des.
HELSINKI
Irafoss 17. nóv.
Múlafoss 1. des.
GDYNIA
irafoss 19. nóv.
Múlafoss 3. des.
HORSENS
irafoss 22. nóv.
Múlafoss 6. des.
THORSHAVN
Mánafoss 9. des.
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
- framog til baka
frá REYKJAVIK alla mánudaga
frá ISAFIROI alla þriOjudaga
frá AKUREYRI alla fimmtudaga
EIMSKIP
SÍMI 27100