Morgunblaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1982
17
fturstöðu prófkjörsins?
is í Reykjavík og innti eftir áliti þeirra
getiö, aö ekki náöist í Pétur Sigurösson.
Ánægður með
árangur minn
— segir Guðmundur
H. Garðarsson
„ÉG VONA að það sé flokknum til
styrktar að ég skuli vera í þessu
sæti, ég hlýt að segja það,“ sagði
Guðmundur H. Garðarsson í sam-
tali við Morgunblaðið, en hann varð
í 8. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins.
„Ég vonast til þess að flokkurinn
og flokksmenn dragi viðeigandi
ályktanir af því sem í prófkjörinu
gerðist. Ég er ánægður með árangur
minn í prófkjörinu," sagði Guð-
mundur.
„Auðvitað er það æskilegt og
æskilegast að formaður flokksins
fái ætíð góða kosningu, hvort sem er
innan flokks eða í prófkjöri, en ég
minni á það að í prófkjöri er for-
maður flokksins ekki kosinn, það
gera flokksmenn sjálfir á Lands-
fundi. Landsfundur kveður á um
það hvern fólkið tekur hæfastan til
þess að vera í forystu flokksins á
hverjum tíma. Nú var ekki verið að
kjósa í stöðu formanns flokksins,
heldur um röð manna á lista, en að
sjálfsögðu hefði ég viljað að for-
maður Sjálfstæðisflokksins hefði
hlotið betri kosningu,“ sagði Guð-
mundur.
„Þá vil ég þakka öllum stuðnings-
mönnum mínum liðveisluna og
einnig þeim sem þátt tóku í próf-
kjörinu," sagði Guðmundur H.
Garðarsson.
Niðurstaðan
kom mjög
á óvart
— segir Jón Magnússon
„ÞESSI niðurstaða kemur mér
ákaflega mikið á óvart, sérstaklega
það að formaður flokksins skyldi
verða í 7. sæti og með jafn lítið at-
kvæðamagn á bak við sig og raun
ber vitni, það kemur mér mjög á
óvart," sagði Jón Magnússon í sam-
tali við Morgunblaðið, en Jón varð 9.
í röðinni í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins.
„Það er mjög ánægjulegt að Ell-
ert B. Schram skuli hafa fengið
svona góða kosningu, en það er al-
varlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að
formaður hans skuli hafa fengið
þessa útreið og það er slæmur hlut-
ur. Mér sýnist ekki hægt að túlka
þessi úrslit á annan hátt, en að þau
séu sigur fyrir þau viðhorf að
Sjálfstæðisflokkurinn eigi að vera
breiður, víðsýnn og frjálslyndur
flokkur," sagði Jón.
„Ég er ánægður með mina út-
komu, ég er með rúmlega 50% at-
kvæða og er að taka þátt í prófkjöri
í fyrsta skipti og tel að ég geti mjög
vel unað við þá niðurstöðu. Það lá
ljóst fyrir að þetta var sterkt
prófkjör, í því tók þátt ákaflega
mikið af góðu og hæfu fólki og ég
held að prófkjörsbaráttan hafi farið
vel og drengilega fram að nánast
öllu leyti. Ég varð ekki var við ann-
að. Ég er ánægður með að þetta
skuli vera yfirstaðið og þakka fyrir
þann mikla stuðning sem ég hef
fengið og sérstaklega þakka ég því
harða baráttuliði sem ég hafði í
kringum mig, sem var reiðubúið til
þess að leggja óskapiega mikla
vinnu á sig og eyða tugum vinnu-
stunda til þess að berjast fyrir
frambjóðandann," sagði Jón Magn-
ússon.
Nýir menn
eiga undir
högg að sækja
— segir Geir H. Haarde
„ÉG VIL í fyrsta lagi lýsa vonbrigð-
um mínum með það að formaður
flokksins skuli hafa fengið jafn lé-
lega kosningu og raun ber vitni. Ég
tel þessi úrslit bæði ósanngjörn og
slæm fyrir Sjáifstæðisflokkinn á
þessum tímum," sagði Geir H.
Haarde í samtali við Mbl, en hann
varð 10. í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins.
„Hvað sjálfan mig varðar tel ég
mig geta vel við unað. Ég fékk rúm-
lega 4.100 atkvæði eða um 51%, ög
er mjög ánægður með það. Það er
greinilegt af úrslitum prófkjörsins
að nýir menn eiga fremur undir
högg að sækja í svona prófkjöri. í
átta fyrstu sæti listans röðuðust
þannig eingöngu núverandi og
fyrrverandi þingmenn flokksins,"
sagði Geir.
„Ég vil nota þetta tækifæri til að
þakka hinum fjölmörgu stuðnings-
mönnum mínum, sem lögðu hönd á
plóginn í þessari prófkjörsbaráttu,"
sagði Geir H. Haarde.
Bessí Jóhannsdóttir:
Gagnvart
konum eru
úrslitin
tímaskekkja
„ÉG TEL að þessi úrslit séu gagn-
vart konum tímaskekkja fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, að því leyti að
það er aðeins ein kona í öruggu
sæti,“ sagði Bessí Jóhannsdóttir, en
hún lenti í 11. sæti.
Hún sagði ennfremur: „Við höfum
lagt áherslu á að listi flokksins í
komandi Alþingiskosningum endur-
spegli þá hugsjón, að einstaklingn-
um, konum jafnt sem körlum, séu
falin ábyrgðarstörf í þágu flokksins.
Þessi listi gerir það ekki og það er
mjög miður á sama tíma og hætta er
á að fram geti komið kvennafram-
boð.
Persónulega er ég ánægð með það
að vera næstefsta konan. Það sýnir
traust í minn garð og ég vil nota
tækifærið og þakka þeim fjölmörgu
sjálfstæðismönnum sem studdu mig
í prófkjörinu," sagði Bessí að lokum.
Elín Pálmadóttir:
Sýnir að
þetta er ekki
nýjungagjarn
flokkur
„ÞETTA er mjög afgerandi val
flokksmanna á þingmannsefnum sín-
um. Sýnir að þetta er ekki nýjunga-
gjarn flokkur, en kýs að ganga til
næstu kosninga með það lið, sem
lengi hefur verið þar. Flokkur sem
kýs sér formann með yfirgnæfandi
meirihluta á landsfundi, en vill ekki
styðja hann almennilega í sæti al-
þingismanns og átta ég mig illa á
þeim „geðklofningi". Flokkur sem .
ekki lætur ýta sér til að nýta
starfskrafta kvenna umfram það
sem var í eina tíð,“ sagði Elín Pálma-
dóttir en hún varð í 12. sæti.
Elín sagði ennfremur: „Sjálf fór ég
í prófkjör til að vita hvort þessi
flokkur vildi nýta mig til starfa við
löggjöf í framhaldi af fyrri reynslu
og störfum í borginni. 112. sæti verð-
ur það ekki á þessum vettvangi. En
að sjálfsögðu eru næg verkefni að
góðum málum annars staðar í þjóð-
félaginu."
Samanburður á próf-
kjörum 1970, 1977
1979 og 1982
Úrslit prófkjörs í nóvember 1982:
1 Albert Guðmundsson 6.027 atkvæði 73,9%
2 Friðrik Sophusson 5.670 69,5%
3 Birgir Isl. Gunnarsson 5.608 68,8%
4 Ellert B. Schram 5.386 66,0%
5 Ragnhildur Helgadóttir 5.137 63,0%
6 Pétur Sigurðsson 4.698 57,6%
7 Geir Hallgrímsson 4.414 54,1%
8 Guðmundur H. Garðarsson 4.199 51,5%
9 Jón Magnússon 4.173 51,2%
10 Geir H. Haarde 4.107 50,4%
11 Bessí Jóhannsdóttir 2.932 35,9%
12 Elín Pálmadóttir 2.706 n 33,2%
Ath.! Alls greiddu 8.155 atkvæði í prófkjörinu og er kosning bind-
andi fyrir 10 efstu.
Úrslit prófkjörs í október 1979:
1 Geir Hallgrímsson 8.448 atkvæði (4.364) 68,9%
2 Albert Guðmundsson 8.281 (5.299) 67,5%
3 Birgir ísl. Gunnarsson 8.905 (5.303) 72,6%
4 Gunnar Thoroddsen 6.831 (4.469) 55,7%
5 Friðrik Sophusson 8.007 (5.114) 65,3%
6 Ellert B. Schram 7.805 (6.098) 63,6%
7 Ragnhildur Helgadóttir 7.609 (6.796) 62,0%
8 Pétur Sigurðsson 7.386 (7.386) 60,2%
9 Guðmundur H. Garðarsson 5.819 (5.819) 47,4%
10 Elín Pálmadóttir 2.882 (2.882) 23,5%
11 Björg Einarsdóttir 2.610 (2.610) 21,3%
12 Jónas Bjarnason 2.503 (2.503) 20,4%
Ath.! Alls greiddu 12.264 atkvæði í prófkjörinu og er kosning bind-
andi fyrir 8 efstu. í prófkjörinu var kosið í ákveðin sæti á
listanum, ólíkt því sem nú er. Tölurnar í svigum eru atkvæði
í þau sæti, sem frambjóðendur lentu í. Atkvæði fyrir neðan
sætið féllu ógild.
Úrslit prófkjörs í nóvember 1977:
1 Albert Guðmundsson 7.475 atkvæði 75,7%
2 Geir Hallgrímsson 7.053 71,4%
3 Ragnhildur Helgadóttir 6.998 70,9%
4 Ellert B. Schram 6.410 64,9%
5 Gunnar Thoroddsen 6.261 63,4%
6 Friðrik Sophusson 5.348 54,1%
7 Guðmundur H. Garðarsson. 5.324 53,9%
8 Pétur Sigurðsson 4.708 47,7%
9 Geirþrúður H. Bernhöft 4.122 41,7%
10 Elín Pálmadóttir 4.016 40,7%
11 Gunnlaugur Snædal 3.206 32,5%
12 Haraldur Blöndal 3.084 n 31,2%
Ath.! Alls greiddu 9.877 atkvæði í prófkjörinu og er kosning bind-
andi fyrir 7 efstu.
Úrslit prófkjörs í september 1970:
1 Geir Hallgrímsson 6.605 atkvæði 71,2%
2 Jóhann Hafstein 6.040 65,2%
3 Gunnar Thoroddsen 5.738 61,9%
4 Auður Auðuns 5.584 60,2%
5 Pétur Sigurðsson 4.568 49,3%
6 Ragnhildur Helgadóttir 3.390 43,0%
7 Ellert B. Schram 3.919 42,3%
8 Birgir Kjaran 3.443 37,1%
9 Geirþrúður H. Bernhöft 2.990 32,2%
10 Ólafur Björnsson 2.892 31,2%
11 Hörður Einarsson 2.381 25,7%
12 Guðmundur H. Garðarsson 2.340 n 25,2%
Ath.! Alls greiddi 9.271 atkvæði i prófkjörinu og er kosning bind-
andi fyrir 4 efstu.
Sauðfjárslátrunin í haust:
Meöalfallþungi dilka lA kílói
undir meðaltali síöustu 10 ára
Sláturleyfishafar hafa nú skilað
skýrslum um sauðfjárslátrunina í
haust til Framleiðsluráðs landbún-
aðarins. Samtals var slátrað 936.444
fjár sem er rúmlega 52 þúsundum
fjár færra en í fyrra, þar af var slátr-
að 833.699 dilkum sem er 60 þúsund
dilkum færra en í fyrra og 102.745
fullorðnu sem er 8 þúsundum fleira
en í fyrra.
Dilkakjötið reyndist vera 11.493
tonn sem eru 709 tonnum minna
en í fyrra. Kjöt af fullorðnu var
aftur á móti 2.159 tonn en það er
138 tonnum meira en árið 1981.
Slátrun fullorðins fjár í haust er
sú mesta síðastliðin 20 ár að árinu
1979 undanskildu.
Meðalfallþungi dilka reyndist
vera 13,79 kíló og er hann heldur
meiri en í fyrra, þá var hann 13,65
kg. Meðalfallþungi dilka síðastlið-
in 10 ár er 14,30 kg og er meðal-
fallþunginn í ár því hálfu kílói
minni en meðaltal síðustu ára.
Utflutningsþörfin eftir slátrun í
haust taldi Gunnar Guðbjartsson,
framkvæmdastjóri Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins, að væri um
3.500 tonn af dilkakjöti og 5—600
tonn af ærkjöti en það er svipuð
útflutningsþörf og síðasta haust.