Morgunblaðið - 18.01.1983, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
13. tbl. 70. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Líbanon:
Viðræður farnar
Carl Carstens, forseti Vestur-Þýskalands, Andrei Gromyko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, og Hans-Dietrich
Gencher, utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands. Myndin var tekin í gær á öðrum degi heimsóknar Gromykos í
Vestur-Þýskalandi, en þangað er hann kominn til að útskýra tillögur Sovétmanna um fækkun kjarnorkueldflauga í
Evrópu. ap.
árangur
að bera
Khalde, Líbanon, 17. janúar. AP.
SAMNINGAMENN Líbana, ísraela
og Bandaríkjamanna skýrðu í dag frá
„góðum árangri" af starfi einnar und-
irnefndarinnar, sem rætt hefur um að
binda enda á 35 ára gamalt stríðs-
ástand milli Líbana og ísraela. Er hér
um að ræða fyrsta merkið um árangur
af viðræðunum, en Bandaríkjastjórn
leggur nú mikið kapp á að þeim verði
hraðað.
Ekki var sagt frá viðræðum und-
irnefndarinnar í einstökum atriðum
en talið er, að stríðsástandinu, sem í
raun hefur ríkt milli þjóðanna frá
1948, verði lokið með yfirlýsingum
beggja um að hvorug muni fara með
her á hendur hinni. Yrðu þær liður í
allsherjarsamkomulagi um brott-
flutning alls herliðs frá Líbanon.
Dagblöð í Beirut sögðu nýlega frá
því, að líbanska stjórnin hefði
kvartað undan því við Bandaríkja-
stjórn, að Israelar væru að koma
upp fullkomnum ratsjám og fjar-
skiptabúnaði í miðhálendi landsiná
Boöa skyndi-
fund til aö
bjarga OPEC
Vín, 17. janúar. AP.
EMBÆTTISMENN í aðalstöðvum
OPEC, samtaka olíuútflutningsríkja,
staðfestu í dag, að haldinn yrði skyndi-
fundur í Genf til að reyna að koma í
veg fyrir verðstríð milli aðildarríkjanna
13.
Haft var eftir embættismönnun-
um, að fundurinn hæfist 23. janúar
nk. en að dagskrá hans hefði ekki
verið ákveðin ennþá. Það voru átta
ríki af 13, sem samþykktu þennan
skyndifund eftir að íranir höfðu
ákveðið einhliða að auka olíufram-
leiðslu sína þvert ofan í fyrri sam-
þykktir OPEC. Saudi-Arabar og ír-
anir, tvær mestu framleiðsluþjóðirn-
ar, deila ákaft um stefnu samtak-
anna og er óttast, að ágreiningurinn
geti eyðilagt samtökin og tilraunir
þeirra til að halda olíuverði í horf-
inu.
Ef OPEC-ríkjunum mistekst að
halda framleiðslunni innan sam-
þykktra marka, 18,5 milljónum
tunna á dag, mun framboðið enn
aukast á yfirfullum markaðinum og
getur þá fátt komið í veg fyrir verð-
hrun á olíunni.
þrátt fyrir viðræðurnar um brott-
flutning. Þykja þessar fréttir at-
hyglisverðar í ljósi þeirrar fréttar í
The Jerusalem Post sl. fimmtudag,
að George P. Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hefði látið
þann ótta í ljós í einkaviðræðum, að
Israelar og Sýrlendingar hefðu sam-
ið um það óformlega að skipta Líb-
anon á milli sín.
Walesa
reyndi
ekki inn-
göngu
Varsjá, 17. janúar. AP.
LECH Walesa hætti í morgun við
að reyna inngöngu í Lenin-skipa-
smíðastöðvarnar í Gdansk en hét
því að leita allra lagalegra leiða til
að endurheimta starf sitt þar.
„Ef ég fæ ekki starf mitt aftur
mun ég fara með málið fyrir
dómstólana," sagði Walesa við
vestræna fréttamenn, sem safn-
ast höfðu saman við krossana
þrjá fyrir utan skipasmíðastöð-
varnar en þeir voru reistir til
minningar um verkamenn, sem
féllu fyrir lögreglunni árið 1970.
„Ég mun ávallt reynast því trúr,
sem þessir krossar standa fyrir,“
sagði Walesa og kraup á kné við
minnismerkið. „Ég var og mun
verða Samstöðumaður."
Síðastliðinn föstudag var Wal-
esa meinaður inngangur í skipa-
smíðastöðvarnar og því borið
við, að hann vantaði vottorð frá
embættismönnum borgarinnar
um að mál hans, sem formanns
Samstöðu, væru komin á hreint.
Walesa mótmælti þessu og
kvaðst mundu koma aftur í dag,
mánudag, en hætti síðan við það
eins og fyrr segir. Walesa hefur
margoft verið boðaður á fund
Boleslaw Napieraj, þess manns,
sem settur var yfir málefni Sam-
stöðu með herlögunum, en hefur
virt þær kvaðningar að vettugi
til þessa og segist ekki viður-
kenna rétt Napieraj til að ráðsk-
ast með Samstöðu og félagsmenn
hennar.
FLUGSLYSIÐ í ANKARA
Leifar tyrknesku farþegaþotunnar, sem brotlenti 50 metrum frá brautarenda I Ankara sl. sunnudag. A.m.k. 39 manns
fórust. Sjá bls. 18. AP.
Vestur-Þýskaland:
Gromyko og Genscher
ræða um kjarnorkuvopn
un að koma í haust upp Pershing II
og stýriflaugum til varnár Vestur-
löndum. Hans-Jochen Vogel,
kanslaraefni jafnaðarmanna, telur
þó, að Bandaríkjastjórn sé fús til
tilslakana í þessu efni.
Auk kjarnorkuvopnanna ræddu
ráðherrarnir um samskipti þjóð-
anna, efnahagssamvinnu, Afgan-
istan og Pólland og um það, að
fleira fólki af þýskum ættum verði
leyft að fara frá Sovétríkjunum.
Bonn, 17. janúar. AP.
ANDREI Gromyko, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, hóf í dag við-
ræður við vestur-þýska ráðamenn en
þetta er hans fyrsta utanfór frá því
að Andropov tók við völdunum í
Kreml.
Gromyko átti í morgun fund
með embættisbróður sínum,
Hans-Dietrich Genscher, utan-
ríkisráðherra Vestur-Þýskalands,
og snerust viðræður þeirra einkum
um afvopnunarmál og gagnkvæma
fækkun kjarnorkueldflauga.
Genscher skýrði fyrir Gromyko
það sjónarmið Breta og Frakka, að
þeirra kjarnorkuvopn væru undan-
skilin í viðræðum stórveldanna
enda ættu þeir ekki aðild að af-
vopnunarviðræðunum í Genf, og
einnig lagði hann áherslu á þýð-
ingu bandarískra kjarnorkuvopna
fyrir þær þjóðir Vestur-Evrópu,
sem ekki hefðu yfir slíkum vopn-
um að ráða.
Rússar hafa boðist til að fækka
SS-20-eldflaugum sínum niður í
162 eða sem samsvarar þeim
fjölda, sem Bretar og Frakkar eiga
nú, en NATO hefur hins vegar
krafist þess, að öllum SS-20-eld-
flaugum, sem beint er að Vestur-
Evrópu, verði tortímt, ella muni
bandalagið halda fast við þá áætl-
Skoðanakönntin í Bretlandi:
Thatcher ynni
glæstan sigur
— ef gengið yrði til kosninga nú
London, 17. janúar. AP.
EF TIL kosninga yrði gengið nú í
Bretlandi myndi Margaret Thatcher
og flokkur hennar, Ihaldsflokkur-
inn, vinna stærri sigur en í kosning-
unum 1979 að því er fram kemur í
skoðanakönnun, sem birt var í dag.
Fylgi Ihaldsflokksins hefur
aukist um 2% frá því í desember,
er nú 44%, en fylgi Verkamanna-
flokksins stendur í stað, 35% sem
áður. Vinsældir kosninga-
bandalags jafnaðarmanna og
frjálslyndra hafa hins vegar ekki
verið minni í annan tíma og fengi
það nú aðeins stuðning 20% en
hafði 21% í desember. Þetta for-
skot íhaldsflokksins og breyt-
ingar á kjördæmamörkum, sem
eru flokknum hagstæðar, gæfu
honum 90—100 þingsæta meiri-
hluta í kosningum.
í könnuninni, sem gerð var
fyrir Lundúnablaðið The Stand-
ard, kom einnig fram, að Thatch-
er nýtur nú meira fylgis meðal
karlmanna og félaga í verkalýðs-
félögum en var í síðustu kosning-
um árið 1979. Kosningar verða að
fara fram ekki síðar en í maí 1984
en orðrómur hefur verið á kreiki
um kosningar fyrr. Thatcher
sagði sl. sunnudag, að hún hefði
ekki á prjónunum að flýta kosn-
ingum en „ég útiloka ekkert".
Það kemur fram hjá Mori,
stofnuninni, sem annaðist skoð-
anakönnunina, að vinsældir
Margaret Thatchers séu „einstæð-
ar“ í breskri sögu þegar tekið sé
tillit til þess, að hún hefur setið á
stóli í fjögur ár og atvinnuleysið
með því mesta, sem þekkist.