Morgunblaðið - 18.01.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.01.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983 25 einhverri hittni heföu Framararnir hugsanlega getaö hrellt þá enn betur. Henni var þó ekki fyrir aö fara undir lokin fremur en í byrjun leiks og því fór sem fór. Valsmenn hófu leikinn af miklum krafti og á sama tíma og Framar- arnir, sér í lagi Símon Ólafsson og Val Brazy, áttu hvert skotiö á fætur ööru, sem ekki rataði ofan í körf- una, skoruöu Valsmenn grimmt úr hraðaupphlaupum. Sum þeirra voru snilldarlega útfærö, á öörum var nokkur heppnishraöastimpill. Einu gilti því á þeim bænum rötuöu flest skotin ofan í körfuna og þaö er einmitt þaö, sem þessi íþrótt snýst um. Þaö var dáiítiö kyndugt aö sjá Framarana ríghalda í maöur-á- mann varnaraðferö sína þótt þeim tækist ekki aö koma í veg fyrir lek- ann í vörninni. Valsmenn hóldu sig viö vel skipulagöa svæöisvörn all- an leikinn, ef undan er skilin leik- leysan í lokin, og hún skilaði marg- falt betri árangri þótt hún sé miklu leiöinlegri á aö horfa. Þeir Ríkharöur og Torfi áttu báöir þrumuleik hjá Val og Rík- haröur var frábær í mörgum hraöaupphlaupanna. Aörir leik- menn stóöu þeim talsvert aö baki, en Dwyer aö vanda öruggur. Óþol- andi hins vegar hvernig hann end- ist til aö röfla út af öllu og engu. Kristján kom ágætlega frá síöari hálfleiknum og hinn ungi Tómas Hólton sýndi skemmtilega áræðni framan af, en féll í sömu gryfju og aðrir í lokalátunum. Jón Stein- grímsson var talsvert frá sínu besta. Af Frömurum kom Þorvaldur Geirsson langbest út. Símon skor- aöi mikiö, en nýtingin var afleit hjá honum. Viöar skoraöi ekki mikiö, en er engu aö síður einn buröarása liðsins. Val Brazy hefur oft leikið betur þrátt fyrir stigin 32. Stig Vals: Ríkharöur Hrafn- kelsson 28, Torfi Magnússon 26, Tim Dwyer, 18, Kristján Ágústsson 14, Jón Steingrímsson 7, Tómas Holton 4 og Leifur Gústafsson 3. Stig Fram: Val Brazy 32, Símon Ólafsson 27, Þorvaldur Geirsson 20, Ómar Þráinsson 6, Jóhannes Magnússon 5 og Viöar Þorkelsson 4. Dómarar voru þeir Kristbjörn Al- bertsson og Jón Otti Ólafsson og höfðu ágætis tök á leiknum, sem var langt frá því að vera auð- dæmdur. Þorsteinn Bjarnason, sr mjög góöur körfu- wgn KR og skoraöi 14 stig. ÞÓTT lokatölurnar í leik Fram og Vals í úrvalsdeildinni { körfu- knattleik í Hagaskólanum á laug- ardag, 100—94, bendi e.t.v. til þess að um jafna viðureign hafi veriö að ræða, var svo alls ekki, ef undan er skilinn örstuttur kafli skömmu fyrir miðbik síöari hálf- leiksins. Valsmenn höföu undir- tökin allt frá byrjun og lengstum mjög örugga forystu. Um tíma virtist þó, sem Fram- ararnir ætluðu að hafa það af að þjarma almennilega að keppi- nautum sínum, en þegar spennan var aö verða veruleg brást bekk- stjórnin. í stöðunni 66—63 var Viöari Þorkelssyni, einum helsta lykilmanni Framara, kippt út af og leikur liösins hrundi. Valsmenn breyttu stööunni í 83—69 skömmu eftir miöjan hálf- leik, en þá varö Tim Dwyer aö víkja af velli meö sína 5. villu, sem virtist nokkuö ódýr frá sjónarhóli blaða- manns, a.m.k. í samanburði viö ýmis önnur brot leiksins. Viö þetta áfall heföi mátt halda, aö Framararnir tækju sig saman í Valur—Fram 100:94 andlitinu og þjörmuöu almennilega að andstæðingum sínum lokakafl- ann, en svo var ekki. Allt loft virtist úr þeim og Valsmenn juku muninn hægt og rólega, eins og ekkert væri auöveidara. Þegar best lét var staðan oröin 97—75 þeim í vil, en þar meö leystist leikurinn upp i hreina endaleysu. Síöustu þrjár minúturnar voru eitt allsherjar gönuhlaup í allar átt- ir. Framarar komu sýnu betur út úr þessum hlaupum því þeim tókst aö saxa mjög hraustlega á forskotiö. Ekki geta þeir þó alfariö þakkaö sjálfum sér að svo var því sumir varamanna Vals voru hreint ekki með undir lokin og geröu hverja vitleysuna á fætur annarri. Meö cnattleikslið Vals sigri í úrvalsdeíldinni í körfuknattleik í vetur. Liðiö vínnur nú hvern leikinn af öðrum og viröist vera sjá hvar liðiö fagnar sigri, á Reykjavíkurmótinu í haust. Það er Ríkharöur Hrafnkelsson^sem hampar bikarnum, en Hraðaupphlaupin felldu Framarana Keflvíkingar sigruðu en KR-ingar hafa kært leikinn KEFLVÍKINGAR og KR léku í úrvalsdeildinni í körfu sl., laugardag, og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu í Keflavík, að viðstöddum rúmlega 400 áhorfendum. Keflvíkingar voru yfir allan leikinn, þótt munurinn væri oft lítill, en miklar sveiflur voru í leik liðanna. Eftir 6 mínútur var staðan 16:15 fyrir Keflavík, en þá tóku Keflvík- ingar mikinn sprett og skoruöu á næstu mínútu 9 stig á meðan KR-ingar skoruðu aöeins 2, og á næstu tveim mínútum bættu þeir 12 stigum við án þess að KR-ingum tækist aö svara fyrir sig, og staöan orðin 35:17, og var það mestur munur í leiknum. Þá var eins og KR-ingar rumskuöu og tókst aö minnka muninn á næstu 5 mínútum niður í 12 stig, eöa 41:29. Jafnræði var svo með liðunum það sem eftir var hálfleiksins, en lokatölur hans urðu 55:41 Keflvíkingum í vil. f upphafi síöari hálfleiksins tókst KR-ingum aö minnka muninn í 10 stig, eöa 59:49. Jafnræði var meö liðunum næstu mínúturnar og sáust á töflunni tölurnar 63:53 og 66:56, en þá tóku KR-ingar aö saxa á forskotið og er 8 mínútur voru af hálfleiknum var staöan oröin 72:67 og eftir 12 mínútur 82:71. En einhvern veginn virkuöu Keflvíkingar þó sterkari enda tóku þeir nú viö sér og á næstu 3 mínút- um breyttu þeir stööunni í 92:78, aftur 14 stiga munur eins og í byrj- un hálfleiksins. arás liösins var Jón Sigurösson, sem virtist ná aö róa liöið og ná aftur yfirvegun í leik þess eftir hina slæmu kafla sem liöiö átti, en sjálf- ur skoraöi Jón 13 stig. Þá voru þeir Jón Pálsson, Páll Kolbeinsson og Ágúst Líndal einnig góöir, en þó mistækir á köflum, eins og reyndar allt liöiö. KR-ingar munu hafa kært leik- inn þár sem þeir telja viöar Vign- isson ólöglegan. Stigin: Mjög góöur kafli hjá Keflvíking- um, sem segja má að gert hafi út um leikinn. KR-ingum tókst aö vísu aö minnka muninn niöur i 9 stig, 100:91 þegar rúm mínúta var eftir, en Keflvíkingar áttu síðasta oröið og lokatölurnar uröu 106:93. Best- ir í liöi Keflvíkinga voru þeir Axel og Jón KR. meö 30 og 29 stig. Brad Mily var traustur í vörninni, skoraöi 15 stig, þar af 13 í fyrri hálfleik. Þá voru þeir Viðar og Þorsteinn einnig góöir, og skoruðu báöir 14 stig. í liöi KR var Stewart Johnson stigahæstur meö 31 stig, en burö- IBK: Axel Nikulásson Jón Kr. Gíslason Brad Mily Viðar Vignisson Þorsteinn Bjarnason Björn V. Skúlason KR: Stewart Johnson Jón Pálsson Jón Sigurðsson Páll Kolbeinsson Ágúst Líndal Stefán Jóhannsson Birgir Guðbjörnsson Knatt- spyrnu- úrslit Holland ÞAÐ var stórleikur Johan Cruyffs sem færði Ajax sigur á útivelli 2—0 um helgina. Liðið lék gegn Deventer. Aj- ax er nú í efsta sæti í 1. deild í Hollandi með 30 stig eftír 18 leiki og frábæra markatölu, 47—15. Feyenoord er í öðru sæti með 29 stig eftir jafn- marga leiki. llrslit leikja I Holiandi um sítVustu helgi urrtu þcssi: FX’ Groningen — PEC' Zwolle 3—0 Koda J(' Kerkrade — FC Twente 3—1 AZ 67 Alkamaar — NEC Nijmegen 2—0 Willem 2 Tilburg — PSV Kindhoven I—2 PC Utrecht — Sparta Rotterdam 0—3 Feyenoord — Kxreisior 1-0 Ileimond Sport — NAC Breda 6—I Kortuna Sittard — Haarlem 2—0 GA Eagtes Deventer — Ajax 0—2 Spánn Úrslit lejkja í I. deiidinni á Spáni um síðustu helgi: Santander — Gijon 2—1 Saiamanca — Maiaga 2-1 Betis — Esp. of Barcelona 1—0 ('eita — Atl. de Madrid 0—4 Real Madrid .t- Zaragoza 1—0 Barcelona — Sevilla 1-0 Athletic — Vaiiadolid 1—1 Osasuna — Real Sociedad 0—1 Stadan í I. deild er þessi: Keal Madrid 20 13 5 2 38 15 31 Ath. Bilbao 20 13 4 3 40 22 30 Barcelona 20 11 6 3 34 13 28 Zaragoza 20 11 3 6 39 21 25 At. Vladrid 20 11 3 6 33 27 25 Sevilia 20 8 7 5 23 16 23 (iijon 20 6 11 3 22 16 23 Real Sociedad 20 6 9 5 13 15 21 Kspanoi 20 8 4 8 25 20 20 Salamanca 20 7 5 8 18 25 19 Las Paimas 20 5 8 7 22 26 18 Betis 20 5 7 8 22 25 17 CeRa 20 6 4 10 16 30 16 Malaga 20 5 5 10 20 28 15 Santander 20 5 4 11 26 41 14 Osasuna 20 5 4 11 20 36 14 Valiadolid 20 2 7 11 16 34 U Vaiencia 20 3 4 13 20 37 10 Ítalía Úrsiit knattspyrnuieikja í 1. deild á It- alin: Aveilino — Torino 2—0 ('atanzaro — Fiorentina 0-1 Genoa — Ascoli 0—0 Inter — Milan 1-1 Juventus — Sampdoria 1—1 Pisa — Cesena 1—0 Roma — Cagliari 1—0 Udinese — Napoli 0-0 Staðan í 1. deild: Koma 16 10 4 2 25 12 24 Verona 16 8 6 2 23 14 22 leter 16 6 8 2 23 13 20 Juventus 16 7 5 4 19 13 1» Fiorentina 16 6 5 5 20 15 17 Udinese 16 3 11 2 15 15 17 Torino 16 4 8 4 15 11 16 Sarapdoria 16 5 6 5 15 18 16 ('esena 16 3 9 4 12 13 15 Genoa 16 4 7 5 15 17 15 Cagliari 16 4 7 5 13 18 15 Pisa 16 4 6 6 17 18 14 Avellino 16 3 8 5 14 19 14 Ascoli 16 4 5 7 15 18 13 Napoli 16 1 8 7 9 18 10 ('atanzaro 16 1 7 8 10 28 9 Stjörnugjöfin ÍBK: Axel Nikulásson ★★★ Jón Kr. Gíslason ★★ Viðar Vignisson ★ ★ Þorsteinn Bjarnason ★ Björn V. Skúlason ★ KR: Jón Sigurðsson ★ ★★ Jón Pálsson ★ ★ Páll Kolbeinsson ★ Ágúst Líndal ★ Fram: Þorvaldur Geirsson ★ ★ Símon Ólafsson ★ ★ Viðar Þorkelsson ★ Valur: Ríkharður Hrafnkelsson *** Torfi Magnússon ★ ★ Kristján Agústsson ★ — SSv.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.