Morgunblaðið - 18.01.1983, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.01.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983 7 T3íóamat/:a?utinn1 y-f-tettifýötu !2 - 'S Honda Quinted 1981 Brúnn, ekinn 10 þús. Útvarp. Verð 155 þús. Toyota Cressida 1978 Grænn, ekinn 86 þús. SJélf- skiptur, útvarp. Verö 120 þús. Saab 99 Supor 1976 Blár, ekinn 109 þús. Sjálfskipt- ur. Útvarp. Segulband Snjó- og sumardekk. Verð 90 þús. Skipti á nýrri Saab. Peugaot 505 Qft 1990 Ljósgrænn, ektnn 28 þús. Út- varp, segutband, snjó- og sumardekk. Verö 190 þús. /\\ Mazda 696 2000 1960 4ra dyra. Rauður, ekinn 42 þús. Sjálfskiptur. Verö 120 þús. m r __ V.W. QoH L 1981 Grár, ekinn 26 þús. Útvarp, segulband, snjó- og sumar- dekk. Verð 165 þús. Toyota Corolla 1982 Grásans., ekinn 11 þús. 5 gíra, útvarp og segulband. Verö 175 þús. Datsun Cherry 1980 Gullsans., ekinn 40 þús. Útvarp. Verð 105 þús. Volvo 244 GL 1979 Brúnn, ekinn 42 þús. Útvarp. Verð 165 þús. LABRADOR kuldaskórnir Vinsamlega sendið mér í póstkröfu: Nafn Ekki vildi ég lifa þann daginn Sá kjarnyrti Norðlend- ingur, Stefán Jónsson, þingmaður Alþýðubanda- lags, segúst ekki kveðja rík- isstjórnina, sem sálug sit- ur, „með neinum blygð- unarroða". Engu að síður segir hann: „ ... þótt engu skuli spáö um úrslit næstu kosninga þá mætti það furðu sæta ef önnur slík yrði mynduð á þessari öld“, hvorki meira né minna. Og þó. Hann hugsar enn til skófna i hlóðarpotti vínstrimennskunnar. „I>að sem nú er brýnast," segir Stefán, „er það, að félags- hyggjufólk úr a.m.k. þrem- ur stjórnmálaflokkum nái að taka saman hönd- um...“ Þetta er fólkið sem ráðið hefur verðbólgu- ferðinni og kaupskerðing- unum 13 síðan 1978. Stefán lýkur greininni, sem hófst á orðunum „Dagar ríkisstjórnarinnar eni taldir", á jiessum orð- um: „Guð forði mér samt frá að upplifa þann dag, að forystusveit Alþýðuflokks- ins gangi inn í Alþýðu- bandalagið með viðhorf sín margvísleg lítt eða ekki breytt!" Þingmaður Alþýðubandalags: „Dagar ríkisstjórnarinnar eru taldir“ Stefán Jónsson, þingmaður Alþýðubandalags, skrifar „stjórnmál á sunnudegi“ í Helgar-Þjóðvilja. Upphafið hljóðaði svo: „Dagar ríkisstjórnarinnar eru taldir. Þaö lýsir heilsufari hennar bezt að nánasta skyldulið virðist nú bíða útfarardagsins með engu minni óþreyju en andstæð- ingarnir.“ Man nú nokkur gamla máltækiö „Sjá nú hve illan enda .. . o.s.frv.“ Annar stjórnarþingmaöur fer á kostum um helgina, Guðmundur G. Þórarinsson. Hann krefst þess aö „álmál- iö“ sé tekið úr höndum iðnaðarráðherra. „Viö höfum ekki efni á því að láta ráðherrann núlla áfram með málið.“ Þetta er mergurinn málsins: Við höfum ekki efni á að láta ríkis- stjórnina núlla áfram meðan flotið er sofandi að feigðarósi. Flest hefur faríð á annan veg Jón A. Gissurarson, fyrrv. skólastjóri, fjallar um stjórnarskrármál í ný- legri blaðagrein og segir orðrétt: „Engin stjórnarskrá — hversu áferðarlogur sem hún annars væri — leysir svo sem neinn vanda. Allir núlifandi íslendingar hafa búið að stjórnarskrá Krist- jáns niunda alla sína ævi. Það getur ekki skipt sköp- um hvort ný stjórnarskrá tekur gildi árinu fyrr eða síðar. Vel skal til þess vanda sem lengi á að standa. Frumvarp að nýrri stjórnarskrá mætti því gjarnan leggja fram á Al- þingi því sem nú situr en lofa svo nýkjörnu þingi að fjalla um hana í ró og næði. Gæfist þá almenningi tóm til að átta sig á og taka afstöðu til einstakra atriða, enda á þjóðin öll að búa að þessari nýju stjórnarskrá, kannski heila öld eða leng- ur. Gunnar Thoroddsen á sér enn tvö mái sem hann ber fyrir brjósti. Annaö þeirra er að koma nýrri stjórnarskrá í höfn. Víst gæti stjórnarskrá forðað nafni hans frá gleymsku, jafnvel á aðra öld, ef lang- líf yrði sem hin fyrri. Flest hefur farið á annan veg af þvi sem Gunnar Thoroddsen lofaði við síð- ustu stjórnarmyndun enda í móLsögn við hans eigin kosningaloforð skömmu áður. Samt er óþarft með öllu að bera kvíðboga fyrir Gunnari Thoroddsen. Hann hefur fullnægt metn- aði sínum, komist til æðstu metorða, þótt síðasta klifið væri með bellibrögðum. Margfaldur lífeyrir úr fjölda sjóða tryggir honum jafnvel auknar tekjur, þótt þjóðin búi við skarðan hlut vegna hans eigin aðgerða. Nafni hans ætti því að vera borgið á spjöldum sögunn- ar, þótt ný stjórnarskrá komi ekki til. K.kki er þó öruggt að bækurnar hans þrjár kveði upp neinn loka- dóm.“ Burt með iðnaðar- ráðherrann Guðmundur G. I>órar- insson, þingmaður Fram- sóknarflokks, segir í ný- legri blaðagrein: „Þrátt fyrir gífurlega hækkun orkuverðs á síð- ustu árum hafa íslendingar enga lagfæringu fengið á orkuverði til ÍSALs. Astæðan er getu- eða viljaleysi iðnaöarráðherr- ans, nema hvort tveggja sé. Af því sem hér að ofan stendur hljóta menn að sjá að áróðurs- og flokks- hagsmunir ráðherrans ráða meiru i gerðum hans en óskir um raunhæfan árang- ur. Deilan við Alusuisse yerður að fá nýjan farveg. Islendingar verða að fá orkuverðið hækkað. Iðnað- arráöherrann hefur farið með þetta mál í tvö ár, án nokkurs árangurs, á sama tíma og orkuverð hefur hækkaö til fjölmargra ál vera úti í heimi. Við höfum ekki efni á að láta ráðherrann núlla áfram með málið. Ráðherrann krefst þjóð- arsamstöðu um þetta núll sitt, þjóðarsamstöðu um einhliða ákvarðanir sínar, með öðrum orðum þjóðar- samstöðu um Hjörleif Guttormsson. Nú er mál að linni. Lík- lega verður Alþingi að taka málið úr höndum ráðherr- ans." Benco 01 — 600A C.B. 40 rásir AM/40 rásir FM. Sérsmíöuö fyrir ísland. Fullur styrkur. Verö kr. 3.170.- Gengi 7/12 82 símt91-21945/84077. Benco, Bolholti 4, sími 91-84077 «- .. .....par af Labrador-kuldaskóm. No... á kr. 595.- LITGREINING MED CROSFIELD 540 LASER LYKILLINN AÐ VANDAÐRI LITPRENTUN MYNDAMOT HF.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.