Morgunblaðið - 18.01.1983, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983
TiUöguflutningur minnihlutans í borgarstjórn:
Haldið upp
á árs afmæli
*
Islensku
óperunnar
„Hver höndin upp
á móti annarri“
Minnihlutaflokkarnir fjórir í borgar-
stjórn Keykjavíkur, Alþýðubandalag,
Kvennaframboð, Framsóknarflokkur
og Alþýðuflokkur, lögðu fram samtals
93 breytingartiliögur við frumvarp að
fjárhagsáætlun borgarinnar, við síðari
umræðu um áætlunina. Ekki var alger
samstaöa á milli minnihlutaflokkanna
um neina tillögu, en 8 tillögur fjölhiðu
um sambærilegt efni.
Davíð Oddsson borgarstjóri sagöi
á fundinum, að 8 hinna 93 tillagna
minnihlutaflokkanna fjölluðu um
samsvarandi efni, en þar skakkaði
bæði fjárhæðum og ýmsum efnisat-
riðum. „Þessi tillöguflutningur allur
og málatilbúnaður sýnir ljóslega,
með hvaða hætti borginni yrði
stjórnað, ef þessir fjórir flokkar
hefðu, eins og þeir stefndu að, tekið
að sér stjórn borgarinnar sameigin-
lega. Þar hefði hver höndin verið
upp á móti annarri og allt á ská og
skjön,“ sagði Davíð Oddsson.
fslenska óperan:
Sviðsetur Míkadóinn
eftir Gilbert og Sullivan
ÍSLENZKA óperan átti eins árs afmæli 9. janúar sl.
Til stóð að halda upp á afmælið í hléi á sýningu
Töfraflautunnar þann dag en sýningunni varð að
fresta vegna ófærðar. Afmælissýningin var svo haldin
sl. sunnudagskvöld og í hléi var tímamótanna minnst
með kampavíni og kransakökum. Meöfylgjandi
myndir tók RAX við það tækifæri. Eins og fram kem-
ur í frétt á öðrum stað hér á síðunni, verður næsta
verkefni íslensku óperunnar The Mikado, eftir Gil-
bert og Sullivan.
ÍSLENSKA óperan mun frumsýna hinn kunna söngleik, The Mikado, eftir
Gilbert og Sullivan um mánaðamótin febrúar—mars, að því er Garðar Cortes
sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. Míkadóinn, er sem kunnugt
er Japanskeisari, og talinn kunnasti og jafnvel besti söngleikur Gilberts og
Sullivans að sögn Garðars, en hann var fyrst sýndur fyrir tæpum 100 árum,
eða árið 1885.
Leikstjóri verður ung bandarísk
kona, Francesca Cambello, sem er
aðalleikstjóri við Colorado-óper-
una í Bandaríkjunum og hefur
einnig starfað mikið fyrir Metro-
politanóperuna í New York. Fjöldi
söngvara tekur þátt í söngleikn-
Stöðumælagjald
hækkar í 5 kr.
STÖÐUMÆLAGJALD í Reykjavík var
nýlega hækkað úr 1 krónu í 5 krónur
og nú standa yfir breytingar á stöðu-
mælum vegna hækkunarinnar, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu frá
gatnamálastjóranum i Reykjavík.
Segir þar að á þeim stöðumælum
sem breyting hefur verið gerð á sé
miði með rauðri áletrun þar sem
hins nýja gjalds sé getið. Þá hefur
aukaleigugjald (stöðumælasektir)
verið hækkað úr 30 krónum í 100.
um. Míkadóinn verður sunginn og
leikinn af Kristni Hallssyni, ungir
leikarar og söngvarar fara með
önnur stærstu hlutverk, en Garð-
ar Cortes kvaðst ekki geta gefið
upp nöfn þeirra að svo stöddu.
Míkadóinn hefur verið þýddur á
meira en tuttugu og fimm tungu-
mál og settur upp í enn fleiri lönd-
um. Ragnheiður H. Vigfúsdóttir,
kennari í Hafnarfirði hefur þýtt
verkið á íslensku. „Það verður
skemmtilegt að takast á við þetta
verkefni," sagði Garðar, „og það er
athyglisvert að nú undanfarið hef-
ur verið blásið nýju lífi í söngleiki
Gilberts og Sullivans, til dæmis
hefur Míkadóinn nú gengið mjög
vel í Þjóðaróperunni í London,
margra vikna bið er eftir miðum á
sýninguna þar. Söngleiki þeirra
hafa verið sýndir í meira en 100
ár, og nú síðustu misseri við gíf-
urlegar vinsældir."
Símgjöld til útlanda
hækka um 19 til 31%
— Gjöld fyrir telexþjónustu hækka um 25—30%
GJÖLD fyrir símþjónustu til útlanda
hækka um 19—31%, eftir hinum ýmsu
Árni Benediktsson framkvæmdastjóri:
Skýring á baksíðufrétt
í FRÉTT á baksiðu Morgunblaðsins þann 14. þ.m. er frá því skýrt aö lán
Byggðasjóðs til frystihúsa SÍS hafi verið 53% á móti 47% til frystihúsa SH á
árunum 1973 til 1981. En framleiðsla SÍS-húsa sé hins vegar 25% á móti 75%
hjá SH-húsum. Þessar upplýsingar eru hafðar eftir Arna Arnasyni, fram-
kvæmdastjóra Verslunarráðs íslands, og komu fram í erindi hans á ráð-
stefnu um lánamarkaðinn og þjónustu hans við atvinnulífið.
Samkvæmt frétt Morgunblaðsins
gaf Árni Árnason ekki í skyn að
þarna væri um misferli stjórnenda
Byggðasjóðs að ræða. Ekki minntist
hann heldur á aðrar óeðlilegar
orsakir. Hins vegar lét hann sér
detta í hug að SH-menn væru
óduglegri að sækja um lán. En þar
sem Árna Árnasyni virðist sam-
kvæmt þessu ekki vera fullkunnugt
hvernig þessu máli er háttað er
ekki ósennilegt að einhverjir sem
minni möguleika hafa til að vita hið
rétta fái ranga hugmynd af lestri
fréttarinnar. Þess vegna er ástæða
til að skýra í fáum orðum hvað á
bak við liggur.
Ég sé ekki ástæðu til þess að gera
mikið úr því að þær tölur, sem Árni
notar eru ekki tvímælalaust réttar.
Niðurstöður gætu orðið aðrar ef
öðruvísi væri reiknað. í þeirri verð-
bólgu, sem hér ríkir og hefur ríkt er
t.d. nauðsynlegt að finna verðmæli-
kvarða til að miða við og getur
niðurstaðan verið breytileg eftir því
við hvað er miðað. Hægt er að miða
við fast verðlag, verðlag eins og það
er á hverjum tíma, framfærsluvísi-
tölu, byggingavísitölu, lánavísitölu
og ýmsar gengisviðmiðanir. Þá er
einnig að meta hvað séu lán til
frystihúsa, þar sem sums staðar eru
frystihús með útgerð og taka lán til
útgerðarinnar, en annars staðar er
útgerðin rekin sem sér fyrirtæki.
Spurning getur einnig verið hvernig
á að meta lánalengingar. Þá skiptir
það verulegu máli hvort þau hús,
sem nú eru SÍS-hús og SH-hús, eru
notuð sem mælikvarði, eða hvort
reikna skal með stöðu þeirra þegar
lánin voru tekin. Sé það gert lækkar
hlutfall SÍS-húsanna verulega. Það
getur því verið álitamál hvar það
lánahlutfall, sem Árni Árnason tel-
ur vera 53%, er að sanngjörnustu
mati, en það er einhvers staðar á
milli 45% og 53%. Sá mismunur
sem þarna kann að vera á tölum
skiptir hins vegar ekki neinu höfuð-
máli, þegar borið er saman við hin;
ar tölurnar, sem eru 25% og 75%. í
fljótu bragði virðist geta verið um
verulega mismunun að ræða og
virðist fréttin vera sett upp í þeim
tilgangi að gefa það í skyn.
Um langt árabil var fólksflótti
utan af landsbyggðinni til Reykja-
víkur og nágrennis. Ég hygg að
flestir hafi verið sammála um að sú
þróun væri ekki alls kostar heppi-
leg. Til þess að nýta gæði landsins
væri nauðsynlegt að halda uppi
byggð í öllum landshlutum, þó að
byggð innan hvers landshluta
mætti ef til vill færast eitthvað
saman. Til þess að sporna gegn
óeðlilegum fólksflutningum var
Byggðasjóður stofnaður. Hlutverk
hans átti að vera að styrkja
atvinnulíf þar sem það stæði höil-
um fæti. Það hlutverk hefur sjóð-
urinn rækt trúlega.
Að sjálfsögðu hefur engum
manni dottið í hug að Byggðasjóður
eigi að veita SÍS-húsum og SH-hús-
um lán í hlutfalli við framleiðslu-
magn. Seðlabanki og viðskipta-
bankarnir veita afurðalán eftir
þeirri reglu og er það eðlilegt. Hins
vegar er það hlutverk sjóðsins að
gera ekki upp á milli þeirra sem
búa við sömu aðstæður. Þegar sjóð-
urinn var stofnaður var atvinnulíf
mjög veikt í mörgum smærri kaup-
túnum. Byggðasjóður hefur komið
að mjög miklu gagni við að styrkja
atvinnulíf þessara kauptúna og er
nú svo komið að mörg smærri kaup-
tún sem áður bjuggu við ótryggt at-
vinnuástand og slæma nýtingu
vinnuafls og fjármagns, búa við at-
vinnuöryggi og góða nýtingu fjár-
magns og vinnuafls. Engin ástæða
er til annars en að þessi þróun haldi
áfram og að þeir staðir sem ennþá
eru veikir eigi eftir að styrkjast,
m.a. með áframhaldandi starfi
Byggðasjóðs.
Meginþungi fjárveitinga Byggða-
sjóðs til frystihúsa hefur, sam-
kvæmt eðli og tilgangr Byggðasjóðs,
beinst að þessum smærri kauptún-
um. Og það vill svo til að í kauptún-
um með um sjö hundruð manna
byggð og þar fyrir neðan eru 40%
fleiri SlS-hús en SH-hús. Þarna
liggur hundurinn grafinn. Byggða-
sjóður hefur lítið lánað til frysti-
húsa á svæðum með yfir 3.000 íbúa.
Meirihluti framleiðslu SH er á þeim
svæðum, sennilega um 60%. Hins
vegar eru aðeins 15% framleiðslu
SÍS-húsanna á þeim svæðum. Ég
vona að þessi skýring sé fullnægj-
andi öllum sanngjörnum mönnum.
gjaldflokkum, frá og meö 20. janúar
nk., að því er segir í frétt frá Póst- og
símamálastofnuninni.
Ennfremur segir, að ástæður
hækkunarinnar séu þær, að frá síð-
ustu gjaldskrárbreytingu símgjalda
1. september sl. hafi gengi gull-
franka, sem öll símgjöld miðist við,
hækkað um 28% og að auki hafi orð-
ið hækkanir á umsömdum töxtum
við aðrar símastjórnir um síðustu
áramót.
Gjald fyrir hverja mínútu í sjálf-
vali verður eftir hækkunina 20,00
krónur til Norðurlanda nema til
Finnlands 22,00 krónur, til Bret-
lands 24,00 krónur, til Frakklands og
Vestur-Þýzkalands 30,00 krónur og
til Bandaríkjanna og Kanada 45,00
krónur. Afgreiðslugjald fyrir hand-
virka þjónustu verður í öllum tilvik-
um 7,50 krónur.
Gjöld fyrir telex- og skeytaþjón-
ustu hækka um 25—30% eftir gjald-
flokkum. Þess má geta, að söluskatt-
ur er innifalinn í framangreindum
upphæðum.
Borgarnes:
Framleiðsla á hepar-
in til lyfjagerðar úr
sauðfjárgörnum?
Borcarnesi, 12. janúar.
A VEGUM atvinnumálanefndar Borg-
arnesN hefur farió fram athugun á
hvort mögulegt sé að hefja framleiðslu
á heparin úr sauðfjárgörnum til lyfja
gerðar.
Iðnráðgjafi Vesturlands vann
skýrslu um málið og fékk m.a. til
þess frumrannsóknir, sem unnar
höfðu verið í rannsóknastofum Há-
skóla íslands. Iðnráðgjafi og
atvinnumálanefndin skiluðu niður-
stöðum sínum til kaupfélagsstjóra
Kaupfélags Borgfirðinga og hjá hon:
um bíður málið nú ákvörðunar. í
sláturhúsi KB í Borgarnesi fellur til
á hverju hausti mikið magn af görn-
um og hafa þær hingað til ekki verið
nýttar nema e.t.v. í gúanó, en ef farið
væri út í þessa framleiðslu þyrfti
einnig að fá eitthvað af görnum frá
öðrum sláturhúsum.
HBj.
Grannréttur settur í
byggingarreglugerð
Grannréttar.sjónarmið ber að virða
framvegis, þegar teknar eru ákvarðan-
ir um nýbygginar, viðbyggingar eða
meiri háttar breytingar á húsum, í þeg-
ar byggðum hverfum, segir í frétt frá
félagsmálaráðuneytinu um nýja reglu-
gerð um breytingar á byggingarreglu-
gerð.
I nýju reglugerðinni segir: „Áður
en leyfi er veitt fyrir nýbyggingu^
viðbyggingu eða breytingu á húsi, í
þegar byggðu hverfi, eða verulegri
breytingu á notkun húss, skal ná-
grönnum, sem byggingarnefnd telur
að hagsmuna eigi að gæta, gefinn
kostur á að tjá sig um fyrirhugaða
framkvæmd innan eins mánaðar.
Byggingarnefnd getur þó veitt lengri
frest ef sérstakar ástæður eru fyrir
hendi."