Morgunblaðið - 18.01.1983, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 18.01.1983, Blaðsíða 48
j^^skriftar- síminn er 83033 ^Vuglýsinga- síminn er 2 24 80 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983 Norðmenn hefja olíuleit á Jan Mayen-hryggnum NORÐMENN munu á næstu fimm árum verja kringum 20 milljón- um norskra króna, jafnvirði 52 milljóna íslenzkra, til jarðfræði- og jarðeðlisfræðilcgra rannsókna á hafsvæðinu milii Jan Mayen og Islands vegna hugsanlegrar olíuvinnslu á Jan Mayen-hryggnum, samkvæmt upplýsingum Jan Erik Laure fréttaritara Morgunblaðs- ins í Osló. Að sögn Egils Bergsager deild- arstjóra í norska olíuráðuneytinu hafa mörg alþjóðleg olíufyrirtæki sýnt fyrirhuguðum rannsóknum mikinn áhuga. Samkvæmt samn- ingum Norðmanna og Islendinga kemur 25% allrar olíu, sem finn-' ast kann á norska svæðinu við Jan Mayen, í hlut íslendinga. Finnist olía á svæði íslands á hryggnum eignast Norðmenn sömu hlutdeild í henni. Norðmenn hyggjast hefja bergmálsrannsóknir á Jan May- en-svæðinu á næsta ári. Vonast þeir til að geta selt olíufyrirtækj- unum niðurstöður rannsóknanna og fengið þannig fyrir kostnaði við rannsóknirnar, og jafnvel rúmlega það, að sögn Bergsager. Verði hagnaður af sölu „upplýs- ingapakka" af þessu tagi fá ís- lendingar hluta af ágóðanum, þótt þeir leggi í engan kostnað vegna rannsóknanna, og yrðu það fyrstu „olíukrónur" okkar. Sjá nánar „íslendingar eign- ast 25% olíu sem Nordmenn finna á sínu svæði við Jan Mayen“ á bls 29. Leikið í snjónum. Morgunblaðift/KÖE. Laganefnd Norðurlandaráðs um aðild að ráðinu: Nafnasamkeppni Flugleiða: Stjórn félags- ins mun fjalla um tillögur dómnefndar DÓMNEFNDIN, sem fjallaði um tillögur í nafnasamkeppni Flug- leiða, hefur lokið störfum og gert sínar tillögur um nafngiftir á flug- vélar félagsins, að sögn Leifs Magnússonar, framkvæmdastjóra fiugrekstrarsviðs Flugleiða, sem sat í nefndinni. Dómnefndin hefur sent tillög- ur sínar til stjórnar Flugleiða, sem mun fjalla um þær á fundi sínum í byrjun febrúar nk. „Það má segja, að málið sé í biðstöðu fram að því,“ sagði Leifur Magn- ússon. Samkomulag um Færeyjar Grænland og Álandseyjar SAMKOMULAG næst væntanlega í dag á fundi laganefndar Norðurlanda- ráðs um hvernig staðið verður að aðild Færeyja, Grænlands og Álandseyja að Norðurlandaráði. Fyrirhugað er að ganga frá aðild þeirra á fundi Norður- landaráðs sem haldið verður í Osló í lok febrúarmánaðar, þó þannig að aðildin gangi ekki í gildi fyrr en á þinginu 1984. Gert er ráð fyrir að með aðild þeirra fjölgi fulltrúum í ráðinu um níu og að sú fjölgun eigi sér stað haustið 1983. Halldór Ásgrímsson, sem sæti á í laganefndinni fyrir íslands hönd, sagði er Mbl. hafði símasamband við hann til Stokkhólms í gær, að á fundi laganefndar í gær hefði komið fram, að samkomulag væri um málið og í þá veru sem Islend- ingar hafa lagt til. Hann sagði að vegna ágreinings sem uppi hefði verið innan ráðsins vegna þessa hefði sérstök nefnd, svokölluð Petrén-nefnd, starfað. Innan hennar hefðu íslendingar og Dan- ir verið með sérálit, en niðurstaða laganefndar, sem Halldór sagðist reikna með að samþykkt yrði á fundi í dag, er í þá veru sem Is- lendingar og Danir lögðu til. Halldór sagði að hugmyndin væri sú, að Færeyingar, Græn- lendingar og Álandseyingar fengju eigin sendinefndir, en þær yrðu innan sendinefnda viðkom- andi ríkja. Ekki fengju þeir þó fulltrúa í forsætisnefnd ráðsins, hún yrði áfram skipuð fulltrúum hinna fimm ríkja. Halldór kvað velflesta vera ánægða með þessa niðurstöðu, þó væri það vilji nokk- urra Færeyinga, t.d. Erlends Pat- urssonar, að ganga lengra. Hall- dór sagðist telja að Færeyingar gætu varla gengið lengra, nema þeir tækju þá ákvörðun að verða sjálfstæð þjóð. Hann sagði: „Þeir ganga ekki fram hjá því að þeir eru hluti af danska ríkinu og með- an svo er hlýtur það að koma fram í aðild þeirra að ráðinu. Við telj- um að við séum búnir að ganga allverulega til móts við þá og all- flestir þeirra eru ánægðir með þessa niðurstöðu." Halldór sagði að fundir stæðu yfir þessa vikuna í öllum nefndum Norðurlandaráðs til undirbúnings þingi ráðsins sem hefst í Osló 21. febrúar nk. Aðspurður sagðist hann reikna með að annað aðal- umræðuefni þess þings yrðu efna- hagsmál, því alls staðar á Norður- löndunum væru miklir efnahags- erfiðleikar. Tæpur helmingur atkvæða talinn í próf- kjöri sjálfstæðismanna á Vesturlandi: Friðjón Þórðar- son í efsta sæti FRIÐJÓN Þórðarson dómsmálaráðherra var efstur í prófkjöri sjálfstæð- ismanna í Vesturlandskjördæmi þegar Morgunblaðið fór í prentun í nótt. Þá höfðu verið talin 1100 atkvæði, en prófkjörið fór fram um síðustu helgi. í prófkjörinu tóku þátt 2519 manns, en 2320 kjósendur í kjördæminu greiddu Sjálfstæðisfiokknum atkvæði sitt í síðustu alþingiskosningum, árið 1979. Stjórn Framkvæmdastofnunar: Gengismun ekki ráðstafað „til einstakra fyrirtækjau Alþingi afgreiði málið fyrst Á FUNDI stjórnar Framkvæmdastofnunar í gær voru stjórnarmenn sammála um, að ekki kæmi til greina að fara að ráðstafa gengismuninum frá gengisfelling- unni í haust gegn um Byggðasjóð til einstakra fyrirtækja í fiskiðnaði meðan Alþingi væri ekki búið að afgreiða málið frá sér. Þá kom fram á fundinum að hæpið væri að telja gengishagnað af óseldri skreið til tekna og vegna erfiðleika skreiðarframleiðenda væri jafnvel hæpið að taka af þeim í gengismunasjóð. Á fundinum voru samþykktar lánveitingar úr Byggðasjóði til Bæjarútgerðar Hafn- arfjarðar, 4 milljónir og Fiskvinnslunnar á Seyðisfirði, 3 milljónir. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins var samþykkt samhljóða að ábyrgjast lánveitingar til þessara tveggja fyrirtækja gegn því að ríkis- sjóður ábyrgðist framlög til Byggðasjóðs að sama skapi. Var þetta meðal annars samþykkt á þeim forsendum, að þessi fyrirtæki hefðu ekki notið fyrirgreiðslu sjóðs- ins á síðasta ári. Þá var einnig rætt um vanda Hraðfrystihúss Keflavíkur, sem er mikill en annars eðlis. Varafor- manni stjórnar, Stefáni Guðmunds- syni, Guðmundi Ólafssyni, forstöð- umanni Lánadeildar og Karli Stein- ari Guðnasyni, einum stjórnar- manna, var falið að kanna í dag hvaða möguleikar aðrir kunna að vera fyrir hendi. Hvort viðskipta- bankar fyrirtækisins geti með ein- hverjum hætti komið inn í lausn vandans. Mun stjórnin síðan reiðu- búin í framhaldi þessa til að ræða málið sérstaklega. Sá gengismunur, sem hér er um að ræða, stafar af gengisfellingunni í haust, en hann varð rúmum 90 milljónum króna meiri, en áætlað hafði verið, en inn í hann var tekinn gengismunur vegna skreiðar, sem enn er ekki seld. Friðjón Þórðarson var efstur að 1100 atkvæðum töldum með 617 at- kvæði í 1. sæti, en 880 atkvæði alls í 1.—5. sæti. í öðru sæti var Valdi- mar Indriðason framkvæmdastjóri með 582 atkvæði í 1.—2. sæti, en alls með 780 atkvæði í 1,—5. sæti. Atkvæði Valdimars skiptust þann- ig á milli sæta að hann var með 213 atkvæði í 1. sæti, en 369 atkvæði í 2. sæti. í þriðja sæti var Sturla Böðvarsson sveitarstjóri með 634 atkvæði í 1.—3. sæti, en alls var hann með 754 atkvæði í 1.—5 sæti. Þau skiptust þannig að hann var með 20 atkvæði í 1. sæti, 235 at- kvæði í 2. sæti og 379 atkvæði í 3. sæti. í fjórða sæti vár Inga Jóna Þórðardóttir framkvæmdastjóri með 486 atkvæði í 1,—4. sæti, en 529 atkvæði alls í 1.—5. sæti. At- kvæði hennar skiptust þannig á milli sæta að hún var með 174 at- kvæði í 1. sæti, 137 atkvæði í 2. sæti, 109 atkvæði í 3. sæti og 66 atkvæði í 4. sæti. í fimmta sæti var Kristófer Þorleifsson héraðslæknir með 471 atkvæði alls í 1.—5. sæti. Þau skiptust þannig innan listans að hann var með 44 atkvæði í 1. sæti, 118 atkvæði í 2. sæti, 150 at- kvæði í 3. sæti, 101 atkvæði í 4. sæti og 58 atkvæði í 5. sæti. í sjötta sæti var Davíð Pétursson bóndi með 386 atkvæði alls. Hann var með 13 atkvæði í 1. sæti, 69 atkvæði í 2. sæti, 130 atkvæði í 3. sæti, 109 atkvæði í 4. sæti og 65 atkvæði í 5. sæti. Ekki eru gefnar upp atkvæðatölur í sjötta og sjöunda sætið. í sjöunda sæti var Kristjana Ágústsdóttir verslunar- maður með 308 atkvæði, sem skipt- ust þannig innan listans að ekkert atkvæði var í 1. sætið, 27 atkvæði hlaut hún í 2. sæti, 92 atkvæði í 3. sæti, 92 atkvæði í 4. sæti og 97 at- kvæði í 5. sæti. I síðasta prófkjöri sjálfstæð- ismanna í Vesturlandskjördæmi, sem haldið var í nóvember árið 1977, tóku 2219 kjósendur þátt. Seint í gærkveldi vantaði enn 17 atkvæði á hótelið í Borgarnesi, þar sem talning fór fram, en atkvæði þessi eru úr Breiðvík og voru veð- urteppt þar. Vegna þessa var ekki ljóst hvenær talningu lyki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.