Morgunblaðið - 20.02.1983, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983
7
HUGVEKJA
eftir
Pétur Sigurgeirsson biskup
Freisting fylgir manninum
eins og skuggi. Freisting er
löngun til að gera það, sem ætti
að vera ógert. Freisting stríðir
á móti betri vitund. Hún er bar-
átta milli góðs og ills og er háð
hið innra í manninum sjálfum.
Mörgum blöskrar freisting,
sem yfir kann að koma. „Að
mér skuli detta annað eins og
þetta í hug!“ Það er hugsun,
sem menn kannast við. Sann-
leikurinn er sá, að það er
ómögulegt að lifa án freistinga,
rétt eins og það er óviðráðan-
iegt að fugl fljúgi yfir höfði
manns. (Lúter.)
Engan skyldi því undra það,
þótt hann verði fyrir freistingu.
Maðurinn er þannig gerður.
Hann verður að heyja þessa
glímu. Gott og illt stendur
hvort gegn öðru. Manninum er
áskapað að taka afstöðu.
í ritgerðarsafni séra Jóns
Bjarnasonar, sem lengi var
prestur í Winnipeg, er erindi,
sem hann nefnir: „Það sem
verst er í heirni." Og þetta
versta í heimi er ekki aðeins
nafn á bókum, heldur afl í
heiminum, staðreynd, sem við
verðum að viðurkenna.
Fátt er um svör, þegar spurt
er um uppruna hins illa. Biblían
fjallar um þetta versta í heimi
þegar á fyrstu blaðsíðum, en
gerir það á líkingafullan hátt.
Höggormurinn er „slægari en
öll dýr merkurinnar" (1. Móse-
bók 3). Hann tældi menn til
óhlýðni við Guð. Engill reis upp
á móti Guði, er Satan nefndist.
(Satan er hebreskt orð og þýðir
andstæðingur, rógberi. Á grísku
er það diabolos = djöfull, sá sem
kemur illu af stað.) Minnst er á
hrokafullt hjarta (Esek. 28.2) og
verndar-kerub, er fylltist ofríki,
og setti sig í guðasæti. Einhvern
tíma í ókunnri fortíð fannst
ranglæti í hjarta, ágirndin, rót
alls ills.
Eitt er freisting og annað er
synd. Þótt við höfum orðið fyrir
freistingu, þá er ekki þar með
sagt, að við höfum syndgað. Bil
er á milli, þar sem freisting og
synd er tvennt ólikt. Því að
maðurinn gerir annað hvort við
freistinguna, að sigra hana eða
falla fyrir henni, og þá fyrst
hefur hann syndgað.
Jesús Kristur er sá eini, sem
um er vitað, að hafi sigrað allar
sínar freistingar, og því er hann
frelsarinn frá illu.
Freistingar hans voru ekki
aðeins þrjár, eins og freist-
ingarsagan skýrir frá. Hjá Lúk-
asi endar guðspjallið þannig:
„Og er djöfullinn hafði lokið
allri freistni, vék hann frá hon-
um að sinni." (4.13.) Samkvæmt
þessu var aðeins um stormahlé
að ræða. Freistarinn kom aftur
til hans, og hver veit hve oft?
Þannig varð Kristur okkur
mönnunum hjálpræðisvegur:
Ilann er mín hjálp og hreysti
hann er mitt rétta hT
honum af hjarta’eg treysti
hann mýkir dauðans kíf.
H. Pétursson
Á sama veg er Jesús athvarf-
ið og náðin, þegar svo tekst til,
að maður fellur fyrir freisting-
unni:
Svo stór synd engin er
að megi granda þér,
ef þú iðrandi sér
í trúnni Jesúm hér.
ílr 47. passíusálmi.
Slík hjálpræðishella er sá
Kristur, sem sigrað hefur, leitar
til hins týnda með hjálp sína og
er fús til að fyrirgefa ótakmark-
að. (Matth. 18.22.) Á þeirri náð
þarf maðurinn að halda. (Da-
víðs sálm. 103.) „Hvort sem þú
ert munkur eða lifir heimslífi,
hvort sem þú vilt vera góður eða
vondur, kemstu ekki hjá táls-
nöru heimsins, þú heldur áfram
að syndga." (Bonhoeffer.)
Tál-
snörur
heimsins
og
hertygi
ljóssins
Maðurinn getur litið mjög
misjöfnum augum á synd sína,
og afstaða hans skiptir sköpum.
Þess vegna getur engum staðið
á sama um það, með hvers kon-
ar hugarfari hann mætir því,
sem lífið leggur honum á herð-
ar. Skáldkonan S.M. Fuller seg-
ir um þetta: „Sá sem syndgar, er
maður. Sá, sem hryggist af synd
sinni er heilagur. Sá, sem stærir
sig af synd sinni er djöfull." Hér
eru skarpar línur dregnar, og
hart að orði komist. En Kristur
sá allar þessar myndir í mann-
lífinu og benti á þær í kenningu
sinni.
Það er líka rétt að benda á, að
menn geta bæði dregið úr
áhrifamætti freistinganna og
aukið hann, samanber, að „það
er ekki hægt að lifa heilbrigðu
lífi nema í hollu umhverfi". Eitt
sinn átti eg leið þar um, sem
börn voru að leika sér á vegi þar
sem snjór var nýfallinn. Það
var erfitt að fóta sig á veginum.
Börnin voru þar með vatn í fötu
og helltu öðru hvoru vatni yfir
snjólagið.
„Hvað eruð þið að gera?“
spurði eg.
„Við erum að gera hált!“ —
svöruðu þau. — Mennirnir gera
alvöru úr því, sem börn í
grandaleysi leika sér að! Þeir
„gera hált“ í bókstaflegum
skilningi, auka freistingarnar.
Tökum t.d. ofbeldiskvikmyndir,
sem um langan aldur hafa vald-
ið hér skaða siðmenningar, en
eru nú, — sem betur fer, að fá
nokkurt viðnám. Þáð er athygl-
isvert, hvað dr. Elías Héðinsson
félagsfræðingur hefur um þetta
að segja:
„Það er talið nokkuð víst, að
ofbeldi í kvikmyndum hafi
skammtímaáhrif á fólk, þ.e.a.s.
stuttu eftir að hafa horft á
ofbeldiskvikmynd eru menn lík-
legri til ofbeldisverka en ella.
Síðan mæla ýmis rök með því,
að einnig sé um langtímaáhrif
að ræða. M.ö.o. ef fólk horfir
ítrekað á ofbeldiskvikmyndir,
þá er hætta á, að hugurinn
hreinlega mengist af ofbeldi ...
auðvitað eru áhrifin miklu
sterkari á óharðnaða unglinga.“
(Mbl. 23.12 ’82).
Vel sé þeim sem beita sér
fyrir því að þessum hættulega
leik linni, „að gera hált „með
ofbeldiskvikmyndum og mynd-
bandavæðingu, sem ógnar börn-
um þjóðarinnar.
Reynslan hefur kennt, að
hvergi er maður óhultur fyrir
ágangi freistinga. Og þær gera
yfirleitt ekki boð á undan sér.
Þær koma yfir heilaga sem
venjulega menn, lærða sem
ólærða, vitra sem fávísa. Eitt
sinn las eg um, að freistingar
væru miklar og erfiðar við-
fangs, þar sem um væri að
ræða: „. Stjórnmál án stefnu. 2.
Auðlegð án vinnu. 3. Skemmtun
án samvisku. 4. Þekkingu án
drenglyndis. 5. Verslun án ráð-
vendni. 6. Vísindi án mannúðar.
7. Guðsdýrkun án fórnar.
Kristur sigraði freistingar
sínar með því að beita fyrir sig
orði Guðs. í Biblíunni finnum
við styrk, náð og huggun í bar-
áttunni. Þar eignumst við sam-
félag við Krist, sem er hið lif-
andi orð. í samræmi við það
hvetur Páll postuli okkur til að
klæðast „alvæpni Guðs“ — og
lýsir því þannig:
„Standið því girtir sannleika
um lendar yðar og klæddir
brynju réttlætisins og skóaðir á
fótunum með fúsleik til þess að
flytja fagnaðarboðskap friðar-
ins. Takið um fram allt skjöld
trúarinnar, sem þér getið slökkt
með öll hin eldlegu skeyti hins
vonda. Takið við hjálmi hjálp-
ræðisins og sverði andans, sem
er Guðs orð.“ (Ef. 6.14—17.)
Þetta eru „hertygi ljóssins" til
sigurs í baráttu við freistingar.
INNKAUPAST JÓRAR
Fyrir fermingarnar:
Kjólar, blússur, pils, drengjaskyrt-
ur o.fl.
Glæsilegt úrval af vor- og
sumarfatnaöi á börn og ungl-
inga.
tO&tvlei <C
Laugarnesvegi 114, Rvík.
Símar 34050 og 83574.
ÞU SMIÐAR
EIGIN
INNRÉTTINGU
og sparar stórfé!
Björninn býður þér allt efni til smíða á eigin fataskápum
og eldhúsinnréttingu. Hurðaeiningar eru úr dönskum
úrvals viði. Það er ekki svo lítið, að spara allt að helmingi
með því að smíða eigin innréttingu!
Við veitum fúslega allar nánarí upplýsingar í síma 25150
BJÖRNINN HF
Þorri
kveður
Þorrahlaðborð í sérflokki í Múlakaffi
í kvöld eftir kl. 18.00.
Gestum bjóðum við að borða baki
brotnu fyrir kr. 170.-
itiomtS'tt a*i ií»(»L-6:cn\j»;
Hallarmúla.