Morgunblaðið - 20.02.1983, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983
líloixvu Utgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 150 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 12 kr. eintakið.
Auðvitað er hér um póli-
tískt áróðursstríð að
ræða. Það er til dæmis ekkert
annað en áróður, að bráða-
birgðalögin breyti einhverju
um þróun efnahagsmála:
verðbólgan æðir áfram, kjörin
rýrna, skuldir hrannast upp í
útlöndum og verðgildi krón-
unnar fellur. Verðbólgustigið
nú er jafn hátt og Þjóðhags-
stofnun spáði að það mundi
verða, ef bráðabirgðalögin
kæmu ekki til. Eftir að bráða-
birgðalögin náðu fram þarf
enginn að vera í vafa um, þeg-
ar gengið er til kosninga eftir
nokkrar vikur, að ríkisstjórn-
in hefur fengið vilja sinn fram
við stjórn efnahagsmála. Ef
stjórnarandstaðan hefði fellt
bráðabirgðalögin nú, þegar
þau eru komin til fram-
kvæmda með jafn hörmu-
legum afleiðingum og raun
ber vitni, hefðu ráðherrar og
stjórnarsinnar staðið upp og
hrópað: Sögðum við ekki, ef-
nahagslífið er í rúst af því að
bráðabirgðalögin voru felld!
Stjórnmálamenn og aðrir er
íhuga landsmál hljóta að
íhuga þetta mál á þessum for-
sendum, þegar ekkert er eftir
af því annað en áróðursstríðið
og kosningar á næsta leiti þar
sem mestu skiptir að verk rík-
isstjórnarinnar verði undan-
bragðalaust lögð undir dóm
kjósenda," sagði Geir Hall-
kjördag ekki síðar en 23. apríl
næstkomandi. Geir Hall-
grímsson minnti á það, að í
ágúst 1982 strax eftir útgáfu
bráðabirgðalaganna kröfðust
sjálfstæðismenn þess, að þing
yrði kallað saman, kjördæma-
málið afgreitt, bráðabirgða-
lögin felld og síðan gengið til
kosninga. Þetta hefði allt
mátt gera með þeim hætti, að
ný stjórn hefði getað gripið til
efnahagsráðstafana fyrir 1.
desember en þungamiðja
bráðabirgðalaganna var
7,74% kjaraskerðing 1. des-
ember sl. Á þessa málsmeð-
ferð vildi ríkisstjórnin alls
ekki fallast í ágúst þótt bæði
Steingrímur Hermannsson og
Svavar Gestsson hafi síðar
lýst því yfir, að hún hafi verið
skynsamlegust. Geir Hall-
grímsson sagði: „Ríkisstjórnin
hafnaði þessu og hélt málum í
sjálfheldu á Alþingi í von um
þingmála enda yrði kjördagur
ákveðinn.
Síðan hafa mál þróast á
þann veg að samningar hafa
tekist milli stjórnmálaflokk-
anna um áfanga í kjördæma-
málinu sem miðar að því að
þingstyrkur flokkanna sé í
sem mestu samræmi við vilja
kjósenda og einnig er stigið
skref til að draga úr misvægi
atkvæða eftir búsetu manna.
Hitt er jafnljóst og áður, að
ríkisstjórnin hefur engin tök á
efnahagsmálum og forsenda
þess að á þeim verði tekið er
að kjósendur felli dóm yfir
stjórninni. Án þeirrar máls-
meðferðar sem samkomulag
tókst um hefði ríkisstjórnin
getað þráast við að sitja að-
gerða- og úrræðalaus fram á
næsta haust.
Þegar þessi niðurstaða um
framgang þingmála lá fyrir
málsins. Málsmeðferðin er
auk þess svo óhöndugleg að til
þess að frumvarpið þjóni til-
gangi sínum þarf að greiða at-
kvæði um það á þingi sömu
daga og vitað var, að þing
Norðurlandaráðs fer fram.“
Um afstöðu sjálfstæðismanna
til frumvarpsins sagði
flokksformaðurinn meðal
annars: „Það hefur alls ekki
verið sýnt fram á það af ríkis-
stjórninni í þessu máli, að
nauðsynlegt sé að þvinga
fram breytingu með lögum.
Hins vegar hefur stjórnin
sýnt dæmalausa klaufsku í
samskiptum sínum við aðila
vinnumarkaðarins, launþega
og vinnuveitendur, í málinu."
Hann sagði að kjarninn í
stefnu Sjálfstæðisflokksins
væri sá, þegar þessi mál ber á
góma, að aðilar beri sjálfir
ábyrgð á þeim samningum
sem þeir gera um kaup og
kjör.
Línurnar í stjórnmálunum
eru skýrar. Ríkisstjórnin hef-
ur náð því fram í efnahags-
málum sem hún taldi brýnast
en engu að síður er allt á
hverfanda hveli. Verk ríkis-
stjórnarinnar eru undan-
bragðalaust lögð í dóm kjós-
enda. Alþýðubandalagið
stjórnast af því sem Geir
Hallgrímsson nefndi „sálræna
nauðsyn" ráðamanna þess til
að sitja sem lengst í sömu rík-
isstjórninni. Framsóknar-
flokkurinn er á flótta undan
yfirlýstri stefnu sinni. „Saga
niðurtalningarstefnu Fram-
sóknarflokksins væri skopleg
ef hún hefði ekki reynst þjóð-
inni jafn dýrkeypt og raun ber
vitni," sagði Geir Hallgríms-
son í lok samtalsins við Morg-
unblaðið.
Skýrar línur
grímsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, í samtali við
Morgunblaðið í gær, þegar
rætt var við hann um hina
pólitísku áhættu sem þing-
flokkur sjálfstæðismanna tók
eftir allt það sem á undan var
gengið með því að stuðla að
framgangi bráðabirgðalag-
anna um efnahagsmál á þingi.
Eins og fram kemur í sam-
talinu vár það ekki fyrr en að
allir þingflokkar voru samein-
aðir um kosningar í apríl, að
knúin var fram formleg
ákvörðun í ríkisstjórninni um
að það tækist að róa í stjórn-
arandstöðuþingmönnum og fá
einhvern þeirra til að veita
málum brautargengi í neðri
deild. Á meðan þær sérkenni-
legu mannaveiðar stóðu yfir
varðist ríkisstjórnin falli með
því að láta ekki á nein ágrein-
ingsefni reyna, þau hafa
hrannast upp í aðgerðarleys-
inu.“ Þá kemur fram, að þeir
Steingrímur og Svavar sáu að
sér og leituðu eftir samkomu-
lagi við stjórnarandstöðu um
að þingi yrði lokið með ein-
hvers konar samkomulagi um
framgang nauðsynlegustu
flutti forsætisráðherra síðan
vísitölufrumvarp sitt sem
stjórnarfrumvarp við ein-
kennilegt ramakvein frá Al-
þýðubandalaginu, sem situr
áfram í stjórninni og ber póli-
tíska ábyrgð á þesSu frum-
varpi þótt það segist vera því
andvígt. Um þá uppákomu
sagði Geir Hallgrímsson: „Ég
tel að vísitölufrumvarpið sé
lagt fram í örvæntingu og
sýndarmennsku. Þetta er gert
á síðustu dögum þingsins þeg-
ar með öllu er vonlaust að
þingmönnum gefist færi á að
taka efnislega afstöðu til
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
: :
i Reykjavíkurbréf j
: Laugardagur 19. febrúar ................*
Dr. Sigurdur
Þórarinsson
Dr. Sigurður Þórarinsson,
jarðfræðingur, var jarðsunginn
þriðjudaginn 15. febrúar. Með
honum er genginn ástsæll maður,
virtur og vinsæll meðal þjóðarinn-
ar og kunnur langt út fyrir land-
steinana. f tilefni af sjötugsaf-
mæli Sigurðar, 8. janúar 1982, var
gefið út rit helgað honum og ber
það heitið Eldur í norðri. Sögufé-
lag er útgefandi og það gefur vís-
bendingu um hve víða Sigurður lét
að sér kveða að lesa listann yfir
þau félög sem áttu hlut að útgáfu
afmælisritsins, en þau eru skráð á
titilblað: Hið íslenska fornritafé-
lag, Hið íslenska náttúrufræðifé-
lag, Jarðfræðafélag íslands, Jökla-
rannsóknafélag Islands, Land-
fræðifélagið, Norræna félagið,
Sögufélag og Vísindafélag íslend-
inga. Og eru þó ekki öll þau félög
talin þar sem Sigurður lét að sér
kveða og má enn nefna til dæmis
Ferðafélag íslands. f bókinni Eld-
ur í norðri er meðal annars að
finna þessa lýsingu á Sigurði eftir
Halldór Laxness:
„Skemtilegri mann en Sigurð,
og meiri prýði í gestastofu, hef ég
fáa vitað; og eins þótt honum liggi
ekki hátt rómur. Leingi hafði mér
orðið starsýnt á hálsbindi hans
slegið úr smíðuðu silfri, en þegar
ég spurði hvar fáist svona háls-
bindi, hló hann við og sagði
„hvergi". Þessi fínbygði hámenta-
maður, ólíklegur til þrekrauna, og
ég hafði staðið að því í samkvæm-
um að hafa á valdi sínu manna
fjölbreyttasta skrá af glaðværum
gítarssaungvum, — einmitt hann
hafði þá æðri köllun að vera, þvert
ofaní vomur veðurstofunnar,
fyrstur manna á vettváng þar sem
voru að verki þau eldspúandi fjöll
ásamt með jarðskjálftum og jök-
ulhlaupum sem guð hefur gefið
oss íslendingum til áminningar
um endi heimsins. í miðri stórhríð
eru Sigurði Þórarinssyni þetta til-
tölulega öruggir staðir. í svona
einkennilegum plássum tekur
hann fram hljóðfæri sitt í nátt-
stað og sýngur einsog hér byggi
hið sanna líf:
María María María María
María María.“
Morgunblaðið naut oft hjálpar
Sigurðar Þórarinssonar og þess
hve einstaklega honum var lagið
að skýra undur náttúrunnar með
ljóslifandi hætti. Fyrir vinsemd
hans, greiðvikni og handleiðslu á
mikilvægum fréttastundum oftar
en einu sinni við hinar hættu-
legustu aðstæður færir Morgun-
biaðið Sigurði þakkir að leiðarlok-
um og vottar ástvinum hans sam-
úð.
Aðgæsla við
landkynningu
I forystugrein Morgunblaðsins
síðastliðinn þriðjudag var vakið
máls á þeim umræðum sem orðið
hafa um mannaferðir í óbyggðum
og nú síðast um fyrirhugað ís-
landsrall skipulagt af Frakka sem
hefur staðið fyrir alþjóðlegum
bílaröllum annars staðar. Allt
sýnist í óvissu um afdrif þess
máls. I umræddri forystugrein var
vísað til þess að nokkrir landverð-
ir, Kristín Sverrisdóttir, Mý-
vatnssveit, Magnús Ásgeirsson,
Jökulsárgljúfrum, Sólveig Jóns-
dóttir, Mývatnssveit, Sveinn Aðal-
steinsson, Tungnafelli, og Þor-
bergur H. Jónsson, Herðubreiðar-
lindum, hefðu í stúdentablaðinu
Náttúruverkur gert úttekt á kynn-
ingarritum á íslandi og ekki þótt
allt til sóma sem þar stóð. í grein
sinni segja landverðirnir meðal
annars:
„Eftir þessa samantekt á hinum
ýmsu bæklingum viljum við benda
á nokkur atriði sem við teljum
nauðsynlegt að fram komi í land-
kynningarritum; í það minnsta
sem gefin eru út hér á landi.
— Almennar upplýsingar um
land og þjóð.
— Vegir og færð.
a) Gerð vega (bundið slitlag, möl,
slóðir) og hvar þessir vegir eru
(v/Reykjavík, láglendi, há-
lendi).
b) Færð: færir hvaða ökutækjum,
hvenær og hvar (vorbleyta
o.fl.).
c) Brýr og vatnsföll. Hvar brýr og
hvar ekki (e.t.v. gerð vatnsfalla
og „hegðun" þeirra).
d) Hvernig eigi að aka (á malar-
vegum, slóðum, í ám o.fl. —
hvað ber að varast í akstri).
— Veður.
a) Almennt.
b) Áhrifin á hinum ýmsu stöðum
(til fjalla, á láglendi, fyrir
norðan, sunnan) og árstíðir.
— Gróður og dýralíf.
— Jarðfræði.
— Náttúruvernd, reglur og til-
mæli til ferðamanna varðandi
umgengni.
— Gisting, tjaldsvæði, hótel o.fl.
— Um náttúrugripi og útflutn-
ing þeirra.
— Veiðiréttur.
Vel mætti hugsa sér að leiðbein-
ingabæklingur sem þessi yrði fjár-
magnaður að nokkru með auglýs-
ingum. En umfram allt þurfa upp-
lýsingar að berast til ferðamanna
áður en þeir hefja ferðalög um
landið. Dreifing gæti farið fram i
skipum (Smyrli), flugvélum,
flugstöðvum, bílaleigum o.fl. stöð-
um.“
í tilefni af því að nú ættu ferða-
málafrömuðir að vera í óða önn að
undirbúa móttöku viðskiptavina á
næstu „vertíð" vill Morgunblaðið
ítreka þessar skynsamlegu ábend-
ingar landvarðanna fimm.