Morgunblaðið - 20.02.1983, Síða 26

Morgunblaðið - 20.02.1983, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 JEAN MOULIN hlaupist undan merkjum, var hann daglega sendur út á göturn- ar til að benda á fyrrverandi sam- herja sína. Áður en sviksemi hans komst upp, hafði Gestapo hand- samað 125 félaga í neðanjarðar- hreyfingunni í Marseilles. Frenay gaf fyrirmæli um að Lunel skyldi tafarlaust drepinn, en þá hafði svikarinn verið fluttur til Lyon, þar sem vélabrögðunum var fram haldið. Gestapo-liðið í Lyon var undir stjórn Klaus Barbie, þess sem nú bíður dóms í Frakklandi. Fljótlega eftir að Lunel kom til Lyon var yfirmaður skemmdar- verkadeildar „Combat" handtek- inn, en hann hét Réné Hardy og gekk undir dulnefninu Didot. Ymsir andspyrnumenn töldu að Didot hefði einnig gerst svikari vegna hótana Gestapo, þótt þær grunsemdir hafi aldrei sannast fyrir dómstólum. En það þótti mönnum kynlegt, að eftir stutta yfirheyrslu hjá Klaus Barbie var fyrst upp samband við Frenay, en samtök hans og andspyrnusamtök kristilegra demókrata höfðu þá nýlega.runnið saman í „Combat", stærstu og best skipulögðu and- spyrnusamtökin í Frakklandi. Moulin hafði meðferðis fyrirmæli frá de Gaulle, á míkrófilmu, þar sem sagði m.a. að Moulin væri skipaður persónulegur fulltrúi de Gaulles og ætti hann að sameina krafta allra þeirra, sem berðust gegn óvininum og samverka- mönnum hans. Hófst Moulin nú handa um að framkvæma þessar fyrirskipanir og í ágúst 1942 gat hann sent de Gaulle skýrslu um góðan árangur af þeim hluta ætlunarverks síns að sameina andspyrnuhreyfingar í hinu hernumda Frakklandi, en öllu lakar sóttist að sameina hin ólíku samtök andspyrnumanna á óhernumda svæðinu. Mikil óvin- átta var á milli Frenay, foringja „Combat", og d’Astiers, foringja „Libération", og hún spillti mest fyrir sameiningunni. í sáttaskyni kom Moulin því til leiðar, að Frenay og d’Astier færu til Lond- on og gerðu de Gaulle milliliða- laust grein fyrir stöðu mála. Hvorugur þessara manna vakti mikla hrifningu í höfuðstöðvum Frjálsra Frakka í Mayfair-hverf- inu í London. Yfirmaður leyni- þjónustu de Gaulles lýsti d’Astier með niðrandi orðum og kallaði hann „anarkista á lakkskóm" vegna róttækra skoðana hans og sundurgerðar í klæðaburði. Um Frenay sagði hann, að erfitt væri að henda reiður á sjónarmiðum hans, því hann skipti svo fljótt um skoðun, jafnvel oft í sömu setn- ingu. Þeir höfðu þó báðir frá ýmsu merkilegu að segja og de Gaulle fagnaði komu þeirra, en gleði hans dvínaði þó þegar andspyrnufor- ingjarnir kröfðust brottvikningar Jean Moulins. „Andspyrnuhreyf- ingin þarf engan yfirkennara," sagði Frenay m.a. Hann hreyfði þessu máli oftar en einu sinni og spurði meðal annars að því, hvað myndi gerast, ef andspyrnufor- ingjarnir væru ekki sammála Moulin. Þá svaraði de Gaulle þurr á manninn: „Frakkland mun velja á milli mín og þín.“ Það er því ljóst, að Moulin átti við ýmsa örðugleika að etja í sam- einingarstarfi sínu og skal það ekki rakið hér nánar í smáatrið- um. En í byrjun árs 1943 hafði honum tekist að koma á fót hinu svokallaða Þjóðarráði andspyrnu- hreyfingarinnar (Conseil National de la Résistance) þar sem flest andspyrnusamtökin áttu fulltrúa. Það var þó langt frá að full eining væri komin á milli þessara hópa og einkenndist framkoma margra foringjanna af afbrýðisemi hvers í garð annars. A leiö til glötunar í lok mái 1943 stýrði Moulin fyrsta fundi ráðsins, sem haldinn var í íbúð i húsinu númer 48 við Rue du Four, í París. Sextán menn sátu fundinn, átta úr andspyrnu- samtökunum, sex frá stjórnmála- flokkum og tveir frá verkalýðs- samtökunum. Moulin hóf fundinn með því að lesa ráðinu erindisbréf frá de Gaulle og síðan samþykkti ráðið að votta hinum landflótta hershöfðingja hollustu sína. Franska andspyrnuhreyfingin hafði nú Joksins verið sameinuð undir eitt merki eftir þriggja ára hernám. Jean Moulin, maðurinn, sem hafði náð einingunni fram, var þó sjálfur á leið til glötunar. Örlaganornirnar höfðu snúist gegn Moulin réttum mánuði fyrr. Við venjuleg eftirlitsstörf í Mars- eille 27. apríl hafði Gestapo hand- tekið Jean Multon (öðru nafni „Lunel"), næstæðsta yfirmann í sellu Combat í Marseille. Ógnanir Gestapo um pyntingar og hefnd- arráðstafanir buguðu Lumel og hann féllst á að ganga til liðs við Þjóðverja. Eftir að hann hafði Didot sleppt og virðist honum annaðhvort hafa tekist að sann- færa Gestapo um að hann væri á engan hátt viðriðinn andspyrnu- hreyfinguna eða að hann hefur gengið á mála hjá Þjóðverjum. Eitt er víst, að Charles Dele- straint hershöfðingi, sem de Gaulle hafði skipað til að stjórna baráttusveitum andspyrnuhreyf- ingarinnar, hulduhernum, var handtekinn er hann var á ieið til fundar við Didot. Tveimur dögum síðar var annar félagi hans, Max Heilbronn, handtekinn í Lyon. Hann og Didot höfðu hist á götu- horni og gengið spölkorn saman áður en þeir kvöddust. Heilbronn var fangi Gestapo, áður en hann náði næsta götuhorni. Jean Moulin varð mikið um handtöku Delestraints hershöfð- ingja. Hann kallaði saman til skyndifundar þá félaga í Þjóðar- ráðinu, sem tengdust hulduhern- um, að ræða skipan nýs yfir- manns. Frenay var staddur í London þegar þetta var og stað- gengill hans, Henry Aubry, átti að sitja fundinn fyrir hans hönd. Hann tók vin sinn með sér á þenn- an fund, sem var Réné Hardy, sem kallaður var Didot hér að framan. Fundurinn var haldinn á heimili Frederic Dugoujons læknis, sem bjó í stóru hvítu húsi við Place Castellane í Caluire, úthverfi i norðurhluta Lyon. Þar var þeim vísað til svefnherbergis á annarri hæð, þar sem tveir félagar í ráð- inu biðu þeirra. Hér bafa þýskir bennenn gómaö franskan andspyrnumann í fjallabéruðunum. í klóm Gestapo Moulin og tveir menn, sem voru með honum, komu of seint á fund- inn og virtist þeim bregða mjög við að sjá Didot þar staddan. En þeir voru ekki fyrr komnir inn en Gestapo-menn undir stjórn Klaus Barbie ruddust inn á eftir þeim. Barbie rak þá alla í sama herberg- ið og lagði síðan undir sig borð- stofu læknisins og hóf þar að yfir- heyra þá hvern um sig. Hann vissi að hann hafði náð fulltrúa de Gaulles, en hins vegar þekkti hann ekki Moulin í sjón. Þrátt fyrir ítrekaðar spurningar benti enginn fanganna á hann. Barbie þreif þá fót undan borðstofuborði læknis- ins og tók til við að berja fangana til sagna. Enginn sagði orð. Barbie gaf fyrirmæli um að þeir skyldu fluttir á brott. í þann mund, sem þeir voru leiddir út úr húsinu, sleit Didot sig lausan frá gæslumanni sínum og hljóp á brott. Hann var sá eini þeirra, sem ekki hafði verið handjárnaður. Hinir voru fluttir í fangelsið í Lyon og þar á meðal Moulin, en úr klóm Gestapo átti hann ekki aft- urkvæmt. Ekki er enn ljóst með hvaða hætti dauða Moulins bar að hönd- um. Hann hafði síðast samband við andspyrnuhreyfinguna í fang- elsinu í Lyon. Hinn 24. júní var Christian Pineau, félagi í and- spyrnuhópi sósíalista, sem Þjóð- verjar höfðu náð á undan Moulin, kallaður út úr klefa sínum og skip- að að raka meðvitundarlausan mann, sem lá í fangelsisgarðinum undir eftirliti þýsks fangavarðar. Pineau sagði síðar svo frá að sér hefðu fallist hendur þegar hann áttaði sig á, að maðurinn var eng- inn annar en Jean Moulin. Hann var meðvitundarlaus, sviplaus augu hans virtust sokkin í höfuðið. Á gagnauga hans var ljótt, bláleitt mar. Lág, hás stuna barst út um bólgnar varirnar. Gestapo hafði greinilega pyntað hann. Við raksturinn komst Moulin til meðvitundar. Hann opnaði augun og leit á Pineau og virtist þekkja hann. Moulin bað um vatn og Pineau hvíslaði einhver huggunar- orð að honum. Moulin umlaði eitthvað á ensku en missti svo aft- ur meðvitund. Sagt er að Moulin hafi síðar verið fluttur til Parísar og þaðan sendur með lest til Þýskalands. En aldrei hefur feng- ist örugg vitneskja um það hvar og hvenær hann dó. Einn þeirra sem bera vitni í máli Klaus Barbies nú er Gottlieb Theofil Fuchs, sem var túlkur Barbies og er nú 79 ára gamall. Hann hefur skýrt svo frá: „Ég var viðstaddur er Barbie pyntaði frönsku andspyrnuhetjuna Jean Moulin. Hann barði hann skelfi- lega með harðgúmmíkylfu sem hann bar jafnan á sér. Að bar- smíðunum loknum dró hann Moul- in á fótunum að kjallaratröppum þeim er lágu til klefa hans. Hann skildi hann þar eftir og öskraði til undirsáta sinna að ef þessi hundur væri enn á lífi daginn eftir, myndi hann ganga endanlega frá honum. Moulin lést síðan," sagði Fuchs. Klaus Barbie, „slátrarinn frá Lyon“, komst undan til Bólivíu eftir stríðið. Notaði hann nafnið Altman til að villa á sér heimildir og undir þessu nafni fékk hann ríkisborgararétt árið 1957. Árið 1975 náði franski blaðamaðurinn Michael Goldberg tali af Barbie á kaffihúsi í Bólivíu og þar minntist hann m.a. Moulins með þessum orðum: „Með því að handtaka Jean Moulin breytti ég gangi sögunnar. Þessi fulltrúi de Gaulles í Frakk- landi var svo greindur og snjall að hefði hann lifað hefði hann eflaust orðið leiðtogi Frakka eftir stríðið en ekki de Gaulle ...“ Nú situr Klaus Barbie í sama fangelsinu í Lyon og hann pyntaði Moulin í á sínum tíma og bíður þess að verða dæmdur fyrir glæpi gegn mannkyninu. Eitt af vitnun- um í máli hans er Lise Leserve, 82 ára gömul kona, eitt fórnarlamba Barbies. Hún lamaðist til lífstíðar er mæna hennar skaddaðist í pyntingunum. sem Barbie stjórn- aði sjálfur eftir að Lise hafði verið handtekin fyrir starfsemi sína í andspyrnuhreyfingu Frakka. Hún hefur látið þau orð falla að dauði sé alltof mild refsing fyrir „slátr- arann“ Barbie. „Engar kvalir eða pyntingar geta jafnast á við þær hörmungar, sem hann leiddi yfir fórnarlömb sín,“ segir þessi gamla kona og sjálfsagt eru margir henni sammála. (Sv.G. tók saman.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.