Morgunblaðið - 20.02.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983
27
Hvöt:
Fræðslu- og umræðufundur
um fóstureyðingalöggjöf
HVÖT, félag sjálfstæðiskvenna í
Reykjavík heldur fræöslu- og ura-
ræðufund um fóstureyðingarlöggjöf-
ina miðvikudaginn 23. febrúar nk.
kl. 20.30 f Valhöll.
Framsögumenn verða: Sólveig
Pétursdóttir, hdl., sem segir frá
núgildandi fóstureyðingarlöggjöf
og aðdraganda að setningu henn-
ar, Katrín Fjelsteð læknir, sem
fjallar um framkvæmd fóstureyð-
inga skv. núgildandi löggjöf, Þor-
valdur Garðar Kristjánsson, al-
þingismaður, sem skýrir frá
breytingartillögum sínum á lögum
um fóstureyðingar og kvensjúk-
dómalæknir mun fjalla um lækn-
isfræðilega hlið fóstureyðinga.
Að framsöguerindum loknum
verða pallborðsumræður og þátt-
takendur verða, auk framsögu-
manna, Auður Þorbergsdóttir,
borgardómari, en hún á sæti í
áfrýjunarnefnd skv. fóstureyð-
ingarlögum, Bessí Jóhannsdóttir,
formaður Hvatar og Jón Magnús-
son, hdl.
Fundargestum mun gefast kost-
ur á að varpa fyrirspurnum til
þátttakenda í pallborðsumræðum.
Fundarstjóri verður Inga Jóna
Þórðardóttir, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins.
Prófkjör Sjálfstæöisflokksins í Reykjaneskjördæmi 26.-27. febrúar 1983.
Stuöningsmenn
Rannveigar
Tryggvadóttur
hafa opnaö kosningaskrifstofu í Aöalstræti
4, Reykjavík, uppi (gengiö inn frá Fischer-
sundi).
Skrifstofan veröur opin kl. 17—20 virka
daga og kl. 13—19 um helgar.
Símar 16396 og 17366.
Claude Helffer
Píanótón-
leikar Claude
Helffers
ÞRIÐJUDAGINN 22. febrúar nk.
kl. 20.30 mun franski píanóleikarinn
Claude Helffer halda tónleika að
Kjarvalsstöðum á vegum Kon-
sertklúbbsins og Alliance Francaise.
Á efnisskránni eru Estampes
eftir Debussy, Constellation (úr
3ju sónötunni) eftir Boulez, „Out
of Doors“-svítan eftir Bartók og
Kreisleriana eftir Schumann.
Claude Helffer fæddist árið
1922. Hann hóf píanónám 5 ára
gamall og var Robert Casadesus
aðalkennari hans. Helffer stund-
aði nám í l’École Polytechnique en
það var ekki fyrr en í stríðslok að
hann ákvað að gera tónlistina að
ævistarfi. Hann hóf þá nám í
hljómfræði og kontrapunkti hjá
René Leibowitz og um svipað leyti
hélt hann fyrstu einleikstónleika
sína í París.
Hann hefur spilað í öllum
helstu borgum heims og unnið
með hljómsveitarstjórum á borð
við Boulez, Gielen, Maderna,
Marriner, Martinon, Scherchen,
Tabachnik ...
Helffer hefur starfað mikið með
tónskáldum samtíðarinnar (Boul-
ez, Berio, Philippot, Stockhausen,
Manoury, Sinopoli ...) og nokkrir
konsertar hafa verið samdir sér-
staklega fyrir hann. Þeirra á með-
al eru: Erikhthon eftir Xenakis
(1974), Stances eftir Betsy Jolas
(1978) og Fyrsti konsertinn eftir
Luis de Pablo (1980).
Margar af hljómplötum Helff-
ers hafa hlotið alþjóðlega viður-
kenningu og árið 1981 veitti SAC-
EM (samtök franskra tónskálda)
honum „Grand Prix“ fyrri túlkun
hans á franskri nútímatónlist.
Fröken Júlía:
Frumsýningu
frestað
FRUMSÝNINGU Gránufélags-
manna á sjónleiknum „Fröken
Júlía“, sem vera átti í Hafnarbíói
á morgun, mánudag, hefur verið
frestað vegna veikinda eins leikar-
ans.
A
A<'
HJÁ OKKUR NÁ GÆEHN í GEGN
Við hjá Ramma h.f. í Njarðvík notum eingöngu úrvals við frá Norður-Kirjalalandi
(Karelia) í Finnlandi. Á svo norðlægum slóðum vaxa trén hægt. Árhringir trjánna liggja því
þétt — viðurinn verður betri en annars hefði orðið raunin. I sögunarmillu Nurmeksen Sana
er viðurinn flokkaður eftir gæðum og útliti. Við kaupum af þeim eingöngu I. flokk.
Og við notum ekkert annað timbur. Kröfur okkar eru því mun meiri en þær sem gerðar
eru samkvæmt íslenskum staðli IST 41. Þar ná ákvæðin aðeins til þeirra flata sem eru
sýnilegir. Hjá okkur ná gæðin í gegn.
NUR*MES NURMES
2. FLOKKUR. 3. FLOKKUR
*NURMES*
I. FLOKKUR
ga-
uiðaverksmioja
NJARÐVÍK Sími 92-1601 Pósthólf 14 Söluumboð í Reykjavík: IÐNVERK H.F. Nóatúni 17, sími 25930 og 25945