Morgunblaðið - 20.02.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983
35
og það hefur borið mjög góðan
árangur. En það er víst ekki hægt
að skera upp við mislyndi! Ég er
stundum dálítið snöggur upp, en
ég reyni að bæta það upp á eftir.
En ég er óskaplega mikill ein-
staklingshyggjumaður, ég get ekki
aðhyllst neins konar múga-
mennsku. Það finnst mér líka
ánægjulegt með börnin mín, að
þótt þau hafi lifað í basli með föð-
ur sínum — það er óhætt að segja
það — þá hafa þau aldrei sýnt til-
hneigingu í neina „vinstrislagsíðu-
mennsku", öðru nær. Ég er af-
skaplega ánægður með það, ég á
góð börn, hef verið heppinn með
þau. — En þó ég segi þetta, þá vil
ég taka fram að ég hef ekkert á
móti sósíalisma hjartans, hann er
af hinu góða.
— Og Jón Múli er á neðri hæð-
inni?
Já, hann er niðri, það fer af-
skaplega vel á með okkur. Ég bý
uppi í Breiðholti, og segi gjarna
miklir mátar, og ég hlusta alltaf á
jassþáttinn hans.
Þykir vænt um Stokkseyri
— Margar myndanna hér eru
frá Stokkseyri, ég hélt að Roð-
gúlstímabilið væri löngu liðið?
Já, það er liðið, og um tíma
fannst mér alltaf talsvert sárt að
fara austur, ég á þaðan talsvert af
sárum endurminningum. En mér
finnst vænt um Stokkseyri og
Stokkseyringa, og eftir að ég fór
að fara þangað aftur hefur mér
gengið mjög vel að vinna, það hef-
ur haft góð áhrif á mig. Ég hef
verið með aðsetur í Skólahúsinu
og í Ásgrímsturni, og unnið mikið
eystra. Mér finnst alltaf eins og
eitthvað sé að fara að gerast á
Stokkseyri þegar ég kem þangað,
þetta byrjar strax við Hraunsána.
Á Stokkseyri vildi ég geta eignast
mitt Camp David, eða jafnvel Roð-
gúl aftur.
— Ekki er öll sýningin unnin
fyrir austan?
Listamaðurinn til all.s vís, þar sem hann er að hengja upp verkin í
Ásmundarsal við Freyjugötu. Myndina tók Ragnar Axelsson.
við leigubílstjóra, að þeir eigi að
aka mér upp í Golanhæðirnar, til
aðalstöðva KGB, það er til Jóns
Múla! Annars sagði ég einhvern
tíma í viðtali við Magdalenu
Schram að ég væri viss um að
hann Jón Múli væri enginn
kommi, það gæti ekki verið. —
Þessu svaraði hann svo einhvern
tíma þegar ég var að koma heim,
eldsnemma, frá Þingvöllum — Jón
Múli er morgunmaður eins og þú
veist, og sagði við mig: Það er ég
viss um, að þú ert í rauninni
kommi, kommi sem þykist bara
vera eða langar til að vera smá-
borgari!
Eftir þetta hefur alltaf farið vel
á með okkur Jóni Múla, við erum
Nei, ég fékk líka lánaða vinnu-
stofu á Laugaveginum, hún lánaði
mér hana hún Ingibjörg Eggerz,
kona Péturs Eggerz. Hún dvaldi
langdvölum erlendis, er frábær
listakona sem ég met mikils, ég
vona að hún sýni á þessu ári.
— Og þú ert búinn með allar
myndirnar?
Nei, ekki alveg, ég á eina eftir,
ég er að vinna að henni, hún er
númer 67 í skránni. Það er svona
braggamynd, heitir „Vestfirska
orkustöðin í Kópavogi", hún verð-
ur í einkaeign, ég hef tileiknað
hana Magnúsi Jóni Árnasyni bíla-
kóng frá Bíldudal í Arnarfirði.
Það er samviskuspursmál hjá mér
að ljúka við þessa mynd.
Ætla aö skrifa tvær
bækur á árinu
— Er eitthvað annað sem þú
hefur fyrir stafni núna?
Ekki eins og er, ég hef nóg að
gera í þessu. En ég er innan
skamms að fara norður í land í
þriggja mánaða dvöl, þar sem ég
ætla að skrifa bækur, já, bækur,
tvær en ekki eina. önnur er að
vísu samlede værker, prósar,
ferðaþættir og fleira, en hin er
frumsmíð, ekki sjálfsævisaga, en
svona brot og myndir frá liðnum
tíma. Ég tel mig fyrst núna hafa
til að bera nægilegan sálarstyrk
og sjálfsstjórn til að geta skrifað
svona bók. Ég er þegar farinn að
svipast eftir útgefanda, bækurnar
verða til í ágúst eða september!
— Þið málið báðir og skrifið
bræðurnir, þú og Örlygur. Þið eig-
ið þó ekki skap saman?
Nei, það hefur nú ekki verið, en
þó er það mikið að lagast. Auðvit-
að eiga menn í sömu fjölskyldu að
geta talast við og ég er að reyna að
bæta mig eins og ég sagði. En
hann er í allt öðrum hlutum en ég,
í allt öðrum kreðsum, við erum
ekki svo iíkir. Hann byrjaði til
dæmis ungur að mála, sló í gegn
sem kornungur maður, ég byrjaði
ekki fyrr en seint, var kominn á
fimmtugsaldurinn er ég byrjaði
1966. — Samt ætlaði ég að byrja
fyrr, en fór í blaðamennsku eftir
að ég hætti námi í bókmenntum,
en málaði þó alltaf eitthvað. Það
eru til myndir eftir mig frá 1946.
— Það var gaman að vera í blaða-
mennsku, en það er ekkert fínt að
vera blaðamaður eins og sumir
halda, ekki frekar en það er fínt að
vera listamaður. Það er fyrst og
fremst vinna, það er það sem það
er.
Þar með var viðtalið að enda,
enda mikið eftir að gera, Renate
að Ijúka við að ramma inn, og syn-
ir hans, Steingrímur og Jón, tekn-
ir að ókyrrast, og með þeim félagi
Jóns, Kristján Breiðfirðingur.
Þeir áttu eftir mikið verk við að
fara með málverkin upp í Ás-
mundarsal, og hjálpa til við að
hengja upp. Þá var kötturinn úti í
bíl einnig farinn að verða óróleg-
ur, — hann er af Himalajakyni,
sagði Steingrímur, án þess að
nefna köttinn aftur á nafn.
Það er eitt, sem ekki má gleyma,
hrópaði hann á eftir mér út í bíl:
Það verður músík við opnunina.
Tríóið Bergmenn leika í þrjá
klukkutíma, ég er búinn að ákveða
að veita mér það. Bergmenn eru
þeir ágætu herramenn Ásgeir
Sverrisson á dragspil, Njáll Berg-
þór Sigurjónsson á píanó og Guð-
mundur Garðar á slagverk. Þetta
eru frábærir menn, það á að verða
hátíðablær yfir opnuninni, sagði
listamaðurinn um leið og ég lokaði
bílhurðinni. Bara að það viðri nú
vel, því sýningin stendur aðeins til
1. mars, og þar af dettur einn
laugardagur úr vegna fundahalda
arkitektanna. Anders Hansen
vopnunum með aðstoð sovézkra
ráðgjafa.
Lævís vopn
Notkun eiturefnanna er ekki
kostnaðarsöm stríðsaðferð
fyrir Rússa miðað við aðrar að-
ferðir þeirra og við skulum
vera minnug þess, að stríðið í
Afganistan hefur kostað Rússa
miklu meira en þeir töldu, að
það myndi gera. Þá er vert að
gefa því gaum, að óbein áhrif
eiturefnavopna eru kannski
enn virkari en bein áhrif
þeirra. Þessi vopn valda
ofboðslegri skelfingu á meðal
fólks, sem er sér meðvitandi
um, að það geti þá og þegar
orðið fyrir slíkum vopnum.
Þessi vopn eru svo lævís. Þau
hafa ekki sömu fyrirferð og t.d.
svokölluð hefðbundin vopn en í
staðinn er eins og þau læðist að
fólki. Vitundin um þetta getur
valdið óbærilegri skelfingu.
Enn ein ástæðan fyrir því, að
Rússar beita eiturefnavopnum
nú, er sennilega sú, að þeir eru
að reyna þessi vopn. Hér er lík-
lega um eins konar tilrauna-
starfsemi þeirra að ræða til
þess að komast að raun um
hvaða áhrif þau hafa og hvaða
gagn má hafa af þeim. Hið
hryllilega við þetta er að sjálf-
sögðu, að hér er verið að gera
tilraunir á mönnum.
í Laos virðist það vera
markmið Pathet Lao og Víet-
nama, sem hafa þar talsvert
herlið, að beita eiturefnum
gegn þeim fjallaþjóðum, sem
þar búa í þeim tilgangi, að því
er virðist, að eyða þeim alger-
lega eða reka alla, sem ekki
vilja lúta stjórn þeirra, yfir til
Thailands.
í Kambódíu berjast um
200.000 Víetnamar og þeir ætla
sér greinilega að halda áfram
hernámi sinu í því landi.
Markmið þeirra þar er því að
brjóta á bak aftur alla mót-
spyrnu. Svo virðist sem eitur-
efnavopnum hafi verið mikið
beitt í sjálfum hernaðarátök-
unum í Kambódíu en einnig
þar fyrir utan. Má það því ljóst
vera, að það er ekkert sem
heldur aftur af Víetnömum né
Pathet Lao við að beita þessum
eiturvopnum.
Eþíópía næst
Þessi notkun eiturefna í
hernaði (og þar fyrir utan) er
af þeim sökum enn háskalegri
og því enn meira tilefni til um-
hugsunar en ella, að við getum
vænzt þess, ef ekki er spornað
við, að þessi sömu eiturefna-
vopn verði notuð annars staðar
eins og í Eþíópíu, þar sem mik-
ill fjöldi sovézkra ráðgjafa
starfar.
Við skulum vera minnug
þess, að allir alþjóðlegir samn-
ingar, sem í gildi eru um bann
við notkun eiturefna í hernaði,
hafa verið brotnir af Rússum
og bandamönnum þeirra í
Asíu, sagði Schwartzstein að
lokum.
Eskifjörður
Nýtt hús til sölu. Einbýlishús á Fífubarði 4, sem er
einnar hæöar timburhús 142 fm. Upplýsingar í síma
6305 eftir kl. 19.
PARKET
Amerísk Tennessee-eik í gegn (ekki spónlagt), hannaö úr
lausum ekta parketstöfum, nótuöum saman í 12 tommu
flísar, sem varöar eru meö sjálflímandi svamp-undirlagi og
verpast ekki.
• Auövelt fyrir menn aö leggja (mikill kostn.sparnaöur).
• Ekkert sull meö lím og lakk (líka kostn.sparnaöur).
• Tilbúiö til notkunar strax.
• Hljóölátt aö ganga á.
• Hljóöeinangrandi.
• Hitaeinangrandi.
• Mjúkt aö standa á.
• Ekkert viöhald.
• Endingargott.
• Fallegt, upprunalegt, ekta (ekki eftirlíking).
Hartco ameríska
parketið er fram-
leitt og hannað
með tíllití til kostn-
aðar, þæginda,
feguröar og end-
ingar.
— Kverklistar
— Slúttlistar
— Þreplistar
Umboðsmaöur:
Rífið pappirinrt af límfletinum og þrýstid
ftísinni léttilega í nótina.
ÚTSÓLUSTADIR:
Liturinn
Sióumúla 15. R..
sími 84533.
Mélmur hf.,
Reykjavíkurvegi 50, Hafn.,
simi 50230.
Börtcur,
Vestmannaeyjum,
simi 1569.
Kaupfél. Þingeyinga,
Húsavík, sími 41444.
Byggingaþjónustan,
Bolungarvík, simi 7351.
Þórður Júliusson,
skrífst. Laugavegi 26 2. h.,
Reykjavík, simi 22245.
\
Aóalfundur
H. f. Eimskipafélags íslands verður haldinn í
Súlnasal HótelSögu mánudaginn21. mars 1983,
kl. 14:00.
DAGSKRÁ.
I. Aðalfundarstörf samkvœmt 14. gr. samþykkta
félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa,
aukningu hlutafjár og innköllun eldri
hlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á
aðalfundi, skulu vera komnar skriflega í hendur
stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir
aðalfund.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á
skrifstofu félagsins í Reykjavík frá 14. mars.
Reykjavík, 15. febrúar 1983.
STJÓRNIN.
EIMSKIP