Morgunblaðið - 29.04.1983, Blaðsíða 1
tfgmiiiljtfrtfe
Föstudagur 29. apríl — Bls. 33—52
„Allt í einu
orðið svo lifandi og
skemmtilegt“
„Ég var húsamálari og vann viö að
mála hús út um allan bæ, en vann við
málverkið í öllum mínum frístundum og
var alltaf að auka það meira og meira.
Það var svo 1964, að mig minnir, að ég
var að ræða það við mætan mann hér í
bæ hvað það verkaði illa sálrænt og
væri móralskt neikvætt að vera í skíta-
galla út um allan bæ. Félagi minn tók
undir þetta og sagði að húsamálun
væri áreiðanlega
listfjandsamlegasta
starf sem hugsast
gæti. Og þá ákvað
ég að gefa þetta
endanlega frá mér.“
suom
ff
m...
Kannast einhver við gömlu mjólkurböðin sem hinar fornu fegurðargyðjur voru sagðar
hafa baðað sig í annað veifið til að viðhalda fegurðinni? Baöið hefur annars verið talið
búa yfir ýmsum töfrum, jafnvel lækningamætti. I tímaritinu Vogue hafa nú um árabil birst
ýmsar ráðleggingar eftir konu nokkra að nafni Bronwen Meredith, en þar gefur hún ýmis
góð ráð um það hvernig halda megi við líkamshreysti og fegurð. Fyrir nokkrum árum gaf
hún síðan út bók þar sem hún fjallar m.a. um nauðsyn þess að borða holla og næringarríka
fæðu, segir frá æskilegum líkamsæfingum og fleiru er lýtur að viðhaldi líkamans, og gefur
m.a. upp nútímauppskriftir aö gömlu mjólkurböðunum. Meðfylgjandi mynd er sótt í bókina, en
eins og sjá má er hægt að nota ýmislegt annað en mjólk til að viðhalda fegurðinni, sú sem hér
má sjá á myndinni slær tvær flugur í einu höggi og hvernig væri að fara að dæmi hennar og
kaupa gúrkur á góöu verði og nota þær til fegrunar meðan legið er í mjólkurbaöi?
Daglegt líff 34 Sjónvarp næstu viku 44/45 Myndasögur 48
Öfrjósemi 40 Útvarp næstu viku 46 Fólk í fréttum 49
Hvað er að gerast 42/43 Frímerki 47 Velvakandi 54/55