Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 2
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983
Dali vildi komast í kynni við
Freud og tókst það að lokum.
„Enn öfgafullur Spánverji," sagði
Freud um Dali. En enginn efi er á
að Dali hafði áhrif á hann.
„Ég er ekki brjálaður, ég mála.
Málaralistin er ekki Dali; það
sem gerist er að þar sem aðrir eru
svo lélegir reynist ég bestur af
öllum. Bestu sálfræðingar vita
ekki hvar vitfirringin byrjar og
hvar snilligáfan endar. Mitt til-
felli er miklu erfiðara viðfangs
því ég er ekki aðeins flugumaður,
heldur einnig hræsnari. Ég veit
ekki hvenær ég byrja að hræsna
eða hvenær ég segi satt.“
Dali hefur ætíð haft sérstæðar
skoðanir á stjórnmálum og látið
þær óspart í ljós: „Skortur á
frelsi takmarkar ekki listasköp-
unina heldur örvar hana. Frelsið
er aðeins til þess að eyðileggja
allt saman, svo að ekkert starfi
eins og það ætti að gera. Ég hef
skilið að heimur nútímans hreyf-
ist vegna of mikils frelsis." Við
annað tækifæri sagði Dali: „Mér
hefur aldrei líkað börn né dýr, né
almennur kosningaréttur, né nú-
tímalist, né E1 Greco. Með því að
safna saman peningum get ég
gert það sem mig lystir, sem er
fyrirtaks máti til þess að neyða
mig ekki til þess að skrifa mig
hjá einhverjum stjórnmálaflokki
og vera stjórnleysingi. Ég held að
innan nokkurra ára verði Evrópa
algjörlega einveldi. Auk þess er
ég fullviss um að Rússland verður
einnig einveldi."
Til virðingar fyrir listmálar-
ann hefur Menningarmálaráðu-
neytið á Spáni nýlega skipulagt
geysilega víðáttumikla yfirlits-
sýningu á verkum hans í Madrid.
Þar er Dali ekki aðeins kynntur
sem teiknari heldur einnig sem
myndhöggvari, höfundur svið-
setninga fyrir kvikmyndaleik,
leiklist eða ballett, skáld og leir-
kerasmiður.
trúði á þetta. Ef til vill átti ég
snilligáfu; en ég vissi það ekki,
samt sem áður sagði ég að ég
væri snillingur í að hafa áhrif, en
ég sjálfur trúði ekki því sem ég
sagði." Einu sinni tók Dali innan
úr brauði — eitt af aðaláhugaefn-
um hans — og setti inn í brauðið
bronsstyttu af Buddah og þekur
yfirborð þess með dauðum flóm.
Enn eitt hneykslið.
Dali sendi John Lennon skeyti
um að sá síðarnefndi færi til
móts við hann í pílagrímsför
hippa til Santiago de Compostela
(í Galisíu-héraði á NV-Spáni).
Bítillinn sendi aldrei svar.
En er Dali brjálaður í alvör-
unni? Hver er skoðun Dali á
sjalfum sér? „Allir listamenn eru
svolítið sjúkir, andlega veiklaðir
eða daprir brjálæðingar eins og
ég. Eini munurinn á brjáluðum
manni og mér er að ég er ekki
vitskertur."
jfeÉi-WÉliilllilHllMWttÍi
Það er erfitt aö útkljá deilur um það hvort athæfi og opinbert líf Dali séu vitfirring
snillings eða snilli brjálæöings. Enginn dregur í efa listgáfur eða mannlegan verðleika
þessa einstaka listamanns, sem kominn er til aldurs. Margar af hinum sérkennilegu
uppákomum Dali hafa verið birtar í endurminningum sjálfs listamannsins og/ eða í
viðtölum við hann, enda þótt ekki sé vitað hvort sumar þeirra eru ávöxtur stórkostlegs
ímyndunarafls eða staðreyndir. „Venjulegur trúður í fjölleikahúsi vekur hlátur í 15
mínútur í mesta lagi. En ég hef skemmt öllum samtíðarmönnum mínum í gegnum
margar kynslóðir."
Kennarar í hinum ýmsu skólum þar sem Salvador Dali stundaði nám, voru sammála
um að hann væri óvenjuleg persóna, mjög frábrugðinn öllum öðrum. Stærðfræðikenn-
ari Dali hikaði ekki við að fuliyrða: „Greind piltsins er langt fyrir neða lágmarkskröf-
ur.“
Dekurbarn
Álit iranna á Dali hefur aldrei
verið neitt áhyggjuefni fyrir
listamanninn. „Þegar ég var 6 ára
langaði mig að verða kokkur. Sjö
ára gamall vildi ég verða Napó-
leon. Og metorðagirnd mín hefur
aukist án afláts síðan. Þegar ég
var lítill var ég mjög vondur. Ég
ólst upp í skugga illskunnar. Og
enn held ég áfram að þjá aðra.“
Foreldrar Salvador dekruðu
mjög við son sinn þegar hann var
lítill. Þau höfðu misst fyrra barn
sitt og létu allt eftir honum. En
sem barn hræddi Dali ættingja
sína með yfirliðum, sefasýkis-
köstum og ofsafengnum hláturs-
köstum. Þegar Dali var 5 ára
hrinti hann öðrum dreng niður
brú sem var í smíðum. „Það síð-
degi sem þetta gerðist naut ég
fegurðar landslagsins betur en
nokkru sinni fyrr.“
Dali þarfnaðist þess að vera
dáður; faðir hans, lögfræðingur,
sendi hann í almenningsskóla.
Salvador var eini ríki nemandinn
í skólanum og hann sýndi það
með því að dreifa silfurhnöppum
sínum um gólfið til þess að fá-
tæku strákarnir berðust sín á
milli um þráðan fenginn.
Dali tileinkaði sér einnig að
skipta 10 sentíma mynt í staðinn
fyrir 5. Mikilvægast var að vekja
athygli. Þegar Dali var 16 ára var
það helsta skemmtun hans í skól-
anum að henda sér niður stigana.
Hneyksli í Madrid
Faðir Dali lætur innrita son
sinn í Listaskóla San Fernando í
Madrid. Þar býr Dali á stúdenta-
heimili. Eftur stuttan tíma er
hann rekinn úr listaskólanum í 1
ára. Hann snýr aftur til San
Fernando en er rekinn að nýju
fyrir fullt og allt 1926 þegar hann
neitar að gangast undir próf hjá
„þremur fáfróðum prófessorum".
Þegar Dali snýr á nýjan leik heim
til Figueras er hann með tómar
ferðatöskurnar því hann nennti
ekki að setja farangur niður í
þær. Þremur árum síðar segir
Dali: „Ég reyni með öllum hugs-
anlegum ráðum og aðferðum að
verða brjálaður."
Dali kynntist Paul Eluard og
konu hans, Gala, sem hann lifði
síðan með (Gala lést fyrir tæpu
ári). Faðir Dali var andvígur
sambúð þeirra og sleit sambandi
við son sinn.
Lennon og Dali
Eitt af mörgum furðuuppá-
tækjum Dali var að hífa upp
dautt naut með þyrlu. „Ég byrj-
aði að framkvæma fjarstæða
hluti og svo fór að lokum, að ég