Morgunblaðið - 22.05.1983, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 22.05.1983, Qupperneq 8
56 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983 HJÖRTU OKKAR VERÐA ALLTAF Á ÍSLANDI Frá messu í kapellu klaustursins. Það er faðir Oremus frá Hollandi sem þjónar fyrir altari. (Mynd: Árni St. Árnason.) síðar komu þrjár nýjar systur frá Hollandi og þá um vorið fluttu þær fimm inn í klaustrið og hófu þá starfsemi sem þar hefur verið rekin allar götur síðan. Flestar voru systurnar 16 talsins, en lengst af hafa þær verið 13. Árið 1980 fóru fjórar systur heim til Hollands vegna aldurs og lasleika og nú eru þær átta, sem eftir eru, senn á förum. Þær eru: systir Veronica, sem eins og áður segir kom hingað fyrst árið 1939 og hefur starað við klaustrið frá upphafi, systir Miriam príorinna og systir Elía, sem komu hingað árið 1946, systir Magdal- ena sem kom 1947, systir Agnes sem starf- að hefur hér frá árinu 1949, systir Ólöf sem hingað kom árið 1953, systir Katrín sem kom árið 1956 og systir Theresa, sem hefur verið frá 1962. Beöiö fyrir íslendingum „Bænin er aðalstarf okkar," segir systir Miriam, þegar við spyrjum hana nánar út í starfsemi Karmelsystra. „Bænahald og hugleiðing er helsta inntakið í reglu Karmelíta og daglegt líf okkar helgast þvi að mestu af bæninni. Við biðjum fyrir fs- lendingum og er það siður í Karmel- klaustrum, hvar sem er í heiminum, að biðja fyrir þeirri þjóð sem byggir landið sem klaustrið er í. En við þurfum auðvitað líka að sinna ýmsum öðrum störfum sem til falla. Þetta er stórt hús og það er mikil vinna að halda því hreinu. Einnig höfum við unnið fyrir okkur með handavinnu, garðrækt og hænsnarækt og systir Veron- ica vann lengi við að skrautrita á bækur, svo nckkuð sé nefnt. Við þurfum einnig að sinna heimsóknum og það er ekki óal- gengt, að fólk, sem á í einhverjum vand- ræðum í lífinu, leiti til okkar og biðji okkur um að biðja fyrir sér. Hingað hafa líka komið íslenskar stúlkur og spurst fyrir um klausturlífið, en engin þeirra hef- ur stigið skrefið til fulls. Þær koma yfir- leitt ekki nema einu sinni," segir systir Miriam og brosir. Til skamms tíma var kveðið mjög strangt að einsetulífi Karmelsystra og má segja að þær hafi verið þiljaðar af frá umheiminum, ekki aðeins með þykkum veggjum klaustursins, heldur innan þess líka. í gagnmerkri grein um Jófríðarstaða- klaustur, sem Björg Bjarnadóttir skrifaði í „Borgarann“, blað Félags óháðra borgara í Hafnarfirði, fyrir tveimur árum segir m.a. um þetta: „I Jófríðarstaðaklaustri Karmelsystra í Hafnarfirði voru lengi vel grindur í gesta- stofunni milli systranna og gestkomandi, og urðu þær að bera svartar blæjur fyrir andlitinu. Þá skiptust þær í svonefndar útinunnur og inninunnur. Hinar fyrr- nefndu voru tvær og höfðu með aðdrætti til klaustursins að gera og komu mat inn til inninunnanna í gegnum sérstakan skáp. Máttu útinunnurnar ekki blandast hópi systranna inni fyrir, sem sáu um hið verndaða andlega þjónustustarf, nema þá við einstök mjög hátíðleg tækifæri. Breytt afstaða til mannsins almennt og ný samfélagsleg viðhorf hafa þó ráðið því að nú hefur ýmsu í hinum ytri strangleik reglunnar verið aflétt. Árið 1965 lét Jó- hannes páfi XXIII boða til kirkjuþings í Vatikaninu og hafði þá ekki verið haldið slíkt þing frá því árið 1870. Þar var gerð sú samþykkt að ýmislegt á hinu ytra borði klausturlífsins, sem orðið væri úrelt eða á annan hátt óæskilegt, skyldi hverfa. Áherslu skyldi fyrst og fremst leggja á þjónustu kaþólsku kirkjunnar við mann- kynið án aðgreiningar og einangrunar og líta bæri á manninn sem órofa heild, en ekki tvískiptan í sál og líkama, eins og tíðkast hafði öld fram af öld í trúfræði kaþólsku kirkjunnar. Á þeim 15 árum, sem síðan eru liðin, hefur margt breyst í ytri aðbúnaði klaustranna og í Karmelklaustr- inu í Hafnarfirði tíðkast nú engar svartar blæjur eða grindur lengur. Sameiginleg matseld er í höndum systranna, sem einn- ig skiptást á um að fara í pósthús og sjá um aðdrætti." Um þetta segir systir Miriam meðal annars: „Já, það varð mikil breyting á með samþykkt kirkjuþingsins 1965. Eg kom hingað til lands árið 1946 og var ekki fyrr en árið 1967 að ég fór fyrst út fyrir veggi klaustursins. Áður fyrr máttum við ekki fara út nema í sérstökum neyðartilfellum eins og t.d. ef við þurftum að leita til lækn- is.“ Systir Miriam bætir því jafnframt við, að þrátt fyrir hinar rýmkuðu reglur sé bæjarferðum haldið í lágmarki enda sé sú innri þjónusta sem Karmelklaustrum er ætlað að inna af hendi best ræktuð í hljóð- látri kyrrð hins verndaða klausturlífs. Karmelsysturnar fá nú fri einn dag á ári og leyfi til að fara í skemmtiferð til að skoða landið og hafa þær notað þessar ferðir til að skoða þá staði sem markverð- astir þykja, svo sem Skálholt, Þingvelli, Gullfoss og Geysi, svo nokkrir séu nefndir. Þá hafa þær nú leyfi til að fara á þriggja ára fresti til að heimsækja vini og ætt- ingja í Hollandi. Frá Karmelfjalli í landinu helga þar sem fyrsta Karmelklaustrið var stofnað af krossförum árið 1156. Þess má geta að systurnar í Jófríðar- staðaklaustri eru islenskir ríkisborgarar og hafa samkvæmt því kosningarétt í Reykjaneskjördæmi. Aðspurð um það hvort þær hafi notfært sér kosningarétt- inn svarar systir Miriam fjörlega: „Jú, auðvitað höfum við notað kosningaréttinn og við erum meira að segja yfirleitt með þeim fyrstu á kjörstað, erum alltaf mættar um hálf-tíuleytið að morgni kjördags." Um uppruna og uppbygg- ingu Karmelreglunnar En til að skilja betur þá hugsjón sem liggur að baki klausturlífsins er rétt að huga lítillega að uppruna trúarreglu Karmelíta og uppbyggingu hennar. Reglan var upphaflega stofnuð af krossförum á Karmelfjalli í Palestínu árið 1156. Margir telja þó að rekja megi sögu reglunnar mun lengra aftur í tímann, eða allt til frásagna Gamla testamentisins af Elía spámanni, sem talinn er hafa verið uppi um níu öld- um fyrir Krist og eru einkunnarorð regl- unnar: „Ég stend fyrir lifandi Guð“ frá honum komin. í upphafi var strangleika reglunnar viðbrugðið þótt nokkuð hafi úr því dregið er á leið frá formlegri stofnun hennar. En um miðja 16. öld færðist hún aftur nær sínu fyrra horfi nieð starfi og fordæmi tveggja spænskra Karmelíta, heilagrar Theresu frá Avilla og heilags Jó- hanns af Krossi. Eru þau talin eins konar endurstofnendur reglunnar eins og hún hefur haldist fram á þennan dag. Hið innra starf reglunnnar var endurbætt þar sem áherslan var lögð á andlega þjónustu við Guð og menn með bænahaldi, hug- leiðslu, lofgjörð og tilbeiðslu. Markmiðið var að minna manninn á samband sitt við Drottin allsherjar og vaka yfir velferð þjóða og einstaklinga með fyrirbænum. í áðurnefndri grein Bjargar Bjarnadótt- ur segir einnig að Karmelsystur trúi stað- fastlega á mátt bænarinnar, á hjálpræði Krists og heilagrar guðsmóður þótt þær hafi trúarlegar kennisetningar lítt i há- mæli. Þær segi einfaldlega að Guð þekki langanir og þarfir einstaklingsins og að bænin sé leið til að komast i samband við hann. Eiginlegt markmið starfs þeirra sé að biðja Guði til dýrðar og mannkyninu til heilla, opna fyrir hina duldu gátt innri friðar, hamingju, visku og kærleika. Að mati þeirra gefi einangrun, hlédrægni og kyrrð klausturlífsins einmitt nægilegt svigrúm til nauðsynlegrar einbeitingar að þessu marki. Kjarninn í starfi Karmelíta er því fólg- inn í bænahaldi og hugleiðingum sem fara fram innan lokaðra klaustra og gefur auga Ieið, að slíkt felur í sér aðskilnað frá venjulegu mannlífi og veraldlegu samfé-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.