Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983
MURFILL
KLÆÐNINGIN
TEYGJANLEGA
• bítur sig viö undirlagiö og
vinnur meö því ár eftir ár.
• er vatnsþétt.
• er samskeytalaus.
• harönar ekki og hrekkur því
ekki í sundur.
• hindrar aö vatn komist i
gegn.
• hindrar aö vatn leiti inn í
sprungur.
• andar og hleypur út raka án
þess aö leka.
• er ódýrari.
• er í mörgum litum.
Hugsaöu þig vel um áöur en þú
velur nokkuö annaö.
S. Sigurðsson hf.
Hafnarfirði — Símar 50538 & 54535
Söngtónleikar á Hvolsvelli
ELÍN ÓSK Óskarsdóttir sópran og
Kjartan Ólafsson tenór halda tón-
leika í félagsheimilinu Hvoli,
Hvolsvelli, miðvikudaginn 25. maí
kl. 21. Þetta eru fyrstu sameigmlegu
tónleikar Elínar og Kjartans. Á efn-
isskránni verða bæði innlend og er-
lend lög, óperuaríur og dúettar. Und-
irleikari er Lára Rafnsdóttir.
Elín ósk hóf tónlistarnám sitt
við Tónlistarskóla Rangæinga.
Veturinn 1979—’80 hóf hún söng-
nám við Söngskólann í Reykjavík
og hefur Þuríður Pálsdóttir verið
söngkennari hennar frá byrjun.
Elín Ósk söng á óperutónleikum
Söngskólans í janúar sl. í tilefni af
10 ára afmæli skólans. Hún tók
einnig þátt í söngkeppni sjón-
varpsins í apríl sl. og varð 1 öðru
sæti. Elín ósk hefur einnig komið
fram sem einsöngvari við ýmis
tækifæri.
Kjartan ólafsson er frá Búðum,
Fáskrúðsfirði. Hann hóf nám við
Söngskólann í Reykjavík 1975—76.
Kjartan hefur stundað nám við
skólann að hluta til ásamt tónlist-
arkennslu og uppsetningu kóra.
Hann stundar nú nám við fram-
haldsdeild Söngskólans. Magnús
Jónsson hefur verið kennari hans
lengst af. Kjartan söng á óperu-
tónleikum Söngskólans í janúar og
hann hefur einnig komið fram
sem einsöngvari við ýmis tæki-
færi.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
EFNIS-
PIPUR
SKF 280
ooO° oo° ® »OOo
Fiölmargir sverleikar
ogþykktir.
SINDRA
STALHR
Elín Ósk Óskarsdóttir
Kjartan Ólafsson
Umferðarvikur lög-
reglu á norrænu
umferðaröryggisári
Á NORRÆNU umferðaröryggisári
hafa lögregluyfirvöld á Norðurlönd-
um ákveðið að taka sérstaklega fyrir
fjögur viðfangsefni og helga hverju
þeirra eina viku. Viðfangsefni þessi
eru valin í samræmi við megintil-
gang norræns umferðaröryggisárs,
en hann er sá að auka öryggi vegfar-
enda með bættri umferðarhegðun og
að vekja fólk til umhugsunar um
þátt hvers og eins í umferðinni. Er í
þessu sambandi lögð sérstök áhersla
á tillitssemi gagnvart gangandi veg-
farendum og hjólandi og það hvað
þeir ásamt bifreiðastjórum geta gert
til að koma í veg fyrir umferðarslys.
Vegna þátttöku lögreglu í undir-
búningi og framkvæmd samræmdra
aðgerða lögreglu á norrænu umferð-
aröryggisári kom Dómsmálaráðu-
neytið á fót sérstökum starfshópi
lögreglumanna, er í eiga sæti Óskar
Ólason yfirlögregluþjónn í Reykja-
vfk, formaður, Baldvin Ottósson
lögregluvarðstjóri, Reykjavík, Ólaf-
ur K. Guðmundsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn, Hafnarfirði, og Þórð-
ur Sigurðsson yfirlögregluþjónn,
Borgarnesi. Hafa þeir í samráði við
ráðuneytið og Umferðarráð unnið að
undirbúningi umferðarvika lögreglu.
Umferðarvikur þessar og við-
fangsefni þeirra verða sem hér segir:
Hjólreiðamenn og ökumenn léttra
bifhjóla og bifhjóia 16.—21. maí.
Hegðun vegfarenda við gang-
brautir og umferðarljós 13.—18.
júní.
Ökuhraði í nágrenni skóla 5.—10.
september.
Ölvun við akstur og eftirlit með
búnaði bifreiða, svo sem Ijósabúnaði
3.—8. október.
Aðgerðir lögreglu vegna viðfangs-
efna þessara verða undirbúnar,
kynntar og framkvæmdar eftir því
sem við á á hverjum stað. Er við það
miðað að aögerðir fari fram samtím-
is um land allt, eftir því sem unnt er
og aðstæður leyfa. Þó er gert ráð
fyrir því að hentað geti að lengja
þann tíma, sem einstökum verkefn-
um er hclgaður, svo sem að hefja
undirbúningsaðgerðir fyrr eða að
fylgja verkefni eftir að viku lokinni.
I þessu sambandi hefur ráðuneytið
hvatt til þess að lögregla hafi nú sem
áður náið samstarf við þá aðila aðra,
stofnanir og samtök, sem að bættu
umferðaröryggi vinna.
Borgartúni 31 sími 27222
6cyl. - 225 cu. in. - Sjálfskiptur - Aflstýri
Aflhemlar - Styrkt fjödrun - Styrktir demparar
Electronisk kveikja .
IfW
JÖFUR HF
Nybylavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
Verð til atvinnubifr.stj. 481.340
Sérstakur afsl. af árg. ’82 86.640
gengi: 01.04. ’83
394.700