Morgunblaðið - 22.05.1983, Page 28
76
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983
■ 1983 Unlvernl Prtll SinHitiU
X síSasta sinn: Ég \/i| e^ki /éfct dacys)ir\s.r
yýtí’ <“>b
Nú tekurðu hann í næstu lotu.
Þú hefur margoft sagt að þú gæt-
ir afgreitt hann með bæði augun
lokuð.
HÖGNI HREKKVÍSI
ást er ...
.,. að njóta
kveöjustundar.
TM Rn. U.S. Pat OR.-al rtghts ratanad
•1962 Loa Angataa Tfenaa Syndtcala
Með
morgunkaffiriu
Vina mín. — Ég sagði þér að
vera ekki að fara hingað.
Þessir hringdu . . .
Þakkir til
Þursanna
L. St. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Mig langar að
koma á framfæri þökkum til Þurs-
anna fyrir frábæra hljómleika á
Borginni 28. apríl. Vonandi á mað-
ur eftir að heyra eitthvað í þeim í
sumar. Og ein spurning í lokin:
Hvenær kemur platan?
Hvernig er hægt
að bregðast við?
St.Á., Hafnarfirði, hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
— Það er smávandamál, sem
hefur verið að hrjá okkur hér suð-
urfrá, og mig langar að nefna við
þig. Það er þannig, að það er alltaf
verið að rífa loftstengur af bílun-
um hérna. Það hefur komið tvisv-
ar sinnum fyrir hjá mér frá ára-
mótum. Svo heyrir maður, að aðr-
ir séu enn óheppnari og lendi í því,
að speglarnir séu snúnir af líka.
Ég veit eiginlega ekki, hvernig
hægt er að bregðast við svona
ónáttúru og leyfi mér því að beina
þeirri spurningu til samborgara
minna, hvort þeir hafi einhverjar
tillögur fram að færa, sem að
gagni gætu komið.
Hálfmót-
sagnakennt
S. á Húsavík hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Ég hlust-
aði í morgun (fimmtudag) á þátt-
inn Gull í mund. Þar var verið að
grennslast eftir hvort fólk vildi fá
kvöldvöku útvarpsins á öðrum
tíma í dagskránni en nú er. Gömul
kona óskaði eftir því að þær yrðu
hafðar á föstudögum eða mánu-
dögum. Stúlkan í Gull í mund
hringdi í dagskrárgerðarkonuna,
sem sér um kvöldvökuna og taldi
hún þettá fráleitt, sagði að þau
biðu eftir útkomunni úr hlust-
endakönnuninni. En hún gleymdi
því, að þar fær eldra fólkið ekki að
vera með. Þetta er því hálfmót-
sagnakennt, þar sem engar líkur
eru til þess, að óskir eldra fólksins
komi fram, þó að niðurstöður
hlustendakönnunarinnar liggi
fyrir. Þessu fólki var ýtt til hliðar
og það fékk ekki að láta skoðanir
sínar í ljós. Hvílíkt virðingarleysi
og dónaskapur við aldna borgara
landsins.
Lífeyrissjóð-
ur öryrkja
Laufey Steingrímsdóttir hringdi
og hafði eftirfarandi að segja: —
Ég hef verið að velta því fyrir mér,
hvort ekki væri mögulegt að koma
á fót lífeyrissjóði öryrkja. Ég er
öryrki sjalf, sex barna móðir og
hef átt í erfiðleikum með að fá lán
vegna íbúðarkaupa. Ég reikna með
að sama hafi gengið yfir aðra I
svipaðri aðstöðu. Fróðlegt væri, ef
einhver, sem þekkir til þessara
mála, vildi gera grein fyrir því hér
í dálkunum, hvort þetta væri
mögulegt.
Fyrirspurn til
sérleyfishafa
0333—2306 hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja: — Mig langar
til að koma á framfæri fyrirspurn
til sérleyfishafa áætlunarbíla eða
samtaka þeirra. Þó að ár aldraðra
sé nú liðið vil ég spyrjast fyrir um
það, hvers vegna þeir gefa ekki
ellilífeyrisþegum, sem ferðast
vilja um landið á eigin vegum, af-
slátt af fargjöldum með áætlunar-
bílunum, t.d. vissa daga í hverri
viku, þegar full sætanýting fæst
hvort eð er ekki. Bæði flugfélög og
skipafélög gera þetta. Ég veit að
þarna er um einkaaðila að ræða,
en samt sem áður ættu þeir vel að
geta gert þetta.
Seinlæti í
kerfinu veldur
símalokunum
Símnotandi hrindi og hafði eftir-
farandi að segja: — Mig langar til
að koma á framfæri vinsamlegri
athugasemd til Pósts og síma. Eg
beini þeirri áskorun til þeirra, sem
hafa með skipulagsmál að gera
hjá þessari stofnun, að þeir finni
leiðir til að upgjör milli banka og
sparisjóða annars vegar og inn-
heimtudeildar Pósts og síma hins
vegar gangi hraðar fyrir sig en nú
é
Líf mannsins er heilagt
Lesandi skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Ég samgleðst innilega ungu hjón-
unum frá Siglufirði sem voru svo
lánsöm að litla dóttir þeirra lifði, þó
að hún fæddist eftir aðeins 24 vikna
meðgöngu og væri ekki nema 710
grömm á þyngd (Mbl. 8. maí). Þarna
lögðust allir á eitt um að bjarga
dýrmætu mannslffi. Telpan naut
umhyggju, ráðsnilldar og kærleika,
og Guð hefur auðgað líf foreldr-
anna.
Þegar ég las þessa góðu frétt
hlaut ég að leiða hugann að þeirri
hörmulegu þversögn að meðal okkar
skuli vera svo um hnútana búið að
heimilt er að stytta barni aldur ef
það hefur ekki náð tilteknum aldri.
Ég á hér við fóstureyðingar. Er
þetta ekki svartasti bletturinn á
æru okkar? Á sjúkrahúsinu var
neytt allra bragða til þess að halda
lífinu í Lísu litlu — og það tókst —
en á annarri sjúkradeild var ef til
vill um sama leyti önnur ófædd
„Lísa“ skröpuð úr líkama móður
sinnar, með samþykki laga sem full-
trúar okkar á Alþingi hafa sett.
Nú á dögum er hátt hrópað um
kynþáttamisrétti og alls konar
ranglæti. Margur „mannvinurinn"
hneykslast á athæfi fyrri tíðar
manna sem litu svo á að svartir
þrælar væru ekki menn. En það eru
kannski sömu „mannvinir" sem lýsa
velþóknun sinni á lögum sem úr-
skurða að milljónir ófæddra barna
af alls konar litarhætti séu ekki
menn. f Bandaríkjunum er meira en
milljón börnum grandað ár hvert
með fóstureyðingum, svo að dæmi sé
tekið, og í Sovétríkjunum fimm til
sex milljónum árlega að því er talið
er. Fóstureyðingar í Danmörku eru
um 23 þúsund á ári, líklega 15—20
þúsund í Noregi (þar fer þeim vfst
fækkandi, góðu heilli — vegna
áhrifa kristinna manna?) og voru
fóstureyðingar ekki á sjötta hundr-
að hér á ísaköldu landi samkvæmt
síðustu tölum?
Þessi brotalöm í siðgæði okkar
kemur fram þegar fatlaðir eiga í
hlut. Allir fagna því sem gert er til
að létta fötluðu fólki lífið. Fólk í
hjólastólum á að komast óhindrað
inn í opinberar byggingar og á milli
hæða í þessum húsum. Safnað er í
sundlaugar fyrir fatlað fólk. Margt
er reynt að gera fyrir daufa, dumba,
vanvita o.s.frv. En jafnframt þykir
mörgum sjálfsagt að deyða ófædd
böm sem hefðu hugsanlega orðið
fötluð. Hvers eiga þau að gjalda?
Til er það að börnum sé sýnt
ofbeldi á heimilum sfnum eða f nán-
asta umhverfi. Mun það reyndar
vera algengara erlendis en hér.
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Mikill fjöldi manna eru látnir vinna að
þessu. Þetta er erlend setningargerð.
Rétt væri: Mikill fjöldi manna er látinn vinna að
þessu.
(Ath.: fjöldi er látinn vinna.)
-■
11 L