Morgunblaðið - 05.06.1983, Blaðsíða 3
3
Snillingarnir í Stuttgart
■
Lið VFB Stuttgart keppnistímabilið 1982-83. Fremsta röð frá
vinstri: Jeske, Ohlicher, Schlierer, Griininger, Roleder, Hade-
wicz, B. Förster, Schafer. Miðröð: Benthaus, Entenmann,
Flad, Muller, Weiss, Habiger, Kelsch, K.H. Förster. Kon-
ietzko, Stemiex. Aftasta röð: Seitz, Makan, Ásgeir Sigurvins-
son, Allgöwer, Reichert, Bialon. Niedermaver, Kempe, Six,
Braun.
Þýsk knattspyma er af mörgum
talin sú bezta í heiminum. Benda ná
á glæstan árangur þýzka landsliðs-
ins og frábæran árangur þýzku fél-
agsliðanna. Þar rís hæst sigur
Hamborg SV í Evrópukeppni
meistaraliða nýverið. Það þarf mik-
ið til að vera í fremstu röð í þýzku
Bundesligunni, en þar er lið VfB
Stuttgart meðal þeirra sterkustu.
Það eru því góðir gestir, sem heim-
sækja ísland á vegum Knattspyrnu-
félagsins Víkings á næstunni og
leika á Laugardalsvelli 9. og 11.
júní.
Meðal leikmanna liðsins er Ás-
geir Sigurvinsson, sá knattspyrnu-
maður, sem hvað mestum ljóma
hefur brugðið á nafn íslands á síð-
ustu árum.
Það eitt að vera eftirsóttur af
knattspyrnufélögum í Bundeslig-
unni i V-Þýzkalandi segir mikið um
styrkleika knattspyrnumanns. Að
verða síðan lykilmaður hjá einu
sterkasta félaginu eru enn betri
meðmæli og þau getur hann sýnt
með sóma. Á liðnum vetri náði lið
Stuttgart frábærum árangri og
frammistaða Ásgeirs var lykillinn
að þeirri velgengni.
Ásgeir er í góðum félagsskap hjá
Stuttgart. Meðal leikmanna liðsins
eru Förster-bræðurnir, tveir af
harðsnúnustu varnarmönnum
þýzka landsliðsins í heimsmeistara-
keppninni 1982. Þristirnið Kurt
Niedermayer, Karl Allgöwer og
Walter Kelsch, en allir hafa þeir
leikið í Iandsliði V-Þýzkalands og í
vetur varð Allgöwer meðal marka-
hæstu leikmanna hinnar sterku og
erfiðu þýzku Bundesligu.
Gestgjafar Stuttgart a íslandi,
Knattspyrnufélagið Víkingur,
minnist þess í ár, að nú eru 75 ár lið-
in frá stofnun félagsins, 21. april ár-
ið 1908. Gestirnir frá Stuttgart
minnast i ár einnig tímamóta í sögu
félags síns, en það var stofnað 9.
september árið 1893 eða fyrir 90 ár-
um. TVívegis hefur Stuttgart orðið
Þýzkalandsmeistari í knattspyrnu,
árin 1950 og 1952, og bikarkeppn-
ina vann félagið árið 1954 og 1958.
Keppnistimabilið 1977-1978 varð
Stuttgart í fjórða sæti í Bundeslig-
unni. Markið var sett hátt, en sterk
nöfn meðal leikmanna liðsins
dugðu ekki til að skapa sterka liðs-
heild. Lið Stuttgart endaði í 9. sæti
deildarinnar vorið 1982. Stjórn
félagsins ákvað að selja nokkrar af
stjórnunum. Hansi Muller fór til
Inter Milan og, Dieter Muller til
Bordxeaux og fimm aðrir leikmenn
voru seldir. í stað þeirra keypti
félagið Niedermayer og Ásgeri Sig-
urvinsson frá Bayern Munchen og
Kempe og fjóra aðra leikmenn.
Þjálfari var ráðinn Helmut Bent-
haus, sem þjálfaði allt frá árinu
1965 til 1982 hjá FC Basel í Sviss og
gerði félagið sjö sinnum að Sviss-
landsmeisturum auk annara titla.
Markmiðið var að ná sæti í UEFA-
keppninni og það tókst. Stuttgart
varð í þriðja sæti deildarinnar.
Næsta keppnistímabil má búast
við enn betri árangri hjá liði Stutt-
gart. Margir telja að Stuttgart eigi
þá að geta unnið hina erfiðu keppni
i Bundesligunni. Félagið þurfi að
kaupa 1-2 góða menn til viðbótar
og verði þá illviðráðanlegt. Engir
spádómar verða settir á blað hér, en
víst er að það eru snjallir knatt-
spyrnumenn, sem leika á Laugar-
dalsvellinum 9. og 11. júní. Þeir
skipa þriðja bezta lið V-Þýzka-
lands, aðeins Evrópumeistarar
Hamburger og spútniklið Werder
Bremen stóðu þeim framar.
Leikmenn Stuttgart:
Helmut Roleder, markvörður, 29 ára, 4 B-landsleikir, Karl-Heinz Förster, miövöröur, 24
ára, 46 landsleikir, Hans-Peter Makan, miðvörður, 23 ára, Kurt Niedermayer, bakvöröur,
27 ára, 3 landsleikir, Bernd Förster, bakvörður, 28 ára, 23 landsleikir, Karl Allgöwer, tengi-
liður, 26 ára, 9 landsleikir, Ásgeir Sigurvinsson, tengiliður, 28 ára, 31 landsieikur, Her-
mann Ohlicher, tengiliður, 33 ára, Thomas Kempe, framherji, 23 ára, Walter Kelsch,
framherji, 27 ára, 4 landsleikir, Didier Six, framherji, 28 ára, 46 landsleikir fyrir Frakk-
land, Siegfried Gruninger, markvörður, 23 ára, Giinther Scháfer, bakvörður, 21 árs, Er-
win Hadewics, varnarmaður, 32 ára, Gunar Weiss, tengiliður, 27 ára, Peter Reichert,
framherji, 21 árs.
Þjálfarinn Helmut Benthaus, sem náði
frábærum árangri í Sviss áður en hann
tók við stjórninni hjá Stuttgart í fyrra-
haust.
Karl-Heinz Förster, einn sterkasti leik-
maður þýzka landsliðsins og stjórnandi
varnarleiks Stuttgart-liðsins, en um leið
stórhættulegur sem sóknarmaður.
Franski landsliðsmaðurinn Didier Six,
klækjarefur, sem um árabil hefur hrellt
markverði víða um heim.
Karl Allgöwer varð meðal markhæstu
leikmannanna í V-Þýzkalandi á nýliðnu
keppnistímabili, stórhættulegur leik-
maður, sem leikur á miðju vallarins.