Morgunblaðið - 05.06.1983, Page 12
12
„Leikurinn við Real stærsta stundin í lífi
mínu sem knattspyrmimanns“
— segir Sverrir Herbertsson
Sverrir Herbertsson hefur leikið
með Víkingi síðan um mitt sumar
1981 og hefur verið sigursæll þann
tíma. Sverrir kemur úr KR, enda
fæddur og uppalinn í Vesturbæn-
um. Hann segist hafa sterkar taug-
ar til KR ennþá, en Víkingurinn í
sér nái æ sterkari tökum.
— Ég byrjaði ferilinn með 5 c í
KR þegar ég var 10 ára en lék næsta
leik með a-liðinu. Ég var miðvörður
í gegnum alla yngri flokkana, þótt
ótrúlegt megi virðast og það var
ekki fyrr en í 2. flokki að Ólafur
Lárusson taldi að miðherjastaðan
ætti betur við mig og færði mig
framar á völlinn. Seinna árið i 2.
flokki skoraði ég 40 mörk, svo þetta
hefur örugglega verið rétta staðan.
En það kemur mér tvímælalaust að
notum í dag að hafa spilað þetta
lengi í vörninni, maður þekkir bet-
ur aðgerðir varnarmannanna.
Góður í að
,,hreinsa“
— Nú ert þú ekki í hópi hávöxn-
ustu knattspyrnumanna. Hvers
vegna varst þú látinn leika í stöðu
miðvarðar.
— Skýringin er nú ekki sú að ég
sé sterkur skallamaður, þvert á
móti, heldur sú að ég var mjög
sparkviss á þessum árum og góður
í „að hreinsa"
— Hvenær lá svo leiðin í meist-
araflokkinn hjá KR?
— Ég spilaði eins og áður segir í
ölium yngri flokkunum. í mínum
flokki voru t.d. Birgir Guðjónsson,
Elías Guðmundsson og Vilhelm
Frederiksen, svo einhverjir séu
nefndir. Við komust yfirleitt í úrslit
en töpuðum ætíð fyrir Val, Guð-
mundi Þorbjörns, Atla Eðvalds,
Albert Guðmunds og þeim strák-
um. Sumarið 1975 lék ég minn
fyrsta meistaraflokkaleik, nokkra
sumarið 1976 og var nokkuð fastur
í liðinu frá 1977. Árangurinn var
upp og ofan hjá KR á þessum árum
og við náðum þeim lítt eftirsótta ár-
angri að falla í fyrsta skipti í sögu
KR sumarið 1977. Það var vægast
sagt óskemmtilegt. En árið eftir
unnum við 2. deildina örugglega.
Þjálfararnir voru misjafnir að getu
og sumir alveg vonlausir, t.d. Tom
Casey, sem við kölluðum reyndar
okkar á milli Tom Crasy. Hann var
{jjálfari okkar árið sem við féllum.
Ég get nefnt eina góða sögu af hon-
um. Við vorum að leika æfingaleik
við Þór á Melavellinum snemma
vors. Ég kom of seint í leikinn og
var settur út. En þar kom að ég var
látinn byrja að hita upp og stóð sú
athöfn í 20 mínútur áður en ég var
settur inná. Þjáifarinn segir við mig
áður en ég fer inná að ég eigi að
reyna að „sóla“ í hvert skipti sem ég
fái boltann, og með það fór ég inná.
í fyrsta skipti sem boltinn nálgaðist
lenti ég í samstuði og missti boltann
og viti menn. Með það sama er kall-
að í mig frá bekknum og mér skipað
útaf, og hafði þá ekki náð að vera
inná í eina mínútu! Þannig var nú
fyrsti leikur minn þetta ár undir
stjórn Casey.
Víkingur spilaði
knattspyrnu að
mínu skapi
— Svo liggur leiðin yfir í Víking
sumarið 1981, er ekki svo?
— Jú það er rétt. Þetta sumar
þjálfaði Þjóðverji að nafni Man-
fred Steve lið KR. Ósamkomulag
varð milli okkar og ég sá ekki aðra
lausn en skipta um félag. Valið var
ekki erfitt, en biðin eftir því að geta
byrjað að leika með Víkingi, 2 mán-
uðir var virkilega erfið. Víkingur
spilaði knattspyrnu sem var að
mínu skapi og ég taldi henta mér
best, liðið reyndi alltaf að spila með
jörðinni. Ég er nú reyndar ekki
langt þar fyrir ofan sjálfur! Einnig
hafði það sitt að segja að ég þekkti
nokkra stráka í Iiðinn og líkaði vel
við þá. Best þekkti ég Lárus og
Heimi. Það voru auðvitað viðbrigði
að koma í Víking, sérstaklega að
lenda hjá Youri Sedov þjálfara,
hann var stórkostlegur, tvímæla-
3. flokkur:
„Meira býr í Vík-
ingsliðinu en það
hefur náð að sýna“
— segir Gunnar Yngvason, þjálfari
í 2.
flokki
eru
fram-
tíðar-
menn
„Ég hef trú á, að 2. flokkur Vík-
ings verði mjög sterkur í sumar —
það er þegar ég fæ að nota alla leik-
menn liðsins. Strákarnir eru mjög
áhugasamir og mér líst vel á sumar-
ið“, sagði Stefán Konráðsson, þjálf-
ari 2. flokks í stuttu spjalli.
— Ég er með sterkan kjarna, en
það sem hefur háð okkur er að við
vorum nokkuð á eftir í undirbún-
ingi. Ég var að kenna úti á landi og
kom í endaðan apríl. Kári Kaaber
þjálfaði strákana í vor og eins og
gefur að skilja þá tekur tíma fyrir
strákana að Iaga sig að nýjum þjálf-
ara auk þess, að þeir voru ekki í
nógu góðu pústi í vor“.
Víkingur hefur Ieikið fimm leiki
í Reykjavíkurmótinu; þar af þurftu
strákarnir að leika nokkra leiki með
tveggja daga millibili og kom það
nokkuð niður á úrslitum. Þeir iéku
til úrslita við KR í lok maí og töp-
uðu 0-1 en það var þriðji leikur
þeirra á sex dögum. Fyrr höfðuþeir
tapað 0-2 fyrir Val, en unnið Fylki
1-0 og Þrótt 2-0 og gert 1-1 jafntefli
við Fram. Víkingur hafnaði í öðru
sæti á íslandsmótinu í fyrra í 2.
flokki.
„Meðal strákanna í 2. flokki eru
nokkrir sem áreiðanleea eiea eftir
að leika með meistaraflokki og
verða í fremstu röð; ef þeir halda sig
vel við efnið. Leikmenn eins og Ein-
ar Einarsson og Andri Marteins-
son, sem voru í drengjalandsliðs-
hópnum í fyrra, þó þeir hafi ekki
verið látnir spila og varð það vægt
sagt nokkuð furðulegt; báðir eru
þeir framtíðarmenn. Jón Otti Jons-
son er mjög efnilegur markvörður,
Páll Ásgrímsson á einnig eftir að
leika marga leiki með Víkingi og
Þórður Ragnarsson, fyrirliði 2.
flokks er sterkur varnarmaður.
Annars er liðið í 2. flokki mjög
jafnt og það hefur styrkt liðið að
Hafþór Áðalsteinsson gekk til liðs
við okkur eftir ársdvöl í Fram.
Þó ég nefni þessi nöfn, þá eru
fleiri leikmenn sem gætu skipað sér
í fremstu röð — með því að leggja
hart að sér og láta ekki deigan síga.
Við æfum tvisvar til fjórum sinn-
um í viku, en undanfarið höfum við
leikið annan hvern dag. Það kom til
vegna frestana og kom það niður á
leik liðsins. Strákarnir voru þreyttir
í lokin og náðu ekki að sýna sínar
réttu hliðar.
En við höfum sett stefnuna á að
komast í úrslitakeppni 2. flokks —
ég tel að strákarnir eigi góða mögu-
leika á því“, sagði Stefán Konráðs-
son en þess má geta að hann er einn-
ig þjálfari knattspyrnuskóla Vík-
ings.
„Ég verð að segja eins og er — ég
hef ekki verið nógu ánægður með
útkomu 3. flokks þó árangur sé all-
miklu betri en í fyrra. Ég tel að mun
meira búi í Víkingsliðinu, en það
hefur náð að sýna,“ sagði Gunnar
Yngvason, þjálfari 3. flokks Vík-
ings í stuttu spjalli. Þegar þessar
línur voru skrifaðar voru strákarnir
hans Gunnars í öðru sæti í Reykja-
víkurmótinu, höfðu unnið Fylki og
ÍR 1-0 bæði lið, Þrótt 5-0, gert jafn-
tefli við Val en tapað fyrir Fram 0-2
og 0-1 fyrir KR.
„Æfingaaðstaðan sem strákarnir
verða að búa við er hroðaleg og er
raunar að gera mig gráhærðan. Við
erum aðeins með 1-2 tíma í viku.
Það gefur auga leið að slíkt er ekki
nóg. Ef félögin útvega yngri flokk-
um sínum ekki meiri tíma, þá mun
meistaraflokkur þurfa að æfa jafn-
mikið og raun ber vitni — æfa at-
riði sem strákarnir í raun hefðu átt
að æfa í yngri flokkunum. Þessir
ungu strákar vilja vera í fótbolta
alla daga — þeir þurfa meiri tíma
og ég gerði tillögur um að meistara-
flokkur æfði meira vestur á Mela-
velli þar sem aðstaða er betri. En
ekki svo að skilja — þetta vandamál
er ekki einskorðað við Víking.
Þetta á við meira og minna öll fé-
Iög“
Hvaða möguleika telur þú að 3.
flokkur Víkings eigi í sumar?
„Við höfum sett stefnuna á að
komast í úrslitakeppni 3. flokks. Og
ég sé því ekkert til fyrirstöðu. Ég er
með gott lið — með góða stráka og
ef þeir ná upp því spili sem ég veit
að í þeim býr, þá ná þeir langt!1
Hvaða leikmenn eru efnilegastir í
3. flokki?
„Ég get nefnt þér Stefán Stein-
sen, sem er í drengjalandsliðinu,
Hörð Theódórsson, Stefán Aðal-
steinsson og Örnólf Jonsson. Allt