Morgunblaðið - 21.06.1983, Side 18

Morgunblaðið - 21.06.1983, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983 Ileimsókn Jóhanncsar l’áls pála II í l'óllandi Jóhannes Páll páfí II. ásamt Joszef Glemp erkibiskupi og bandaríska kardin- álanurn Krol. Myndin var tekin þegar páfi taladi til einnar milljónar manna við klaustrið í Jasna Gora en þar var þess minnst, að 600 ár eru liðin frá stofnun þess. AP. Frá Poznan heldur páfi til Katowice og mun flytja þar messu í kvöld. í Katowice er mikil kola- og stálframleiðsla og verkamenn þar voru meðal einörðustu stuðningsmanna Samstöðu. Nú er þar allt með kyrrum kjörum. „Fólkinu hef- ur verið mútað til að þegja,“ sagði einn fyrrum félagi í Samstöðu og átti þá við, að verkamönnum á þessum slóð- um væri nú borguð allt að fjór- föld þau laun, sem tíðkast í landinu. Aðrir segja, að ástæð- an sé sú, að lögreglueftirlitið sé meira í Katowice en víðast annars staðar og að fólk óttist að lenda á svörtum lista hjá yfirvöldunum. í Wroclaw, sem páfi kemur til á morgun, þriðjudag, er mikil ólga undir niðri. „Hér í borg er fólk mjög þjóðernis- sinnað eins og raunar annars staðar í Póllandi," sagði prest- ur nokkur í borginni. „Og 90% borgarbúa styðja Samstöðu svo ekki sé tekið of djúpt í ár- inni. Að vísu óttast margir lögregluna, táragasið og kylf- urnar, en það er erfitt að finna þann mann, sem mælir gegn Samstöðu." Poznan, Katowice og Wroclaw: í landinu Poznan, Póllandi, 20. júní. AP. ÞESSI síðasta vika heimsóknar Jóhannesar Páls páfa II í Pól- landi verður e.t.v. erfiðasti hluti ferðarinnar og sá sögulegasti þar sem leið hans nú liggur til þriggja borga þar sem andstaða almennings við stjórn kommún- ista hefur verið hvað mest. Þess- ar borgir eru Poznan, Katowice og Wroclaw og í þeim öllum hef- ur blóðið flotið um stræti í upp- reisnum pólsks verkalýðs gegn kúgurum sínum. Páfi mun augljóslega þurfa að huga vel að orðum sínum til að ekki sé hætta á að upp úr sjóði og reyna að þræða meðal- veginn milli hins pólitíska raunveruleika í Póllandi og vona fólksins. Poznan, þar sem páfi kom í dag, er mikil iðnað- Beðið og vonað Lech Walesa og kona hans hafa fylgst með heimsókn páfa í sjónvarpinu og enn er ekkert vitað hvort eða hvenær þau hjónin og börn þeirra fá að hitta páfa. ap. arborg og býr enn að þýskum hefðum frá því að Þjóðverjar réðu henni fyrir fyrra stríð. Þar reis pólskur verkalýður fyrst upp gegn stjórn komm- únista, árið 1956, en uppreisn- in var bæld niður af hörku og 70 manns lágu eftir í valnum. „Það er komið nóg af blóðs- úthellingum. Við viljum frið en við vonum líka, að betri tímar renni upp fyrir þjóðinni," sagði kona nokkur, sem hafði verið að biðjast fyrir við minnis- merkið um verkamennina, sem féllu fyrir kúlum lögreglunnar árið 1956. „Já,“ sagði hún og benti á minnismerkið, sem Samstaða reisti árið 1981, „þetta er allt, sem eftir er af Samstöðu. En Samstaða lifir í hjörtum okkar og þaðan getur enginn upprætt hana.“ „Ég ann ykkur af öllu hjarta“ - sagði Jóhannes Páll páfi þegar ein milljón manna fagnaði honum í Jasna Gora ('zestochowa, Póllandi, 20. júní. AP. í RÆÐU, sem Jóhannes Páll páfi II flutti við klaustrið í Jasna Gora sl. laugardag, bar hann lof á þá pólska verkamenn, sem hefðu risið upp gegn kúguninni og stofnað Samstöðu, hin óháðu verkalýðsfélög. í fyrsta sinn í heimsókninni tók hann sér orðið „samstaða'* í munn og brutust þá út gífurleg fagnaðarlæti meðal fólksins, einnar milljónar manna, sem komin var saman á þessum mikla helgistað. f ræðunni, sem páfi helgaði pólskri æsku, þakkaði hann lönd- um sínum fyrir að hafa sýnt „sam- stöðu með þeim, sem hefðu verið handteknir, fangelsaðir og reknir úr vinnu og með fjölskyldum þeirra". Orðið „samstaða" átti þarna ekki beint við verkalýðsfé- lögin, sem stjórnvöld hafa bannað, en það var eins og fólkið hefði ver- ið að bíða eftir þessu eina orði, svo mikill var fögnuðurinn. Fánar og borðar voru hafnir á loft, sem á var letrað: „Gdansk hefur sam- stöðu með páfa“, „Við munum bera sigur úr býtum" og „Sýnum samstöðu, pólska þjóð“. Gríðarmiklir hátalarar báru orð páfa út yfir mannfjöldann, sem var eins og hafsjór yfir að líta. Þegar páfi bjóst til að tala hrópaði fólkið nafn hans og söng heilla- sönginn „Sto lat“, sem þýðir „Megi hann lifa í hundrað ár“. Páfi tók undir með djúpri barytónrödd en rétti loks upp hönd og spurði: „Finnst ykkur ekki rétt að leyfa manni nokkrum frá Róm, sem staddur er í Jasna Gora í Póllandi, að tala?“ Fagnaði þá fólkið enn einu sinni. „Eg ann ykkur af öllu hjarta," sagði páfi og táraðist. Ekkert er enn vitað um það hvenær Lech Walesa og fjölskyldu hans verður leyft að hitta páfa að því er talsmaður hans sagði fyrir helgi. Stjórnvöld, sem jafnan vitna til Walesa sem „fyrrverandi formanns fyrrverandi verkalýðs- félags", ætluðu sér að koma í veg fyrir að hann næði páfafundi en féllust loks á það fyrir orð kirkj- unnar manna og páfa sjálfs að því sagt er. Orðrómur hefur verið á kreiki um að yfirvöldin ætli að draga fundinn fram á siðasta dag en engin vissa er fyrir því enn. í Jasna Gora talaði Jóhannes Páll páfi einnig sérstaklega til kirkjunnar manna og trúaðs fólks frá Szczecin (Stettin), sem komið hafði til fundar við hann, og þótti þá miklu berorðari en fyrr í heim- sókninni. Þrjár borgir - táknrænar fyrir kúgunina Ný von fyrir ófrjóar konur: Þungun af völd- um eggjaflutnings ('hkago, 20. júní. AP. Háskólar í Búdapest: Bandarískir prófess orar með fyrirlestra BúdapeNt, 20. júní. AP. ÞRJAR ófrjóar konur hafa að undanförnu freistað þess að verða þungaðar með nýrri aðferð. Hún er í því fólgin að egg annarra kvenna eru frjóvguð með sæði eiginmanna kvennanna þriggja, en síóan hefur eggjunum verið komið fyrir í legi þeirra. Sú fyrsta sem gekkst undir „aðgerð" þessa varð ófrísk, en lét eyða fóstrinu í vor. Hinar konurnar tvær fóru í aðgerðina í síðustu viku og því óljóst enn hvernig tekist hefur til. Unnið hefur verið að þróun þessarar nýju tækni við háskólann í Kaliforníu þrjú síðustu árin og stjórnandinn, John Buster, seg- ir: „Það er aðeins tímaspursmál hvenær fyrsta barnið lítur dagsins ljós.“ Buster og sam- starfsmenn hans eru svo bjart- sýnir á árangurinn, að þeir reikna með því að hver sem er geti eignast barn með þessum hætti í Kaliforníu innan sex mánaða og hvar sem er í Banda- ríkjunum fljótlega upp úr því. „Slíkir eggjaflutningar hafa verið stundaðir hjá dýrum, einkum nautgripum, allt frá því síðast á síðustu öld. Hefur þetta ekki verið stundað hjá mann- skepnunni fyrr en nú. Buster sagði að tilraunirnar hefðu valdið fjaðrafoki hjá ýmsum trúarhópum og einnig meðal margra lögfróðra. En hann varði starf sitt með því að segja: „Þetta gæti hjálpað þúsundum ófrjórra hjóna að eignast börn. Ég sé ekkert rangt við það.“ YFIRVOLD í llngverjalandi hafa fallist á að leyfa bandarískum pró- fessorum að kenna sögu Kandaríkj- anna og fleira við háskólann í Búda- pest. Er slíkt talið nær einsdæmi þar sem Austur-Evrópuríki á í hlut. Talsmaður við bandaríska sendiráðið í Búdapest sagði í sam- tali við fréttamenn, að samið hefði verið um tíu ára kennslutímabil, en þó verður málið endurskoðað eftir fimm ár. Bandarísku kennar- arnir munu halda fyrirlestra um bandarískan lífsstíl, menningu, tungumál og bókmenntir svo eitt- hvað sé nefnt. Hver kennari mun dvelja í Búdapest frá einu ári upp í þrjú ár. „Við teljum þetta stórt og mikið framfaraskref í sam- skiptum og sambúð Banda- ríkjanna og Ungverjalands," sagði talsmaðurinn ennfremur. Hann bætti við að ekki væri ákveðið hvenær fyrsti bandaríski prófess- orinn kæmi til Búdapest. Raunar væri mikil undirbúningsvinna enn fyrir höndum áður en kennslan gæti hafist.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.