Morgunblaðið - 21.06.1983, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.06.1983, Blaðsíða 32
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1983 Mrjówu- ípá HRÚTURINN 21. MARZ-19.APR1L Taktu engar áhættur í umferó- inni. Þú gætir fengið skilaboð sem þú skilur ekki. Þú getur treyst því ad góður vinur gefur þér góð ráð, og að ástvinur stendur með þér. NAUTIÐ 20. APRlL-20. MAÍ (■ættu þess að tapa ekki ein- hverju sem þér þykir vænt um í fljótfærni. Láttu ekki freista þín með glæfralegum gylliboðum l»ú færð kauphækkun. Gættu heilsunnar. TVÍBURARNIR 21. maI—20. júnI Þú ert í ágætu skapi, en það lagast þegar líður á daginn, þeg ar ástin hefur áhrif á þig. Þú gætir fengið happdrættisvinning eða unnið í getraununum. Taktu tillit til elskunnar þinnar. JJK! KRABBINN 21. JÚNl—22. JÍILl Smá lasleiki gæti angrað þig í dag. Það besta sem þú gerðir væri að hvíla þig heima og forð- ast vandræði. Ef þú vilt endi- lega fara að vinna, ofreyndu þig þá ekki. í«ílLJÓNIÐ KSÍ j23 JÚLl-22. ÁGÚST Láttu vin þinn ekki flækja þér í fjárhagslegan vanda. Taktu þátt í stjórnmálum eða gerðu samfé- lagi þínu einhvern greiða. Farðu í heimsókn til ættingja. MÆRIN 23. ÁGÚST-22. SEPT. Forðastu rifrildi við ráðgjafa þína eða samstarfsmenn. Hafðu hugann við það sem þú vinnur þér inn, og dagurinn líður fljótt. (ierðu innkaup en eyddu samt ekki of miklu. VJl\ vogin 23.SEPT.-22.OKT. Gættu þess að lenda ekki í óhappi í umferðinni eða lenda í rifrildi við vin þinn. Einbeittu þér að því að bæta heilsuna og auka hreysti þína. Byrjaðu á nýju verkefni. DREKINN 23. OKT.-21. NÓV. Eyddu ekki um efni fram og forðast rifrildi við ástvin þinn. Þú þarfnast næðis til að íhuga framtíðina og taka ákvarðanir um það sem þú ætlar að gera. BOGMAÐURINN 22. NÓV.-21. DES. Forðastu meting og umræður um starf þitt. Taktu þátt í ein- hverjum opinberum fram- kvæmdum. Farðu í heimsókn til gamals vinar þíns. Láttu áfengi eiga sig. m STEINGEITIN 22. DES.-19. JAN. Allt gengur betur þegar fer að líða á daginn. Þér verður hugs- anlega falið ábyrgðarmikið verkefni. Síwi VATNSBERINN 20. JAN.-18. FEB. Taktu ekki skyndiákvarðanir í sambandi við peningamál, örv- aðu hugann heldur með því að lesa góða bók, fara á fyrirlestur eða byrja á einhverju nám- skeiði. 3 FISKARNIR 19. FEB.-20. MARZ Fjármál, skattamál og viðskipti, allt eru þetta mál sem þú skalt taka til athugunar. Einhver spenna er á heimili og á vinnu- stað, svo þú skalt tala varlega. :::::::::::::::::: GONAN VILLIMAÐUR DÝRAGLENS tt/E, ALLIR! FÖ<?U*A l E LT— jNlgAt-g'i<7~ Z&ÍMDO AE> /1 VPOL L OROÞJ bAD BR. ERFlTTAOTf?(JA W ÍVÚ AP pETTA SB SAMA \HJÖ(?ÐINJ OG EINU'SiNlNJI >0^Ly / '> ^^ r\v— |AÐI SiS „ANITILÓPUI? S/\TAnsjJ • "7 ; i-11..!..........1!.. J......1 LJÓSKA TOMMI OG JENNI SMÁFÓLK Tilvitnun úr bók Amosar ... „Vei þeim sem ugga ekki að sér í Síon.“ Jæja, þar tókst einhverjum að eyðileggja fyrir mér daginn. BRIDGE Umsjón: Guðm. Páll Arnarson 1 hverju hefti breska tíma- ritsins Bridge Magazine er stutt kynning á einni kunnri bridgekempu. Þetta er oft besta efnið í blaðinu, enda hafa flestir gaman af því að vita meira um fræga spilara en það eitt hvernig þeir renndu heim þremur gröndum í hinu eða þessu mótinu. f júníhefti Bridge Magazine er franski spilarinn Paul Chemla í sviðsljósinu, marg- frægur spilari og m.a. núver- andi Ólympíumeistari í sveita- keppni. Sumir halda því fram að hann sé besti spilari Frakka, alltént mesti náttúru- spilarinn. Chemla er gífurleg- ur bragðarefur, bæði við spila- borðið og úti á leikvelli lífsins. Á morgun skulum við skoða bragðvísi hans við græna borðið, en hér er sönn saga um klóka vörn Chemla gegn kerf- inu. Chemla var styrktur til menntaskólanáms af skóla nokkrum rétt utan við París. Að námi loknu var til þess ætlast að hann kvittaði fyrir sig með því að kenna í nokkur ár við skóla þann sem hafði borgað fyrir hann námsgjöld- in. Chemla var víst ekkert allt- of áfjáður að taka að sér hlut- verk læriföður, hann hafði þegar komist í kynni við bridge og vildi helst ekkert annað gera en að sinna íþrótt- inni. Um þetta leyti barst honum bréf frá hernum þar sem hann var minntur á að nú væri tími til kominn að gegna herþjón- ustu um skeið. Chemla leist ekki meira en svo á það, enda ekki hermannlega vaxinn og lítið gefinn fyrir ófrið. Það var úr vöndu að ráða, Chemla hafði tvo kosti og báða illa. Það var því ekki um annað að ræða en að taka þann þriðja! Hann skrifaði tvö bréf, til hersins og skólans sem hafði styrkt hann til náms. Hernum skrifaði hann að því miður væri ekki möguleiki fyrir hann að gegna herþjónustu, þar sem hann hefði skyldum að gegna gagnvart skólanum sem hafði staðið undir námi hans. Og skólanum skrifaði hann að úti- Iokað væri fyrir hann að kenna þar næstu árin þar sem skyldan við föðurlandið kall- aði. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Tviskákir valda oft miklum usla, sérstaklega fyrir þá sök að fyrir þær er ekki hægt að bera heldur verður sá er fær á sig tvískák jafnan að leika kóngnum. I skák alþjóðlegu meistaranna Tatais, Ítalíu, sem hafði hvítt og átti leik, og Tékkans Hausners í Balaton- bereny í Ungverjalandi í vet- ur, átti hvítur kost á öflugri tvískák eftir byrjunina. 10. Rxe5! — Ke8 (Nú tapar svartur peði bótalaust, en 10. - fxe5, 11. Bg5++ - Ke8, 12. Hd8+ — Kf7, 13. c5 var von- laust). Hvítur fékk því ekki að nota tvískákina sjálfa, en hótunin nægði til þess að vinna peð og skákina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.