Morgunblaðið - 22.06.1983, Side 1
lltaKgmdHatotfe
Midvikudagur 22. júni - Bls. 33-56
Langflugsmet
í svifflugu
á Islandi
í lofti yfir Tindfjöllum, Myndin er »■
tekin til austurs um þaö leyti sem V
Sigmundur lagði frá TindfjöUum aö |í^|
Fossi
r '■ •
Mjúkar línur einkenna rennilegar svifflugur nútímans eins og svifflugu Sigmundar, sem Sigmundur viÖ svifflugu sina meö flugáœtlunina til Homafjarðar í upphafi langflugsins
er af geröinni Astir CS-77. aö Fossi á Síöu,
Astir-sviffluga Sigmundar Andréssonar á túni viö Foss á SíÖu aö afloknu langflugifrá Sandskeiöi.
Bærinn Foss í baksýn.
Flaug 184,1 km
frá Sandskeiði
að Fossi á Síðu
Innanlandsmet í langflugi á svifflugu var sett um fyrri
helgi er Sigmundur Andrésson svifflugmaður flaug Astir-
flugu sinni, TF-SOL, frá Sandskeiði að stað rétt austan við
Foss á Síðu, vegalengd sem mœldist 181,,1 km. Fyrra innan-
landsmet var 172,5 km og var handhafi þess Þ&rður Hafliða-
son, semflaug í ágúst 1967frá Sandskeiði að Hólabaki í
Sveinsstaðahreppi í Austur-Húnavatnssýslu,
íflugi sínu var Sigmundur í lofti á sjöttu klukkustund,
lengst af í bardaga við veðuröflin við að halda sér á lofti og
fórufimm stundir í að komast hálfa leið. Hann var dreginn
á loft við Sandskeið klukkan 16:43 á laugardag og sleppti
dráttartauginni í 600 metra hæð. Þar var hann rúmar tvær
stundir að komast í nógu mikla hæð til að geta lagt upp, en
hann áætlaði flug á Homafjörð. Þá var hann á þriðju
klukkustund í nágrenni Þríhymings, Eyjafjallajökuls og
Tindfjalla við að ná nœgri hæð til að geta rennt sér austur
fyrir Mýrdalsjökul. Sigmundur lenti flugu sinni síðan
skammt frá Fossi klukkan 23:06.
Meðfylgjandi Ijósmyndir tók Sigmundur ífluginu Tvær
er teknar af svifflugunni á túni því sem hann lenti á
skammt frá Fossi á Síðu, ein í góðri hæð skammt frá Tind-
fjöUum og þáer ein af Sigmundi með flugáætlun sína, tekin
á Sandskeiði í upphafi ferðar. Morgunblaðið átti viðtal við
Sigmund um flug hans og birtist það á næstu síðu.