Morgunblaðið - 22.06.1983, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
55
Einar sýnir mikið
ðryggi, kastaði
89,18 i Vancouver
„ÉG ER MJÖG ónægður með útkomuna á Burnaby-mótinu í Vancouv-
er, það verð ég aö segja eins og er, og móttökurnar hjá Kanadamönn-
unum voru geysílega góöar,“ sagöi Einar Vilhjálmsson spjótkastari úr
UMSB í samtalí við Morgunblaöið, en hann stóð sig meö miklum
glæsibrag á frjálsíþróttamóti í Vancouver í síðustu viku, kastaöi 89,18
metra og sigraöi með miklum yfirburöum.
Afrek Einars í Vancouver er hans þriðja bezta og sýnir öryggi hans
við 90 metra múrinn. Á bandaríska háskólameistaramótinu á dögunum
kastaði hann 89,98 og 89,36. Árangur hans í spjótkastinu er sá tíundi
bezti í heiminum í ár, þar sem níu hafa kastaö yfir 90 metra.
„Aöstæöur voru ekki upp á þaö
bezta, þótt þaö hljómi kannski
ekki þesslega miðað viö hvaö ég
kastaöi. Þaö var úrhellisrigning all-
an tímann og spjótin voru frekar
blaut. Og það var hliöarvindur,
sem hentaöi okkur kösturunum
sízt. Kanadamennirnir létu veöriö
fara óskaplega í taugarnar á sér,“
sagöi Einar.
Meðal þeirra sem Einar iagöi aö
velli í Vancouver var heimsmets-
hafi unglinga, Kanadamaöurinn
Phil Olsen, sem kastaö hefur
lengst 87,76 metra. Olsen er búinn
aö kasta rúmlega 85 metra í ár, en
viö hinar slæmu aöstæöur í
Vancouver náöi hann aöeins 77,96
metrum og varö annar. Hann tap-
aöi því fyrir Einari meö tæpra 12
metra mun.
“Ég átti þrjú önnur köst yfir 84
metra og er ánægöur meö þaö.
Mér finnst ég vera búinn aö ná
sæmilegum tökum á þeirri tækni
sem ég hef veriö aö æfa upp meö
þjálfurunum í Austin. Ég á þeim
mikið aö þakka,“ sagði Einar.
Einar á enn mörg góö mót fram-
undan í sumar og kveöst hann far-
inn aö vinna vel úr nýrri tækni sem
hann hefur æft í vetur undir leið-
sögn þjálfara sinna í Austin í Tex-
as, þannig aö þaö yrði líklega eng-
in tilviljun þótt hann kastaöi yfir 90
• Einar Vilhjálmsson
kastaðí 89,18 metra í spjótkasti
á stóru alþjóölegu
frjálsíþróttamóti í Kanada um
síöustu helgi.
metrana í sumar. Hann hefur sýnt
stórkostlegar framfarir í sumar,
bætt íslandsmet sitt úr rúmlega
81,20 metra í 89,98, en þrátt fyrir
þaö eru nú eiginlega geröar þær
kröfur til Einars aö hann kasti yfir
90 metra, og sýnir þaö bezt hversu
kröfuharöir islendingar eru í garö
sinna íþróttamanna, sem flestir
hverjir hafa náö sínum árangri af
eigin iöni og meö aöstoö fárra
annarra en sinna nánustu.
Næsta mót Einars veröa heims-
leikar stúdenta, sem haldnir veröa
í Edmonton í Kanada í júlíbyrjun.
Þar keppir hann ásamt Óskari Jak-
obssyni, ÍR, en báöir eru viö nám í
háskólanum i Austin í Texas.
Einar kveöst koma heim til ís-
lands um miöjan júlí og keppa lík-
legast hér í bikarkeppni FRÍ, en
honum hefur veriö boöin þátttaka í
móti í Luxemborg 20. júlí, og síðan
er hann næsta öruggur fulltrúi
Noröurlandanna í keppninni viö
Bandartkin, en Einar er meö annan
bezta árangur Noröurlandabúa á
árinu, eftir aö Pentti Sinersaari
kastaði yfir 90 metra um helgina.
Eftir þá keppni tekur Einar þátt i
7-landakeppninni í Edinborg í lok
júli og síöan í Reykjavíkurleikunum
í ágústbyrjun, en síöan tekur
heimsmeistaramótiö í Helsinki viö.
Þórdísi Gísladóttur, hástökkv-
ara úr ÍR, var einnig boðiö til móts-
ins í Vancouver og hreppti hún
annaö sætiö í hástökkinu. Vegna
hinna slæmu aöstæöna stökk hún
aðeins 1,75 metra, en sigur vannst
á 1,80 metrum. Þórdís er nú komin
til Los Angeles, þar sem hún kepp-
ir á stórmóti, sem er eins konar
prufuleikir fyrir Ólympíuleikana þar
í borg á næsta ári. — ágás.
• Sigurvegararnir ( hjólreiöaksppni HFR, sam fram fór 17. júní. Elvar
Erlingsson, fyrir miðju, sigraði, Sigurður Gíslason varð annar og Hilm-
ar Skúlason varð þriðji. Vegalengdin var 4,3 km. Meðalhraði hjólreiða-
mannanna var 50 km á klst.
Flugtog f 600 m
frá Sandskeiði kl. Lagt af stað frá Komiö að þríhyrningi Frá þríhyrningi aö Yfir Þórsmörk. Yfir Tindfjöllum. Frá Tindfjöllum. Lending 23:06
16:43 Sandskeiði. Eyjafjallajökli. á Fossi á Síöu
• Hæöarit er sýnir þróun flugsins hjá Sigmundi. Hvert lárótt reitabil táknar hálfa stund í lofti, en lárótt bil sýna flughæðir í fetum og metrum. Fyrir ofan eru færðar inn
staðarákvaröanir. Strimill þessi kemur út úr sórstöku tæki sem Sigmundur haföi meðferðis í landfluginu frá Sandskeiði að Fossi á Síðu.
hins vegar kominn niöur í 500
metra hæö og Brunahraun fram-
undan, þannig aö ekki var um
annaö aö ræöa en aö lenda,“
sagöi Sigmundur.
Sigmundur sagöi aö tíminn
heföi verið fljótur aö liöa í fluginu,
því flugmaðurinn þyrfti allan tím-
ann aö spá í veöriö og leita aö
beztu skilyröum til aö halda
svifflugunni á lofti. Flugiö heföi
veriö hálfgert ævintýri, einkum
utan i Eyjafjallajökli, og flugleiöin
mjög skemmtileg. Um tíma þurfti
hann aö nota súrefni vegna flug-
hæöarinnar.
Til marks um þaö hvaö svif-
flugiö er mikil þolinmæöisvinna,
má nefna að fyrstu fimm stund-
irnar komst Sigmundur aöeins
hálfa leiö aö Fossi. Þennan tíma
baröist hann viö aö halda nógu
mikilli hæð til aö geta mjakaö sér
frá einum staö til annars, spöl-
korn í einu, en síöan var hann
ekki nema röska klukkustund frá
Tindfjöllum aö Fossi, um 100
kílómetra vegalengd.
„Svifflugsskilyröi eru erfiö á ís-
landi,” sagöi Sigmundur. Hann
sagöist í þetta sinn hafa flogiö
inn aö lægö, sem jafnan væri tal-
iö óráölegt. Þá væri sjaldan hægt
aö nota ballest til aö auka hraöa-
sviöiö, eins og óspart væri gert í
útlöndum, því ballestin væri vatn
og til dæmis heföi verið 20 gráöu
frost í þeim hæöum sem hann
var i á fluginu aö Fossi.
Sigmundur flaug aö Fossi í
eigin svifflugu, sem er plastfluga
af gerðinni Astir CS-77. Hann
hefur mikla og langa reynslu,
byrjaði aö fljúga 1965 og meö
450 stundir aö baki í svifflugi og
um 1400 í vélflugi. Auk lang-
flugsmetsins, setti hann innan-
landsmet 1974 er hann flaug
fyrirfram ákveöiö markflug frá
Sandskeiöi aö Asgaröi i Dölum,
132 kílómetra vegalengd.
Um leiö og Sigmundur vann
sitt glæsilega afrek flaug félagi
hans Baldur Jónsson einnig gott
flug. Þeir Sigmundur og Baldur
lögðu upp saman frá Sandskeiöi,
en Baldur sneri til baka yfir
Þórsmörk og náöi aftur til
Sandskeiös. „Þetta er feikilega
gott flug hjá honum, hann flaug
reyndar lengri veg en ég og mjög
erfitt var aö fljúga til baka. En
hann fær flugiö ekki viöurkennt,
þótt stórgott sé, þar sem hann
var ekki meö flugáætlun,” sagöi
Sigmundur aö lokum.
— ágás.
r