Morgunblaðið - 22.06.1983, Side 5

Morgunblaðið - 22.06.1983, Side 5
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983 Fisksala íslend- inga í Ameríku — eftir Þóri S. Gröndal Þórir S. Gröndal flutti eft- irfarandi erindi í Rotary- klúbbi Reykjavíkur fyrir skömmu. Inngangsorð Skömmu eftir komu mína til Ameríku fyrir 20 árum, tók páfinn í Róm upp á því að leysa alla kaþ- ólikka heimsins undan því að éta fisk á föstudögum. Við íslenzkir fisksalar vorum felmtri slegnir og héldum, að ekki einasta yrði þetta endirinn á okkar eigin atvinnu, heldur líka endalok fiskútflutn- ings landsmanna og ef til vill hrun efnahagslífs íslands. Föstudags-fiskátið hafði fram að þessu verið uppistaðan í fisk- neyzlu bandarísku þjóðarinnar. Þótt ekki væru allir landsmenn kaþólskir, hafði föstudagurinn orðið eini fiskdagur vikunnar. Það var eini dagurinn, sem veitinga- hús, mötuneyti og skólar höfðu fisk uppá að bjóða. Fjölbreytnin í framreiðslu var ekki allt of mikil og feiknin af vondum fiski voru seld. Kaþólikkar og aðrir píndu trosinu í sig eða sultu og margir þeirra urðu fiskhatarar upp á lífstíð. Þegar fiskiðnaðurinn jafnaði sig eftir áfallið, kom í ljós, að þessi ákvörðun páfa gæti átt eftir að hafa mjög góð áhrif. Framsýnir fisksalar sáu, að nú varð iðnaður- inn að standa á eigin fótum og gat ekki lengur haldið i pilsfaldinn páfans. Hófst nú hægt og sígandi herferð til þess að fá neytendur til að kaupa fisk og snæða, ekki af því að þeir yrðu að gera það, heldur af því að þá langaði til þess. Úrval jókst i smásöluverzlunum og brátt byrjuðu veitingahús að hafa nýja fiskrétti á boðstólum alla daga vikunnar. Eftir nokkur ár vorum við fisksalar farnir að þakka páfa í hljóði og upphátt. Boðskapur hans hafði gerbreytt fiskiðnaði hins vestræna heims og haft mikil og góð áhrif á afkomu Islendinga. Brautryðjendurnir Skipuleg markaðsstarfsemi Is- lendinga í Ameríku hófst í árs- byrjun 1945, en þá opnaði Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna skrifstofu í New York og var Jón Gunnarsson, verkfræðingur, for- stöðumaður hennar. Tveimur ár- um seinna var stofnað dótturfyr- irtækið Coldwater Seafood Cor- poration og varð Jón fram- kvæmdastjóri þess. Samband íslenskra samvinnufé- laga var með almenna skrifstofu i New York á stríðsárunum, og mun hún hafa annast einhverjar fisk- sölur um svipað leyti og Sölumið- stöðin hófst handa. Sambandið stofnaði síðan sitt dótturfyrir- tæki, Iceland Products Inc., sem nú heitir Iceland Seafood Corpor- ation, árið 1951. Fyrsti fram- kvæmdastjóri þess var Leifur Bjarnason. Fyrstu árin voru það aðallega karfa-, steinbíts- og þorskflök sem seld voru til Bandaríkjanna og hófst útflutningurinn í smáum stíl. Af heildarútflutningi SH 1945, sem var 30.000 tonn, fóru að- eins 1.350 smálestir til Ameríku. Á næstu árum var síðan farið að gera tilraunir með frystingu beinlausra flaka í blokkarform. Jón Gunnarsson er talinn einn þeirra manna, sem ruddu brautina og hófu vinnslu fiskblokka og úr- vinnslu þeirra. Blokkarfram- leiðsla hófst á íslandi 1953 og árið eftir byrjaði Coldwater vinnslu á fiskstautum og skömmtum í lítilli verksmiðju í Nanticoke í Mary- iand. Sex árum síðar keypti Ice- land Seafood gamalt verksmiðju- og frystihús í Steelton í Pennsylv- aníu, og hóf þar úrvinnslu blokka í smáum stíl. Bjarni V. Magnússon var þá framkvæmdastjóri fyrir- tækisins. Fiskblokkin á þannig 30 ára af- mæli í ár. Hún ruddi, með tíð og tíma, saltfiskinum og síldinni úr efsta sæti sem mikilvægustu framleiðsluvöru þjóðarinnar. ís- lendingar eru sífellt að minnast afmæla og væri ekki óverðugt, að fiskblokkarinnar væri lofsamlega minnst á þessu merkisári hennar. Fávizka landsmanna um fískinn Á þeim rúmlega 20 árum, sem ég hefi stundað fisksölu í Amer- íku, hefi ég oft undrað mig á því, hve mikils þekkingarskorts gætir hjá fjölda Islendinga á fiskfram- leiðslu og sölu afurðanna. Fólk á öllum aldri er furðulega fáfrótt um frystiiðnað landsins og veit lít- il deili á helztu framleiðsluvörun- um. Um markaðsmálin veit það lítið sem ekkert. Komi það í mat- vörubúð í Ameríku og finni þar ekki íslenzkan fisk, er það strax talið merki þess, að markaðsmál landsins séu í lamasessi. Segja má eflaust, að það sé að einhverju leyti skylda sölusam- taka fiskframleiðenda að fræða fólkið um þennan aðalatvinnuveg landsins. Vafalaust er þó orsak- anna að leita miklu dýpra. Síðustu 20—30 ár hafa séð bylgingu í menntun landsmanna. Velmegun- in, sem þakka má að mestu leyti fiskiðnaðinum, hefir orðið til þess, að foreldrar hafa keppst um að afla börnum sínum aukinnar menntunar, og að forða þeim frá að Ienda í frystihúsum og öðrum fiskverkunarstöðvum. Að vinna í fiski þykir ekki nógu fínt á íslandi. Þess vegna þarf að flytja inn vinnuafl fyrir frystihús- in á vertíð. Á sama tíma flytja úr landi sprenglærð ungmenni, sem þjóðin er búin að mennta með fiskpeningum. Það hefir verið lítið um kennslu í atvinnusögu landsins í barna- og unglingaskólum. Allir verða að læra utanbókar ártöl um það, hvenær þessi eða hinn landnáms- maðurinn fleygði öndvegissúlum sínum í sjóinn og hvenær hann fann þær aftur. Enginn þarf aftur á móti að vita, hvenær við byrjuð- um að salta fisk eða frysta og hvernig sú vinnsla fer fram. Ekki þurfa þessir ungu íslendingar heldur að vita neitt um það, hvar markaðir okkar liggja og hvernig sölustarfsemin fer fram. Frétt hefi ég, að eitthvað sé ver- ið að reyna að bæta úr skorti á kennslu um fiskiðnarinn og sjáv- arútveginn. Meðal annars er kom- in út ný kennslubók fyrir barna- skólana og heitir hún „Við sjávar- síðuna — ísland“. Flett hefi ég þessari bók, sem er 64 blaðsíður með fjölda mynda. í allri bókinni kemur orðið frystihús fyrir fjór- um sinnum, í setningum eins og „aflinn er lagður upp í frystihús- ið“ og „mömmur og pabbar vinna í frystihúsinu". En söguþjóðin mikla er trú nafngift sinni, því af þessum 64 blaðsíðum, er heilum 14 eytt í að segja frá sögu Dalvíkur! Því má einnig bæta hér við, að samkvæmt upplýsingum frá Landsbókasafn- inu, er engin saga fiskiðnaðar Is- lendinga til. Frystihúsin Skipulagning sölustarfseminnar í Ameríku er fjöður í höttum sölu- samtakanna, SH og SÍS, en samt tel ég enn meira afrek, hvernig frystiiðnaðurinn á Islandi hefir verið byggður upp og framleiðsla frystihúsanna samræmd. Feiki mikið starf hefir verið unnið á síð- ustu áratugum af því fólki, sem byggt hefir þessi frystihús, sett í þau vélar og tæki og skipulagt starfsemina. Vegna þessa getur sölumaðurinn vestur í Ameríku selt 5 punda þorskflök frá Stykkis- hólmi og Stöðvarfirði undir sama vörumerki sem sömu gæðavöruna. Ekki má gleyma að geta gæða- eftirlits sölusamtakanna og ríkis- fiskmatsins. Þessar stofnanir hafa unnið mikið og óeigingjarnt starf, sem oft hefir verið vanþakkað. Gagnrýnendur sölusamtakanna benda oft á, að samræmingar og samhönnunarkerfi það, sem þau nota, sé þungt í vöfum og taki frá einstökum frystihúsum hvötina til að fara nýjar leiðir í framleiðslu og betrun vörunnar. Eflaust er eitthvað til í þessu og vita sölu- samtakamenn það sjálfir. Þannig var haft eftir Jóni Gunnarssyni fyrir mörgum árum, þegar rætt var um að breyta hinni hefð- bundnu 8x7 punda pergament- pakkningu á flökum, sem seld voru til Rússlands og Evrópu í áratugi: „Einræðisherrar koma og fara, stríð eru háð og friður sam- inn, stjórnir eru myndaðar og svo falla þær, kynslóðir fæðast og deyja, efnahagur landanna blómg- ast og hrynur, en 8x7 pergament- pakkningin blífur!“ Skipulagning sölunnar Eins og sagt var hér að framan, stofnuðu sölusamtökin dótturfyr- irtæki sín í Ameríku fyrir meira en 30 árum. Bæði fyrirtækin byrj- uðu smátt og áttu við rekstrar- fjárskort og erfiðleika að stríða. En hægt og sígandi hefir þeim báðum vaxið fiskur um hrygg og eru nú í fylkingarbroddi i harðri samkeppni við bandarísk og er- lend félög. Coldwater Seafood, dótturfyr- irtæki SH, rekur tvær fiskiðnað- arstöðvar og Iceland Seafood, fyrirtæki Sambandsins, eina. Framleiðslu þessara stöðva ásamt flökum og öðrum afurðum, sem fullpakkaðar eru hér heima, er síðan dreift um hið víðáttumikla markaðssvæði. Byggt hefir verið upp sölukerfi, sem fyrirmynd er talin vera á þessu sviði. Bæði fyrirtækin verzla beint við stórar veitingahúsakeðjur eins og Burger King og Long John Silver, sem sumir kannast við úr nýlegum blaðafréttum. En stór hluti fram- leiðslunnar er seldur í gégnum umboðsmenn, sem heita „food brokers" á ensku. Þeir selja til heildsala, „wholesale distribut- ors“, sem síðan dreifa vörunni til veitingahúsa, mötuneyta og ann- arra stofnana. I Ameríku er skýrt greint á milli umboðssala og heildsala, og er í landi einka- framtaksins ólöglegt að hirða um- boðslaun af vöru, sem seld er síð- an af sama aðila með álagningu. Hver umboðsmaður selur á af- mörkuðu svæði, en síðan fylgjast svæðis-sölustjórar, sem launaðir eru af sölufyrirtækjunum, með hópi slíkra. Umboðsmönnum er haldið vel við efnið, settir sölu- kvótar og sendar tölvuskýrlur á hverjum mánuði, og sýna þær sölutölur með samanburði og kvótatölum. Standi þeir ekki í stykkinu, eru fundnir nýir um- boðsmenn. En svo er líka stutt dyggilega við bakið á þeim með ýmsu móti. Þar er auglýsingastarfsemin mik- ilvægust, en í hana hafa bæði fyrirtækin eytt milljónum dollara. Svo eru sölusýningar, kaupstefn- ur, söluherferðir og alls konar áróðursstarfsemi, sem hjálpar mikið til við söluna. Næstum allur íslenzki fiskurinn er seldur á fjölfæðismarkaði en ekki á smásölumarkaði. Ástæðan er einfaldlega að þróunin hefir orðið sú, að fjölfæðismarkaðurinn leggur meira upp úr gæðum og borgar hærra verð. Svo ber að geta þess, að % af öllum fiski, sem seldur er í Ameríku, er snæddur utan heimilisins. Kjörbúðirnar hafa að miklu leyti lagt áherzlu á lágt verð og hefir íslenzki fiskur- inn því orðið útundan. Þess vegna finnst hann ekki í búðunum. Samkeppnin Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla, segir máltækið. Úr fjarlægð má líka oft sjá hluti, eins og t.d. í þjóðlífinu á íslandi, sem heimafólkið kemur ef til vill ekki auga á. Þannig er oft hægt að kíma, þegar lesnar eru í blöðunum fréttir af því, þá verið er að selja framleiðsluvörur á erlendan markað í samkeppni við útlenzk fyrirtæki. Blöðin gera málin oft mjög ein- föld, enda er ekki alltaf skrifað um þau af þekkingu. Takist t.d. ís- lendingum að selja stóran slatta af saltfiski til Ítalíu, stafar það af því, að okkar fiskur er betri og okkar samningamenn slyngari en hinir. En ef svo illa vill til, að t.d. Norðmenn nái sölunni, stendur ekki á stórum fyrirsögnum í blöð- unum: Feikileg undirboð Norð- manna á saltfiski á Ítalíu! Sumar af okkar frystu sjávaraf- urðum, eins og t.d. blokkirnar, er svokölluð samhönnuð markaðs- vara (commodities), en á þessum vörum viðgengst markaðsverð, sem skráð er í stærstu sölulöndun- um. Karfa- og grálúðuflökin okkar eru þannig í sama flokki og sömu tegundir frá Kanada, og er næsta ómögulegt að kreista fram hærra verð en keppinautarnir fá fyrir sinn fisk. Öðru máli skiptir með þorskinn og ýsuna frá íslandi. Strengjasveit Tón- listarskólans á tón- listarhátíð í Aberdeen STRENGJASVEIT Tónlistarskól- ans í Reykjavík hefur þegið boð um að koma fram á fjórum konsertum á alþjóðlegri listahátíð unglinga í Aberdeen í ágúst næstkomandi. Hátíð þessi hefur verið haldin árlega í Aberdeen síðan 1973 og er þetta þvi i tíunda sinn sem hún er haldin. Þjóðir frá öllum heimshlutum taka þátt í hátíð- inni og eru t.d. listahópar frá Kóreu, Tékkóslóvakíu, Ástralíu og Japan. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskum listamönnum er boðið á þessa hátíð. Strengjahljómsveitin mun fara út 9. ágúst en hátíðin stend- ur yfir frá 10. til 20. ágúst. Hóp- urinn sem fer út telur 15 manns með stjórnandanum og eru á aldrinum 17—22 ára. Strengja- sveitin var stofnuð árið 1980 og hefur hún ferðast mikið innan- lands. Þá fór sveitin til Júgó- slavíu í fyrra og lenti hún þar í fjórða sæti í keppni strengja- sveita og fékk verðlaun fyrir frammistöðu sína. Reykjavíkurborg hefur styrkt sveitina til Aberdeen fararinnar Strengjasveit Tónlistarskólans með stjórnanda sínum, Mark Reedman.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.