Morgunblaðið - 22.06.1983, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983
37
Þessar tegundir eru taldar skara
langt fram úr samhannaðri mark-
aðsvöru sama fisks frá öðrum
löndum, og hefir sölusamtökunum
tekist að fá verulega hærra verð
fyrir þær.
Við framleiðum einnig vörur,
sem seljast á miklu lægra verði en
samhönnuð vara frá löndum eins
og Kanada. Hér má nefna hörpu-
diskinn, sem seldur er um 25%
undir verði kanadísku vörunnar. í
fyrsta lagi er okkar hörpudiskur
ekki af sömu tegund og sá kanad-
íski, og svo er hann líka smærri.
Þar við bætist, að við höfum ekki
eins langa reynslu í framleiðslu og
sölu hans eins og Kanadamenn.
Með bættum gæðum og ötulli
markaðsstarfsemi má minnka bil-
ið og fá hærra verð. Sýnist mér, að
íslenzku framleiðendurnir séu á
réttri leið.
Yfirleitt er ísienzkur fiskur í af-
bragðsgóðu áliti í Ameríku. Kan-
adamenn hafa lengi öfundast yfir
því, og gera þei? ítrekaðar tilraun-
ir til að brúa það gæða- og verðbil,
sem skiiur okkar fisk frá þeirra.
Ef litið er á stærstu tegundina,
þorsflök 10/5 lbs., þá er eftir miklu
að sækjast, því landinn er að selja
sinn fisk fyrir $1.80 á pundið á
sama tima og Kanadamaðurinn
færi $1.35.
Einhverjum frystihúsum í
Kanada og Nýja Englandi hefir
tekist að ráða íslenzka verkstjóra,
sem eru að hjálpa til að framleiða
þorsk upp á íslenzkan máta og eft-
ir leiðbeiningum, sem sölusamtök-
in láta okkar frystihúsum í té. Það
er full ástæða til þess að standa
vörð um tæknikunnáttu og fram-
leiðsluaðferðir okkar, og hjálpa
a.m.k. ekki keppinautunum til að
ná okkur í gæðum og pökkun.
Það, sem helzt gæti orðið okkur
að gagni i samkeppninni við
Kanada, er það, að fjöldi frysti-
húsanna er mikill og heyja þau
grimmilega samkeppni hvert við
annað. Við getum prísað okkur
sæla yfir því, að ekki skuli vera til
þar Samband eða Sölumiðstöð!
íslendingar stjórna sjálfir
Allt frá upphafi hafa íslend-
ingar sjálfir stýrt sölumálum sín-
um í Ameríku. Þeir hafa lært af
reynslunni, að þessi mál eru of
mikilvæg til að fá stjórn þeirra (
hendur útlendingum, sem hafa
persónulegan peningagróða einan
að leiðarljósi. Svo eiga útlend-
ingarnir líka afar erfitt með að
skilja gang mála á okkar ástkæra
íslandi. Við skulum lika viður-
kenna, að við erum kannske ekki
eins og þjóðfólk flest.
Þannig hafa landar vorir staðið
við stýrið, en stuðst við fjölda am-
erískra sérhæfðra manna bæði í
framleiðslu- og sölumálum.
Nokkrir Islendingar eru í lykil-
aðstöðu í báðum fyrirtækjunum.
Fyrst ber að nefna Þorstein Gísla-
son, forstjóra Coldwater, en hann
hefir nú farsællega stýrt þar mál-
um í 20 ár. Undir stjórn hans hefir
fyrirtækið vaxið og dafnað, reist
tvær nýjar verksmiðjur og höfuð-
stöðvar. Aðrir frammámenn hjá
Coldwater eru Othar Hanson,
hægri hönd Þorsteins um margra
ára skeið, sem áður var fram-
með 50 þúsund króna framlagi,
en einnig er sveitin að hefja fjár-
öflun um þessar mundir.
Strengjasveitin býður fram þjón-
ustu sína við öll möguleg tæki-
færi svo sem jarðarfarir, brúð-
kaup og aðrar skemmtanir. Þá
hefur sveitin upp á að bjóða létt
kaffihúsaprógröm. Þeir sem ráða
til sín strengjasveitina styrkja
hana um leið til utanfararinnar.
VJterkurog
hagkvæmur
auglýsingamiðill!
kvæmdastjóri Iceland Seafood, og
Guðni Kristinn Gunnarsson, sem
verið hefir verksmiðjustóri i
Maryland í meira en aldarfjórð-
ung.
Iceland Seafood Corporation er
undir styrkri stjórn Guðjóns B.
ólafssonar, sem unnið hefir öll sín
fullorðinsár við fisksölumál hjá
Sambandinu. Stjórnarár Guðjóns
hafa séð stórfellda aukningu á
framleiðslugetu verksmiðjunnar
og mikla söluaukningu. Með Guð-
jóni vinnur við stjórnina Geir
Magnússon, sem áður var hjá
Coldwater í fjöidamörg ár.
Það er nauðsynlegt, að sölufyr-
irtækin sjái um það, að á hverjum
tíma séu efnilegir íslendingar
látnir kynnast rekstri og sölu-
starfseminni í Ameríku. Þar eru
viðskiptin rekin á gjörólíkan hátt
frá því, sem tíðkast á íslandi. Það
tekur langan tíma að komast inn í
málin fyrir vestan.
Framtíðin
Það er erfitt að skyggnast inn i
framtíðina því óvissan er mikil.
Fyrir um 15 árum lýsti forstjóri
annars íslenzku félaganna í Amer-
íku yfir þvi í blaðaviðtali, að innan
nokkurra ára myndu islenzk
þorskflök vera orðin sunnudags-
matur í Ameríku. Átti hann við,
að aukin eftirspurn og minnkandi
framboð myndi keyra upp verðið.
Öll vitum við, að sú spá hefir ekki
rætzt, þó verðið hafi reyndar
hækkað verulega. En spámaður-
inn vissi heldur ekki, að nýjar teg-
undir myndu koma inn á markað-
inn til að drýgja þorskinn. Má þar
nefna Alaska-ufsa, lýsu og grá-
lúðu.
Ameríkumarkaðurinn á eftir að
halda áfram að vaxa að miklilvægi
fyrir íslendinga sem aðrar fisk-
veiðiþjóðir. Við skulum minnast
þess, hve áhrifa kreppu þeirrar,
sem nú er að ganga yfir, hefir
gætt tiltölulega lítið í fisksölumál-
um okkar í Ameriku. Einnig má
benda á það, að meðalverð á fisk-
afurðum vestra hefir rúmlega þre-
faldast á sl. 15 árum. Á sama tíma
hefir verð á alifugli og kjöti rúm-
lega tvöfaldast.
Engin ástæða er til að ætla, að
Coldwater og Iceland Seafood
haldi ekki áfram að vaxa og
blómgast á Ameríkumarkaði. Ár-
angurinn, sem þegar hefir náðst,
er af mörgum talinn einn af við-
skiptaundrum eða afrekum í fisk-
iðnsögu Bandaríkjanna. íslend-
ingar hafa keppt við amerisk stór-
fyrirtæki og erlend sölusamtök og
borið sigur af hólmi.
Lokaorð
Fiskurinn er enn og verður, um
ókomin ár, sú útflutningsvara,
sem færir landinu mestan gjald-
eyrinn. Án erlends gjaldeyris
verður ekki haldið uppi byggð á
íslandi. Það væri gott, ef þorri
fólks gerði sér grein fyrir þeim
staðreyndum.
Ég minnist þess, að i æsku var
oft farið í fiskbúðina fyrir
mömmu. Fisksalinn gramsaði i
fiskhrúgunni, skar, vigtaði og
pakkaði síðan inn i dagblað, þegar
búið var að velja fiskinn. Hann
var því jafnan slorugur um lúk-
urnar. Það brást þess vegna ekki,
að það voru slorugir og hreistrugir
peningaseðlar, sem gefnir voru til
baka, þegar greitt var fyrir soðn-
inguna.
Seðlabankinn ætti ef til vill að
ráða nokkra fiskkarla til að með-
höndla birgðir þjóðarinnar af doll-
urum og öðrum erlendum pening-
um. Við myndum kannski finna af
þeim lyktina og minnast þess,
hvaðan þeir eru komnir!
Þórir S. Gröndal er rædismaður ís-
lands í Flórída og íramkræmda-
stjóri bjá físksölufyrirtæki á
Miami.
''J
alltaf ‘
Ekki segja ítalir. Eins ogflestir vita kemur einn
vinsælasti réttur vorra tíma, pizzan, frá Ítalíu.
Þaðan hefur hróður hennar borist víða um lönd og
hvarvetna sem rétt vinnubrögð og rétt hráefni eru
notuð við gerð pizzunnar, nýtur hún gífurlegra
vinsælda.
Til þess að halda uppi merki pizzunnar, hinnar
ósviknu pizzu, höfum við ekkert til sparað í Sæl-
keranum:
1. Ósvikinn ítalskur pizzuofn, kyntur með viðar-
spænum, ekki rafmagni.
2. Ósvikið pizzudeig samkvæmt ströngustu kröfum
ítalskra matargerðar.
3. Þaulvanur pizzugerðarmaður frá Ítalíu sem sér
um pizzugerðina.
Komið — Reynið — Sannfærist
Svangir rata
m
AUSTURSTR/ETI22, INNSTRÆTI, SÍM111633
Hollensk hágæðavara
á sérstaklega
hagstæðu verði
Sértilboð:
ACF 357 — Eldavél með grllli.
Verö kr. 9.970.-
RO 3837 — Kafflvél.
Sjáltvirkir með glærum vatnstanki
innbyggö I hitaplötu. lagar 12
bolla í einu.
Verð 2.230.-
Sértilboð:
RO 3848 — Rafmagnsgrill
með stálplötu. Hitastillir ákveður
nákvæmlega réttan hita.
Verð kr. 1.450.-
RO 3642 — Ryksuga.
Kröftug en hljóðlát. Auðveld í
meðförum. Verð kr. 5.795.-
ARC — Luxus barskápur meö
teakáferö. 90 lítra. Sérstakt frysti-
hólf fyrir ísmolagerö.
Verð kr. 8.710.-
ARC Sértilboð:
ARC 268 — ísskápur 340 litra
meö 33 litra frystihólfi.
Verð kr. 14.460.-
H. 144 cm B. 60 cm D. 64 cm
Sértilboð:
ARF 805 — Rúmgóöur 310 lítra
ísskápur, 2ja dyra með 65 lítra
frystihólfi. Auöveldur að þrifa
Sjálfvirk afþyöing. Verð kr.
16.520.-
H. 139 cm B. 55 cm D. 58 cm
AKC 310 — Eldhúsvlfta með
sogstilli.
Verð kr. 8.400.-
HLJÖMBÆR
HUOM-HEIMILIS-SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SlMI 25999