Morgunblaðið - 22.06.1983, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 22.06.1983, Qupperneq 11
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983 „Stundarfriöur“ erlendis Stundarfriður, leikrit Guð- mundar Steinssonar, sem sýnt var við metaðsókn í Þjóðleikhúsinu á sínum tíma, hefur vakið mikla at- hygli í sýningum erlendra leik- húsa. Á liðnu hausti var Stundarfrið- ur kynntur í Bandaríkjunum með leiklestri á Intiman Theater í Seattle í tengslum við Scandinavia Today. Intiman kynnti þannig fimm leikrit frá Norðurlöndunum, eitt frá hverju landi, og voru verkin valin úr u.þ.b. 200 leikrit- um. Þau verk önnur sem þannig voru kynnt í Seattle voru Ástar- saga aldarinnar, eftir Márta Tikk- anen, frá Finnlandi, Úr lífi ána- maðkanna eftir Per Olof Enquist, frá Svíþjóð, Ballerina, eftir Arne Skouen, frá Noregi, og Og fuglarn- ir syngja aftur, eftir Ulla Ryum, frá Danmörku. Þann 27. janúar sl. var Stundar- friður frumsýndur í Borgar- leikhúsinu í Braunschweig í V-Þýskalandi, í þýskri þýðingu Jóns Laxdal leikara. 6. maí frum- sýndi Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn verkið og þann 7. maí frumsýndi þjóðleikhús Svía, Dramaten, Stundarfrið. Allar þessar sýningar hafa hlotið lof- samlega dóma og mikið verið fjall- að um þær í fjölmiðlum bæði með viðtölum við höfundinn og öðru efni. Ekkert íslenskt leikrit hefur farið jafn víða síðan Jóhann Sig- urjónsson var uppi og Fjalla-Ey- vindur var sýndur í mörgum Evr- ópulöndum. Hér á eftir fara nokkrar glefsur úr leikdómum, sem Mbl. hafa bor- izt frá Þjóðleikhúsinu. Braunschweiger Zeitung 29.1. 1983. Guðmundur Steinsson opinber- ar okkur sambandsleysi nútíma- fjölskyldunnar ... Verk hans er örlagaþrungin við- vörun við takmarkaleysi hinna mismunandi fjölmiðla. Hér er gengið hreint til verks gegn þeim fjötrum sem nútímamaðurinn er búinn að festa sig í. ... ímyndaður hvunndagur hjá 7 manna fjölskyldu sem líður und- ir stöðugu álagi síma, segul- bandstækja, útvarps og sjónvarps án þess að veita því nokkra sér- staka eftirtekt. Sálrænum trufl- unum er bægt frá, þvi ímynd tækninnar krefst að ekki skuli aðra guði hafa. ... Með óvenjulegum aðferðum tekst Guðmundi að stinga á fjölda kýla í nútímasamfélagi, eins og t.d. misnotkun lyfja og fjölmiðla og hvað eigi að gera við gamla fólkið. ... Kuldaleg sviðsmynd verks- ins undirstrikar enn frekar heim- ilisleysi fjölskyldunnar. ... ógnvekjandi leikrit, krefj- andi spegilmynd af samfélagi okkar. Ilamburgische Zeitung 10.2. 1983. ... Velheppnuð skopmynd af nútímafjölskyldu og jafnframt viðvörun til okkar allra. Die Welt 1.2. 1983. ... Eftir að síminn hefur hringt 60 sinnum, sjónvarpið, segul- bandstækið, plötuspilarinn og út- varpið hafa gengið án afláts í tvo tíma, eftir að sonurinn á heimil- inu hefur öskrað á steik um leið og faðir hans tilkynnir honum andlát ömmu hans, þegar taugastrekkt hjónin um síðir og of seint finna tóm til að ræða saman, þó aðeins vegna þess að hvortveggja sjón- varpið og síminn eru óvirk, eigin- maðurinn fær hjartaáfall og yngsta dóttirin, sem fram til þessa hefur ekki sýnt foreldrunum neina sérstaka hlýju, kallar „mamma" eins og lífi hennar væri nú einnig að ljúka — að öllu þessu loknu verður maður að viðurkenna að höfundi verksins hefur tekist að skapa leikverk sem ekki hlítir venjulegum viðmiðunum varðandi persónusköpun, texta og leikræna uppbyggingu. ... Guðmundur hefur skrifað leikrit um firringu manneskjunn- ar sem gefur sig á vald tækninni og eyðir þannig sjálfri sér. ... Útsmoginn, grimmdarlegur ærslaleikur um sálræna uppþorn- un. Hannoversche Allgemeine. Höfundur beitir öllum brögðum jafnt sálfræði sem skrumskælingu. Theater Heute: 3. tbl. 1983. ... Guðmundur lýsir á fjöl- breytilegan hátt ásigkomulagi nútímamannsins, sem er yfir- keyrður af andlegu álagi, en í lok- in fær lýsingin á sig mynd fárán- leikans þegar eina samskiptatæki fjölskyldunnar, síminn, bilar og sömuleiðis sjónvarpið. f áður óþekktri þögn grípur óhugnaður einmanaleikans foreldrana: þau eru ekki lengur hæf til að standa augliti til auglitis við raunveru- legt líf. Glefsur úr leikdómum í dönskum blöðum Berlingske Tidende, 8. maí 1983. ... Nútíma fjölskyldulíf hrollvekjandi ærslaleikur. lenska leikritið Stundarfriður er myndaröð af okkar fögru nýju veröld, sem vekur bæði hlátur og hroll. Guðmundur Steinsson kynnir dæmigerða fjölskyldu í vel- ferðarþjóðfélaginu án þess að setja fram eigin athugasemdir. Leikritið er eins konar funktional- ískt sótthreinsað villidýrabúr handa manneskjum. Síðasta fólkið á jörðinni? (Gagnrýnandi spyr.) Við skulum vona að svo verði ekki þótt Stundarfriður sé spaugileg grýlumynd af ómanneskjulegum heimi, sem við erum að hamast við að búa til handa okkur sjálfum og öðrum. Sú framtíð er löngu hafin. Við getum grátið og hryllt okkur yfir því. Og þá er afskaplega gott að geta hlegið að því líka. Politiken, 8. maí, 1983. ... Vængstýfð fjölskylda — glæsilegur leikur í íslensku verki á Grábræðrasenunni. Fyrst fundu mennirnir upp vélarnar, síðan breyttu vélarnar mönnunum í vél- ar. Þannig verður maður að skilja boðskapinn í verki íslenska leik- skáldsins Guðmundar Steinsson- ar. Þetta efni er ekki nýstárlegt. Við höfum heyrt þetta áður. Við vitum það vel. En við höfum sjálf- sagt þörf fyrir að heyra það einu sinni enn. Sérstaklega þegar það er sett fram á fyndinn hátt. Verk Steinssonar er víða fyndið, háðskt og afhjúpandi, en það er líka svo- lítið „banalt", til dæmis þegar hann líkir ástinni við fornmenjar, sem aðeins sé að finna hjá háöldr- uðu fólki. Leikritið rifjaði upp hjá mér minningar um verk franska kvikmyndagerðarmannsins Jacq- ues Tati, sem fjallaði um það ís- sama. Steinsson notar leikrænt séð stærri handahreyfingar, svo maður ekki segi grófgerðari að- ferðir. Dauðinn er með í spilinu og kannski missa sum smærri atriðin marks vegna þess að Steinsson óttast að verða of alvarlegur og nærgöngull. Jydske Tidende 10.5. 1983. ... Hranalegur endir á kon- unglegu leikári. Leikritið hefst sem hárbeitt skop á okkar tíma og lífsvenjur. Leikurinn er frábær, enda í höndum framúrskarandi leikara; miðlungsleikarar ættu erfitt með að ráða við þetta verk. Um tíma hvarflar að manni: Hversu lengi getur skopið haldið áfram? Það heldur ekki áfram og það er heldur ekki ætlunin. Harm- leikurinn leynist rétt undir yfir- borðinu. Brátt ber að mannslát — síðan sjálfsmorðstilraun og síðan aftur mannslát. Stundarfriður er hranaleg viðvörun. Svo yfirborðs- lega lifir maður ekki án þess að þurfa að gjalda fyrir það. Sem sagt: Leiksýningin skildi mann eítir skekinn og með hroll í sálu. Glefsur úr leikdómum í sænskum blöðum Dagens Nyheter, 11. maí 1983. I byrjun segir gagnrýnandinn frá grein, sem hann er nýbúinn að lesa um bók eftir Neil Postman: The disappearance of a childhood (hvernig bernskan hefur horfið). „Þessa grein hefði sem hægast mátt prenta í leikskrána fyrir Stundarfrið. Hún fjallar um vel- þekkt fyrirbæri, ógnarstjórn fjöl- miðlanna og hvernig þeir, einkum sjónvarpið, hindra okkur í að þroskast og verða félagsverur með Edda Erlendsdóttir vekur athygli í Svíþjóð Edda Erlendsdóttir, píanóleikari, fékk mjög lofsamlega dóma í sænsk- um blöðum, er hún hélt tónleika í Svíþjóð fyrr á þessu ári. — Er gagn- rýni tveggja blaða birt hér á eftir í íslenskri þýðingu. Minnisverðir píanótónleikar Gríinewaldsalen: Edda Erlendsdótt- ir, píanókvöld. Verk eftir Schönberg, Sveinsson, Hallgrímsson, Berg, Schubert, Schumann. Andrúmsloftið var ekkert frá- brugðið því sem það hefur alltaf verið á langri röð pianókvölda á Grúnewaldsalen: lítill, hljóður hópur, aðallega áheyrendur sem hallast að vinstri væng stjórnmál- anna, tilfinningaleg afstaða þeirra klofin milli skyldurækni og mæðu, órólegir yfir því að fá kannski ekki að njóta tónlistarinnar fyrir þreytu eftir erfiða vinnuviku — það var nefnilega föstudagskvðld. Edda Erlendsdóttir birtist, al- varleg á svip, sest við flygilinn, byrjar tónleikana og á tíu sekúnd- um gerist undrið: Þreytan fokin burt, tilfinningarnar opnast upp á gátt og hugurinn glaðvaknar. Þessi íslenski píanisti, sem okkur var með öllu ókunnur, bauð okkur á píanótónleika ársins. Nei, jafnvel ársviðmiðun nægir ekki, það verður að miða við enn lengri tíma til að finna jafningja þessar- ar ógleymanlegu tónlistarreynslu Samkvæmt gefnum upplýsing- um hefur hún stundað nám sitt í París og er nú kennari við tónlist- arskólann í Lyon. En þökk sé guði að hún er ekki innstillt á miðevr- ópsks viðhorf til nútímatónlistar. íslendingar eru heilbrigðir að þessu leyti, þeir hafa aldrei fest rætur í öryggi nítjándu aldar. Píanóleikarar frá öðrum löndum mundu vera hikandi við pró- gramm eins og þetta, þar sem all- ur fyrri hlutinn var helgaður Schönberg, Alban Berg og tveimur íslenskum tónskáldum — og ein- mitt vegna þessa hiks væri slagur- inn tapaður til hálfs. Hvílíkan ástaróð gerði hún ekki úr píanósónötu Albans Bergs, svo lausan við venjuleg krampakennd átök og hrifningu sem kreist er fram! Eða upphafsþættina þrjá fyrir píanó opus 11 eftir Arnold Schönberg, svo hógvært yfirveg- aða í tjáningunni og svo hárfínt hljómaða sem stafar af þeirri „pedalamenningu“ (þeirri notkun pedalanna) sem sagt er að sé að- eins í Frakklandi núna, þó svo barmafulla af dauðaþrá og lífs- þorsta eins og „tersmelodiken" (kvartett-músík?) sem dregur nafn sitt af Mahler. Edda Erlendsdóttir hefur náð fram til einfaldleikans bak við hugmynd annars Vínarskólans um vandann að ná til áheyrandans. En einnig í klassískum verkum eins og „Drei Klavierstúcke" eftir Schubert og áttundu „Novelette" Schumanns nær hún fram til þess sem máli skiptir. Hún er ekki svo þrælbundin píanóinu við að vera persónuleg í flutningi sínum, þess vegna verður leikur hennar eðli- lega hlaðinn persónuleika með þessum ásláttarstíl sem stundum er svo veikur að hann skapar sér- stök leysandi ljósáhrif, eins konar pastel-tón. En hún getur líka leik- ið skarpt og þungt eins og til dæmis í Schumanns-stykkinu. Landi hennar, Atli Heimir Sveinsson, leikur á þessa eigin- leika hennar, að gefa tónlistinni sjónræn áhrif í verki því sem hann skrifaði handa henni, „Skugginn og Ijósið", sem var frumflutt. Þetta er eins konar skissa, form- lega séð laustengt tónverk eins og tilbrigði um yfirborð skyldra tón- stíla, þar sem fyrirmyndirnir eru sóttar í sumum tilfellum allt til Vínarklassíkur. Píanóverkin fimm eftir Hafliða Hallgrímsson, sem nú er sellóisti í skoskri kamm- erhljómsveit, eru náskyld Darmstadt-skólanum en hafa þó yfir að búa ljóðrænni fjarlægð frá því einkenni skólans sem byggist á hatri við lystisemdir. Allt þetta gat Edda Erlendsdóttir túlkað. Litli áheyrendahópurinn klappaði fram tvö aukalög og þau hefðu gjarnan mátt vera miklu fleiri. Carl-Gunnar Áhlén (Svenska Dagbladet 10/4 1983) Píanósnillingur frá íslandi Vissulega var þetta vandfýsið prógramm sem hinn ungi íslenski píanóleikari lagði í að bjóða áheyrendum á sunnudagstónleik- um í Gamla ráðhúsinu. Maður fór þangað fullur forvitni: fyrri hlut- inn eintóm nútímatónlist og á eft- ir Schubert og Schumann. Ekki hefur neinn getað farið svikinn heim af þessum tónleikum. Arnold Schönbergs þrjú „Klavi- erstúcke" op. 11 er það verk höf- undar þar sem hann kannski í fyrsta sinn losar sig úr öllum tengslum við gömlu tónlistarskút- una. Aforismer (spakmæli) eru þessir þættir kallaðir og ekki er höfundur margorður, það er satt. Píanóleikarinn spilaði með hár- næmum píanóhljómi (áslætti) sem magnaði fram eðlilegt samhengi án hins auðsýnilega ákafa eða æs- ings sem maður á svo oft að venj- ast hjá öðrum píanóleikurum sem spila þessa tegund tónlistar: það er áhersla, tónfall sem ögrar manni og segir um leið að hér Edda Erlendsdóttir skuluð þið nú hafa það, gömlu rómantíkusar. Tvö íslensk tónskáld núlifandi, mér alveg ókunn, áttu sinn stað í dagskránni. Eitthvað sem heitir Skugginn og ljósið eftir Atla Heimi Sveinsson var frumflutt. Því er verr að ég botnaði ekkert í því, formið flögraði lausbeislað og ég gat ekki fundið út tilganginn með því. Á hinn bóginn fannst mér 5 þættir fyrir píanó eftir Haf- liða Hallgrímsson — sem skrifaðir voru við texta, sem prentaður var í prógrammblaðinu, hafa til að bera tærleika sem greinilega tók á sig sköpunarform. Alban Bergs op. 1, Sónata, mun ég aldrei nokkru sinni gleyma og það er að miklu leyti að þakka Eddu Erlendsdóttur. Við höfum nýlega átt því láni að fagna að heyra fiðlukonsert hans. I þessu verki er til staðar sami sársauki, sama hlaðna tiifinningaspil. Berg hafði einmitt hafnað fyrri tón- verkum sínum í hefðbundnum, rómantískum anda, og þess vegna er nýja verkið op. 1. Leikur pian- istans var opinn og viðkvæmur. Það var dásamleg upplifun. Og maður hugsaði með sér: Hvernig getur þessi skarpa, fal- lega íslenska stúlka ráðið við róm- antíkusa á borð við Schubert og Schumann? Það útheimtir snilli að hafa á hraðbergi allan skalann frá upphafi 19. aldar til vorra daga og ekki eldri en þetta. Hún hefur hana. „Drei Klavierstúcke" Schuberts, sem bera í sér kraft frá Beethoven og dramaríska marbreytni, fékk framúrskarandi tæran flutning. Yfirburðatækni Eddu Erlends- dóttur og meðvitaður ásláttur hennar og hófleg ögun gæddi túlk- un hennar dásamlegum heildar- áhrifum sem eru ógleymanleg. Schumanns Novelette nr. 8 var lokaverkið; það birtist í fullkomnu jafnvægi án þess að rómantísku drögin væru afrækt. Þvert á móti, treginn öðlaðist sjónræna dýpt, ekki síst vegna leikni píanistans i að töfra fram ríka hljómfegurð jafnvel úr ráðhúsflyglinum! Það er ekki illa af sér vikið. Aukalög voru spiluð, áheyrend- ur voru heillaðir. Þeir hefðu getað verið fleiri ef tónleikarnir hefðu verið auglýstir. Nú voru það marg- ir sem misstu af miklu. En hvað mörg ár hefur nú píanóstóll ráðhússins verið úr sér genginn og ónothæfur? Píanistar heimsins, sem voga sér til Upp- sala, verða að sitja á pinnastól ef þeir vilja ekki eiga það á hættu að detta á rassinn. Þetta er ekki hægt. Ulla Godin (Úr Uppsala Nya Tidning 12/4 1983) oKV 3' anúii'e íarer 6T1 ít'lð 7 AUGLÝSINGASTOFA MYNDAMÓTA HF

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.