Morgunblaðið - 22.06.1983, Síða 21

Morgunblaðið - 22.06.1983, Síða 21
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983 „ Mflmmíl sendi okfcrur 5iti iniJOrt kortih \ tilefni a-f bn!iSlíaupso,fmselmu!/ Ást er... að leiðast hönd í hönd ru fltg U.S. Pat Ott.—all rlghts reserved 1382 Los Angdee Tlmee SynUlcate fyrst? HÖGNI HREKKVÍSI „RlSTAOAZ SÍLPAR." Gæsluvöllurinn Norðurberg: Hver var ástæðan fyr- ir breytingunni? Þ.M.G. skrifar: „Kæri Velvakandi. Ég er móðir búsett í Hafnarfirði og hef undanfarin ár notið góðs af þeirri þjónustu sem gæsluvöllur- inn Norðurberg hefur veitt. Á þessum gæsluvelli hefur mál- um verið skipað þannig, að for- eldrar hafa borgað fyrir börnin í hvert skipti, en í staðinn fengið þá þjónustu að þau væru tekin inn ef eitthvað væri að veðri og eins hafa þau haft með sér nesti og borðað það inni. Þannig hefur þessi gæsluvöllur verið eins konar milli- stig á milli venjulegs gæsluvallar og leikskóla og komið sér mjög vel, þar sem a.m.k. tveggja ára bið er eftir leikskólaplássi hér í Hafnar- firði. Þarna hefur ýmislegt verið gert fyrir krakkana, t.d. fyrir jól og páska hafa starfsstúlkurnar föndrað með þeim og eins hafa þau fengið gesti í heimsókn. Á þessum gæsluvelli hafa börn á mínum vegum unað sér undanfar- in ár, hálfan daginn og helst aldrei mátt missa dag úr hvort sem var á sumri eða vetri. Fyrir stuttu var gefinn út bækl- ingur á vegum Æskulýðs- og tómstundaráðs Hafnarfjarðar til þess að kynna hvað börnum og unglingum í bænum væri boðið upp á í sumar og var þessi bækl- ingur borinn í hvert hús í bænum. Þar segir í kaflanum um gæslu- velli: „Auk þess er starfræktur gæsluvöllur með inniaðstöðu, „Norðurberg" við Norðurvang, og er sá völlur opinn kl. 8—12 og 13—17. Á þessum velli geta börnin verið við ýmiss konar föndur þeg- ar ekki viðrar til útivistar." Varla er þessi bæklingur fyrr kominn inn á heimilin þegar ákveðið er í bæjarstjórn að gæslu- völlurinn skuli vera eins og aðrir gæsluvellir: opinn frá 9—12 og 13.30—16.30 og að vísu þurfi ekki að borga fyrir börnin, en ekki sé heldur séð til þess að þau geti ver- ið inni ef veður er slæmt, eða fái að hafa með sér nesti. Þessi ákvörðun kom mjög á óvart, bæði foreldrum og starfs- fólki vallarins, og kemur mörgum afar illa, þar sem fyrirvari var mjög skammur og það sem meira er: enginn veit hvort aðeins sé um breytingu í skamman tlma að ræða eða hvort starfsemin eigi að vera með þessum hætti áfram. Mér þætti vert að vita hvaða ástæða var fyrir þessari breyt- ingu, ef einhver var, eða hvort þetta sé enn eitt dæmið um það að mál sem varða foreldra og börn séu bara afgreidd sem minnihátt- ar smámál, vegna þess að þau þykja of ómerkileg til þess að vert sé að skoða þau nokkuð, hvað þá að kynna sér vilja þeirra sem mál- ið snertir." Þessir hringdu . . . Flestir sjálf- stæðismenn sammála um nauð- syn stutts sumarþings Sjálfstæðismaóur hringdi og hafði eftirfarandi að segja. — Mig langar til að koma á framfæri af- skaplega miklu þakklæti til þess sem skrifaði Reykjavíkurbréfið, sem birtist í Morgunblaðinu í gær (sunnud. 19. júní). Ég tel, að hann hafi túlkað sjónarmið langstærsta hluta kjósenda Sjálfstæðisflokks- ins varðandi það, hvort halda ætti stutt sumarþing eða geyma til hausts að kalla þing saman. Og það hefur vafalaust valdið þessum sama kjósendafjölda vonbrigðum, að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins skyldu heykjast á kröfunni um sumarþing, eingöngu vegna þrýst- ings frá ráðherrum Framsóknar- flokksins. Bæði ég og aðrir sjálf- stæðismenn vorum sammála for- manni þingflokksins, ólafi G. Ein- arssyni, um að ekkert vit væri í öðru en kaila þingið saman. Þegar ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens kom fram með ný bráðabirgðalög, heimtaði þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins, að þing yrði kallað sam- an til þess að fjalla um lögin. Þingflokkurinn stóð að ákvörðun um, að það ætti hispurslaust að fella þessi lög, úr því að möguleiki væri á að gera það, en heyktist síðan á því. Þannig var slegið úr og í með ákvarðanir og fram- kvæmd þeirra. Eins var þetta nú. Þingmenn flokksins og flestir ráðherranna voru sammála um að rétt væri að þing kæmi saman strax eftir kosningar. Það var a.m.k. skoðun þeirra fyrir kosn- ingar og krafa þeirra eftir kosn- ingar og stjórnarmyndun. En nú hafa þeir heykst á að fylgja þessu eftir, enda þótt ég hafi ekki heyrt þess getið, að formaður þing- flokksins hafi skipt um skoðun í þessu efni. Og ekki dreg ég í efa, að það hefur verið vilji yfirgnæf- andi meirihluta flokksmanna, að þingið kæmi saman og tækist á við þessi verkefni. Þarna held ég að birtist í hnotskurn munurinn á Sjálfstæðisflokknum og bræðra- flokkum hans í nágrannalöndum okkar. Þeir vinna alls staðar á, af því að þeir kunna að koma hug- myndum sínum á framfæri við al- menning, á máli sem fólk skilur. Mér finnst ekki rétt að taka svo til orða, að við sjálfstæðismenn eig- um ekki nógu góða sölumenn í pólitíkinni. Það sem vantar hins vegar er að þeir kunni rétta „takt- ík“, þ.e.a.s. hafi auga og tilfinn- ingu fyrir þvi, hvenær láta á til skarar skríða. Það er sama, hvort barist er í stjórnmálum, íþróttum eða öðru; hafi menn ekki „taktík- ina“ á valdi sínu, sitja þeir eftir og aðrir fara fram úr þeim. Ömurleg leik- ritin undanfarið Soffía hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Við höfum verið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.