Morgunblaðið - 22.06.1983, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.06.1983, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 1983 53 »1 9Jf - VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS „Lýsing á hesti tii að velja eftir“ Baldur Steingrímsson skrifar: „Velvakandi. í þætti Gísla Jónssonar, ís- lenskt mál í Morgunblaðinu 11. þ.m., er birt vísa sem Gísli segir að Hulda Pálsdóttir hafi kennt sér: Stutt er bak, en breitt að hjá, brýrnar svakalfgar, augun vakin, eyrun smá, einatt hrakin til og frá. I Velvakanda miðvikudaginn 15. þ.m. birtist sama vísa með nokkr- um orðamun. Kveðst gamall Skagfirðingur hafa lært hana svona: Stutt með bak, en breitt ad sjá, brúnir svakalegar, augun vakin, eyrun smá, einatt blaka til og frá. Þá getur Velvakandi þess í dag, 17. júní, að Þorkell Björnsson frá Hnefilsdal hafi hringt til sín út af vísunni, sem hann lærði þannig: Stutt meö bak, en breitt aö sjá, brúnir svakalegar, augun vakin, eyrun smá, eyrun hrakin til og frá. Og Þorkell lætur aðra vísu fylgja: Leggjanettur, liöasver, lag sé rétt á hófum, harður, sléttur, kúptur hver, kjóstu þetta handa mér. EndUch In Dmitscher Sprach* Gunnar Bjarnason Hengstbuch und Goschichte des Islandpferdes im 20. Jahrhundert ............. X X Segja má, að Þorkell fari nærri hinu rétta í tilgátum sínum um vísur þessar, og vel komast þær til skila, þótt örlítill orðamunur sé á fyrri vísunni og frumgerð hennar. Frá höfundarins hendi er hún svo: Fyrir tólf árum Halldór I. Jónsson skrifar: Ég les þáttinn að staðaldri og þau vandamál, sem þar eru tekin til umræðu. En það væri ef til vill forvitnilegt fyrir lesendur að lesa um það, sem efst var á baugi í þjóðmálum fyrir 12 árum. Ég læt fylgja með úrklippu úr New York Times, sem ber titilinn „The Talk of Reykjavík". Það var ekki laust við, að sum þeirra vandamála, sem ber á góma í grein þessari, séu með okkur enn í dag og það jafnvel í enn ríkari mæli en áður var. Það kemur í ljós við lestur grein- arinnar, að einn viðmælenda höf- undarins setur sig upp á móti stór- iðju. Þróun síðustu ára bendir þó eindregið til þess, að nauðsynlegt er að auka á fjölbreytni í atvinnu- málum." Stutt meó bak og breitt ad sjá, brúnir svakalegar, augun vakin, eyru smá einatt hrakin til og frá. Annars eru vísur þessar úr kvæði eftir Sigurbjörn Jóhanns- son frá Fótaskinni í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu. Kvæðið heitir „Lýsing á hesti til að velja eftir“. Það er prentað í Ljóðmæl- um Sigurbjarnar, bls. 192—193, sem út komu í Winnipeg árið 1902. Kvæðið er alls sjö vísur og fjalla allar, nema sú fyrsta, um þá kosti, sem gæðing eiga að prýða. Vísurn- ar hér að framan eru 3. og 7. vísa kvæðisins. Sigurbjörn Jóhannsson, skáld frá Fótaskinni, var fæddur 20. desember 1839. Hann fluttist til Vesturheims 1889 og dó þar árið 1903. Sigurbjörn var faðir Jakob- ínu skáldkonu Johnson. Með vinsemd og kveðju." að furða okkur á því kunningja- konurnar, hvað útvarpsleikritin hafa verið eitthvað ömurleg und- anfarið og lítið uppörvandi, og eru þá ekki undanþegin leikritin sem flutt voru kvöldið fyrir þjóðhátíð- ardaginn. En yfirleitt þykir mér útvarpið gott og um það vorum við sammála, vinkonurnar. Sérstak- lega erum við þakklátar Her- manni Ragnari Stefánssyni fyrir það hvað hann er hlýr og nota- legur og kemur vel fyrir í þáttum sínum. Lúxusíbúðir og draumakjör Sigurjón Þórisson skrifar. „Velvakandi. Ég sem þessar línur rita er einn af þeim lánsömu sem eru að byggja með Byggung Reykjavík. íbúð mín er 5 herbergja, 137,6 m2 og eru þá sameign og svalir ekki reiknaðar með, en svalirnar eru 41 m2. Íbúðinni er skilað fullfrágeng- inni ásamt sameign. Þó fylgja ekki teppi á íbúðina. Heildarverð íbúðarinnar hjá Byggung er kr. 1.203.000,00(Verð apríl 83). Við samning greiðast kr. 280.000,00. Síðan greiðast kr. 16.600,00 pr. mánuð í 36 mánuði og húsnæðismálalán (kr. 322.000,00) er Byggung bíður eftir. Þegar íbúðirnar eru tilbúnar undir tréverk er yfirleitt reiknað með að 75% kostnaðar séu búin. íbúðirnar í Garðabæ og Kringlu- mýri eru því tæpum 100% dýrari sé miðað við að þeim sé skilað full- frágengnum. Með öðrum orðum, það liggur nærri að hægt sé að fá tvær íbúðir hjá Byggung fyrir eina í Garðabæ eða Kringlumýri. Eðliiegt væri að hlutaðeigandi aðilar gerðu grein fyrir þessum mikla mun.“ GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Hann átti ekki annars úrkosta en að fara. Rétt væri:... ekki annars úrkosti... (Ath.: Það voru hans úrkostir; hann átti ekki úrkosti neins annars.) Einnig væri rétt: Hann átti ekki annað úrkosta. DRAuHRkjÍIr uixusíbúdir í Kringlumýri j, M/tlrlrrar l'KúAir an, mi', .a EFTIRSTOÐVAR TIL 20 ÁRA Nokkrar íbúóir eru nú óseldar aö Miöleiti 2—6. Ibúöirnar veröa afhentar tilbúnar undir tréverk. Tcrfcnirtgar og mHmr trmkmri upplýaingw A afcrifalofunni. PtSSSfeigrwágpanf 4 »u fcl. 13—1« J •» Armannsíeil... vJLÁ KAUPPING GEFUR ÞfR OOO RAÐ KAUPMNG HF Siml 86988 Sími 44566 RAFLAGNIR BRIDGESTONE 1100x20 vörubíladekk Eigum til á lager 1100x20 vörubíladekk. Hagstætt verð og góð greiðslukjör BÍLABORG HF Smiöshöföa 23, sími 812 99 LMNJ Handunnar Olíukolur í steinleir. VERÐ AÐEINS KR. 148,-& 245.- Höfðabakka 9, Reykjavík. S. 85411

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.