Morgunblaðið - 22.07.1983, Side 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1983
Kvikmyndahátíðin í Cannes fer
fram á hverju árn rúmar tvær
____vikur í senn við mikla athygii
heimspressunnar. Hún fer þannig
fram, að kvikmyndafyrirtæki
hvaðanæva að úr heiminum koma
með sínar nýjustu kvikmyndir og
sýna væntanlegum kaupendum
þær í kvikmyndahúsum Cannes.
frægu gesti. Ljósm. Ragnheiöur Hanson.
Mikill mannfjöldi aafnaöist ávallt aaman fyrir framan Höllina til aö sjá hina
ísland var með að þessu sinni
með fjórar kvikmyndir; „Á hjara
veraldar“, „Húsió“, „Með allt á
hreinu“ og „Okkar á milli“. En að-
al aðdráttaraflið hefur þó viður-
kenning hátíðarinnar, Gullpálm-
inn. llm Gullpálmann kljást sér-
staklega valdar kvikmyndir frá
hinum ýmsu löndum.
Svipmyndir frá kvik-
myndahátídinni í Cannes
r
1
• ■<mi**l**t, ,
Leikstjóri kvikmyndarinnar The Year of David Bowie í Furyo eftir Nagisa Oshima.
Living Dangerously, Peter Weir.
Kinski og Depardieu koma til kvikmyndasýningar í Höll-
inni ásamt leikstjóra kvikmyndarinnar La lune dans la
Carnivau, J.J. Beineix,
Óeíröir brutust út meöan á
kvikmyndahátíöinni stóö.
Ahverjum degi eru sýndar
1—2 kvikmyndir og fram-
leiðendur og aðrir að-
standendur auglýsa hana rækilega
áöur með blaöamannafundum og
svo auðvltaö meö því aö mæta á
fyrstu sýninguna.
Aö þessu sinni var hátíöin haldin
frá 7.—19. maí sl. Nokkrir islend-
ingar dvöldu í Cannes þessa daga.
Þeirra á meöal var Ragnheiöur
Hanson, sem var viö nám í háskól-
anum í Nice. Hún vann svolítiö á
hátíöinni viö kynningarstörf og
haföi því tækifæri til aö fylgjast
með framvindu mála, og báðum
viö hana aö segja okkur frá því
sem fyrir augu og eyru bar þessa
daga.
„Aö þessu sinni voru hinar út-
völdu myndir sýndar í nýju hús-
næöi eða Nýju höllinni (Le nouveau
Palais), eins og þaö var kallaö. En
húsnæðiö þótti henta illa, m.a.
þóttu innréttingar ósmekklegar.
Svo mikil var óánægjan aö safnaö
var mótmælaundirskriftum og
jafnvel hótuöu sumir aö mæta ekki
á næstu hátíö, ef Nýja höllin yröi
notuö áfram. Hvaö úr þessu verður
veit enginn fyrr en á næsta ári,“
sagöi Ragnheiður í upphafi frá-
sagnar sinnar.
„Strax fyrsta dag hátíöarinnar
breyttist Cannes úr rólegum bæ í
andstæöu sína, þar sem fjöldi
feröafólks var mætt meö mynda-
vélarnar sínar, kvikmyndafyrirtæk-
in búin aö koma upp skrifstofum
sínum, auglýsingaspjöld komin
upp um alla veggi og verö í versl-
unum og veitingahúsum upp-
sprengt.
Eftir hádegi byrjuöu stjörnurnar
aö streyma aö. Hver glæsivagninn
á fætur öörum hélt innreiö sína og
út úr þeim steig fræga fólkiö viö
fögnuö viöstaddra. Þau sem komu
fyrst voru Sophia Loren, Liza Min-
elli, Dirk Bogarde, Charlotte
Rampling, Robert de Niro og Jerry
Lewis, til aö vera viöstödd frum-
sýningu á kvikmynd Martins
Scorsese, „The King of Comedy“
meö þeim tveim síöasttöldu í aðal-
hlutverkum. Fólk var búiö að raöa
sér fyrir framan Höllina mörgum
klukkutímum áöur en sýningin
hófst. En þaö eru einungis
starfsmenn kvikmyndafyrirtækja
og þeirra gestir, sem komast inn á
kvikmyndasýningarnar.
Næstu daga bar lítiö til tíöinda.
Kvikmyndirnar „La mort de Mario
Ricci“ og „Une gare pour deux“,
báöar franskar voru sýndar viö
ágætar undirtektir. Þaö sama var
ekki hægt aö segja um mynd
„Monty Python“-hópsins, „The
meaning of Life“, sem þótti nokk-
uö hneykslanleg á köflum.
Fjóröi dagurinn varö viöburða-
ríkur aö hætti Cannes-hátíöarinn-
ar. Isabelle Adjani, sem er dáö
leikkona i Frakklandi mætti ekki á
blaöamannafund, sem haldinn var
í auglýsingaskyni fyrir mynd henn-
ar „Léte meurtrier", og voru blaöa-
mennirnir óhressir með þetta.
Þegar hún svo kom á frumsýning-
una um kvöldiö lögðu þeir allir sem
einn niöur myndavélarnar og hróp-
uöu skammaryröi á eftir henni um
leiö og hún gekk upp tröppurnar
inn í Höllina. Og seinna þetta sama
kvöld lá við uppþoti, þegar vinsæl-
asta leikkona Frakka, Catherine
Deneuve mætti á frumsýningu
myndarinnar „The Hunger“, þar
sem hún leikur á móti David
Bowie. Þessi sýning var eingöngu
ætluö fréttafólki, en fljótlega var
skellt á nef þeirra og varö þá mikill
Líf fer af stað
með fyrirsætukeppni
w
nóvember nk. mun ELITE-tískufyrirtækið efna
til alþjóölegar fyrirsætukeppni í Acapulco í
Mexíkó. Munu flest lönd Evrópu og Ameríku
eiga fulltrúa þar. Timaritiö Líf hefur tekiö aö sér
aö annast alla fyrirgreiðslu þessarar keppni hér á
landi og kynna fulltrúa íslands, þegar þar aö kem-
ur.
ELITE er ráöningarskrifstofa fyrir fyrirsætur og
hefur í sinni þjónustu tugi stúlkna af mismunandi
þjóöernum, sem þaö síöan ræöur til starfa viö
frægustu tískurit og tískuhús veraldar. ELITE á
sér ekki langa sögu aö baki, en hefur samt sem
áöur getiö sér mjög gott orö og getur státaö af
eftirsóttustu fyrirsætunum.
Höfuðstöðvar ELITE-fyrirtækisins eru í París,
en auk þess hefur þaö umboösaöila í öllum
stærstu borgum heims, New York, Los Angeles,
Chicago, Tókýó, London og Mílanó.
Væntanlegir þátttakendur í þessari keppni eiga
aö senda af sér tvær Ijósmyndir, sem síðan er
valiö úr af sérstakri dómnefnd í New York. Úrslit
þeirrar keppni veröa kunn í september, og mun
sigurvegarinn veröa kynntur viö hátíðalega athöfn
hér í Reykjavík að viöstöddum eiganda ELITE
fyrirtækisins, Johnny Casablanca.
Fulltrúi íslands fer síöan til Acapulco, þar fer
keppnin fram, í nóvember ásamt fylgdarmanni
héöan aö heiman. Verölaunin eru $200.000 og
tveggja ára samningur viö ELITE. Önnur og þriöju
verölaun eru $150.000 og $100.000. Allir þátttak-
endur eiga kost á því að ráða sig til starfa víös
vegar um heiminn.
Íslenskar
fyrirsætur,
sem náð hafa
langt á er-
lendum vett-
vangi: