Morgunblaðið - 22.07.1983, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1983 49
r sk TTl % / >
fclk í
fréttum
LETTVIN
fyrir lítinn
pening
ÁMAN ÁRMÚLA 21
Jacqiralim Biaset — kyn-
þokkinn streymir frá
henni.
Angie Dickinson — teg-
ursta konan í Bandaríkjun-
um.
Bo Derek — alltof herða-
breið.
Fallegasta konan er Angie Dickinson
— segja bandarískir líffærafræöingar
+ Þrír kunnir bandarískir lítfæra-
frædingar við háskólann í Virginíu,
Georgíu og Boston, tóku sig saman
um þaö nú fyrir nokkru að kynna sér
sköpulag ýmissa frægra kvenna til að
finna út hver þeirra væri fegurst og
best vaxin.
Sigurvegarinn reyndist vera
kvikmyndaleikkonan Angie Dickin-
son og það þótt hún sé oröin 51 árs
gömui.
.Líkami hennar er eins og Ijúfasta
Ijóð þar sem langir fætur og beint
bakiö ríma saman. Hún er óviöjafn-
anleg," sagði í niðurstöðum dómsins.
Dómararnir gáfu konunum eink-
unn, frá einum upp í tíu, og það hefur
vakið nokkra eftirtekt, að yngstu
stúlkurnar uröu yfirleitt aö lúta í
lægra haldi fyrir þeim sem eldri voru.
Engin fékk tíu, en Angie Dickinson
náði níu. Bo Derek, 27 ára gömul,
sem fékk 10 hjá Dudley Moore í
kvikmyndinni .10“, varð að sætta sig
við átta vegna þess aö hún er
„mjaömamjórri en ætla mætti af öör-
um málum. Hún er t.d. of heröa-
breið“.
í ööru sæti ásamt Bo Derek varö
enska leikkonan Jacqueline Bisset,
sem prófessorarnir sögöu, aö heföi
„mjög fallegan líkama, sem eiginlega
er ekkert hægt aö setja út á. Hún er
líka mjög andlitsfríö, á þennan klass-
íska hátt“. Þeir bættu því svo viö,
utan dagskrár, aö Bisset væri sú
konan, sem heföi langmesta kyn-
þokkann.
Þriöja sætinu skiptu þær meö sér
Jane Fonda, sem er 42 ára gömul, og
dansmærin Juliet Prowse, 47 ára.
Löngu neöar á listanum skutu upp
kollinum þær Victoria Principal,
Pamela i Dallas, og söngkonan Dolly
Parton. Dolly var nú eiginlega of mik-
iö af þvi góöa fyrir dómarana.
„Alltof mikiö af brjóstum og alltof
mikið af ýmsu ööru,“ sagöi í dómnum
um Dolly.
COSPER
— Við skulum sjá, ef læknishjálpin er talin með kostar hann okkur
núna 2.837 krónur og fimmtíu aura.
————
Hestaþing
Loga
verður haldið sunnudaginn 31. júlí við Hrísholt og
hefst kl. 14.00 með helgistund.
Keppnisgreinar: Góðhestakeppni A og B og ungl-
ingakeppni, 250 metra skeið og 150 metra skeið, 300
metra stökk og 250 metra folahlaup, 300 metra
brokk. Gæðingar mætið til dóms kl. 10 árdegis.
Þátttaka tilkynnist í síma 99-6918, 6816 og 6826.
Nefndin.
mmmi^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmá
Citroen
G S A Pallas
65 hestöfl, framdrifinn, með
frábæra aksturseiginleika
innanbæjar sem utan:
Vökvafjöðrunin gerir
utslagið.
Á undanförnum árum hefur Citroén GSA Pallas
unnið hug og hjörtu þúsunda íslenskra
ökumanna með frábærum aksturseiginleikum. Ekki
minnkar hrifningin þegar kemur að
bensínkaupum, þvi GSA eyðir aðeins 7,91 að meðaltali.
Verið velkomin í reynsluakstur.
Við tökum uppí vel með farna, nýlega Citroén bíla.
Við lánum 25% af kaupverði til 8 mánaða.
Verð kr. 298.500.-
Innifalið:
Hlífðarpanna undir vél, skráning og ryðvörn.
G/obuse SÍMI81555