Morgunblaðið - 21.09.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1983
35
Þingræði á villigötum:
Handhafar forsetavalds
og þingnefndir án umboðs
eftir Björn
Friðfinnsson
Snemma á sl. vori var Alþingi
leyst frá störfum og þjóðin kaus
sér nýtt þing, sem enn hefur þó
eigi komið saman. Slíkt ástand
skapar „tómarúm" í stjórnkerfi
okkar, sem ástæða er til að fjalla
meira um á opinberum vettvangi
en gert hefur verið til þessa. Mér
sýnist, að verið sé að fylla upp í
það tómarúm með því að búa til
framkvæmdavenjur, er eigi styðj-
ast við lýðræðislegar leikreglur.
Þingræði okkar sé á villigötum.
Handhafar
forsetavalds
Skv. stjórnarskránni fara þrír
aðilar með vald forseta íslands í
fjarveru hans, þ.e. forseti Samein-
aðs Alþingis, forsætisráðherra og
forseti Hæstaréttar. í sumar hef-
ur forseti kjörinn af þvi Alþingi,
sem missti umboð sitt á sl. vori,
gegnt störfum sem einn af hand-
höfum forsetavalds. Hann er nú
jafnframt dóms-, kirkju- og land-
búnaðarráðherra.
Hér er að mínu mati verið að
búa til mjög óeðlilega reglu. Hvað,
ef viðkomandi hefði ekki náð
endurkjöri? Hefðu þá varaforset-
ar síðasta þings tekið við? Gæti
utanþingsmaöur, sem er fjarver-
andi forseti Sameinaðs þings,
gegnt starfi handhafa forseta-
valds?
Breytir ráðherradómur ein-
hverju um stöðu handhafa for-
setavalds annars en forsætisráð-
herra? Hvað um skyldleika eða
tengdir, sem ætla mætti að Al-
þingi tæki tillit til við val á for-
seta Sameinaðs Alþingis? Segjum
t.d. að núverandi menntamála-
Björn Friðfinnsson
ráðherra hefði verið forseti þess
Sameinaðs þings, er lét af störfum
í vor.
Ég tel, að eins og sakir standa,
séu handhafar forsetavalds í fjar-
veru forseta fslands aðeins tveir,
þ.e. forsætisráðherra og forseti
Hæstaréttar. Forseti Sameinaðs
Alþingis bætist þá fyrst við, er
þing það, sem við kusum í vor, vel-
ur hann úr röðum nýkjörinna
þingmanna.
Þingnefndir
í sumar var frá því skýrt í frétt-
um, að „utanríkismálanefnd"
heföi komið saman til að fjalla um
tiltekin mál.
Hvaða utanríkismálanefnd? Jú,
um var að ræða nefnd, kjörna af
því þingi, sem áður sat, þó með
þeirri breytingu, að formennska
nefndarinnar færðist yfir á vara-
formann, þar eð fyrrverandi for-
maður nefndarinnar situr ei ieng-
ur á þingi. Fyrrverandi formaður
er nú utanríkisráðherra. Væri
hann jafnframt talinn formaður
nefndarinnar, ef hann væri enn
þingmaður?
Hér er verið að búa til nýja
reglu. Nefndin hefur í fyrsta lagi
ekkert umboð og i öðru iagi er
fullkomlega óeðlilegt að lítill hóp-
ur þingmanna taki sér vald til
þess að fjalla um mál, er undir
þingið heyrir, í skjóli þeirrar sér-
stöðu sinnar umfram nýja menn á
þingi að hafa starfað á síðasta
þingi.
Ef utanríkismálanefnd á þannig
til líf eftir dauðann, hvað þá um
aðrar þingnefndir? Er nokkur
þörf fyrir hið nýkjörna þing?
Óþörf vandamál
Um framangreind álitaefni ætti
e.t.v. að fjalla sérstaklega í sam-
bandi við setningu nýrrar stjórn-
arskrár, en mér virðist þó með öllu
óþarft að þau komi upp, ef menn
gæta þess að halda þingræði
okkar í heiðri.
Vitaskuld á að kalla Alþingi
saman strax eftir kosningar. Sé
eigi búið að mynda þingmeirihluta
fyrir nýrri ríkisstjórn mætti
skapa venjur um kosningar helstu
embættismanna þingsins til
bráðabirgða og um frestun þing-
funda. En þingmeirihluti, sem
styður núverandi ríkisstjórn, er
löngu fyrir hendi og því í raun
óverjandi að draga það að kalla
Alþingi saman svo lengi sem orðið
er. Hefði Alþingi verið kallað
strax saman eftir myndun ríkis-
stjórnarinnar hefði mátt kjósa
embættismenn þess og í þing-
nefndir, en síðan hefði mátt fresta
þingfundum fram á haustið, ef það
er vilji meirihluta þingmanna.
Veljið
það besta —
Veljið
IFORMICA
- BRAND
„Formica", fyrsta efni sinnar tegundar og alltaf síöan
fremst um gæöi, útlit og endingu. Hvort sem um er
aö ræða eldhúsinnréttinguna, baöherbergiö, sól-
bekkina eöa annarsstaöar þar sem reynir á hina
níösterku húö „Formica“.
Og svo þarf ekki annað en rakan klút til aö halda öllu
hreinu. Fjölbreytt úrval af litum og mynstrum.
Lítið inn eöa hringiö.
t. ÞORSTEINSSON 8 JOHNSON H.F.
Ármúla 1 Sími 85533
Metsölublad á hverjum degi!
DÝRIR
_______OG
ÓDÝRIR
_______OG
ALLT
_____ÞAR Á
MILLI