Morgunblaðið - 21.09.1983, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 21.09.1983, Qupperneq 12
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1983 ISLAND - IRLAND íslenska landslióid í knatt- spyrnu fyrir fyrsta landsleik- inn sem var vió Dani áriö 1946. Taliö frá vinstri: Ellert Sölvason, Sæmundur Gísla- son, Þórhallur Einarsson, Al- bert Guömundsson, Haukur Óskarsson, Jón Jónasson, Sveinn Helgason, Siguröur Ólafsson, Karl Guömunds- son, Hermann Hermannsson og Brandur Brynjólfsson, fyrirliöi. Síöan kemur Sigur- jón Jónsson, línuvöröur, Th. Kristensen, dómari, og Guö- jón Einarsson, og loks danska landsliðiö. Landsleikirnir eru orðnir 143 talsins LANDSLEIKIR íslendinga í knattspyrnu í gegn um ár- in eru orðnir 143 talsins. Á morgun leika íslendingar því sinn 144. landsleik frá upphafi. Það er margs að minnast í langri lands- leikjasögu íslands í knattspyrnu og þeir eru líka orðnir margir sem þar koma við sögu. Fyrsti landsleikur ís- lands var gegn Danmörku 17. júlí árið 1946. Leikið var þá á gamla Melavellinum. Danir sigruðu í leiknum, 3—0. Undirbúningur fyrir þennan leik hjá íslenska liðinu var umtalsverður. Til dæmis fóru leikmenn liðs- ins í æfingabúðir að Kol- viðarhóli tíu dögum fyrir leikinn. Þá mun sérstakur hárskeri hafa verið fenginn til þess að snyrta hár leik- mannanna fyrir leikinn. En allt kom fyrir ekki, leikur- inn tapaðist. Af þeim 143 landsleikj- um sem við höfum spilað höfum við sigrað í 28 leikj- um, gert 21 jafntefli og tap- að 94 leikjum. Markatalan er 164 mörk skoruð en við höfum fengið á okkur 340 mörk. Þannig að mikill er nú munurinn. Flesta lands- leiki höfum við leikið gegn Norðmönnum, tuttugu tals- ins. Fimm þeirra höfum við unnið, einu sinni gert jafn- tefli en fjótán sinnum tap- að. Níu sinnum höfum við leikið við Færeyinga og ávallt sigrað. Við lögum líka markatöluna vel þegar við leikum við þá. Hún er núna 38—5 okkur í hag. Versta markahlutfall okkar er gegn Danmörku. Við höfum aðeins skorað 5 mörk gegn 54 í þeim 14 landsleikjum sem þjóðirnar hafa spilað. 11 sinnum hafa Danir sigrað en þrívegis orðið jafntefli. — ÞR. Síðasti lands- leikur íslands var gegn Hol- lendingunum, hér má sjá lid- in áöur en leik- urinn hófst. ís- lenska liöid veröur skipaö aö mestu leyti sömu mönnum í kvöld gegn ír- um. Morgunblaðid/ Þórarmi Ragnarsson „Baldur sagði að 1800 manns hefðu keypt sig inná völlinn í hálfleik“ KÍKHARÐ Jónsson frá Akranesi þarf ekki að kynna fyrir knatt- spyrnuáhugafólki. Hann var einn af gullaldardrengjum Skaga- manna í knattspyrnunni og lék 33 landsleiki fyrir ísland og enn þann dag í dag er hann marka- hæstur þeirra manna sem leikiö hafa landsleiki fyrir ísland, með 17 mörk. Viö slógum á þráöinn til hans fyrir skömmu til aö spyrja hann um knattspyrnuferill hans og möguleika íslands í leiknum við íra í dag. „Ég var valinn í fyrsta lands- lið íslands sem lék við Dani árið 1946, þá 16 ára, en lék ekki með þeim fyrr en árið eftir. Síðan lék ég með landsliðinu í 20 keppn- istímabil og lék alls 33 leiki og ég hélt að ég hefði skorað 19 mörk en skýrslur segja að þau hafi verið 17 og við látum það standa," sagði Ríkharður þegar við spurðum hvenær hann hefði leikið sinn fyrsta landsleik. Árið 1957 lék ísland í heims- meistarakeppninni við Belgíu hér í Reykjavík og tapaði, 2—5, — spjallað við Ríkarð Jónsson sem skorað hefur flest mörk fyrir íslenska landsliðið í knattspyrnu þar af eitt eftir 15 sek. en Ríkharður skoraði þá mark eftir aðeins 15 sekúndur, — já, 15 sekúndur. Um þetta segir hann: „Við byrjuðum eins og við vorum vanir. Þórður gaf á mig á miðjunni og ég sendi boltann strax á Donna, sem gefur uppí hægra hornið á Þórð sem hljóp alltaf uppt annað hvort hornið. Þórður gaf síðan fyrir markið og ég afgreiddi boltann í markið. Þetta var sú byrjun sem við not- uðum eiginlega alltaf," sagði hann, „en því miður gaf þessi ágætis leikflétta ekki alltaf af sér rnark." „í þá daga lékum við þetta 1—3 leiki á ári en í dag eru leiknir 6—8 landsleikir á ári. Þá lékum við með fimm menn í framlínunni en í dag eru þar að- eins tveir menn. Hvað hefur orðið um þá þrjá sem uppá vant- ar, jú, þeir eru komnir inní víta- teig okkar í vörn. Ef við leikum meiri sóknarleik og hefðum við fleiri framlínumenn þá fengjum við að sjá fleiri mörk í leikjum, en í dag er leikinn 60—80% varnarleikur. Ég gæti verið kominn með 150 landsleiki ef leiknir hefðu verið eins margir leikir árlega eins og gert er í dag.“ Ríkharður var 35 ára gamall þegar hann lék sinn síðasta leik með landsliðinu. Hann lék i 20 ár í því og skoraði 17 mörk og er markahæstur þrátt fyrir að nokkrir leikmenn hafi leikið fleiri landsleiki en hann, og þetta stafar af því að leikin er annars konar knattspyrna í dag fííkhardur Jónsaon akorar eitt af 17 mörkum aínum í landaleik með þrumuakalla. en gert var þá, vill Ríkharður meina. — Hverjir eru möguleikar okkar í leiknum gegn írum í dag? „Sigurmöguleikar okkar eru því miður ekki nema svona 1—2 á móti 10, en gætu verið 5 á móti 10 ef liðið okkar væri samæft eða ef hægt væri að samstilla þá á einhvern annan hátt. Á meðan leikmönnum er hóað saman eins og gert er í dag er ekki hægt að vonast eftir góðum árangri. Ég tel ekki rétt að verið sé að kalla á leikmenn sem leika daginn áð- ur, eru jafnvel meiddir og alla- vega mjög þreyttir eftir ferðalög og leik daginn áður. Leikmenn hafa rétt tíma til að reima á sig skóna áður en þeir fara inná völlinn. Þrátt fyrir að þetta séu atvinnumenn þá tel ég þetta al- rangt. Það er ekki nóg að vera með atvinnumannastimpil til að komast í landsliðið. Ég vil að byggt sé á leikmönnum hér heima og notaðir 2—4 atvinnu- menn til að styrkja liðið og helst á landsliðið að vera skipað leik- mönnum úr tveimur eða þremur liðum því þá er hægt að tala um samæfðan hóp, en fyrr ekki,“ sagði Ríkharður og nefndi leik-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.