Morgunblaðið - 21.09.1983, Side 13
45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1983
Sigurdur Jónsson, IA. Yngsti leik-
madurinn sem spilad hefur med ís-
lenska landsliðinu í knattspyrnu.
íalandsbikarinn er í höfn. Ríkharði, sem er á miðri myndinni, er óskaö
til hamingju þar sem hann gengur af leikvelli.
inn við Holland sem dæmi um
það sem hann væri að tala um.
— Eftirminnilegasta markið
og eftirminnilegasti leikurinn?
„Landsleikirnir við Svía eru
ofarlega, en leikirnir við Ira
voru líka góðir. Eftirminnileg
mörk? Ætli markið sem ég skor-
aði í leik við Noreg sé ekki einna
eftirminnilegast. Ég skaut
svona 6 metra fyrir utan víta-
teig og boltinn lenti í þverslánni
og þaðan út í teig aftúr. Ég hafði
hlaupið inní teiginn eftir að ég
skaut og fékk boltann beint í
höfuðið á vítapunktinum og það-
an fór hann í netið. Þegar við
unnum Noreg hér 1959 skoraði
ég líka mark sem ég man alltaf
eftir. Örn Steinsen gaf fyrir frá
hægri kanti og ég skallaði í
markið, en markið var dæmt af
einhverra hluta vegna þannig að
við Örn endurtókum þetta
stuttu síðar, svo til alveg eins og
þá var það löglegt. Einn eftir-
minnilegur leikur með Skaga-
mönnum var þegar við lékum
við Rínarúrvalið hér heima. Við
vorum 3—0 yfir í hálfleik og
unnum 5—0 og Baldur hefur
sagt mér að 1800 manns hafi
keypt sig inn í hálfleik," sagði
Ríkharður að lokum. — SUS.
Ríkarður
skoraði
eftir 15 sek.
Ríkharður Jónsson á merkilegt
met í landsleik. Hann skoraði
mark eftir aðeins 15 sek. í lands-
leik gegn Belgum á Laugardals-
vellinum 1957. ísland tapaði í
leiknum 2—5. Þórður Þórðarson
skoraði hitt markið. Enginn hefur
skorað fleiri mörk en Ríkharður í
landsleikjum. Ríkharður skoraði
17 mörk í þeim 33 leikjum sem
hann spilaði. — ÞR
Átta nýliðar
í landsliðinu
Það er ekki oft sem átta nýliðar
eru í landsliði. En þannig var það
er íslenska landsliðið lék gegn
Wales árið 1966 á Laugardalsvell-
inum. Nýliðarnir náðu jafntefli í
leiknum, 3—3. Wales var ávallt á
undan að skora í leiknum en alltaf
náði ísland að jafna. Fyrst jafnaði
Jón Jóhannsson frá Keflavík, síð-
an Ellert B. Schram og síðasta
markið gerði Hermann Gunnars-
son, og var það einkar glæsilegt.
Hermann lék í gegnum vörn Wal-
es og skoraði með þrumuskoti efst
Átta KR-ingar
í landsliðinu
KR-ingar áttu stóran hlut í
landsliðinu árið 1963, þegar leikið
var gegn Englandi í London. Þá
voru átta KR-ingar í landsliðinu.
Þar af þrír bræður sem allir voru
snjallir knattspyrnumenn. Það
voru þeir Hörður Felixson, Gunn-
ar Felixson og Bjarni Felixson.
Ekki gekk liðinu sem best í leikn-
um og tapaðist leikurinn 0—4. í
búningsklefanum eftir leikinn
varð einum KR-ingnum að orði:
„Hvernig eiga átta KR-ingar að
geta sigrað ellefu Englendinga í
landsleik." __ ÞR.
Ellert skoraði
sigurmarkið
Núverandi formaður KSÍ, Ellert
B. Schram, var mjög góður knatt-
spyrnumaður á sínum tíma og
spilaði 24 landsleiki. Ellert var níu
sinnum fyrirliði á leikvelli og
skoraði sex mörk í landsleikjum
þrátt fyrir að hann léki yfirleitt
sem varnarmaður. Árið 1964 skor-
aði Ellert sigurmark íslands gegn
Bermuda á Laugardalsvellinum.
ísland sigraði 4—3, Ellert skoraði
sigurmarkið 3 mínútum fyrir
leikslok með þrumuskalla. Hann
var þá búinn að skora eitt mark
áður mjög laglega. Hin mörkin tvö
sem ísland gerði skoraði Þórólfur
Beck, en hann lék þá með skoska
liðinu St. Mirren. — ÞR.
Gunnar nýliði
skoraði tvö
Gunnar Felixson, sem lék sem
nýliði í landsliðinu gegn Hollend-
ingum árið 1961, skoraði tvö mörk
í sínum fyrsta landsleik. ísland
tapaði 4—3 á Laugardalsvellinum.
En það er ekki á hverjum degi sem
nýliðar í landsliði vinna svona af-
rek. _ ÞR.
Fyrsd landsleikurinn:
Áhlaup eru öll losara-
leg og rekin áfram
með löngum spyrnum
FRÍMANN heitinn Helgason, íþróttafréttaritari um langt
árabil, fjallaði þannig um fyrsta landsleik íslands í knatt- -
spyrnu:
„Danir hófu þegar sókn, sem
endaði með ágætum skalla er Her-
mann bjargar. Nokkru síðar gera
íslendingar áhlaup á mark Dana,
Sveinn Helgason kemst í dauða-
færi, en skaut fyrir ofan og þar fór
einasta tækifærið sem Islandi
gafst í þessum leik.
Þegar 5 mínútur voru af leik er
dæmd aukaspyrna á ísland.
Lingsaa spyrnir fyrir mark, en þar
tekur á móti honum Karl A. Han-
sen, og spyrnir óverjandi í mark.
Næstu mínúturnar liggur meira á
íslendingum og sýna Danir oft
sérlega góðan leik. fslendingar
gera þó strjál áhlaup en þau eru
öll losaraleg og rekin áfram með
löngum spyrnum, án þess um sam-
leik væri að ræða. Ellert komst þó
tvisvar allnærri, en skaut í annað
skiptið fyrir ofan, en markmaður
Dana getur bjargað í horn.
í síðari hluta hálfleiksins gera
Danir mörg góð áhlaup en engin
þeirra tækifæra notuðust.
Síðari hálfleikur var mun ójafn-
ari og lá oftast á íslendingum.
Þeir náðu aldrei tökum á leiknum
og samleik var varla að sjá. „Upp-
dekningar" við innköst eða í ann-
an tíma voru fátíðar nema hjá öft-
ustu vörninni. Danir náðu nú enn
betri tökum á leiknum en áður, og
var unun að horfa á samleik
þeirra og skiptingar.
Samstarf þeirra framvarðanna,
Ivan Jensen og K. Lundberg, við
framherjana var framúrskarandi,
enda gátu þeir truflunarlítið farið
sínu fram, hvoki framverðir okkar
né innherjar virtust hafa þar mik-
ið að segja.
Byggðu þeir sóknina upp með
lágum, stuttum spyrnum. Það var
þó ekki fyrr en 25 mín. eru af leik
þegar 2. markið kemur, er það Kaj
Kristensen, sem það gerir, og litlu
síðar gerir L. Sörensen þriðja
markið með hörðu skoti."
Marteinn Geirsson,
Fram, hefur leikiö
flesta landsleiki meö
íslenska landsliðinu
eða 67 talsins. Þessi
mjög svo trausti varn-
armaður stóð alltaf vel
fyrir sínu í landsleikj-
um og stjórnaði vörn
liðsins af mikilli festu.
Marteinn var 22 sinn-
um fyrirliði liðsins ó
leikvelli. Marteinn lék
sinn síðasta landsleik
i fyrra, þá gegn
Spánverjum í Malaga.
Þeir hafa leikið
flesta landsleiki
EFTIRTALDIR leikmenn hafa
leikið flesta landsleiki í knatt-
spyrnu: Marteinn Geirsson,
Fram/Royal Union, 67, Matthías
Hallgrímsson, ÍA/Halmia, 45,
Árni Sveinsson, ÍA, 39, Guðgeir
Leifsson. Víkingi, 39, Teitur Þórð-
arson, I A/Jönk./Öster/Lens, 37,
Rikharður Jónsson, ÍA, 33, Jó-
hannes Eðvaldsson, Valur/Hol-
bæk/Celtic/Motherwell, 33, Atli
Eðvaldsson, Valur/I)ortm./Fort.
Dusseld., 33, Ásgeir Sigurvinsson,
ÍBV/St. Liege/Stuttgart, 32,
Guðni Kjartansson, ÍBK, 31, Ás-
geir Elíasson, Fram/Þróttur, 30,
Olafur Sigurvinsson, ÍBV, 30, Gísli
Torfason, ÍBK, 29, Eyleifur Haf-
steinsson, lA/KR, 26, Guðmundur
Þorbjörnsson, Val, 26, Jón Pét-
ursson, Fram/Jönköping, 26, Við-
ar Halldórsson, FH, 26, Janus
Guðlaugsson, FH/Fort. Köln, 25,
Ilelgi Daníelsson, Valur/lA, 25,
Ellert B. Schram, KR, 24, Jóhann-
es Atlason, Fram, 24, Elmar
Geirsson Fram/I lertha/Trier/
KA, 2:1, Örn Öskarsson, IllV/Ör-
gryte, 23, Sveinn Teitsson, IA. 22.