Morgunblaðið - 21.09.1983, Side 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1983
ÍSLAND - ÍRLAND
Eftirminnilegir
landsleikir í
gegnum árin
ÞEIR ERU nokkrir landsleikirnir í
sögu íslands sem eru mjög eftir-
minnilegir vegna sérlega góðrar
frammistöðu landsliðsmannanna, og
jafnframt vegna þess hve úrslit leikj-
anna komu á óvart og vöktu mikla
athygli.
Fyrst ber að nefna leikinn gegn
Svíum hér heima 29. júní árið
1951. Þá sigraði fsland 4—3. Hetja
íslenska liðsins var Ríkarður
Jónsson, sem skoraði öll mörkin
fjögur. Það var ekki lítið afrek í þá
daga að leggja sænska liðið að
velli.
Fjórða júlí 1954 sigruðum við
Norðmenn hér heima 1—0, og
sama ár, 24. ágúst, töldust Svíar
heppnir að sigra okkur 4—3 á
heimavelli sínum. Staðan var 2—2
rétt fyrir leikslok.
Árið 1959 var gott ár fyrir
landsliðið, þá sigraði liðið Norð-
menn hér heima 1—0 og gerði síð-
an jafntefli við Dani í Kaup-
mannahöfn, 1—1. íslenska liðið
var þá nálægt því að sigra Dani.
Aðeins átta mínútum fyrir leiks-
lok náðu Danir að jafna leikinn
með marki frá Henning Enoksen
sem síðar varð landsliðsþjálfari
Islands. Það var Sveinn Teitsson
sem skoraði mark íslands.
19. júní 1961 sigraði fsland Hol-
land í Laugardalnum 4—3 í mjög
skemmtilegum leik. Næsti sigur í
landsleik á heimavelli kom svo
ekki fyrr en árið 1964 er við sigr-
uðum Bermuda með sömu marka-
tölu, 4—3. Núverandi formaður
KSf skoraði þá sigurmark fslands.
Árið 1967 gerðum við jafntefli á
heimavelli gegn Spánverjum,
1—1, en það sama ár fékk liðið
sinn stærsta skell í sögunni. Við
töpuðum 2—14 eins og frægt er
orðið gegn Dönum í Kaupmanna-
höfn.
Sigur vannst í landsleik hér
heima gegn Norðmönnum árið
1970, 2—0, og þá var það útvarps-
maðurinn Hermann Gunnarsson
sem skoraði bæði mörk fslands á
glæsilegan hátt.
Árið 1974 unnum við einn af
okkar stærstu sigrum er við gerð-
um jafntefli á útivellil á móti
Austur-Þjóðverjum í Magdeburg,
1—1. Matthías Hallgrímsson skor-
aði mark fslands. f þessum leik
átti Teitur Þórðarson þrumuskot í
stöngina. Þessi árangur íslenska
liðsins vakti mikla athygli. Og í
kjölfarið kom góður árangur.
Jafntefli gegn Frökkum 0—0 í
Reykjavík, sigur á Austur-Þjóð-
verjum á heimavelli 2—1, senni-
lega með stærri leikjum í íslenskri
knattspyrnusögu.
Árið 1977 unnum við Norður-íra
1— 0 í Laugardalnum. Mark ís-
lands skoraði Ingi Björn Alberts-
son. Norðmenn sigruðum við svo
2— 1 í sama mánuði, og þá skoraði
Ingi aftur.
Árið 1980 spilaði landsliðið svo
góðan leik í Svíþjóð og náði jafn-
tefli, 1—1, gegn heimamönnum.
24. september sama ár vann liðið
glæsilegan sigur á Tyrkjum í
Ingi Björn Albertsson
lengst til vinstri, fagnar
marki sínu í leiknum við
N.-íra árið 1977. Pat Jenn-
ings markvörður íra, sem
er enn í fullu fjöri eins og
Ingi Björn,
Tyrklandi, 3—1, öll voru mörk Is-
lands glæsilega skoruð, og verða
lengi í minnum höfð. Aftur unnum
við Tyrki og nú á heimavelli 2—0
árið 1981. I sama mánuði gerðum
við jafntefli við Tékka á heima-
velli, 1—1, og sýnt þótti að engin
stórþjóð í knattspyrnu getur verið
örugg með að vinna sigur á litla
íslandi.
í október, nánar tiltekið 14.,
sama ár gerði landsliðið jafntefli,
2—2, í Wales við Swansea. Ásgeir
Sigurvinsson skoraði bæði mörk-
in. Lið fslands fékk lofsverð um-
mæli í erlendum blöðum fyrir
frammistöðu sína.
2. júní 1982 komu allir bestu at-
vinnumenn Englands til íslands
og léku hér landsleik, leiknum
lauk með jafntefli, 1—1. Enn einn
sigur fyrir landann gegn stórþjóð í
knattspyrnu. 1. september sama
ár gerðu Hollendingar með sitt
sterka lið jafntefli, 1—1, við fs-
land á Laugardalsvellinum. þp
Þeir hafa
skorað mörk
Islands
Nafn IVfðrk
Ríkarður Jónsson 17
Matthías Hallgrímsson 11
Þórður Þórðarson 9
Teitur Þórðarson 8
Marteinn Geirsson 8
Ellert B. Schram 6
Hermann Gunnarsson 6
Ásgeir Sigurvinsson 5
Guðmundur Þorbjörnsson 5
Atli Eðvaldsson 5
Eyleifur Hafsteinsson 4
Þórólfur Beck 4
Árni Sveinsson 4
Sigurður Grétarsson 4
Tómas Pálsson 3
Lárus Guðmundsson 3
Erlingur Kristjánsson 3
Albert Guðmundsson 2
Sveinn Teitsson 2
Gunnar Guðmannsson 2
Þórður Jónsson (í A) 2
Steingrímur Björnsson 2
Gunnar Felixson 2
Magnús Torfason 2
Elmar Geirsson 2
Jóhannes Eðvaldsson 2
Ingi Björn Albertsson 2
Sigurlás Þorleifsson 2
Pétur Pétursson 2
Janus Guðlaugsson 2
Óli Þór Magnússon 2
Sæbjörn Guðmundsson 2
Halldór Halldórsson 1
Reynir Þórðarson 1
Gunnar Gunnarsson 1
Helgi Björgvinsson 1
Sveinn Jónsson 1
Örn Steinsen 1
Garðar Árnason 1
Baldvin Baldvinsson 1
Jón Jóhannsson 1
Kári Árnason 1
Helgi Númason 1
Björn Lárusson 1
Steinar Jóhannsson 1
Ólafur Júlíusson 1
Kristinn Björnsson 1
örn Óskarsson 1
Ásgeir Elíasson 1
Hörður Hilmarsson 1
Ólafur Danivalsson 1
Albert Guðmundsson 1
Páll Ólafsson 1
Guðmundur Steinsson 1
Magnús Bergs 1
Pétur Ormslev 1
Heimir Karlsson 1
Arnór Guðjohnsen 1
Gunnar Gíslason 1
Ragnar Margeirsson 1
Sjálfsmark 1
Þeir bræður Atli Eðvaldsson og Jó-
hannes Eðvaldsson hafa leikið oft
saman í landsliði. Þaö er skemmti-
leg tilviljun að þeir bræður hafa
leikið jafnmarga landsleiki eða 33.
Þeir verða báöir í landsliöi íslands í
dag, sem mætir írum á Laugardals-
vellinum.
Morgunblaðið/Þórsrinn Ragnarsaon.
Landsleikir íslands
í knattspyrnu
Landsleikir íslands 1946—1982
Land Leikir Heima Úti U J T Mörk
Austurríki 1 1 0 0 0 1 3- -4
Belgía 8 4 4 0 0 8 5- -29
Bermuda 3 2 1 2 0 1 8- -7
Danmörk 14 8 6 0 3 11 12- -54
England 9 6 3 0 2 7 5- -23
Finnland 8 4 4 1 2 5 9- -14
Frakkland 9 5 4 0 2 7 3- -23
Færeyjar 9 4 5 9 0 0 38- -5
Grænland 1 1 0 1 0 0 4- -1
Holland 9 5 4 1 1 7 7- -32
írland 5 3 3 0 2 4 6- -12
Kuwait 1 0 1 0 1 0 0- -0
N.-írland 2 1 1 1 0 1 1- -2
Japan 1 1 0 0 0 1 0- -2
Luxemburg 1 1 0 1 0 0 3- -1
Malta 2 1 1 1 0 1 2- -2
Noregur 20 10 10 5 1 14 20- -47
Nígería 1 1 0 1 0 0 3- -0
Pólland 2 1 1 0 0 2 0- -4
Skotland 1 1 0 0 0 1 0- -1
Spánn 4 2 2 0 1 3 4- -8
Sviss 2 1 1 0 0 2 1- -4
Svíþjóð 6 3 3 1 1 4 7- -13
Tékkóslóvakía 2 1 1 0 1 1 7- -2
Tyrkland 2 1 1 2 0 0 5- -1
USA 2 2 0 1 1 0 3- -2
USSR 4 2 2 0 0 4 1- -10
V.-Þýskaland 3 3 0 0 0 3 2- -11
Wales 3 2 1 0 2 1 5- -9
Þýska alþýðulýðv. 7 5 2 1 1 5 5- -13
143 82 61 28 21 94 164- -341
Fyrsti sigurinn
Fyrsti sigur íslands í landsleik í knattspyrnu var gegn
Finnum 2. júní árið 1948 á Melavellinum. ísland sigraði,
2—0, og skoraði Ríkharður Jónsson bæði mörk íslands.
Þau voru skoruð með þriggja mínútna millibili á 84. og 87.
mínútu leiksins.
— ÞR.