Morgunblaðið - 21.09.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1983
47
Spenna í sídustu umferð-
unum á Chicago-mótinu
Skák
Margeir Pétursson
Síðari grein
Þegar fimm umferöir höfðu ver-
ið tefidar á Chicago-mótinu var
keppendum loks gefiö frí í einn
dag. Þaö kom okkur að góðum not-
um eftir hina hörðu viðureign við
Englendinga og nú loks gátum við
farið að skoða okkur dálítið um í
Chicago. Við bjuggum á alþjóðleg-
um stúdentagarði við háskóla
borgarinnar og var tefit á sama
staö. Chicago-háskólinn er senni-
lega þekktastur fyrir það að þar
var fyrsta kjarnorkusprengjan
smíðuð og um þessar mundir er
unnið við að skipta um allar inn-
réttingar í byggingunum þar sem
smíðin fór fram vegna geislavirkni
sem mælst hefur í þeim.
Á frídeginum vorum við undir
leiðsögn Kára Stefánssonar,
taugalæknis við háskólann, og
sýndi hann okkur fyrst háskóla-
svæðið en fór síðan með okkur
niður í miðbæ þar sem gefur
m.a. að líta hæstu byggingu
heims, Sears-turninn. Kári kom
á mótið á hverjum degi og
reyndist islensku sveitinni betri
en enginn, því hann hafði jafnan
hvatningarorð á reiðum höndum
þegar erfiðar biðskákir voru að
kaffæra sveitina.
Nú var orðið ljóst að Rússar
myndu verða langefstir á mótinu
og jafnframt að baráttan um
annað sætið, á milli okkar,
Bandaríkjamanna, Englendinga,
V-Þjóðverja og Kínverja yrði
mjög hörð.
ísland — Kína 2—2
Margeir — Li V2 — V2
Jóhann — Liang 1—0
Karl-Ye Vi—Vís
Elvar — Ma 0—1
Af biturri reynslu hafa ís-
lenskir skákmenn lært að um-
gangast Kínverja með varúð og
við einsettum okkur því að tefla
af mikilli gætni í sjöttu umferð-
inni. Mér tókst ekki að finna
snöggan blett á Li, efnilegum
skákmanni sem stuttu áður
hafði lagt Jusupov að velli og
skákin fjaraði fljótiega út í jafn-
tefli.
Skák Jóhanns Hjartarsonar
var mjög skemmtileg, því sú var
tíðin hér einu sinni að Kínverjar
þekktu lítið til fræðanna en lifðu
á brögðum og brellum. Nú virð-
ist hins vegar annað upp á ten-
ingnum, þeir kunna orðið heil-
mikið í byrjunum og strategíu og
af skák Jóhanns að dæma virðist
þessi nýja þekking þeirra hafa
komið nokkuð niður á auga
þeirra fyrir fléttum:
Hvítt: Liang (Kína)
Svart: Jóhann Hjartarson
Frönsk vörn
1. e4 — e6, 2. d4 — d5, 3. Rd2 —
Rf6, 4. eS — Rfd7, 5. Bd3 — c5, 6.
c3 — Rc6, 7. Re2 — cxd4, 8. cxd4
— f6, 9. exf6 — Rxf6, 10. 0-0 —
Dc7,11. Rf3 — Bd6,12. Rc3 — a6,
13. Bg5 — 0-0, 14. Bh4 — g6!?, 15.
Hel?!
Öruggara er 15. Bg3. Nú nær
svartur sóknarfærum.
15. — Rh5!, 16. Hcl — Dg7, 17.
Bfl — Bd7, 18. Ra4 — Hxf3!, 19.
gxf3
Eftir 19. Dxf3? — Dxd4 fellur
riddarinn á a4 eða biskupinn á
h4. Nú fær svartur vænlega
stöðu fyrir skiptamuninn.
19. — Rxd4, 20. Rc5 — Hf8, 21.
Bg2 — Bc8, 22. Bg3 — Rf4, 23. b4
— g5, 24. a3 — Rf5, 25. Rd3 —
Kh8, 26. Khl — Hg8, 27. Hgl??
Þessi hræðilegi afleikur kem-
ur á óvart því Kínverjar hafa al-
mennt mjög næma tilfinningu
fyrir hvers konar fléttustefum.
27. — Rxd3, 28. Dxd3 — Bxg3
Ef nú 28. fxg3? þá Rxg3+!, 29.
hxg3 — Dh6+ og mátar. Hvítur
inni.
29. Bh3 — Bf4, 30. Hc5 — Bd6, 31.
Hc2 — De5, 32. f4 — Dxf4, 33. f3
— Re3, 34. Hf2 — Bd7, 35. Dd2 —
Hc8, 36. Hcl — Hxcl+, 37. Dxcl
— Rg4! og hvítur gafst upp.
Karl hafði nú hvítt í fyrsta
sinn á mótinu, en fékk þó slæma
stöðu eftir byrjunina. En Kín-
verjinn reyndist of bráður á sér
og með laglegri fléttu tókst Karli
að snúa skákinni sér í vil. Þegar
hún fór síðan í bið hafði hann
peði meira og vinningslíkur, en
um kvöldið urðu honum á mistök
í úrvinnslunni og Kínverjinn
náði að rétta úr kútnum.
Elvar átti slæman dag. Hann
var nú með svart í fyrsta skipti
og eftir að honum láðist að
skipta upp á liði í miðtaflinu
reyndist sókn Kínverjans
óstöðvandi.
Bandaríkin — ísland 2‘/2— 1 '/2
Kudrin — Margeir V2 — V2
Jón — Federowicz xk — V2
Wilder — Jóhann 1—0
Whitehead — Karl lk — 'k
Loksins tapaðist viðureign, en
með minnsta mun. Snemma
skiptist upp á drottningum í
skák Karls og þáði hann síðan
jafnteflisboð andstæðingsins
enda lítið að hafa í stöðunni.
Jóhann leyfði Wilder að fórna
manni í mjög tvísýnu afbrigði af
drottningarbragði. Fyrst í stað
virtist kóngsstaða Jóhanns
traust, en Bandaríkjamaðurinn
tefldi sóknina af miklu harð-
fylgi. Smávægileg mistök af
hans hálfu hefði snúið dæminu
við og gagnsókn Jóhanns hefði
orðið á undan. En vogun vinnur,
vogun tapar og Wilder uppskar
sigur í frábærri skák sem áhorf-
endur kunnu vel að meta.
Skák Jóns við Federowicz varð
snemma flókin og eyddu báðir
drjúgum tíma. í endatafli skipt-
ust þeir síðan á mistökum, fyrst
missti Jón af mjög vænlegri leið
og strax á eftir sást Bandaríkja-
manninum yfir banvænan milli-
leik. Jafntefli voru því eftir at-
vikum réttlát úrslit.
Ég fékk mjög þrönga og erfiða
stöðu út úr byrjuninni og eftir
laglega fléttu Kudrins fyrir bið
virtist biðstaðan vonlítil. En
biðstöðurannsóknir Bandaríkja-
mannanna voru greinilega ekki
upp á marga fiska, því Kudrin
valdi fljótlega ranga áætlun og
um síðir tókst mér að hanga á
jafntefli.
V-Þýzkaland — ísland 2—2
Lobron — Margeir 1—0
Bischoff — Jón L. 0—1
Lau — Jóhann V2 — '/2
Grzesik — Elvar 'k — lk
Við fengum óskabyrjun í þess-
ari umferð en Jón náði að snúa á
alþjóðameistarann Bischoff í að-
eins 20 leikjum. Elvar vann peð
snemma skákarinnar, en mislitir
biskupar komu í veg fyrir að
hann gæti fært sér það í nyt. í
tímahraki átti Elvar þó rakinn
vinning eftir slæma afleiki Þjóð-
verjans en náði ekki að notfæra
sér það. Jóhann lék af sér í byrj-
uninni og virtist vera með gjör-
tapað tafl. En Þjóðverjinn lét
vinninginn vefjast fyrir sér og
þótt Jóhann yrði að láta drottn-
inguna af hendi fyrir hrók og
biskup reyndist jafnteflið í ör-
uggri höfn þegar skákin fór í bið.
Eg fékk ágæta stöðu gegn
stórmeistaranum Lobron en lék
herfilega af mér í síðasta leik
fyrir bið og tapaði peði. Lenti ég
því rétt einu sinni í erfiðri vörn
og eftir að skákin hafði farið tví-
vegis í bið missti ég af einu leið-
inni til jafnteflis.
Þegar viðureigninni við Þjóð-
verja var iokið höfðum við mætt
öllum helstu keppinautum okkar
og vorum því vongóðir því sumir
keppinautar okkar áttu enn eftir
að tefla innbyrðis.
ísland — Bandaríkin B 2'/2—V/2
Margeir — Rizzitano 1—0
Jón L. — McCambridge 'k — '/2
Jóhann — Brooks 1—0
Karl — Youngworth 0—1
Aftur fengum við óskabyrjun,
því Rizzitano reyndist illa heima
í byrjuninni og varð að gefast
upp eftir aðeins 20 leiki og
fimmtíu mínútna taflmennsku.
Eini alþjóðameistarinn í banda-
ríska B-liðinu, Vincent McCam-
bridge, tók enga áhættu gegn
Jóni eftir að hafa séð útreið fé-
laga síns og sömdu þeir fljótlega
jafntefli.
Jóhann náði snemma yfir-
burðastöðu og tókst að halda ör-
Elvar Guðmundsson tefldi af
miklu öryggi í lok mótsins og vann
tvær síðustu skákir sínar.
uggu taki þó andstæðingi hans
tækist að ná mótspili með ör-
væntingarfullri mannsfórn. Karl
tefldi stíft til vinnings með
svörtu og átti um tíma vænlega
stöðu, en í tímahraki rann sókn-
in út í sandinn.
Það háði báðum bandarísku
sveitunum verulega að raðað var
í þær eftir bandaríska skák-
stigalistanum en ekki þeim al-
þjóðlega. Menn með litla reynslu
voru því á efstu borðunum, Joel
Benjamin í A-sveitinni og Rizz-
itano og Root í B-sveitinni og
voru fyrirliðar sveitanna í eilíf-
um vandræðum með liðsuppstill-
inguna.
Sviss — ísland ‘/2—3‘/2
Gobet — Margeir 0—1
Trepp — Jón 0—1
Zúger — Jóhann Vfe — l/z
Beat Zúger var sá Svisslend-
ingur sem hafði staðið sig bezt á
mótinu og Jóhanni var því falið
að tefla af öryggi með svörtu.
Fljótlega var samið jafntefli í
þeirri skák og reyndist þetta
herbragð vel því þeir Jón og Elv-
ar unnu örugga sigra með hvítu.
Skák mín fór í bið og varð niður-
staðan úr rannsóknunum sú að
ekkert væri út úr henni að hafa
nema jafntefli. Andstæðingur
minn lét framhaldið þó vefjast
fyrir sér og ákvað illu heilli að
verjast í hróksendatafli með peði
minna. Við fyrstu sýn virtist sú
staða dautt jafntefli en mér
tókst að finna áætlun sem
Svisslendingurinn átti ekkert
svar við. Stórsigur okkar var því
staðreynd og möguleikar á öðru
sætinu góðir, því við höfðum
vinnig fram yfir V-Þjóðverja
fyrir síðustu umferðina.
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: Trepp (Sviss)
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. d4 —
cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — d6,
6. Bg5
Rauzer-árásin.
6. — e6, 7. I)d2 — a6, 8. 04M) —
h6, 9. Be3 — Bd7
Trepp hefur mjög ákveðnar
skoðanir um hvernig tefla skuli
þetta afbrigði, en 9. — Rxd4, 10.
Bxd4 — b5 gefur sennilega meiri
horfur á mótspili.
10. f3 — b5,11. g4 — Dc7, 12. Hgl
— Re5, 13. h4 — b4, 14. Rbl —
Rc4, 15. Bxc4 — Dxc4, 16. g5 —
Hxg5, 17. hxg5 — Rg8, 18. b3 —
Dc7, 19. g6 - f6, 20. f4 - Db7
Trepp hefur endurtekið skák
sina við Rússann Dolmatov úr
annarri umferð mótsins. Dolm-
atov lék þá 21. Dg2 og vann, en
Jón finnur enn sterkari leið.
Jóhann Hjartarson náði öðrum
áfanga sínum að alþjóðlegum
meistaratitli í Chicago. Hér virðir
hann andstæðing sinn, Kínverjann
Liang, fyrir sér einbeittur á svip.
21. e5! — dxe5, 22. fxe5 - f5
Eftir 22. - fxe5? er 23. Rf3
mjög sterkt.
23. Rf3 — Bc6, 24. Rg5 — Bd5, 25.
Hg3 — Re7?
Betra var 25. — Rh6 því nú
tapar svartur skiptamun.
26. Rf7 — Rxg6, 27. Rxh8 — Rxh8,
28. Kb2 — Hc8, 29. c4! — Be4, 30.
Dh2 - Rf7, 31. Hg6 — Dc6, 32.
Bf4 - Hd8, 33. Hxd8+ — Kxd8,
34. Rd2 — Bd3, 35. Df2 — Bc5, 36.
Dh4+ — Kc8, 37. Hxg7 — Rd8,
38. Dh8 — Bd4+, 39. Kcl — Bc3,
40. Hg8 — Db6, 41. c5! og í stað
þess að setja skákina í bið gafst
Trepp upp.
Finnland — ísland l'/r—2'A
Yrjola — Margeir 1—0
Valkesalmi — Jón L. '/2 — V2
Paavilainen — Jóhann 0—1
Kekki — Elvar 0—1
Elvar og Jóhann unnu báðir
mjög örugglega þannig að þessi
sigur yfir Finnum hefði vel get-
að orðið stærri. Jón lék
skemmtilega á andstæðing sinn í
byrjuninni, sem var kóngsbragð,
og virtist aðeins tímaspursmál
hvenær Finninn gæfist upp.
Honum tókst þó að þvælast fyrir
og í tímahraki skeði óhappið;
Jón endurtók leiki til þess að
vinna tíma og koma skákinni í
bið, en gætti þess ekki að sama
staðan kom upp þrisvar og þá
krafðist Finninn auðvitað jafn-
teflis, en á borðinu var staða
Jóns unnin.
Ég tefldi meira af kappi en
forsjá með svörtu því með vinn-
ing í þessari skák hefði ég náð
áfanga að stórmeistaratitli.
Lengi vel var staðan í járnum en
í tímahraki lék ég af mér skipt-
amun á mjög klaufalegan hátt er
ég lét loka inni hrók á miðju
borði. í úrvinnslunni urðu Finn-
anum fyrst á mistök, en þá lagð-
ist hann í djúpa þanka og inn-
byrti vinninginn síðan óað-
finnanlega.
Það kom okkur mjög á óvart
að þessi sigur yfir Finnum dugði
ekki til þess að halda V-Þjóð-
verjum í skefjum, því þeir gjör-
sigruðu heillum horfna Englend-
inga 3'k — '/2.
OPID TIL SJÖ1KVÖLD rv< Yörumarkaðurinnhf. e/ðistörgm
mánudaga — þriðjudaga — — miövikudaga