Morgunblaðið - 21.09.1983, Page 19

Morgunblaðið - 21.09.1983, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1983 51 fclk í fréttum Játvarður í ströngum skóla % + Edward prins, eöa Játvaröur eins og hann heitir á íslenskri tungu, yngsti sonur Elísabetar Englandsdrottningar, fær aö kynnast því þessa dagana hvaö hermennska er. Hann hefur veriö skráöur f landgönguliöasveitir breska hersins og þar er engin miskunn hjá Magnúsi, hvort sem um er aö ræöa kotunga eöa kóngafólk. Fyrstu nóttina, sem Játvaröur svaf í hermannaskálunum í Lympstone í Devon, var hann rif- inn upp úr rúminu klukkan 3 um nóttina, skipað aö klæöa sig úr náttfötunum og rekinn út í myrkr- iö. Þar var hann látinn velta sér upp úr mykjuhaug og síöan kast- aö ofan í stóran tank meö ís- köldu vatni þar sem hann mátti svamla í tíu mínútur. „í gegnum þetta verða allir nýliöar aö ganga, prinsar eða ekki prinsar,“ sagöi búöaforing- inn. Játvaröur er raunar liösforingi af annarri gráöu en þeirri tign getur hann aöeins flaggaö utan búöanna. Innan múranna, eöa gaddavírsins, er hann bara réttur og sléttur eins og hinir. Hann mátti til dæmis láta þaö veröa sitt fyrsta verk þegar hann kom í búðirnar aö setjast í rakarastól- inn þar sem hárskerinn kom lokkunum hans fyrir kattarnef á fljótlegan hátt. „Þaö getur veriö aö hann eigi eftir aö sjá eftir þeim en í þessari þjálfun, sem hann er nú, á hann eftir aö óska sér þess aö vera sköllóttur," sagöi einn foringj- anna og talaöi þar af eigin reynslu. Játvaröur tilheyrir landgöngu- liössveitum flotans eins og áöur segir en mun þó ekkert tækifæri fá til aö busla í sjónum. Hann er nefnilega í „landkrabbadeildinni" og dálítiö strítt á því af bræörum sínum, Karli og Andrew, sem báöir hafa veriö til sjós. Sann- leikurinn er þó sá, aö áöur en lýkur mun Játvaröur hafa fengiö miklu meiri og strangari þjálfun en bræður hans. * + Játvarður prins, sem hér er aftast á myndinni, gengur nú í gegnum strangan skóla hjá „landkrabbadeild" landgöngu- liðanna. „Engan blaðamanna- fund hér“ + Leikkonan Brooke Shields kvaddi hvíta tjaldiö fyrir tveimur árum eins og kunnugt er og tók aftur upp þráöinn þar sem frá var horfiö viö námsbækurnar. Hún ieggur nú stund á nám viö Princ- eton-háskólann í Bandaríkjunum en áöur en hún kom þangaö til- kynnti hún, aö þar ætlaöi hún aö halda blaðamannafund. Af því varö þó ekki þar sem háskólarekt- or bannaði þaö. „Viö erum ekkert að hnýsast í fortíö unga fólksins, sem hér er viö nám, en þaö veröur þó aö hlíta vissum reglum. í þeim er t.d. hvergi gert ráð fyrir, aö nemendur séu meö blaöamannafundi í skól- anum,“ sagöi rektor og rak í burt 100 blaöamenn, sem komnir voru á fundinn fyrirhugaöa. Varalitnum haldið í skefjum + Sérfræöingarnir hjá Elizabeth Arden-snyrtivörufyrirtæk- inu eru nú aö koma fram meö krem, sem þeir kalla „Lip-Fix“ og segja „mikla framför í umönnun varanna". í Bandaríkjunum hefur þessu nýja kremi veriö tekiö fagn- andi og rennur þaö út eins og heitar lummur. Venjulegur varalitur vill oftastnær renna út í smáhrukkur kringum munninn en þetta nýja krem kemur í veg fyrir þaö og liturinn helst þar, sem hann á aö vera. Smáhrukkur í kringum munninn, sem stafa af þurrki, hverfa á tveimur eöa þremur vikum og sömu sögu er að segja um viökvæmar og sprungnar varir, þær lagast á sama tíma. Fyrir hálfu ári var búist viö, aö selja mætti um 300.000 túpur á einu ári en nú er Ijóst, aö þær veröa eitthvaö á fimmtu milljón. + Efri myndin sýnir varir þar sem litlínan er dálítió óljós en á neöri myndinni heldur litur- inn sér á mottunni ef svo má segja. Framandi menning í framandi landi • Ert þú faédd/ur 1966 eða 1967? • Viltu búa eitt ár í framandi landi? • Viltu auka þekkingu þína á umheiminum? • Viltu kynnast lifnaðarháttum annarra þjóða? • Viltu verða skiptinemi? Umsóknarfrestur er til 7. okt. Opiö daglega milli kl. 14 og 17. Ef svarið er já, hafðu samband viö: á íslandi Hverfisgötu 39, P.O. Box 753 — 121 Reykjavik. Sími 25450. i -íw.UNN NmiTiSKGIlj 2 MARKMIÐ: Tilgangur námskeiðsins er að veita staðgóða undir- stöðuþekkingu í tölvufræðum, en slík undirstöðuþekking er nú orðin nauðsyn öllum þeim, sem í starfi sínu vinna beint eða óbeint við tölvur. Áhersla er lögð á notkun tölvunnar og hvernig hönnun tölvukerfa fer fram og þá möguleika sem not- andinn hefur til þess að auka áhrif sín á skipulag tölvukerf- isins. Jafnframt þessu verður leiðbeint um breytta starfshætti sem fylgja munu tölvuvæðingu. EFNI: — Grundvallarhugtök tölvufræðinnar skýrð. — Ahrif tölvunnar á vinnuumhverfi og starfshætti. — Grundvallaratriði í kerfisfræði; hönnun tölvukerfa. — Notendabúnaður; raunhæf notendaforrit kynnt og æfingar fram- kvæmdar á tollskýrslukerfi/ áætlanaforrit/ ritvinnsluforriL Grunnnámskeið II ásamt fírunnnámskeiði I mynda samstæða heild, sem veitir þátttakendum haldgóða þekkingu um tölvur og notkunarmöguleika þeirrra. ÞÁTTTAKENDUR: Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja öðlast góða þekkingu í tölvufræðum. Æskileg undirstaða undir námskeiðið er Grunnnámskeið I, eða sambærileg reynsla. LEIÐBEINENDUR: l)r. Kristján Ingvarsson, ph.d, verk- fræðingur, lauk prófi frá Northwest- ern llniversity í Bandaríkjunum 1981, en starfar nú við ráðgjafa- og vísinda- störf. Friðrik Sigurðsson, forstöðumaður Tölvufræðslu SFÍ. TIMI-STAÐUR: 26.-29. september kl. 13.15—17.15. Samtals 16 klst. Síðumúla 23, 3. hæð. TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU Í SÍMA 82930 ATH: Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Starfs- menntunarsjóður Starfsmanna ríkisstofnanna greiðir þátttökugjald fyrir félaga sína á þessu námskeiði. Upplýs- ingar gefa viðkomandi skrifstofur. STJÓRNUNARFÉLAG ÍSIANDS isr^.23

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.