Morgunblaðið - 21.09.1983, Qupperneq 22
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1983
V-4
}1 Mansta eftír honum Tota Tr&ffá-Fað<a?>
Hann þénar níincv ÍO mi LL;on'ir cx an'.11
Ast er...
... að firera rið
vaskinn.
tm Reo U.S Pat Off.-all rights reserved
©1983 Los Anoeles Times Syndicate
Ég las það um daginn, að þeir
sem búa á efstu hæðum há-
hýsa sjái tunglið svona í öðru
Ijósi, eins og það er kallað.
HÖGNI HREKKVÍSI
, EINJHV/ERN TÍmA, SoNOf? S'/ELL/AIONT þó
ERFA þETTA ALLT'"
Ljósmynd: Ámi Johnsen
Tízkusýningar á íslenzkum ullarfatnaði eru daglegt brauð og kunnar eru fagrar
uppstillingar sýningarfólks, en þessir fjórir myndarlega hyrndu hrútar virðast ekki
síður kunna að stilla sér upp á listrænan hátt. Myndin var tekin einn rigningardag-
inn fyrir skömmu hjá bænum Hlíð í Gnúpverjahreppi.
Stórkostleg Vestfjarðaferð:
Hrikalegt landslag og
ólíkt öllu öðru á íslandi
Haraldur Ellingsen skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Mig langar til að senda Vest-
firðingum og Vestlendingum kær-
ar kveðjur og þekkir fyrir góðan
beina og móttökur í sumar.
Við fórum um Vesturland og
Snæfellsnes og síðan með Baldri
yfir á Brjánslæk og svo áfram
Vestfjarðahringinn í dásamlegu
veðri 31. ágúst til 4. september.
Fyrst var gist að Görðum í
Staðarsveit, en þar er bæði leigð
gisting á sveitaheimili og síðsum-
ars einnig í gamla bænum. Þar
voru móttökur frábærar og vel út-
ilátinn morgunverður fyrir mjög
sanngjarnt verð. Næst var gist í
Breiðuvík. Þar var áður drengja-
heimili, en nú er þar leigð út gisti-
aðstaða og rúmar heimilið um 130
manns. Er þar mjög gott að vera.
Umhverfið dásamlegt og aðstaða
öll hin ákjósanlegasta.
Er ekki að orðlengja það að
ferðin var stórkostleg og vegirnir
ágætir og ætti enginn að láta þá
aftra sér frá Vestfjarðaferð.
Landslagið er hrikalegt og ólíkt
öllu öðru á íslandi.
Næst var gist á ísafirði og þar
næst á Bæ í Reykhólasveit og er
þar sama sagan, aðstaða ágæt og
viðtökur mjög góðar. Vil ég hvetja
menn til að notfæra sér þá að-
stöðu sem bændur bjóða; menn
þurfa aðeins að hafa með sér
svefnpoka, öll önnur aðstaða er
fyrir hendi.
Hápunktur fararinnar var
heimsóknin að Hvallátrum, en þar
leiddi vitavörðurinn, Ásgeir Er-
lendsson, okkur um staðinn og
sagði okkur allt af létta og bauð
okkur síðan í kaffi og sýndi okkur
stærstu byssu landsins, sem notuð
eru skot nr. 4 í. Að lokum seldi
hann okkur plattann frá björgun-
inni við Látrabjarg, sem víðfræg
er.“
Húsfreyjan f Görðum, Staðarsveit, ásamt börnum sínum tveimur og ánægð-
um sumargestum.
Tveir ferðalangar í Hvallátrafjöru.