Morgunblaðið - 21.09.1983, Page 23

Morgunblaðið - 21.09.1983, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 1983 55 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS „Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra lýsti því yfir á fundi á Patreksfirði nú fyrir helgina, að allmörg fiskiskip væru svo skuldum hlaðin, að þótt allt tryggingarfé þeirra væri greitt út í hönd, nægði það engan veginn fyrir skuldum ... “ Afnám samningsréttar? Skerðing kaupmáttar? Þ.A. skrifar 19. sept.: „Velvakandi. Verkalýðsforystan í landinu er nú að fara af stað með undir- skriftasöfnun meðal launþega til þess að mótmæla „afnámi samningsréttarins“ og „kjara- skerðingu þeirri, sem ríkis- stjórnin hefir leitt yfir þjóðina". Áður en menn skrifa undir þessi mótmæli er rétt, að þeir geri sér grein fyrir, hvað hér er um að ræða. Það er ekki afnám samningsréttar, þótt samning- um sé frestað um nokkra mán- uði, þegar lífsnauðsyn ber til að menn standi saman, en séu ekki að deila sín á milli um þær tekj- ur, sem eru alls ekki fyrir hendi. f síðustu heimsstyrjöld var kosn- ingum til Alþingis frestað í um það bil eitt ár, þar sem ekki þótti fært að standa í illdeilum á slíkum alvörutímum. Engan hefi ég heyrt minnast á „afnám kosningaréttarins" af þeim sök- um. Það er heldur ekki rétt, að rík- isstjórnin hafi leitt yfir þjóðina þá kaupmáttarskerðingu, sem hefir vissulega átt sér stað. Kaupmátturinn, sem ríkis- stjórnin er sökuð um að hafa skert með bráðabirgðalögunum, var nefniiega alls ekki fyrir hendi. Það er hneykslanlegt að heyra menn eins og Ásmund Stefáns- son og Kristján Thorlacius, sem álitnir hafa verið skynsamir menn, tala um, að svo og svo miklar kauphækkanir þurfi til að „ná aftur þeim kaupmætti, sem var á árinu 1982“. Ég er í engum vafa um, að þessir menn vita mætavel, að sá kaupmáttur var falskur og sami kaupmáttur nú væri enn falskari. Við erum einmitt núna að súpa seyðið af þeim falska kaupmætti, sem á undanförnum árum hefir verið haldið uppi, m.a. með erlendum lánum. „Forystumönnum" verkalýðsins væri nær að hvetja menn til að rísa upp gegn þeirri rammvitlausu fjárfestingu, sem allar ríkisstjórnir á undanförn- um árum og áratugum hafa haldið uppi- Steingrimur Her- mannsson forsætisráðherra lýsti því yfir á fundi á Patreks- firði nú fyrir helgina, að all- mörg fiskiskip væru svo skuld- um hlaðin, að þótt allt trygg- ingarfé þeirra væri greitt út í hönd, nægði það engan veginn fyrir skuldum. Ekki veit ég, hvað forsætisráðherrann eða sjávarútvegsráðherra ætla sér að gera í þessu máli, en hitt veit ég, að farsælast væri að leggja þessum skipum, eða reyna að nýta þau á einhvern annan hátt en til fiskveiða. Alþjóð veit, að þessi fiskiskip myndu einungis rýra tekjur annarra fiskiskipa, sem enn er unnt að halda úti, þrátt fyrir vaxandi skulda- bagga. Um fjárfestingu í landbúnaði gegnir sama máli. Nýlega var því lýst í útvarpi, að margir bændur væru stórskuldugir, þrátt fyrir alla þá fyrirgreiðslu °g styrki, sem þeim hafa verið veittir. Einn bóndi kvartaði undan því, að hann skuldaði 5000 krónur fyrir hverja á í bú- inu. Þessum bónda og öðrum, sem líkt er ástatt fyrir, ætti ekki að hjálpa með fleiri styrkjum af almannafé, heldur með því að kaupa af þeim búin og bústofn- inn og gera þeim þannig fært að koma undir sig fótunum í ann- arri atvinnugrein. Það er kominn tími til, að „forystumenn" þjóðarinnar bæði stjórnmálamenn og verka- lýðsleiðtogar, geri sér grein fyrir því, að hagur þjóðarinnar verður ekki bættur með skylm- ingaleik í orðum né keppni eftir hylli umbjóðendanna. Það bætir ekki kaupmáttinn að hækka launin, ef þjóðartekjurnar leyfa það ekki. Það eykur heldur ekki þjóðartekjurnar að bæta við fiskiskipum, ef fiskurinn, sem þeim er ætlað að veita, er ekki fyrir hendi, né að styrkja fleiri bændur til að halda uppi sauð- fjárbúskap á því landi, sem er að verða örfoka vegna ofbeitar, ekki síst þegar á það er litið, að nú, fyrir sauðfjárslátrun, eru í landinu 2000—2400 tonn af óseldu kindakjöti frá árinu 1982, samkvæmt uppiýsingum Gunn- ars Guðbjartssonar, formanns Stéttarsambands bænda. Ef menn vilja teljast forystu- menn, í þess orðs réttu merkingu, þá er ekki nóg að þeir hafi vit til að sjá, hvað rétt er, þeir verða einnig að hafa þor til að viðurkenna það þótt það kunni að koma illa við suma um- bjóðendur þeirra, og síðast, en ekki síst, framkvæma það, sem þeir telja rétt.“ HEILRÆÐI Vegfarendur. Til þess að skapa gagnkvæmt traust í umferðinni, þurfum við að virða umferðarreglur og sýna tillitssemi. GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Ekki eru allir þeirra duglegir. Rétt væri: Ekki eru þeir allir duglegir. Söngfólk Söngfólk Trésmíöafélags Reykjavíkur óskar eftir aö bæta viö fólki í allar raddir. Uppl. gefur formaöur og söngstjóri í símum 74008 og 30807. B>4LL 2000 Kúlutússpenni sem þolir álagið, endingargóður hversdagspenni, sem á engan sér iíkan. Hægt að velja um 4 liti. Fæst í flestum bóka- og ritfangaverslunum. **Artline200 Frábær tússpenni með mjóum plastoddi, sem hægt er að nota við öll tækifæri, léttur og þægilegur í hendi, fæst í 4 litum svart - blátt - rautt og grænt. ’wArtline BRDSTU! MYNDASÖGURNAR Vikuskammtur af skellihlátri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.